Vísir - 30.03.1971, Blaðsíða 3
VISIR . Þriðjudagur 30. marz 1971.
I MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND i MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón; Haukur Helgason:
Manson og „fjölskylda"igasklefann
— Dómur felldur i gær
Charles Manson og þrjár
stúlkur úr „fjölskyldu“
hans hafa verið dæmd til
dauða í gasklefanum. Þau
voru fyrir nokkrum vikum
fundin sek um morð, en þá
var enn eftir að úrskurða,
hvort þau hlytu dauðadóm
eða lífstíðarfangelsi. Nið-
urstaðan hefur nú orðið
dauðadómur.
Hins vegar hafa engar aftökur
átt sér stað í Bandaríkjunum um
nokkuit árabil, svo að ekki er vit-
að, hvað verður um þau. Gæti svo
farið, að bið vrði á því, að dauða-
dómnum yrði fuMnægt.
Margir félagar i hippafjölskyldu
Mansons höfðu hótaö að brenna
sig tffl bana, ef Manson yrði dæmd-
ur til dauða. Þessi ungmenni tóku
þó þögul við úrskurðinum. Fimm
piltar og tvær stúlkur sátu fyrir
utan dómihúsið og höfðu sex þeirra
krúnurakað sig. Þau hafa setið
þama flesta daga, meðan réttar-
höldin stóðu yfir, og aliltaf fullyrt,
að dómurinn mundi valda algeru
stjómleysi og ,,'blóðugri byltingu"
í Bandaríkjunum.
Strangar öryggisráðstafanir voru
gerðar ,eftir að dómurinn var feMd-
ur. Fölk varð að sýna sérstök skír
teini til að komast inn I húsið.
Manson hefur sjólfur oft hótað
morðum og blóðbaði, ef hann yrði
dæmdur til dauöa.
Manson og stóikumar Susan At-
kins, Patricia Krenwinkel og Leslie
Van Houten, em öll sek fundin um
morðin á leikkonunni Sharon Tate
og félögum hennar og La Bianca-
hjónunum. Manson var foringi
hippaflokks, sem bjó á eýðimörk
fyrir utan Los AngeJes og helgaði
iíf sitt dauöa- og kynlffsdýrkun eft-
ir fyrirmælum Mansons.
Það var nótt eina í ágúst 1969,
að flokkurinn brauzt inn í heimili
Sharon Tate og myrti hana ásamt
Abigail Folger, dóttur mill'jónamær-
ings, Jay Sebring, hárskurðarmeist-
ara, Frykowski, sem var kunnur
„playbov" og Stepen Parent. Næstu
nótt bmtust þau inn á heimili dr.
Leno La Bianca og myrtu hann og
Calley áfrýjar dómnum
Gefur tekib ár, áður en endanlegur úrskurður felliir
Lögfræðíngur William Calleys hef-
ur áfrýjaö dómi hæstaréttar, sem
felldur var í gær, þar sem Calley
er sekur fundinn um morð á ótil-
teknum fjölda almennra borgara í
My Lai f Suður-Víetnam. CaHey
var ennfremur sérstaklega fundinn
sekur um að hafa myrt ungbam
í þorpinu. Liðsforinginn 27 ára var
rólegur, þegar dómurinn var les-
inn.
Dómssalurinn var fuMur út úr
dyrum. Þar var fjöldi blaðamanna
frá öllum heimshlutum. Þegar dóm-
GEIRFUGLSSÖFNUN
SPEGILSINS
(ekta geirvifugl eins
og hinn).
Nýir og eldri áskrifendur
Spegilsins eiga nú kost á
að eignast geirfugl, — ef
þeir greiða áskriftargjald-
ið fyrir 12. apríl.
Póstsendið áskriftargjald-
ið eða hringið og látið
sækja það heim til yðar.
« SJÁIÐ
GEIRFU GLINN
í MÁLARA-
GLUGGANUM.
SPEGILLINN
Simi 20865 — Pósthólf 594
arar gengu í salinn stóð CaMey á
fætur og heilsaði að hermannasið.
Clifford Ford.. offursti, formaður
dómsins, heilsaöi Calley og las síð-
an dóminn.
CaHey láifyrfr í íbúð sinnirá Ford
Benning herskólanum, þegar lög-
fræöingur hans skýröi honum frá
því, að dómendur hefðu komizt að
niðurstöðu. Hann klæddist þegar í
staö í hermannabúning sinn og ók
til réttársalarins.
Sagt er, að heilt ár gæti liðið,
áður en búið verður að úrskurða
endanlega í þessu máli. Einn lög-
fræðinga Calleys, George Latimer,
er sagður sérfræðingur í að áfrýja
málum. Hann hefur sagt, að hann
muni koma máli þessu til aimenns
borgaralegs dómstóls og aMa leið
til hæstaréttar, ef þarf.
SPEGILLINN kemur út 10 sinnum á ári —
áskriftargjald er kr. 420.—
Undirrit. óskar að gerast áskrifandi að SPEGLINUM.
Nafn
5.V
Heimilisfang
Staður
SPEGILLINN . Pósthólf 594 . Reykjavík
Ky vill enn ráðast
á Norður-Víetnam
Ky varaforseti Suður-Víetnam hef-
ur enn á ný lýst því yfir, aö Suður-
Víetnamar verði að gera innrás í
Norður-Víetnam til þess að bjarga
þeim tuttugu milljónum Víetnama,
sem búi við ógnarsijörn kommún-
ista.
Eftir því sem Suður-Vietnamar
kynnast velmegun og ríkidæmi, seg
ir hann, verði þeir skuidbundnari
að hjálpa félögum sínum í norðri.
Ky segir, að bað sé skvlda allra
bandamanna, sem berjast gegn
kommúnistum, að gera árás á Morð-
ur-Víetnam.
konu hans. Þau skrifuðu orðið
„svín“ á veggi á morðstöðunum.
Leslie Van Houten var aðeins
dæmd fyrir morðið á La Bianca-
hjónunum.
Dómunum verður áfrýjað.
Manson spáði stjórnleysi og blóðbaði, ef hann hlyti dauðadóm.
HRYLLILEGT
■
BLÓÐBAÐ
Fáar fréttir berast enn frá Austur-
Pakistan og eru þær ósamhljóða,
sem berast. Þó ber þeim saman
um, að borgarastyrjöldin hafi verið
hryllilegt blóðbað og tugir þús-
unda hafi fallið.
Enn var barizt víðs vegar um
landið í morgun.
I
Stjórnvöld segjast hafa öll ráð í Dacca, helztu borg Ausíur-
Pakistan. Myndin sýnir, þegar íbúar Dacca fögnuðu yfirlýsingu
leiðtoga síns, Mujibur Rahmans, um sjálfstæði í byrjun borgar-
styrjaldarinnar.