Vísir - 30.03.1971, Blaðsíða 9

Vísir - 30.03.1971, Blaðsíða 9
VlSIR . Þriðjudagur 30. marz 1971. burðarliðnum Fyrirtækja- lýðræði í Margir aðilar hérlendis stefna nú að aukinni hlutdeild starfsfólks i stjórn fyrirtækja og stofnana tíSRSPW Jón Sigurðsson, skrifstofumað- ur. Mér finnst aö eigendur og framkvæmdastjórar fyrirtækj- anna eigi að ráða. En í opin- berum fyrirtækjum á starfsfólk ið að ráða. Kristinn Halldórsson, hagræð- ingarráðunautur. Tvímælalaust. Við erum langt á eftir frændum okkar á Norðurlöndunum í þess um efnum. Þeir hafa samstarfs- nefndir í fyrirtækjunum. Ég hef kynnzt þessu sjálfur og veit að þetta hefur gefizt mjög vel. Þorgerður Baldursdóttir bókari FeröaskrifstO'fu ríkisins. Sjálf sagt að starfsfólkið fái að ráða. Aukin áhrif hins óbreytta starfsmanns á stjóm fyrirtækisins, sem hann starfar hjá, eru ofarlega á baugi þessa dagana. Forsætisráðherra hefur gert ráðstafanir til þess, að samstarfsnefndum starfs- fólks og stjómar verði komið á fót í einu stærsta fyrirtæki ríkisins, Sementsverksmiðjunni. Sendi- nefnd íslands á Evrópuráðstefnu um fyrirtækjalýð- ræði álítur, að tímabært sé orðið fyrir íslenzka vinnuveitendur og launþega að færa sér í nyt í ríkara mæli en verið hefur reynslu annarra Norður- landaþjóða af fyrirtækjalýðræði. í sendinefnd ís- lands voru fulltrúar bæði frá vinnuveitendum og launþegum og Sveinn Björnsson framkvæmdastjóri Iðnaðarmálastofnunarinnar. Með því að fyrirtækin hafa orðið stærri, hefur sambandið milli starfsmanna og stjómenda orðiö sífellt ópersónulegra. Tillögur um svokallað at- vinnulýðræði eða fyrirtækja- lýðræði hafa komið fram hér á landi fyrir alllöngu. Einstakir þingmenn hafa flutt þingsálykt- unartillögur, sem hafa stefnt að því að atvinnulýðræði yrði auk- ið. Þessar tillögur hafa ekki náð fram að ganga, en nú hefur komist skriður á málið. Margt bendir til þess, að samstarfs- nefndir munu settar á stofn inn- an tíðar í ýmsum opinberum fvrirtækium og stofnunum. Eins konar samstarfsnefndir eða starfsmannaráð hafa starfað áður í áðeins örfáum íslenzkum fyrirtækjum. í samningum Sjó- mannafélags Reykjavíkur og út- geröarfélaga kaupskipa frá i fyrra voru samþ. sérstakar reglur fyrir ''samstarfsnefndir þessara aðila. Þetta mál er þó mjög skammt á veg komiö, samanborið við þaö, sem gerzt hefur á öðrum Norðurlöndum. Þeir, sem til þekkia. virðast á einu máli um, að við getum ekki bvrjað á því stigi, sem önnur Norðurlönd hafa komizt á eftir áratuga reynslu, íslenzka sendinefndin á Evrópuráöstefnunni er einróma þeirrar skoðunar, að með engu móti verðj unnt að hlaupa yfir aðdraganda og þróun, sem þar hefur átt sér stað“. Virðist nefndarmönnum vænlegast til árangurs, að starfið hér verði hafið með samstarfsnefndum í stærri fyrirtækjunum, og fái nefndimar tiltölulega takmark- að verksvið í fyrst.u. sem síðar mætti útvíkka á grundvelli fenginnar reynslu. Eðlilegast væri. að aðilar vinnumarkaðsins ættu hér sjálfir frumkvæðiö. Þekkir alla með nafni“ Vegna smæðar íslands eru að sjálfsögðu færri stórfyrirtæki hér en gerist á öðrum Norður löndum. Öll samskiptj vinnu- veitanda og starfsmanna i ís- lenzkum fyrirtækjum hljót.a að vera persónulegri en á sér stað erlendis. Nefndarriienn benda á, aö í miklum meirihluta íslenzkra fyrirtækja þekki forstöðumaður- inn alla starfsmenn með nafni, og O'ft á tíðum hafi stjórnendur og starfsmenn daglegt sam- neyti um hin margvíslegustu málefni. Hins vegar séu þessi nánu persónulegu samskipti milli æðstu stjórnenda og starfsfólks að hverfa meira eða minna í stórum fyrirtækjum hérlendis og einkum þeim stærstu. Sú þróun muni halda áfram. Nefnd- armenn eru fullvissir, að gott hafi leitt af samstarfsnefndum í fyrirtækjum á Norðurlöndum Það formlega samband eða vett- vangur, sem samstarfsnefndirn- ar hafi verið til að ræða vel- gerðarmál starfsmanna og hags- muni fyrirtækjanna, hafi stuðlað að margvislegum framförum í atvinnulífinu. Hvað er fyrirtækjalýðræði? Rétt er að hafa 'i huga, að menn eiga ekki alltaf við það sama, þegar rætt er um fyrir- tækja- eða atvinnulýðræði. Fer það mjög eftir persónulegri, hagsmunalegri og stjórnmála- legri afstöðu einstaklinga, hvem ið þeir túlka eðli og tilgang fyrirtækjalýðræðis. Stundum er hér aðeins átt við meðáhrif, það er að segja eflingu mann- lega þáttarins í samstarfi stjórnnefnda og starfsmanna í fyrirtækjunum. í öðm lagi er átt við vaxandi þátttöku starfs- manr.a í töku ákvarðaná um rekstur fyrirtækisins, og felst í því pólitísk túlkun á lýðræði í atvinnulífinu Loks geta sumir átt við, að ,,valdið verði smám saman flutt yfir til fólksins", og er þar að vissu marki átt við byltingarkennda þróun. Samningar um samstarfs- nefndir til að gefa ráðleggingar og veita upplýsingar við stjórn fyrirtækja voru gerðir í Noregi árið 1945, í Svíþjóð 1946 og í Danmörku 1947. Alls staðar urðu þessir samningar til við frjálst samkomulag milli heild- arsamtaka vinnuveitenda og launþega I þessum löndum. Veita sömu upplýsingar og hluthöfum Aðalefni samninganna var, að meö ráðfærslu og upplýsinga- skiptum milli stjórnenda og launþega skyldi leitazt við að skapa hagstæð starfsskilyröi Verkefnin í Danmörku Til þess að skýra nánar verk- svið samstarfsnefndanna má nefna, að samkvæmt dönskum málefnasamningi heildarsam- takanna á vinnumarkaðinum, skulu verkefnin vera þessi: 1. Aö örva framleiðni og bæta gæði framleiðslunnar. 2. Að ræða hagræðingarað- gerðir um endurbætur í rekstri. 3. Að fjalla um þjálfun og eftirmenntun starfsmanna. 4. Að fjalla um velferðarmál starfsmanna, öryggi þeirra, ss, - ... -v .............heilbjdgði og atvinnuöryggi. bæði fyrir- fýrirtæki^g' Stárfs—5 örva áhuga starfsmanna ifetri"*fýrirtækjanna með fyrirtækísitw'0#-áð rtforWeWdúr ' upplýsingamiðlun um þróun geti með nánara sambandj við fulltrúa starfsmanna fengið betri grundv til að taka ákvarð anir. í samningunum var sú skylda lögð á herðar stjórnend- um, að þeim bæri að veita sam- starfsnefndunum sömu upplýs- ingar um afkomu fyrirtækja og efnahag og hluthöfunum eru veittar. á hluthafafundum. Þetta fyrirkomulag um sam- starfsnefndir miðast við fyrir- tæki, sem náð hafa ákveðinni stærð. Til dæmis voru sam- starfsnefndirnar í fyrstu miðað- ar við, að fjöldi starfsmanna fyrirtækisins væri ekki færri en 25, ef um var að ræða dönsk eða sænsk fyrirtæki, og 50 í norskum fyrirtækjum. Síðar he' ur þessu verið brejrtt, svo aö nú er miðað við 50 eða fleiri starfs- menn í Danmörku og Svíþjóð og 100 starfsmenn í Noregi. F.kki auí’Svelt að byrja I upphafi var ekki auövelt fyrir þessa aðila, sem áður höfðu nær eingöngu átt form- leg samskipti i sambandi við launa- og kjarasamninca að hefja fyrirvaralaust náið sam- starf. Heildarsamtökin urðu því að stuðla að þróun þessa sam- starfs með upplýsingastarfsemi, leiðbeiningum og beinni þjón- ustu við einstakar nefndir. Svo sem kunnugt er hefur samkomulagið á vinnumarkað- inum yfirleitt verið tiltölulega gott á öðrum Noröurlöndum. meðan sagt er, að íslendingar eigi heimsmet í verkföllum. Frið ur á vinnumarkaðinum heftir auðveldað þróun fyrirtækja lýð- ræðis á Norðurlöndum. Samstarfsnefndir voru árið 1947 500 talsins í Svfbióð. en árið eftír vom hær orðnar 3000 ov árið 1953 voru þær orðnar 3350. þeirra og afkomu, framleiðslu- vandamál, fjárfestingaráfoitn, starfsmannaþarfir og slíkt. Undanfarin 5—6 ár hafa stað- ið yfir i Noregi skipulagðar til- raunir, sem upphaflega beind- ust að því, að fulltrúar starfs- fólks tækju beinlínis sætj í stjómum fyrirtækja. Þessi aðild starfsmanna að stjórn virðist því aðeins gefa góðan árangur, að stjórnunartækni sé f mjög góðu lagi. í þessu tilviki eru gerðar miklar kröfur til starfs- manna að þeir séu skilnings- ríkir á hagsmuni fyrirtækisins og beri gott skynbragð á vanda- málin. Meiri áherzla hefur verið lögð á aðra hlið fyrirtækjalýð- ræðisins, þá að bæta aðstöðuna innan fyrirtækjanna fyrir þátt- töku einstakra starfsmanna ’i því sem fram fer innan veggja þeirra. Þetta hefur verið aðal- vettvangur samstarfsnefnd- anna. Nægir ekki áð taka við skipunum Reynslan er að verða sú hér á landi eins og á hinum Norður- löndunum, að með stöðugt bættri menntun og frjálsræði einstaklinganna í samfélaginu, nægir þeim ekki lengur sem vitsmunaverum að vera stjórnað í einu og öllu ofan frá. Þeir krefj ast þess að verða virkari þátt- takendur í öllu því, er tekur til umihverfis þeirra og daglegs lífs á vinnustað. Margir aðilar hvetja til aukins fyrirtækjalýðræðis hér á landi. Menn eru yfirleitt sammála um, að fara hægt af stað og láta reynsluna dæma. Allra fyrst er nauðsynleg almenn kynning á þessu máli, sem er efst á baugi ekk; aðeins á Norðurlöndum heldur víðast hvar f Vestur- Evrópu og annars staðar, - HH — Teljið þér að starfs- fólk eigi að hafa tneiri áhrif á stjórnu:. fyrir- tækja en tíðkast? Torfi Torfason, kaupmaður. Ég tel að stjórnendur fyrirtækja eigi aö leita ráða hjá starfs- fólki í vissum tilvikum. En ég tel að framkvæmdastjórinn eigi Hinrik Thorarensen, verzlunar- maður. Ég hugsa að það myndi koma betur út efnahagslega, ef starfsfólkið hjá fyrirtækjum fengi að ráða að eihhverju leyti. COOO««« I*

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.