Vísir - 12.05.1971, Blaðsíða 3
VÍSIR. Miðvikudagur 12. maí 1971.
I MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND
RIPPOH „SLO I CtCN"
FYRIR /SLA NDSFERBINA
Viðræðum Breta við EBE miðar vel
Verðlaun fyrir Churchill-
sjónvarpsháttinn
Su&an Hampshire, sem Islendingar þekkaj orðið kvenna bezt úr
sjðnvarpi, hefur fengið Emmyverðlaunin bandarísku fyrir leik-
inn í sjónvarpsþættinum um Churchillættina, sem hér var sýnd-
ur. Sjónvarpsþátturinn var sýndur í Bandaríkjunum eftir að hann
var hér, og naut hann mikilla vinsælda þar. Saga Forsyteættar-
innar var einnig sýnd við miklr vinsældir í Bandaríkjunum eftir
að þátturinn var sýndur í íslenzka sjónvarpinu.
Mikið moldviðri um
danskan atómfræðing
Mál dansks atómverkfræðings
hefur vakið mikla athygli. Hið
hálfopinbera sænska fyrirtæki
ASEA-ATOM ákærði hann í síð-
ustu viku fyrir að hafa stungið
af með teikningar af kjarnakljúf
um, sem hefðu verið „toppleynd
armál“. í sumum sænskum
blöðum hefur þetta verið ka'Mað
„mestu iðnnjósnir í Svíþjóð".
Nú hefur málið fengið nýjan
svip.
Verkfræðingurinn, 33ja ára,
hefur starfað um nokkurt skeið
hjá sænska fyrirtækinu, og á
þriðjudag f síðustu viku bað
ASEA-Atom sænsku lögregl-
una að hafa uppi á- honum.
Hann hafði farið burt 1. maí og
var sagt, aö hann hefði tekið
með sér teikningar.
Verkfræðingurinn mun sjálf
ur ekkert hafa vitaö um, að
hans var leitað, fyrr en á sunnu
dagskvöld, þegar hann heyrði
það í sjonvarpsfréttum. Þá
hringdi hann strax ti'l sjónvarps
ins og sagði, að hann hefði alls
ekki farið í felur. Hins vegar
hefði hann hætt að vinna hjá
fvrirtækinu vegna óánægju með
laun sín.
Síðan gaf hann sig fram við
lögregluna í Glostrup, þar sem
hann býr. Eftir langar yfirheyrsl
ur sáu lögreglumenn ekki á-
stæðu til að handtaka hann.
Saksóknari kom frá Svíþjöð
til Glostrup og yfirheyrði Dan-
I ann. Hann segir, að hér sé ef til
vill um „hversdagslegt þjófnað
armál“ að ræða en ekki neinar
meiriháttar iðnnjósnir.
Auk þess kom í ljós, að ASEA
-Atom hafði í beiðni sinni til
lögreglunnar ,,gleymt“ að skýra
frá þvi, að verkfræðingurinn
haföi gefið fyrirtækinu heimilis-
fang sitt í Danmörku með bréfi
til stjórnar fyrirtækisins. Ver-
fræðingur'nn segir, að teikning
arnar, sem hann hafi tekið meö
sé, hafi aðeins verið hans eigin
vinnuteikningar og séu þær ekki
verðmætar.
Brezki markaðsmálaráð-
herrann Rippon kemur til
íslands í dag eftir „gegn-
umbrot“ á fundi með EBE
mönnum. Mikill árangur
náðist í gær í viðræðum
um aðild Breta að Efna-
hagsbandalaginu. Utanrík-
isráðherrar EBE-ríkjanna
og brezki markaðsmálaráð
herrann Geoffrey Rippon
náðu samkomulagi um skil
yrðin fyrir því, að Bretar
samþykktu kjamorku-
samning EBE, og tilhögun
viðskipta með tólf vöm-
flokka, sem Bretar vilja
flytja inn tollfrjálst eftir að
þeir hafi fengið aðild að
EBE. Mikill árangur náðist
einnig í viðræðunum um
sykurinnflutning Breta frá
samveldislöndunum í Kara
bíska hafinu og landbún-
aðarmál.
Rippon bað um skyndifund í
gærkvöldi. Þar urðu ráðherarnir
sammála um að vinna ötullega
að því að leiða viðræðumar til
farsælla lykta. Rippon og
Umsjón: Haukur Helgason
Rippon markaSsmálaráðherra er
væntanlegur hingað á morgun.
f ranski ■ untanríkisráðherrann
Maurice Schumann voru bjart-
sýni.
Fundurinn bvrjaði v&l og varð
samkomulag um mörg mikilvæg
atriði. Þó urðu deilur um sykur
innflutning Breta. Rippon sagði,
að það mundi baka aðilum tjón,
ef þeir slitu fundi án þess að
hafa rutt burt óhreinindunum í
sykurmá'linu.
Rippon sagði blaðamönnum í
gærkvöldi, að hann væri í aðal
atriðum ánægður með árangur-
inn.
Bandarískum hermönnum í
Evrópu fækkað um helming?
Mike Mansfield foringi
demókrata í öldungadeild
Bandaríkjaþings lagði í
gær fram frumvarp um að
fækka bandarískum her-
mönnum í Evrópu um helm
ing.
Verði frumvarpið samþykkt mun
bandaríska stjórnin um næstu ára-
mót aðeins hafa fé til að hafa 150
þúsund hermenn í Evrópu.
Frumvarpið var borið fram í sam
bandi viö afgreiðslu annars frum-
varps, sem fjallar um tveggja ára
framlengingu á heimild, sem stjórn
in hefur ti'l að kalla æskumenn til
herþjónustu. Þingmenn, sem viija,
að herinn verði eingöngu skipaður
sjálfboöaliðum, hafa hótað málþófi
í umræðum.
Mansfield sagði í ræðu, að her
Bandaríkjamanna í Evrópu sé und
irrót hallans á greiðslujöfnuði
Bandaríkjanna við útlönd. Þessi
halli hafi komið fjármálakreppu af
stað, og sú kreppa hafi verið aðal
orsök þess, að Mansfield flytur
flumvarpiö.
SAMSÆRI HÆGRI SINNA
í ARGENTÍNU
'„stofubyltingu" herforingja, sem
orðnir voru óánægðir með þann
herforingja, sem þeir höfðu
skömmu áður gert að forset*.
Lanusse forseti hefur reynt sættir við
vinstri sinna og Peronista
Víðtækar öryggisráðstaf
anir voru gerðar í gær-
kvöldi í Buenos Aires og
mörgum öðrum borgum í
Argentínu vegna orðróms
um, að samsæri hefði verið
gert til að steypa af stóli
Lanusse forseta og stjórn
herforingja. Sagt er, að 10
yfirmenn í hemum hafi ver
ið handteknir, og lögreglan
leitai' að Eduardo Rafael
Labanca fyrrum herfor-
ingja, sem sagður er for-
ingi samsærismannanna.
Síðustu vikur hefur orðrómur ver
ið á kreiki í Buenos Aires um, aö
hægrí sinnar í hernum séu óánægð-
ir með stefnu Lanusse. Lanusse hef
ur rætt við foringja vinstri sinna
og stuðningsmenn Juan Perons fyrr
um forseta, sem var steypt af stóli
árið 1955 og býr nú í útlegð á
Spáni.
Lanusse herforingi varð þriðji for
seti Argentínu á einu ári í lok marz.
Hann felldi úr gildi bann við starf-
semi stjórnmálaflokka, sem hafði
verið sett, þegar herinn tók völd-
in I júní ‘66 og Arturo Illia forseta
var steypt. Viðræður Lanusse og
innanríkisráðherra hans við vinstri
sinna og Peronista hafa vakið ugg
meðal hægri manna.
Lanusse hefur sagt., aö ekki sé
neitt því tii fvrirstöðu, að Peron
gaml; komi aftur heim til Argen-
hann látinn svara til saka fvrir dóm
tínu, en þó gæti verið að þá vrði
stólum vegna afbrota fyrr á tím-
um.
Lanusse tók völdin í marz með
Forseti Argentínu segir ekkert
til fýrirstöðu, að Peron komi
heim, en hann kynni að þurfa
að koma fyrir rétt.