Vísir - 12.05.1971, Page 7
'VfBPiS:. Miðvrkudagur 12. maí 1371.
7
Þráinn Bertelsson skrifar um kvikmyndin
Svartklædda brúðurin
Sitiómandi: Francois Trul'f-
ant
Handrií Francois Truffaut
og Jean-Louis Richard
Kviktnyndun: Raoul
Contard
AftalWutverk: Jeanne
Moreau, Jean-Claude
Briaiy, Michel Bouquet,
CStarles Denner, Claude
Rieh o. fl.
Frönsk, enskt tal, íslenzk-
ht textí, Tónabíó.
!9©©t«i4M,á-Swr i H'n:
„öng og fögur brúöur stend-
»r við hfið brúðguma sínum á
kirkjubrepinu í frönsku sveita-.
þoirpi, þar sem þau taka á móti
hammgýuóskum vina og aöstand"
enda. Handan við kirkjutorgið
stendur gteti- og veitingahús,
þar sem nokkrir kunningjar sitja
við dryfekju og spH. Einn þeirra
handleikur hlaðinn riffil. Geng-
ur meö hann út að glugganum.
Skyndilega hnígur brúðgum-
inn ungi niður á kirkjudyra-
þrepið. Skotinn til bana. Og
brúðurin krýpur bjá Mki hans.
Það er nokkru siðar, að auð-
ugur maður, Bliss aö nafni, hef-
ur inni boð fyrir fjölda gesta í
einu af glsesilegustu hótelunum
á Bláströnd við Miðjarðarhaf i
tilefni af trúlofun sinni. Meðal
gestanna er ung kona, fögur og
tíguleg, sem hann ber ekki
kennsl á, þegar hún gefur sig
á tal við hann og kveðst þurfa
að ræða við hann einslega. Þau
ganga saman út á svalirnar.
Andartaki síðar liggur hann
dauður niðri á gangstéttinni,
hefur falHð yfir svalahandriðíð
- að því er gestimir halda.
Enn síðar gerist það 'i frönsku
fjallaþorpi, að maður nokkur
sem þar dvelst, kemst í kynni
við unga og glæsilega konu, sem
hann hrífst mjög af og býður
heim til sín. Það er um kvöld,
unga konan er eggjandi í við-
móti og þau setjast að drykkju.
Hann hefur þó ekki lokið úr
glasi sínu, þegar hann hnígur
niður á gólfið, þar sem hann
engist sundur og saman af kvöl-
um og froðan Mtar vit hans.
Unga konan virðir hann fyrir
sér og aö nokkurri stundu Mð-
inni hverfur hún á brott ...
Enn eru myrtir tveir menn,
og er þessi sama, ókunna og
glæsilega kona þar enn á ferð.
Og þótt langt sé á milli þessara
fjögurra manna, þegar hún sæk-
ir þá heim, og ekkert bendi til
neins sambands þeirra á milli.
þá voru þeir einu sinni staddir
saman í gistihússherbergi i Mtlu
frönsku sveitaþorpi við drykkju
og spil, þegar kirkjuklukkurnar
hinum megin við götuna hringdu
til brúðkaups. Reyndar voru
þeir fimm saman. Sá fimmti sá
sem handiék riffilinn ...
Dag nokkurn kemur ung,
glæsileg kona í bílasölu í
franskri borg. og spyr eftir for-
stjóranum. Hann er ekki viðlát-
inn og litlu síðar er honum varp-
aö í fangelsi, þar eð hann er
grunaöur um ólöglegt bílabrask.
Um sama leyti hefur lögreglan
þar hendur í hári ungrar og
glæsilegrar konu, sem grunuð
er um að hafa framið morð
annarri borg. Á meðan frekari
rannsókn fer fram í máli henn-
ar, aðstoðar hún í eldhúsj fang-
elsisins, en þaðan eröllum föng-
unum færður matur í klefana
■þetta er söguþráðurinn í mynd
Truffauts, „Svartklædda
brúðurin“. sem nú er verið að
sýna í Tónabíói.
Það er alltaf akkur i því,
þegar hingað slæðast kvik-
myndir eftir einhverja athyglis
verða kvikmyndagerðarmenn,
en þeim hópi tilheyrir Truffaut
óneitanlega Hitt er svo annað
mál, hvort allar kvikmyndir
hans eru athyglisverðar.
Truffaut er mikill aðdáandi
Alfreðs Hitchcocks, og „Svart-
klædda brúðurin“ er mynd, sem
ber það með sér, að hún er
gerð í anda gamla meistarans.
En það er ekki oft, sem læri-
sveinarnir taka lærimeisturun-
um fram, og ’i þessu tilviki kem
ur í ljós, að Truffaut hefur ekk-
ert gott af því aö bera sig sam
an við Hitchcock.
Að efnj til er myndin ekki
annað en reyfarj og sjaldan
tekst að lyfta henni á hærra
plan. Ýmiss konar smáatriði eru
næsta fáránleg og ósenniieg.
eins og til dæmis er það lítt
trúlegt, að kona, sem hefur heit
ið að drepa fimm menn sé svo
minnislaus að hún þurfi að
ganga með nöfn þeirra í stíla-
kompu og merkja við í hvert
skipti, sem hún stútar einhverj-
um þeirra.
Myndin er í litum, og ákaf-
lega failega tekin, enda sér
Raoul Coutard um þá hlið máls
ins. Leikendur eru og prýðis-
góðir og meira að segja Jeanne
Moreau gamla stendur fyrir
sínu. þótt það sé dáHtið bjá-
kátlegt, þegar hinir leikendurn-
ir eru s'ifellt að falla í stafi yfir
því. hve hún sé falleg — hún
var það einu sinni.
í heild er það um myndina
að segja, aö sem reyfari er
hún sæmilega skemmtileg en
tæpast nógu spennandi, hún er
mjög ve! gerð, en samt hvorki
fugi né fiskur að því leyti til,
að hún er hvorkj æsispennandi
skemmtimynd, né aðdáunarvert
listaverk.
Að lokum má geta þess, að
myndin er ,,döbbuð“, það er
að segja, enskt tal hefur verið
sett inn á hana, en það ætti
að teljast óþarft því að islenzk
ur texti fylgir.
Getum tekið lærling
í blikksmíði. — Breiðfjörðs blikksmiöja hf. Sigtúni 7.
Sími 35000.
Menn vanir
blikksmíöi óskast. — Breiöfjörðs blikksmiðja hf. Sig-
taini 7. Sími 35000.
Að gefnu tilefni
er vakin athygli á því, að skipting lands, t.d. í sumar-
bústaðalönd, er háð sérstöku samþykki hlutaöeigandi
byggingarnefndar.
Bygging sumarbústaöa er eins og bygging annarra
húsa óheimil án sérstaks leyfis byggingamefndar. —
Ef bygging er hafin án leyfis, verður hún fjarlægð
bótalaust og á k.ostnaö eiganda.
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík.
— í Seltjarnarneshreppi.
— í Kópavogi.
í Garðahreppi.
— í Hafnarfirði.
— í Mosfellshreppi.
Oddvitinn í Bessastaðahreppi.
— í Kjalarneshreppi.
Byggingaverkfræðingar
Byggingatæknifræðingar
Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkis-
ins óskar að ráða til starfa verkfræðing og/
eða tæknifræðing með minnst 2ja ára reynslu
við byggingastjórn og eftirlit.
Launakjör samkvæmt samningum ríkisins.
Starfið er fólgið í undirbúningi, umsjón og
eftirliti með byggingarframkvæmdum.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun og
fyrri störf, sendist skrifstofu vorri fyrir 22.
þessa mánaðar.
1$ i NNKÁUPASTOFNUN BORGARTÚNI7 SÍMI 10140 RÍKISINS ' » 1 ■
Verkamenn
Viljum ráða tvo verkamenn í sementsaf-
greiðsluna. >
)
Sementsverksmiðja ríkisins
Ártúnshöfða. — Sími 83400.
Afgreiðslusfarf — j
i
Söluturn j
Rösk og ábyggileg stúlka ekki yngri en 20 ára
óskast til afgreiðslustarfa í Söluturninum Bar
ónsstíg 27, vaktavinna.
Uppl. í síma 81842 í kvöld kl. 19—21, ekki á
staðnum og aðeins á ofangreindum tíma.
Meiraprófsbílstjóri
Vanur meiraprófsbílstjóri óskast til að aka
leigubifreið, reglusemi áskilin. j
Umsóknir ásamt upplýsingum um fym störf
sendist augl. Vísis merkt „Áreiðanlegur bíl-
stjóri“. I