Vísir - 19.05.1971, Page 4
V í S IR . Miðvikudagur 19. maí 1971,
i
V erkstæðismenn
Viljum ráða 2 vana verkstæðismenn. Uppl.
í síma 40530.
VÉLTÆKNI HF.
HELAVÖLLUR
í kvöld kl. 20.30 leika
Fram — Þróttur
Dómari: Einar Hjartarson
Línuv.: Guðm. Sigurbjömsson
og Jón Hermannsson
Mótanefnd
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboöum í frágang lóðarinnar
ar Grensásvegi 52—60, Reykjavík. Útboðs-
gögn fást afhent í teiknistofu Þorkels G.
Guðmundssonar, Hrauntungu 35, Kópavogi,
gegn 500 kr. skilatryggingu.
. - . ' ' ' ‘! $
IKalið kostaði
18 milljónir nyrðra
Kai í túnum hefur undanfar-
in ár verið mikið vandamál, —
og á síðasta ári kostaði það
18 milljónir króna fyrir norð-
lenzka bændur, — þ.e. það sem
Bjargráðasjóður veitti bændum
Ií harðærislán vegna kalskemmd
anna. Óbeiiit tjón er vitanlega
mun meira. Sjö hreppar nyrðra
hafa ekki tekið nein lán vegna
kalskemmda, en mest hefur far
ið til bænda í Ljósavatnshreppi,
2 milljónir króna. Víða er deilt
á lánaaðstoð þessa meðal
bænda og kalla sumir þetta bú-
skussaverðlaun að sögn norðan
blaðsins Alþýðumaðurinn.
Leiklistarskólinn
20 ára í dag
■ | I dag minnast þrír leikarar
\ i þess að 20 ár eru liðin frá þeim
■, tíma er þeir útskrifuðust úr
'' Þjóðleikhússkólanum, fyrstu
; i nemendur þess skóla. Þetta
• [ voru þau Gerður Hjörleifsdótt-
] i ir, Margrét Ólafsdöttir og Valdi
; I mar Lárusson. Ellefu af rúm-
!1 lega 30 sem þreyttu fyrsta inn-
tökuprófið, komust inn f skól-
ann. en þessi þrjú útskrifuðust
þegar næsta vor vegna sérlega
góðrar frammistöðu. Alls hefur
skólinn útskrifaö 77 leikara, 69
þeirra hafa stundað leiklist
meira eða minna eftir að skóla
lauk. 27 þeirra starfa við Þjóð
leikhúsið, 6 hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, en margir úti um
land sem leikarar og leikstjór-
ar.
Kristniboðið vant-
aði 400 þúsund til
að ná endum saman
Islendingar halda uppi tölu-
verðu kristniboði erlendis. ekki
sízt í Konsó. Gengislækkanir
urðu þess valdandi að útgjöld
í^lenzka trúboðsins tvöfölduð-
ust, á síðasta ári kostaði það
2,7 milljónir að reka kristni
boðsstöðvarnar, — vantaði 400
þúsund krónur upp á að endar
næöust saman hjá Kristniboðs-
sambandi íslands, sem rekur
stöövarnar í Eþíópíu. Reksturinn
er kostáður af frjálsum framlög
um ýmissa einstaklinga. Gjafir
í desember-febrúar sl. námu
414 þús. krónum. Og árangur
starfsins? 525 manns voru tekn
ir í söfnuðinn i Konsó á síðasta
ári, þ.e. skirðir eða fermdir,
voru þá 1681 i söfnuðinum um
áramótin, nemendur í bama-
skóla stöðvarinnar voru 226 tals
ins bar af aðeins 28 stúlkur.
I sjúkraskýli stöðvarinnar eru 17
rúm, en sjúklingar sem nutu
aðhlynningar á síðasta ári voru
samt 18.748.
Túnfisksala
stöðvuð
Sala á túnfisktegund einni var
nýlega stöövuð, — kvikasilfurs
innihald hennar reyndist 0,95
mg/kg. en mörkin í Bandankj
unum og Kanada er 0,5 mg/kg,
enda þótt helmingj meira magn
sé leyfilegt t.d. í Sv’iþjóð og
Japan, Ákvæði vantar annars
hér á landi um þetta efni og
sala túnfisksins var stöðvuð
vegna vinsamlegrar afstöðu inn
flytjandans. Borgarlæknisemb-
ættið lét ffamkv. rannsókn á
túnfiskinum, sem fæst í fjöl-
breyttu úrvali f verzlunum borg
arinnar. — en jafnframt voru
tekin sýni af ýsu, þorski og
heilagfiski. Var þetta gert um
áramótin síðustu, en niðurstöð-
ur liggja fyrst nú fyrir.
* | fttybní>qq6»i K .
Yfirleitt eigum við þvf að
venjast að bygginganfram-
kvæmdir standi árum saman, —
jafnvel áratugum saman. Þar
sem fé og fyrirhyggja er fyrir
hendi, eins og hjá Loftleiðuin,
þar tekur þetta skemmri tíma
og fasteignirnar fara að ávaxta
sig fyrr en ella. Þessar fcvær
myndir eru dálitið sögulegar. Sú
minni vaj- tekin fyrir rúmu ári,
þá var gapandi grunnurinn þas:
sem nú stendur hin glæsilega
viðbótarálma Loftleiðahótels-
ins. Byggingamefndin er á
myndunum.
FYRIR ÁRI — Erling Aspelund, hótelstjóri, Ólafur Júlíusson, byggingafræðingur, Þorvaldur Dan-
íelsson, byggingafulltrúi Loftleióa, Þóröur Kristjánsson og Þórður Þórðarson, verktakar, og Stefán
Ólafsson, verkfræðingur.
hefur lykifinn oð
betri afkomu
fyrirtœkisins....
.... og viS munum
oSstoða þig viS
aS opna dyrnar
aS auknum
viSskiptwm.
I /s//f
Auglýsingadeild
I DAG
Erling, Ólafur, Þorvaldur, Þórður Kr. og Þórður Þ., og Finnbjörn Þorvaldsson, skrifstofustjóri Ixrftleiða.