Vísir - 19.05.1971, Blaðsíða 5

Vísir - 19.05.1971, Blaðsíða 5
VÍlS IR . Miðvikudagur 19. maí 1971- Þiír nýliðar eru í norska Jandsiiðinu gegn íslandi vca'ða brír nvlióar i norska hafði verið með. en tveir heirra illa — ns meira að sect í»að vtrða þrír nýliðar í norska landsliðlnu sem leikur gegn íslandi í Bergen hinn 26. maí næstkom- andi, liðið var valið seint i gærkvöldi. Enginn atvinnumaður verður í liðinu eins og reiknað hafði verið með, en tveir þeirra Odd Iversen og Harald Sunde léku í gær með belgíska liðinu Racing Mecelen einmitt á leikvelli Brann í Bergen, þar scm landsleikurinn verður háöur og stóðu sig heldur Ný holukeppni hjá Golfklúbbi Ness Á laugardaginn hefst undanrás í nýrri holukeppni hjá Golfklúbb Ness og koinast 32 keppendur í framhaldskeppni. Keppnin hefst kl. 3. e. h. og verða leiknar 18 holur V höggleik með forgjöf. Keppt verður um veglegan farandbikar úr krystal, sem Vladimir Bubnov sendiráðsrit- ari við séndiráð Rússa hér í borg hefir gefið tíl keppninnar, og er ætiunin að keppnin fari svo fram árlega í framtíðinni. Framhaldskeppnin verður holu- keppni méð útsláttarfyrirkomulagi, og verður hún ieikin með forgjöf. Leiknar verða 4 umferðir til úr- slita og munu þessar umferðir taka tvær vikur. Þetta er fyrsta holukeppni kiúbbs ins með svo mörgum keppendum í framhaldskeppni og er óskað eftir því að sem fiestir keppendur mæti til leiks. V. Bubnov hefir verið meðlimur klúbbsins í tvö ár, og 'er þetta annar keppnisgripurinn sem klúbbn um hefir verið gefinn af erlendum aðiia, en f fyrra gaf M. Hadden aðmíráil skjöld ’i hina árlegu keppni erlendra sendiráðsmanna og íslenzku utanrikisþjónustunnar. illa — og meira að segja var Iversen kippt út af í síðari hálf- leik. Norska landsliðið var valið eftir leikinn í gærkvöldi og verður þannig skipað. Per Haftorsen, Fredrikstad, Per Pettersen, Frigg, Finn Thorsen, Hamar-kameratane, Frank Oiafsen, Skeid, Sigbjörn Slinning, Víking, Olav Nielsen, Víking, Thor Wæhl- er, Frigg, Thor Egil Johansen, Skeid, Jan Fuglset, Fredrikstad, Amfinn Espesebh, Brann og Tom Lund, Lilleström. Varamenn verða Geir Karlsen, Rosenborg, Robert Nilsson, Fred- rikstad, Arild Helteöen, Brann, Trygve Bomö, Skeid og einn mið herji verður valinn síðar. Flestir þessara leikmanna komu til ís- lands í fyrrasumar og léku þá landsleikinn á Laugardalsvellinum, sem ísland vann með 2—0. Eins og áður segir verða þrír nýliðar í liðinu þeir Thor Wæhler frá Osló-liðinu Frigg, Thor Egil Johansen, frá öðru Oslóliði, Skeid og Tom Lund frá Lilleström. —hsím. George Best er ekki alltaf í slæmum félagsskap í glaumi skemmtanalífsins. Jlér ræðir hann við Har- old Wilson, fyrrum forsætisráðherra Bretlands. Norður-írar unnu Skota í gærkvöldi Finni kastar spjóti langt Finnar eignuðust í gærkvöldi enn einn spjótkastara, sem kastar yfir 80 metra. Á móti ’i Grankulla kast aði Leo Pusa 81.94 m, sem er sex metrum betra en hann hefur kast að áður. Á sama mótj kastaði Juhani Tuomola kringlu 59.90 m. Þriðji leikurinn í brezku keppninni var háður í gærkvöldi og komu Norður-Irar þá mjög á óvart og sigruðu Skota 1—0 á hinum risastóra Hampdenleik velli í Glasgow. Eina markið í leiknum var sjálfsmark Greig, fyrirliða Rangers og framvarðar Skotlands á 14. mín. leiksins. En leikurinn var skemmtileg- ur og þó áhorfendur hefðu ekk- ert annað fengið að sjá en George Best í írska liðinu þá var það aðgangsins virði. Best var hreint ótrúlega góður og virtist alls - staðar á vellinum — hann birtist á marklínu sem bakvörður, framvörður og fram herji og skozku leikmennirnir fengu nóg að gera að elta hann um völlinn. Skotarnir sóttu mjög síðari hluta leiksins, þegar Irar reyndu að halda forskoti s'inu, en markvörður irlands, Pat Jennings var mjög góður, svo og Arsenal-bakverðirnir Rice og Nelson. Lið íra var eingöngu skipað leikmönnum frá ensku liðunum, nema útherjan- um Hamilton frá Linfield. Nokkrar breytingar voru á skozka liðinu frá leiknum viö Wales sl. laugardag. Greig lék í stað Billy Bremner, Curran, Úlfunum, korri í stað Robb og í s. h. Jarvie, Ardrie, í stað John O’Hare. Frank McLintock, Arsenal, fór út af, þegar nokkr- ar mín. voru eftir og kom Frank Munro, Úlfunum, í hans staö sem miðvörður ékozka liðs ins. Irar skiptu einnig um leik mann undir lokin, David Craig, Newcastle, kom í stað McMor- die. Skotar hafa nú aðeins eitt stig eftir 2 leiki í keppninni, svo það verður ekki neinn úr- slitaleikur við England á laugar dag. Byltinghjá RAMSEY Landsliðseinvaldurinn enski, Sir Alf Ramsey, valdi í gær enska landsliðið, sem leikur gegn Wales BENT LARSEN EKKIÁNÆGÐUR á Wembley í Lundúnum. og gerði^ heldur betur breytingar á liði sínu ekki færri en álta. frá landsleiknum við Norður-íra..Tveir nýliðar leika sinn fyrsta landsleik, Tony Brown, WBA, og Larry Lloyd, Liverpool, en fyrirliði liðs ins verður Martin Peters, Totten- ham, sem kemur þarna í stað Bobby Moore, sem ekki var val inn í liðið að þessu sinni. Liðið verður þannig skipað. Þiiir Bent Larsen og Wolfgang Uhliman hafa teflt þrjár skákir í einvígi sínu á Palma. Þriðja skálkin fór í bið og úrslit voru ekki kunn, þegar blaðið fór í premtun. Bent vann þá fyrstu — lUhlman þá næstu og um þá sksnk segir Bent Larsen: ;,Önnur skákin var því miður nálcvæm eftirlíking á hinni fyrstu — en nú var það Uhl- ma.n, sem náði frumkvæðinu, en égj, sem varðist illa. Austur- þý.zki stórmeistarinn fórnaði peHi, sem ég hefði átt að gefa aftur á þann hátt, að skákin hefði jafnast. En í stað þess að gera það gaf ég hvítum tæki færi á sterkari sókn gegn stöðu minni, og vann svo eftir sem áður peðið til baka. Síðan kom leikflétta hjá Uhlman, hann vann peð og átti unnið enda- tafl. Þessi skák var ekki vel tefld af mér og gremjulegast kannski að missa hina sálra^nu þýðingu, sem bað hefur að vinna fyrstu skákina i einvíginu. Staðan er nú 1—I og mér gremst það.“ Peter Shilton, Leicester, Chris Lawjer, Liverpool, Terry Cooper, Leeds, Tommy Smith, Liverpool, Larry Lloyd, Liverpool, Emlyn Hughes, Liverpool, Francis Lee, Manch. City, Tony Brown, WBA, Geoff Hurst. West Ham, Ralph Coates, Tottenham og Martin Pet- ers, Tottenham. Þeir, sem misstu stöður s’inar auk Moore voru Banks, Stoke, Madeley, Leeds, McFarland, Derby, Storey, Arsenal, Clarke, Leeds, Chivers, Tottenham og Ball, Ever- ton. Sir Alf hefur aldrei fyrr gert svo róttækar breytingar á landsliðinu frá því hann tók við því fyrir átta árum — en senni- lega er hann aö hvíla leikmenn fyrir átökin við Skota á laugardag eftir hið erfiða keppnisttmabil sem flestir þessara leikmanna hafa átt f vetur. —hsím. Pressuleikur annað kvöld Noregsfararnir — \sem leika landsleikinn við Noreg 26. maV — mæta á morgun pressuliði, sem íþróttafréttamenn völdu í gær og verður leikurinn á Melavellinum. Þarna ætti aö fást góður mæli- kvarði á getu landsliðs okkar í keppni við þá „næst beztu“. Pressu’iðið verður þannig skipað, talið frá markmanni að vinstri út- herja. Sigurður Dagsson, Val, Sig urður Indriðason. KR, Baldur Scheving, Fram, Marteinn Geirs- son, Fram, Sigurbergur Sigsteins- son, Fram, Skúli Ágústsson, Akur- eyri, Jón Sigurðsson. KR, Berg- sveinn Alfonsson, Val, Baldvin Baldvinsson, KR, Kristinn Jörunds són, Fram og Sveinn Trvggvason. Véstmannaeyjum. Varamenn veröa Einar Guð- leifsson, Akranesi, Jón Hermanns- son, Ármanni, Eiríkur Þorsteins- son, Víking og Biörn Ái'nason, KR. Leikurinn hefst kl. 8.30 og lands Iiðið verður skipað þeim mönnum, sem fara til Noregs, en nöfn þeirra birtust hér á síðunni í gær. Larry Lloyd — fyrsti landslefkurinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.