Vísir - 19.05.1971, Page 8

Vísir - 19.05.1971, Page 8
VISIR . Miðvikudagur 19. mai 1971. Otgefandí: KeyKJaprem nf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfuiitrúi: Valdimar H. Johannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3b Simar 15610 11660 Afgreiösla- Brðttugötu 3b Simi 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 llnur) Askriftargjaid kr. 195.00 á mánuöi innanlands r lausasölu kr. 12.00 eintakið Prentsmiöia Visiss — Edda hl. Friðsöm barátta ]\ú er kominn 19. maí og skammt eftir til alþingis- kosninganna. Þær verða að þessu sinni háðar 13. júní, eftir hálfa fjórðu viku. Undirbúningur stjómmála- flokkanna er fyrir löngu kominn í fullan gang. Kosn- ingaskrifstofur hafa verið opnaðar og fundahöld eru hafin. Að svo miklu leyti sem séð verður er þessi undirbúningur með venjulegum hætti. Hann er alls ekki umfangsmeiri né kostnaðarsamari en áður. Enn er frekar hljótt um hina opinberu kosningabar- áttu. Það sést bezt á dagblöðunum. Venjulega eru slagorðin og upphrópanirnar komnar í fullan gang á þessum tíma; einkum í málgögnum stjórnarandstöð- unnar. Stórar fyrirsagnir með háværri gagnrýni hafa yfirleitt byrjað að einkenna forsíður þessara blaða mörgum vikum fyrir kosningar. Svo er ekki í þetta sinn, þótt einstöku sinnum bregði slíku fyrir. Vonandi er þetta merki um, að stjórnmálin á íslandi hafi þroskazt. Án efa skilja nú margir forustumenn stjórnarandstæðinga, að gagnrýni er því aðeins áhrifa- mikil, að hún sé réttmæt. Gamli söngurinn um móðu- harðindi af mannavöldum og aðrar kenningar af því tagi ná ekki til eyrna fólks. Það er einfaldlega ekki hægt að teljá fólki trú um, að lífskjör þess og efnahag- ur þjóðarinnar hafi hríðversnað undanfarinn áratug. Svo einfaldur er almenningur ekki. ' Hinn hvelli og móðursjúki tónn er á undanhaldi í stjómmálaskrifum. Honum bregður einstöku sinnum fyrir, enda er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. En í heild em deilurnar um stjórnmálin í þetta sinn mun raunsærri en áður. Þetta kann auðvitað að breyt- ast, þegar nær dregur kosningum og kappið verður forsjánni yfirsterkara. En hinn stillti tónn yfirgnæfir um þessar mundir. Hvaða tilgangi þjónar líka að vera með svartagalls- raus á þvílíkum uppgangstímum, sem nú em? Hvaða tilgangi þjónar að segja allt vera á hverfanda hveli, þegar raunar hefur verið skapað nýtt ísland á aðeins einum áratug? Að minnsta kosti verða kjósendur ekki blekktir. Þetta skilja margir stjórnarandstæðingar nú og vilja því fremur ræða um markmið og leiðir í stjómmálum framtíðarinnar. Friðsemin í kosningabaráttunni byggist meðal ann- ars á því, að það er tiltölulega lítið, sem aflaga hefur farið í þjóðmálunum á undanförnum árum. Þjóðin hefur sigrazt á margvíslegum erfiðleikum. Hún býr við traustan gjaldmiðil í samanburði við fyrri tíð og traust efnahagslíf, sem ekki er sömu sveiflum háð og áður var. Og hún hefur jafnframt aflað sér lífskjara, sem eru í samræmi við þessa velgengni. Um þetta þýð- ir ekki lengur fyrir stjórnarandstæðinga að deila. Þess vegna geta alllr stjómmálaflokkar snúið sér ao skynsamlegri umræðuefnum. Þeir geta deilt um mismunandi leiðir inn í framtíðina og um misjafnlega hæfa menn til að hafa forustu á leið þjóðarinnar. Þess vegna getur baráttan nú verið þroskaðri en áður. Sá sem Sadat fyrst rak: Sabry, varaforseti Egyptalands. Sabry var sérlega hliðhollur Rúss- um, og sótti þá oft heim. Á myndinni spókar hann sig með loðhúfu meðal rússneskra Sadat kemur sér fyrir Umsjón: Haukur Helgason MIKIÐ GENGUR Á fyrir Anwar Sadat í Egypta- landi þessa dagana. Fyrir 2 dögum kom hann fram í sjónvarpi í Kaíró og þrumaði í 85 mínútur yfir bBHHH þjóð sinni, hafði þá rétt áður rekið hermálaráð- r-v r-r\ nr?[nTir\ rT? herra sinn út í hafsauga. Ekki var Sadat þó tryggari /?\p vj IjiJ /Ji /?\A 1 í sessi en svo, að hann lét trygga hermenn standa alvopnaða allt um kring útvarpsstöðina, ef ein- hverjum líkaði ekki ræðan og vildi grípa fram í fyrir honum. Sagði Sadat í ræðunni, að ekki hefði dugað ann- að en að setja Mohammed Fawsi, hermálaráðherra í stofufangelsi og einnig nokkra félaga úr Sósíalista bandalaginu, eina leyfða stjórílmálaflokknum í Egyptalandi. . ...- , Um nóttina komu þingmenn saman í þjóðþing- húsinu og héldu neyðarfund. Var á þeim neyðar- fundi samþykkt að reka 18 þingmenn af þingi, svipta þá rétti til þingsetu, þeirra á meðal þing- forsetann, eftir því sem sú hálföpinbera frétta- stofa „Middle East Agency“ skýrði frá. Þegar þingið hafði svo hreins- að til innan veggja sinna, tóku „þjóðhollir“ þingmenn sig til að lýsa stuðningi við allt það sem Sadat kynni að taka sér fyrir hendur, þ. e. a. s. ef gerð- ir hans miðuðu að þvi að frelsa þjóðina, koma á almennilegum lögum I landinu og hressa upp á herinn, eftir því sem Karíó útvarpiö sagöi. Einnig skýrði út varpið frá því aö útvarpshúsið væri að fyllast af heillaóska- skeytum til Sadat alls staðar af Egyptalandi og reyndar víðar að. Eftir því sem Sadat sagði sjálf ur í ræðunni sem hann flutti á sunnudaginn, mátti ekki tæpa.ra standa með að hann gripi til aðgerða, þ. e. ef marka skal orð hans, en hann sagði aö mót blástur gegn sér hefði ver- ið orðinn svo sterkur, „að jaðr- aði við samsæri". Auk þeirra 7 ráðherra sfttn Sadat rak, sögðu 5 upp störíum, en alls voru í stjórninni 32 ráðherrar. Sadat hefur nú skipað eitthvað af prófessorum og öðrum skólá- mönnum í lausu stöðurnar, nema hvað Sadek verður her- málaráðherra og Salem innan- rikisráðherra. Stuðningur granna Leiðtogar Súdans, Libyu og Sýrlands flugu til Kaíró þegar eftir að Sadat haföi hreinsað til í ríkisstjórninni og lýstu yf ir eindregnum stuðningi við framferði hans. Voru ekki nema fáeinir klukkutímar liðnir frá því ráð- herrarnir fréttu um stöðumiss- inn, að leiðtogar voru komnir í heimsókn með yfirlýsingar um stuðning. Libya og Sýrland eru með Egyptalandi í Arababanda- laginu, en Súdanir hafa farið fram á að fá aö vera með í þVi félagi. 1 útvarpsræðu sinni auglýsti Sadat „frjálsar kosningar" sem hann kallaöi svo, og myndu þær fara fram einhvem tíma í framtlöinni. Kosningar þess- ar fara að sjálfsögöuaöeinsfram innan eina stjórnmálaflokksins sem leyfður er, og kvaðst Sadat í ræðu sinni ætla að verða „hræðilega grimmur“ viö þá sem hugsuðu sér að svindla í kosningunum. Segulband undir rúmi Segulband var falið inni i einkaherbergi Sadats, að hans eigin sögn í útvarpsræðunni, og fann hann tækið inni hjá sér með því að nota sérstakt elek- trón’iskt þefunartæki, en nokkr- ir ráðherra hans höfðu komizt á snoðir um að vera kynni að eitthvað gruggugt væri á seyði kringum Sadat, og létu þeir hann vita. Þá fór Sadat að leita að tækinu — og fann það. Sagði hann að 2 fyrrum ráöherr- ar hjá honum, þeir Gomaa og Sharaf hefðu komið tækinu fyr- ir f herbergi sínu í Repúblikana- höllinni. Gomaa viröist hafa veriö nokkuð áhrifaríkur maður inn- an stjórnarinnar gömlu, aö minnsta kosti sögðu ráðherr- arnir 5 af sér, er þeir fréttu um að Gomaa hafði verið sparkað. „Og þeir héldu að Egyptaland myndi hrynja sundur“, sagði Sadat, ,,en þegar í stað höfðum við myndað nýja rfkisstjóm, settum bara í staðinn prófessora og tæknimenntaða menn. Sumir þeirra eru mjög duglegir menn sem land okkar hefur mikla þörf fyrir“. Og auövitað voru andstæð- ingarnir málaðir eins dökkum Anwar Sadat heldur ræðu sfna. litum og frekast var kostur. „Þetta voru óheiöarlegir stjórn- málamenn”, sagði Sadat, „sem notuðu þá vitaskuld óheiðarleg brögð“. Ekki vildi hann skýra frá því hverjir hefðu verið fangelsaðir, en sagði aðeins: „Lögin og rétt- irnir munu sjá tii þess að rétt- lætinu verði framfylgt“. — OG

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.