Vísir - 22.06.1971, Qupperneq 8
V í SIR. Þriðjudagur 22. júní 1971.
Otgefandi: Keyklaprem ot.
Framkvæmdastióri: Sveinn R Byjötfsson
Ritstjóri ■ Jónas KristjánssoD
Fréttastjðri Jón Birgir Pétursson
Ritstlórnarfulltrúi Valdimar H. löhannessoD
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar Bröttugötu 3b Simar 15610 11660
Afgreiðsla Bröttugötu 3b Slmi 11660
Ritstiön ■ Laugavegi 178 Slmi 11660 fS llnur)
Askriftargiald kr 195.00 ð mánuöi innanlands
t lausasölu kr. 12.00 eintakiö
Prpntsmiöia Vtsis — Edds ht
Þunglamaleiki
Myndun nýrrar ríkisstjórnar eftir kosningarnar virð-
ist ekki ætla að verða neitt áhlaupaverk. Það sem
er í uppsiglingu, en ný vinstri stjóm. Og slík stjóm
virðist ekki vera auðmynduð. Það tók viku að ná
saman fundi stjórnarandstöðuflokkanna, og þá höfðu
fulltrúar eins flokksins ekki enn fengið umboð til að
ræða um eitt né neitt.
Tregða Hannibalista getur ekki byggzt á því, að
erfitt hafi verið að ná þingflokknum saman. Það vom
einmitt tveir af þremur utanbæjarþingmönnunum, er
mættu fyrir Hannibalista áfyrstaviðræðufundivinstri
flokkanna. Tregða þeirra byggist á djúpstæðum efa-
semdum sumra forustumanna flokksins um, að hætt-
andi sé á stjórnarsamstarf með kommúnistum.
Þannig fór fyrsti viðræðufundurinn út um þúfur og
annar fundur er ekki boðaður fyrr en á föstudaginn
kemur. Þá fyrst fæst svar við því, hvort þessir þrír
flokkar, Fíamsókhárflókkúrínn, Alþýðubandálágíð og
Hannibalistar geta hafið viðræður um málefnasamn-
ing og stjórnarmyndun. Þetta er auðvitað ekki vænleg
byrjun, enda sendir Þjóðviljinn Hannibalistum tón-
inn út af seinlætinu.
Stjórnarkreppan mun því að minnsta kosti standa
í tvær vikur eftir kosningar. Slíkt þætti hvarvetna
annars staðar ótrúlegt í ljósi þess, að stjórnarandstað-
an fékk hreinan og starfhæfan meirihluta í kosning-
unum. Þar við bætist, að líkur eru á því, að það taki
nokkurn tíma að ganga frá málefnasamningi og velta
ráðherraembættunum á milli. Stjórnarkreppan gæti
því hæglega staðið í nokkrar vikur, þótt myndun
vinstri stjórnar yrði niðurstaðan.
Það eykur á vanda vinstri flokkanna, að forustu-
flokkur vænf''v>legrar vinstri stjómar er í tiltölu-
lega veikri aðsto^ kosn,r»o.r. Framsóknar-
flokkurinn tapaði veruiegu fylgi í kosningunum og
missti einn þingmann í kjördæmi hins væntanlega
forsætisráðherra. Framsóknarflokkurinn verður því
ekki eins áhrifamikill í stjórnarmynduninni og æski-
legt væri af forustuflokki nýrrar rfkisstjómar.
Forustumenn Framsóknarflokksins hafa því minni
styrk en ella til að setja niður deilur þær og úlfúð, sem
örugglega rís milli Hannibalista og Þjóðviljaffðsins,
sem stjórnar Alþýðubandalaginu. Báðir þessir hópar
líta á sig sem sigurvegara í kosningunum og era ekk-
ert áfjáðir í að láta Framsóknarflokkinn, flokk á nið-
urleið, segja sér fyrir verkum.
Og meðan ráðamennirnir þjarka, bíður þjóðin og
bíður. Flún á þá réttlátu kröfu, að vinstri stjórnin, ef
af verður, starfi ekki jafn-þunglamalega og viðræð-
urnar gefa vísbendingu um. Þjóðin á ekki skilið ríkis-
stjóm, sem er svo upptekin af innri vandamálum
sínum, að hún nái jafnvægi í núlll
Flugfélögin berjast. Lengst til vinstri auglýsir BOAC ferðir fyrir ungt fólk fyrir 16.700 kr.
Alitalia býður upp á litlu meira alla leiðina til Rómar — Pan Am tilkynnir Evrópuferðir fyrir
9.240 kr. og svo framvegis.
Fargjaldastríðið í Atlantshafsfluginu:
Upphafið að endalokum IATA?
,Loftleiðir harðast úti'
Segja má að Loftleið-
ir hafi „lifað á“ því að
selja farmiða yfir Atl-
antshafið ódýrara en
önnur flugfélög. Loftleið
ir hafa ekki verið aðilar
að hinu alþjóðlega flugfé
lagasambandi IATA (Int
ernational Air Transport
Association). Félagið hef
ur þyí ekki verið háð skil,
málum þessa „hrings“
um fargjöld og annað.
Loftleiðir hafa selt mið
ann um 100 dölum, eða
8—9000 krónum ódýrar
en IATA-félögin. Nú er
byrjað fargjaldastríð
milli flugfélaga, magn-
aðra en áður hefur
þekkzt. Þetta setur Loft-
leiðir óneitanlega í veru
lega hættu.
,SamIokustríðið“
IATA hefur verið við lýði f
aldarfjórðung. Nú eru 103 flug-
félög i sambandinu, Stundum
hefur samkomulagið verið erfitt,
tii dæmis geisaði fyrir áratug
svokallað „samlokustr'ið", þeg-
ar mörg flugfélög Evrópu urðu
fyrir því aðkasti frá keppinaut-
unum, aö þau veittu ókeypis
smurbrauð, sem samsvaraði
fullri máltíð. Þetta töidu keppi-
nautarnir að væri brot á samn-
ingum IATA-félaganna.
Aðrar sakargiftir eru til
dæmis að veita ókeypis bjór al-
mennum farþegum og óheiöar-
Ieiki í auglýsingum, Þetta eru
allt smámunir hjá þvl stríði,
sem hófst f sumar. Raunar á
striðið langan aðdraganda. En
fyrir skömmu brauzt út upp-
reisn margra flugfélaga
rígskorðuöum ákvörðunum
hringsins um fargjöid yfir
Atlantshaf.
Ríkisfélagið Sabena reið
á vaðið
Stríðið hófst með raiklu
kapphlaupi flugféiaga að lækka
fargjöld fyrir ungt fólk. Frá
þessu hefur verið sagt I fréttum
að undanförnu, svo og þeim
vanda, sem það hefur bakað
Loftleiðum. Kapphlaupið um
íækkun fargjalda fyrir ungmenni
vakti strax spár um lækkun á
almennum fargjöldum yfir At-
lantshaf — fyrir fólk á öllum
aldri.
Tvö af stærstu félögunum,
Pan American og Air Canada,
gáfu í skyn, að þau mundu
ekkj hika við að brjóta IATA-
isfregluf>‘JÍJllc,'r *
Fyrst kom belgíska ríkisflug-
félagið Sabéná. Það tilkynnti,
að frá og með 1. júni, gengju í
gildi sérstök lág fargjöld fyrir
^túdenta undir þrítugu á leiö-
inni milli New York og Briissel.
mimmii
m mm
(Jmsjón: Haukur Helgason
Ákvörðun félagsins var einhliða.
Nýju fargjöldin éru rúmar 19
þúsund krónur báðar leiðir, sem
er lækkun um 30 þúsund
krónuf frá venjulegum almenn-
um fargjöldum, samkvæmt
tímaritinu Newsweek. Sabena
hafði fært sér í nyt ,,gat“ í
reglum IATA, þar sem segir, að
sé flugfélagi fyrirlagt af rikis-
stjórn að hafa sérstök fargjöld
fyrir ákveðna hópa, þá sé flug-
félaginu heimilt aö gera það.
Þetta olli gremju annarra flug-
félaga í IATA, Foimaður Air
France, Pierre Cot, sagði: „Við
höfðum beðið Sabena að endur-
skoöa afstööu su'na, en við bú-
umst ekki við, að félagið geri
það, og þá munu önnur félög
fylgja fordæmi Sabena".
önnur félög fylgdu fordæmi
Sabena, hvert á fætur öðru.
17.503 krónur Róm—
New York Mðar leiðir
Pan Araerican og Trans
World Airlines lækkuðu far-
gjöld sín á sama hátt og Sabena
hafði gert. Air France gekk síðan
enn lengra og bauð upp á ferðir
milli Parísar og New York, báö-
ar leiöir, fyrir 17.600 krónur
fyrir stúdenta. British Overseas
Airways Corporation (BOAC),
þýzka félagið Lufthansa og hið
hollenzka KLM slógust í þessa
skrúðfylkingu ungmenna. Air
Lingus banð lægst fargjöld frá
írlandi yfir Atlantshaf, 15.840
krónur báðar leiðir, á öörum
tima en háannatímanum. Metið
átti hins vegar hið ítalska
Alitalia, sem bauð ferðir hina
löngu leið frá Róm til New
York, 8500 mflna ferð, báðar
leiðir, fyrir aðeins um 17.500
krónur, fyrir farþega milli 12
og 26 ára. Fulltrúi Alitalia
sagði, að þessi ráðstöfun hefði
verið tekin vegna hinnar hörðu
samkeppni fremur en að hún
ætti rætur í heilbrigðu mati á
arðsemi.
Newsweek segir, að
Loftleiðir tapi mestu
Áhlaup flugfélaganna beindist
aðallega að leiguflugi, en náms-
fólk og aðrir hafa í sívaxandi
mæli notfært sér það og fengið
miklu lægri fargjöld á þann
hátt. Nú buðu flugfélögin jafn-
vel betri kjör en menn höfðu
vanizt þar. Bandaríska ttaiaritið
Newsweek segir, að Loftleiðir
hafi orðið fyrir mestum skakka-
föllum. Þar hafi menn komið að
„tómu húsi“ í síðustu viku,
meðan slegizt hafi verið inn far-
miðana I afgreiðslum flugfélaga
skammt frá,
Ennþá er ekkj séð, hversu
mikið fargjöldin lækka og hve
mjög lækkunarinnar muni gæta
um almenn fargjöld. Þetta er
eitt vandamáliö, sem liggur
fyrir næsta fundi IATA, sem
verður í Montreal 28. þessa
mánaðar. Pan American og Air
Canada hafa látið að því liggja,
að þau mun; lækka fargjöld fyr-
ir alla aldursflokka farþega.
Ráðagerð þessara flugfélaga
beinist að þVi, að menn fái veru-
legan afslátt af verði, ef þeir
greiði fargjaldið þremur mánuð-
um fyrir ferðina.
Takist þessum tveimur flug-
félögum ekkj að fá félaga slna í
IATA til að fallast á þessi sjón-
armið, láta þau að því liggja,
að þau muni framkvæma lækk-
unina hvort sem er.
Þetta gæti verið upphafið á
endalokunum fyrlr IATA.
(Byggt á grein I slðasta hefti
bandarlska tímaritsins News-
week).