Vísir - 08.07.1971, Blaðsíða 2
Beverley Kelly, 16 ára stefnir til Frakklands. Hún synti kr öftuglega í fyrstunni, ailt þar til kuldinn í sjónum varð
henni yfirsterkari — og svo var hún líka svo hrædd við marglyttumar.
Berir menn í Ermarsundi
— nektardýrkendur reyndu að synda yfir
sundið, en urðu að gefast upp á miðri leið
&
Stirling Moss missti
ökuleyfiö
Sú fræga kappaksturshetja,
Bretinn Stirling Moss missti öku
leyfiö um daginn.
Var ökuleyfiö tekíð af honum
til sex mánaöa þar sem hann
teföi þrisvar sinnum s. 1. ár ver
ið gripinn við aö brjóta umferð-
arreglur gróflega.
Moss hefur fyrir nokkru hætt
þátttöku i aksturskeppnum, en
hann varð 10 sinnum Bretlands-
meistari í hraðakstri og tvisvar
sinnum var hann næstur því að
hreppa heimsmeistaratitii. Þegar
iöggan gómaði Moss um .laginn
í þriðja sinn, var hann svo ó-
þeppinn aö vera að aka framúr
bíl, þar sem veginum var skipt
með óslitinni hVitri línu. Þar er,
sem menn vita, bannað að aka
framúr — og þótt Stiriing kunni
þá list vel, þá fór jila fyrir hon-
um 1 þetta skiptið, þar sem sá
sem hann ók framúr, var lögreglu
maöur — reyndar á frívakt og
akandi eigin bfl, en lögga samt
og hann kæröj Moss, Hann var
sektaöur um 16.000 ísl. krónur
og leyfið tekið.
Moss var hress þrátt fyrir öku-
Jeyfismissinn, sagöi bara: „Þetta
merkir sko ekki, að mér sð að
fara aftur sem ökumanni“.
V
Kcðjubréf með
nýju sniði
Keðjubréf eru, eins og allir
vita, því eölj búin, aö bréfakeðj-
una má ekki slíta. Heldur má
ekki birta opinberlega innihald
þeirra. Samt sem áður ætlum
viö hér aö opinbera innitoáld eins
keöjubréfs, sem í urnferð er og
borizt hefur blaðinu. Vissulega
eigum við þá yfir höföi okkar
bölvun Faraóanna, eins og segir
í bréfinu, en við látum slag
standa:
„Kæri herra: i hreinskilni sagt
þá er þetta keðjubréf. Ólíkt flest
um ÖÖrum keöjubréfum, þá kost
ar þetta enga peninga. Sendu
bara afrit af þessu bréfi til 6
kvæntra kunningja þinna, sem
eru allir ámóta þreyttir á l'if-
inu. Síöan skaltu vefja konunni
þinni inn í böggul og senda hana
tii mannsins sem skráður ér
efstur á listann og bæta síðan
þínu eigin nafni neöst á list-
ann. Þegar þitt nafn kemst efst
á listann, muntu fá sendar
16.459 konur, og einhverjar þeirra
hljóta að vera glaðværar.
Taktu þetta bréf bókstaflega
og trúðu á áhrifamátt þess, þá
mun vel fara.
Slittu ekki keðjuna — annars
muntu leiður verða!
Arundel J. TThwaith í Sydney
1 ÁstraMu sieit keöjuna og fékk
sína konu senda aftur!
í einlægni - gööur vinur.“ «
Þau eiga allan heiður skilinn
fyrir sanna hugprýði og ákveðni.
En einbeitnin og hraustleikinn
nægðu þeim ekki að þessu sinni
til áð þau gætu synt allsber yfir
Ermarsund. Kuldinn tók í taum-
ana og hrakt; þau upp úr sjónum
og um borð í bátinn.
Það geröist um daginn í Bret-
landi, að hópur ungra nektardýrk
enda ákvað að synda ýfir Ermar-
sund í Evu- eða Adamsklæöum eft
ir atvikum. Markmiöið var númer
eitt að afla fjár til góðgeröar-
starfsemi og í öðru lagi aö setja
heimsmet: Enginn hefur enn synt
allsber yfir Ermarsund, a. m. k.
ekki svo vitað sé.
Hingað til höföu sexmenning-
arnir beru aldrei synt annars
staöar en i ylvolgu lauginni í Wat
ford í Herts, þannig aö Ermar-
sundið hefur kannski komið þeim
nokkuð á óvart.
\ '
Rauð af kulda
Þau skelltu sér í sjóinn við Dov
er, og fyrstur stakk sér foringi
þeirra, John Newman, slökkvi-
liösmaður á bezta aldri. Hann var
einbeittur á svip þegar hann stóö
á bakkanum og spyrnti sér í fögr-
um boga út í sjóinn. Hann var
ekki alveg eins einbeittur þegar
hann rak trýnið upp úr öldunum
og skrækti: Það er helv... kalt!
Næstur stakk sér 19 ára gamall
sölumaður, Nigel Lacey — og
hann lét sig engu skipta hæðnis-
legar athugasemdir félaganna, en
þeim fannst sem hann væri und-
arlega fölleitur yfir lendarnar.
(Lendarnar á sölumanni þessum
voru reyndar orðnar rauðleitaT
þegar hann gafst upp 'fyrir kuldan-
um).
Og þá kom hin 16 ára Beverley
Kelly, sem í upphafi hafði ekki
áhyggjur af kulda, heldur mar-
glyttum. Þá stakk sér Sean Hayes
15 ára stráklingur og á eftir hon-
um Charles Green, 16 ára og loks
yfimuddari sundkappanna, Shar-
on Poole.
Ekkert heitt að drekka
Þau stungu sér í sjóinn áður
en almenningur í Dover fór á stjá
en um það leyti sem sólin kom
upp, voru allir sundkapparnir
farnir að skjálfa innilega af kulda
og dauðlangaði að vippa sér upp
í bátinn. Vont fannst þeim líka að
foringi leiðangursins hafði alveg
steingleymt aö taka með sér að
heiman eitthvað heitt aö drekka.
Þegar Charles hinn ungi haföi
þrjózkazt við kuldafaðmlög ægis-
dætra var hann dreginn upp í
bátinn og vafinn innan i öll til-
tæk ullarteppi.
Beverley varð önnur til að gef-1
ast upp: Mér varö allt í einu kald
ara og kaldara", sagöi hún, „og
á endanum fann ég ekki lengur
fyrir því að ég hefði útlimi“.
Sundþraut þessi endaði rétt í
þann mund, sem þeim hafði tek-
izt aö svamla hálfa leiðina. Og
þar sem þeim hafði þó tekizt
að komast svo langt, ákváðu þau
aö sigla áfram, þannig að enginn
gæti á eftir sagt að þau hefðu
aldrei komizt iil Frakklands. Rétt
áður en þau tóku land viö Cap Cris
Nez, skelltu 4 allsberir kropp-
ar sér í sjóinn og reyndu að
svamla í land — en þá tók ekki
betra við. Strandvörður einn,
franskur, sá til feröa þeirra og
kom stormandi niður í fjöruna
með vasabók á lofti. Ekki vildu
beru mennirnir lenda í klónum á
honum, svo þau sneru við og
fóru aftur upp í bátinn,
„Við urðum öll fyrir vonbrigð-
um með ferðina“, sagði foringinn,
iNewman, slökkviliðsmaður eftir á,
„krakkarnir reyndu allt hvað þeir
gátu til aö komast yfir. Okkur
hafði veriö lofaö 170 pundum alls
fyrlr sundið, tækist okkur að kom
ast yfir. Viö vonum núna að við
fáum helminginn af þessu fé, þar
sem við komumst þó hálfa leið“.
John Newman varð að fá aðstoð við að komast upp úr jökul-
köldum sjónum.
AU-PAIR
stúlka óskast til skozkrar fjölskyldu með 2 börn, frá
byrjun september. Eigiö herbergi. Svar sendist til
Mrs. R. Ross
104 Beech Avenue
Newton Mearns
Glasgow, Scotland