Vísir - 08.07.1971, Blaðsíða 13

Vísir - 08.07.1971, Blaðsíða 13
V í S IR . Fimmtudagur 8. júlí 1971 13 Óbyggðaferðir frá 10.900 kr. til 15.800 kr. Þrjár ferðaskrifstofur segja frá ferðum Cumir útlendingar hafa séð meira af íslandi en íslend ingar sjálfir. Sérstakiega hafa þeir verið duglegir viö að koma sér í fjallaferðir. — Með vaxandi ferðamannastraumi tii landsins hefur ferðafélögum, sem annast slíkar ferðir fjölgað. Nú er þvi' um nokkur þeirra aö ræða. Segja má að hægt sé að komast meö þessum ferðafélög- um á flesta staði landsins. — Ferðirnar eru skipulagðar þann ig að margt má sjá á tiltölulega skömmum tíma. Þægindin í þess " "" "" s sw vf \ í .. \ \ ' v, \\ \ \ . vj j%\ osíw \ |i um ferðum hafa aukizt og þarf fólk varla að leggja annað til en fötin sem það klæðist. — íslendingar hafa verið í minni hluta í þessum ferðum fram að þeseu — en það er enn ekki oröið of seint að panta sumar- leyfisferð um óbyggðir þótt mik ið sé bókað í sumar ferðimar og fullt í nokkrar. /^uðmundur Jónasson er með ' J þrjár tegundir ferða. — 10 daga ferðir, 12 daga ferðir og 13 daga ferðir. Lagt er til fæði Þaö er náttúran hrein og ómenguö, sem heillar ferðamanninn í óbyggðum. •mf r. // ‘ ’/ ijj og tjöld. 10 daga feröin kostar 12.750, 12 daga ferðin 14.500 og 13 daga ferðin 15.800 krónur. Böm f fylgd með fullorönum fá afslátt eftir samkomulagi. 1 tíu daga ferðinni er fariö frá Reykjavík norður Sprengi- sand að Mývatni, Heröubreiðar- lindum, Öskju, Hallormsstað og um Austfirði, Hornafjörð, Öræfa sveit og flogið til Reykjavíkur frá Fagurhólsmýri. f hinum ferð- unum er farið enn víöar um ó- byggðir og byggðir. j Ijkrðaskrifstofa Úlfars Jakob- sen er með tvenns konar ferð ir, n'iu dága hringferð um land- M $ I jí ý'- n . , ið og 12 þrettán daga feröir og er fullbókaö í sjö þeirra. Ferðaskrifstofa Úlfars leggur til fæði, tjöld og allan viðlegu útbúnað, svefnpoka og vindsæng ur. Níu daga ferðin kostar kr. 10.900 fyrir manninn en 13 daga feröin 14.000 kr. Börnum innan tólf ára aldurs er gefinn helmings afsláttur. 1 níu daga feröina er farið frá Reykjavík um Þingvelli, Gullfoss og Geysi, um Kaldadal tíl Borgarfjarðar og Ólafsvíkur, Blönduós, Dalvík, Mývatn, Breið dalsvík, Höfn í Hornafirði og flogið til Reykjavíkur. I þrettán dag^ ferðinni er farin Sprengi- sandsleið og 'tíl baka um Kjöl og viðkoma. á ýmsum öðrum stöðum á leiðinni Landmanna- laugum, Eldgjá, Þórsmörk o. fl. \ ndrés Pétursson stendur fyr ir feröum, sem hann nefn ir þjónustuheitinu „Arena Tours“. Hægt er að panta í þær ferðir hjá Feröaskrifstofu Zoega. Þrjár þrettán daga ferð ir eru á dagskrá f sumar og eru þær allar eins. Ferðin kost ar 14.500 fyrir manninn. Ferða fólkið þarf aö leggja til svefn- poka. í ferðinni er eldhúsbill eins og hjá hinum ferðaskrif- stofunum en auk þess annar blll, sem er tvískiptur en þar er snyrtideild — auk þess er séð fyrir svefnbekkjum í tjöld. Leiöin liggur frá Reykjavík um Sprengisandsleið með við- komu á mörgum stöðum í ó- byggð, um Mývatnssveitina, fyr- ir Tjörnes til Akuréyrar, Siglu- fjarðar, Skagafjarðar og um Kjöl, Gullfoss og Geysi, um Kaldadal í Börgarfjörð og til Reykjavíkur. Þessi feröafélög hafa það sam eiginlegt að faafa heita máltíð á kvöldin, aðalmáltíð dagsins, morgunveröur og hádegisverð- ur eru kaldir. ■—SB Hvers vegna aö leita langt yíir skaaunt? Borðstofuhúsgögnin fáið þér hjá okkur UIU Sími-22900 Laugaveg 26

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.