Vísir - 08.07.1971, Qupperneq 7
¥!|íí R. Fimmtudagur 8. jon rari
7
cTMenningarmál
Ólafur Jónsson skrifar um lelklist:
Handa ferðafólki
Feröaleikhúsið:
KVÖLDVAKA 1971
An Icelandic entertainment
by Molly Kennedy
Directed by John Femald
Tjað er £ sjálfu sér smellin hug
tnynd sem framfleytt er i
Glaumbæ í sumar eins og i
fyrra: þjóðleg fsienzk skemmti-
dagskrá, á ensku, handa erlend-
um ferðamönnum í Reykjavík.
Má ætla að þetta fyrirtaeki Ferða
leikhússins hafi hlotið bæri-
legar undirtektir í fyrrasumar
úr því að þráðurinn er nú tekinn
upp að nýju. Og það má ætla
að margur útlendur gestur geti
haft að minnsta kosti stundar-
gaman af feomu í Glaumbæ ef
ekki neinn nytsaman fróðleife né
annað gagn.
Hvað er þá ,,1'slenzk kvöldvaka"
að hætti Ferðaleikhússins?
Kvöldvaka er að sögn leikskrár-
innar hefðbundin íslenzk
skemmtun, iökuð allt frá vík-
ingaöld og fram á þennan dag —
„a hearth-side evening of songs
and stories and readings from
tíhe Icelandic sagas“. Samkvæmt
þessari ífiormúlu er uppistaða
dagskrárinnar í Glaumbæ þjóð-
sagnaefnis, upplestrar og frá-
sagnir í samtalsformi og svo-
nefndur þjóðlagasöngur, aukið
meðal annars glefsum úr ferða-
bókum Dufiferins og Hendersons
frá öldinni sem leið. Molly
Kennedy hefur tekið saman og
þýtt efni kvöldvökunnar og virð
ist þaö mjög lipurlega unnið
verk. en endanlegur mælikvarði
á efnisval er vitaskuld hversu
það notast hinum erlendu áhorf
endum. í ár er efni kvöldvök-
unnar lítillega breytt og aukið frá
því sem var í fyrra, og orka a.
m.k. sumar viðbætur tvímælis,
langur kafli úr Sögum Rann-
veigar eftir Einar Kvaran, sem
á víst að vera tii marks um
sveitalVf á öldinnj sem leið, og
atriði úr Lénharði fógeta. ÞaÖ
er sjálfsagt vandasamt að velja
efni úr seinni tíma bófemenntum,
kannski ráölegast að einstoorða
fevöldvöfeuna við hið foma og
þjóðlega, en reyndar er af nógu
áheyriiegu efini að taka ef menn
viíja. En mergurinn V dag-
skránni er annars vegar Hreið-
ars þáttur heimska hins vegar
sagan af djátonanum á Myrká,
og auðvitað enginn svikinn í þvi.
■pMytjendur dagskrárinnar eru
þau Kristin Magnús Guð-
bjartsdóttir og Ævar Kvaran í
ár eins og í fyrra, en Ieikstjóri
er enskur, John Femald. Virð-
ist allt kapp við að gera flutn-
inginn sem léttastan í vöfum og
' ekki nema gott um það að segja
— hversu sem mönnum falla á-
kefðarlegir tilburðir og fram-
sögn fllytjenda og ýmiskonar
fyndnisviðleitni þeirra sín í
miffi, mikið túristatai um „vik-
inga“þó þeir hafi akirei verið til
á íslandi. Þjóðlagasöngur þriggja
ungra manna í milliatriði er
hins vegar raunalega lélegur,
sem er skrýtið þar sem nóg mun
vera um ungt fóik sem iðkar
slíkan söngflutning. En sannleik
urinn er auðvitað sá að til að
slik skemmtun sem þessi takist
til hlítar þyrfti meiri liðsafla
til sýningar, meira úrval efnis,
meiri tilbreytni í flutningi — í
stytztu máli sagt meiri tilkostn
að og fyrirhöfn en vera mun á
valdi Ferðaleikhússins. En þá
væri líka vegur að bjóða erlend-
um gestum upp á markverða
kynningu íslenzkrar leiklistar
og bókmennta á kvöldvökum
sem þessum.
Þar fyrir er engin ástæða til
að vanþakka frumkvæði og fram
tak Perðaleitohússins sem allténd
eykur þætti í fábreytt skemmt-
analíf Reykjavíkur um ferða-
mannatímann.
Hin nýja stjórn Vinnuveitendasambands íslands, talið frá vinstri: Gunnar J. Friðriksson, Kristján
Ragnarsson, Ingvar Vilhjálmsson, Jón Bergs, Óttarr Möller, Sveinn Guðmundsson og Barði Frið-
riksson, framkvæmdastjóri sambandsins.
NÝTT FRÁ
Húsgaqnaverzlun Reykjavíkur
Hjónarúm á sökkli m/ lausum náttborðum. Auk þess
12 aðrar gerðir í mismunandi viðartegundum
HÚS GAGNAVERZLUN REYKJAVÍKUR
Braiuarholti 2 — Sími 11940
Jón Bergs kjörinn
form. Vinnuveit-
endasambandsins
Jón Bergs, forstjóri Sláturfélags
Suðurlands var á mánudaginn var
kjörinn formaður Vinnuveitenda-
sambands ísilands. Baðst Benedikt
Gröndal undan endurkjöri á fyrsta
stjórnarfundi sambandsins. Einn-
ig baðst Ingvar Vi'lhjálmsson, áður
varaformaður, undan endurkjöri. —
Benedikt hefur setið í 37 ár í fram
kvæmdastjóm sambandsins. Stjórn
Vinnuveitendasambandsins ér skip-
uð 40 mönnum, sem síðan kjósa
fnamkvæmdastjóm, sem er þannig
skipuð: Jön H. Bergs, formaður,
Óttarr Möller, forstjöri Eimskipafé
■lags íslands, varaformaður, Gunnar
J. Friðriksson, forstjóri Frigg, Gunn
ar Guðjónsson, forstjóri og stjórn
arformaður SH, Ingvar Vilhjálms-
son útgerðarmaður, Kristján Ragn
arsson formaðuir LÍO og Sveinn
Guðmundsson, forstjóri Héðins.
ALLIR í LÍF-
EYRISSJÓÐUM
í marz sl. skipaði Magnús Jónsson
fjármálaráðherra nefnd sem kanna
skyldi hverjir starfshópar eru enn
utan iífeyrissjóðakerfisins og gera
tiMögur um það, með hvaða hætti
hagkvæmast væri að tryggja þeim
aðild að lífeyrissjóðum. Niðurstaða
nefndarinnar varð sú, að raunhæf-
asta leiðin mundi að setja lög um
iífeyrissjóð með skylduaðild fyrir
þá, sem ekki eru í öðmm sjóðum,
er fullnægja ákveðnum lágmarks-
skilvrðum. Þá telur nefndin að rétt
sé að heimiit verði framvegis sem
hingað til að stofnsetja nýja lífeyr
issjóði.
VEL HEPPNUÐU
LEIKÁRI ER LOKIÐ
Hvort sem það er þrátt fyrir
sjónvarpssamkeppnina, — eða
vegna hennar, þá er það stað-
reynd að leikhúslíf hefur sjald-
an eða aldrei verið í öðrum eins
blóma með okkar þjóð og ein-
mitt nú. Leikári Þjóðieikhúss-
ins Iauk um mánaðamótin, —
vel heppnuðu leikárj meira að
segja. Leikárinu luku þeir Þjóð
leikhússmenn með leikför, —
sýndu Sólness byggingameistara
15 sinnum á Norður- og Austur-
landi. Leiksýningar urðu alls
230 í vetur hjá leikhúsinu og að
sókn með eindæmum góð. — I
æfingu í vor voru tvö leikrit,
Höfuösmaðurinn frá Köpernick,
þar sem Árni Tryggvason fær
aldeilis að njóta sín í ósviknu
gamanlilutverki, og Alit i garö
inum eftir Albee.