Vísir - 12.07.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 12.07.1971, Blaðsíða 1
Víkingar nútímans • Það var ekki spurt um haffæmisskírteini á dögum Eiríks • rauða og Ingólfs Amarsonar, — en í dag heimta yfir- • völd í Bergen allan útbúnað í Gauksstaðaskipið, sem • leggja átti upp þaðan. — Annar nútíma víkingur er á • baksíðunni í dag, — Daninn Tholstrup, sem kaus að • fara um borð í Brúarfoss, rétt eins og Maraþon-hlaupr • ari, sem fær að sitja aftan á vörubílspalli hluta úr leið. • SJÁ BLS. 16. NÝ RÍKISSTJÓRN Stefnt að brottflutningi hersins i áföngum Forseta Islands væntanlega afhentur ráðherralistinn i dag Þríflokkarnir hafa nú komið saman málefna- samningi og samningi um skiptingu á ráðuneyt inn milK flokkanna. í málefnasamningi flokk- anna, sem ekki lá á lausu í morgun er m.a. gert ráð fyrir brottflutningi vam arliðsins í áföngum og svo að sjálfsögðu út- færslu landhelginnar í 50 mílur 1. september 1972 eins og flokkarnir gerðu ályktun um á síð- asta Alþingi. Nýja ríkisstjórnin p'tur þannig út: Frá Framsóknarflokknum, ÓI- afur Jóhannesson, forsætisráð- herra, Einar Ágústsson, utanrík isráðherra, Halldór E. Sigurðs- son, fjármálaráðherra. Aulc þessa hefur Framsóknar- flokkurinn fengið dómsmálin og Iandbúnaðarmálin, en ekki hefur verið ákveðið enn, hverjir þess ara þriggja manna taka við þeim málaflokkum. Frá Alþýðubandalaginu: Lúð- vík Jósefsson, sjávarútvegs- og viðskiptamál, Magnús Kjartans- son iðnaðar-, heilbrigðis- og tryggingamál. Frá Samtökum frjálslyndra Og vinstri manna: Hannibal Valdimarsson, félags og sam- göngumál, Magnús Torfi Ólafs- son, menntamál og Hagstofa íslands. Þar sem forseti feíands var norður í landi í morgun, hefiur honum ekki verið afhentur miáll efnasamningur hinnar nýju rik- isstjórnar Oig samkomulagið um skiptingu náðuneytanna milli flokkanna þriggja, en búast má við, að Ólafur Jóhannesson gangi á fund hans seinnipart- inn í dag eða í fyrramálið. —VJ, HH Cassius Clay sigraði ríkis- stjórnina Mál Caissiusar Clay, — eða Múhameðs Ali, og herstjórnar Ðandarikjanna vakti mikla at- hygíli. Margir telja, að þessi sið- asti sigur meistarans sé hans stænsti. — Sjá bls. 8 12-15 punda laxar áberandi — veiðimenn fengsælir Laxirwi virðist emkar gráðugur í sumar eftir því sem veiðimála- stjórhm, Þór Guðjónsson, tjáði VŒsi í morgun. „Stór lax er orðinn nokkuð á- berandi, mikið af þeirri veiði sem Veiðimálastof n un i n hefur haft spumir af, er 12 — 15 punda lax- ar, en samt sem áöur virðiist sem smálax sé strax farinn að ganga nokkuð í ámar.“ Þurrkar drógu nokkuð úr veiði á tímábili, en nú hefur rignt duglega víða um land, þannig aö vatnsmagn ánna hefur aukizt og aðstæður verða betrj fyrir laxinn að ganga 7. júlí vom 385 laxar komnir á land úr Laxá í Kjós og þann 3. júlí vom 227 komnir á land úr Miðfjarðará — hafði Veiðimála- stofnunin engar fréttir af aflabrögð um nýrri en þessar en Þór Guð- jónsson sagði að á veiðimönnum væri að heyra að veiðj væri óvenju góð. —GG Rigningin getur orðið þrálát Hún var á leið til vinnu sinnar í morgun þessi, —- og regnhlífin kom loks í góðar þarfir. Stúlkan heitir Katrín Ólafsdóttir og við sáum á eftir henni inn á skrifstofu Eimskip. (Ljósm. Ástþór) — mesta úrkoma i nótf i meira en mánuð „Þetta getur orðið þrálátt, jafnvei einhverjir dagar, við sjáum ekki fyrir endann á því“, sagði Knútur Knudsen veður- fræðingur um veðrið í morgun. Reykvíkingar vöknuðu upp við gamalkunna sjðn í morgun, rign ingu og dumbung eftir að hafa verið dekurböm veðurguðanna um langt skeið. 1 nótt mældist úrkoman níu miíllimetrar, sem er mesta úrkoma í Rfsykjavik á einni nóttu í a. m. k. nærri því einn og hálfan mán- uö. 1 nótt var meiri og minni úr- koma á svæðinu allt vestan Eyja- fjarðar, vestur og suður til Vestur Skaftafellssýslu. Mest rigndi að jafnaðj í Reykjav’ik á þessu svæði. Veðurstofan spáir hægfara breyt- ingum á veörinu á Suðvesturiandi og Vestfjörðum en betra veðri fyr ir austan. —. SB Sonur Bourguiba bjargaði Hassan — Sjá bls. 3 Tveir stórir sigrar — og ósigrar Óvænt lúrslit urðu í 1. deild- innj um heilgina — tvö lið, sem talin voru sterk á swellinu, Akra nes og Valur, urðu að bíta _í það súra epli að tapa fyrir and- sitæðingum sínum með geysileg um mun. Senniilega hefur það verið hvað súrast fyrir Vals- menn að tapa á heimaiveiMi með 0s5 fyrir Akureyringum, sem iléku þá sundur oig saman. HalH- ur Símonarson segir frá viðburð um helgarinnar í íþróttunum á bls. 5 og 6. Eiittibvað hefur Boggi blaðamaður Mka að segja ofckur um knattispyrnuna. — Sjá bls. 12 Hvar eru mestu hættuslóðir umferðar- innar ? Það er staðreynd að sumir staðir i umferðinni eru öðrum hættuilegri. Þannig er Miklatorg sérlega hættulegt, — það á metið í umiferðaróhöppum á síð ast ári. Tíu „vinsælustu" á- rekstrahomin í borginni eru talin upp 1 grein á bls. 10, — þar er rætt við Guttorm Þormar um aðgerðir til að fækka slyis- um. Sjá bls. 10 Tvær stærstu heimsfrétt- irnar reynd- ust gabb Það merkilega geröist um helg ina, að tvær stærstu heimsfrétt- irnar reyndust gabb. Fyrri ffétt- in var, aö Hassan konungur í Marokkó hefði verið myrtur, og vissi heimsbyggðin ekki annað um langt skeið. Kom i Ijós, að uppreisnarmenn höfðu tekið út- varpsstöðina I Rabat, höfuðboig Marokkó, og sagt konung lát- inn. Kóngur var að vísu hætt kominn. önnur frétt var um flugvélar- rán þar sem sagt var, aö flug- vél heföi verið rænt með 135 farþegum. Þetta var gabb eitt, en áhöfn vélarinnar vissi ekki betur en satt væri. Miði fannst á salerni flugvélarinnar, þar sem sagt var, að vélin yröi sprengd í loft upp, ef ekki yrði strax flogið til Norður-Víetnam. — Urðu menn skelfingu lostnir, en engin sprengja fannst í vélinni, þegar leitað var á Shannonflug velli. — Sjá bls. 3

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.