Vísir - 12.07.1971, Blaðsíða 5
Varnarleikur Fram er sterkur og það sýnir þessi mynd vel. Þorbergur grípur knöttinn og ef eitthvað bregóur út af eru þrír varnar
leikmenn reiðubúnir á marklínunni. Ljósmynd BB.
jr
Fram
&
3&Í Oo |
mur
a
I ýi •'fcWi*-*
íír»Me
— og sigraði Akurnesinga örugglega með 4-0
á Skipaskaga
Leiftursókn Fram fyrstu
mínúturnar í leiknum á
Akranesi á laugardag kom
heimamönnum í opna
skjöldu. Eftir aöeins þrjár
mín. hafði Fram skorað 2
mörk og síðan gátu leik-
menn liðsins algjörlega ein
beitt sér að þeirri leikað-
ferð, sem hentar liðinu bezt
— leikið sterkan varnar-
leik með snöggum sóknar-
lotum á milli. Og Fram
vann stórsigur 4—0 og hef-
Göður sigur
Árrhenninga
Ármann vann góðan sigur á
fsafirði í 2. deild á laugardag —
vann heimamenn 4—1. Smári Jóns
son skoraði eina markið í f. h. fyrir
Ármann. Strax í byrjun s. h.
jafnaði Guðmundur Níelsson fyrir
I’safjörð, en Ármenningar skoruðu
brjú, síðustu mörkin i leiknum —
Sigurður Leifsson tvö og Smári
eitt. Síðast í leiknum fengu fsfirð
ingar víti, en Garðar, markvörður
Á. varði. Leikurinn var nokkuð
harður og varð dómarinrí, Brynjar
Bragason. að vísa einum leikmanni
ísfirðinga af lei:kvelHi.
ur ekki í annan tíma í ár
sýnt jafnheilsteyptan og
góðan leik. Það verður erf
itt fyrir önnur lið að koma
í veg fyrir, að Fram hljóti
íslandsmeistaratitilinn í ár.
Það fer ekki á-miklli mála, að
Fram er fastmótaðra lið en önnur
hér. Þar er engin „stór.stjarna“. en
allir leikmennirnir vinnan allan t'im
ann — agi virðist miklu meiri en
bjá öörum liðum og leikmenn krefj
ast mikils hver af öðrum, krefj-
ast þess, að allir geri sitt bezta.
Þar er aldrei gefið ertir, og árang-
urinn er eftir því.
Fram hóf lei'k í fegursta veðri
á Skipaskaga og eftir aðeins 20
sekúndur lá knötturinn í marki
Akraness. Erlendur gaf knöttinn eft
j ir upphafsspyrnu til Marteins og
| Siíðan geystust sóknarleikmenn
! Fram upp að vítateig. Marteinn
I spyrnti langt fram — inn í vita-
teig — Þröstur skallaði frá rétt
út fyrir teiginn ti] Kristins, sem
þegar sendi á Ásgeir. Hann lék
nær markinu og reyndi markskot
— en knötturinn fór í varnarmann
og beint til Erlends, sem skoraði
með föstu, fallegu skoti rétt undir
þverslá. Þetta var eins og kö!d
gusa fyrir. áhorfendur og leikmenn
Akraness — og svo skoraöi Fram
annað mark á 3. mín. eftir gull-
fallegt upphlaup. Erlendur náði
knettinum á miðju •— gaf til Ás-
geirs, sem dró að sér haigri bak-
vörðinn, en sendi svo framhjáhon
um til Kjartans, sem var alveg
frír á kantinum. Hann lék hratt
upp að vítateignum og þegar varn
armennirnir urðu að koma á móti
honum losnaði um Arnar á hinum
kantiríum. Kjartan var fljótur aö
sjá það — og gaf yfir til Arnars,
sem var alveg fr'ír í vítateigshom
inu. Og Arn^r lék nær markinu og
skoraði með föstu, óverjandi jarð
arskoti.
Nú var leikurinn Fram. Vörnin
var þétt og miðjumerín Akraness
fengu nokkuð frjálsar hendur í
leiknum, en það var lítill broddur
í sókninnj — enda sóknartilraun
irnar mjög einhæfar og reynt að
komast í gegn þar sem vörn Fram
er sterkust — á miöjunni — með
háspyrnu inn í vítateig. Og þannig
var þetta allan leikinn — ekki
hugsað, og ekki bættj svo úr skák
fyrir Akurnesinga, að Matthías sást
varla í leiknum — hættulegasti
sóknarmaður þeirra. Fyrst var hann
miðherji, en Marteinn var algjör
ófjar.l hans og þegar Matthías flutti
sig út á kantinn tók Baldur Schev-
ing hlutverk Marteins að sér.
En sóknartilraunir Fram voru
mjög hæt.tulegar og reyndar furðu
legt, að liðið skyldi ekki skora
fleiri mörk í f. h. Kristinn komst
í gegn, en steig á knöttinn á v*ita
teignum — lét svo Davíð verja
frá sér innan markteigs, en verst
fór Ásgeir að ráöi sínu, þegar
hann beinlínis gat gengið með
knöttinn jnn í markið — en ,,fraus“
furðulega og ætlaði að senda knött
inn á Kristin, en mistókst. Akur-
nesingar áttu eit.t opið færi — á
30. mín. þe’gar Teitur spyrntifram
hjá, ,en auk þess átti F.yleifur skot.
utan á stöng.
Fram byrjaði kröftuglega í s. h.
Erlendur átti skot fram hjá á I.
mín. Jón Gunnlaugsson biargaði á
línu frá Kristni rétt á eftir. og á
10. mín. skoraði Kristinn, en var
dæmdur rangsfæður. Síðan tóku
Skagamenn við og sóttu nokkuð
stSft — en án árangurs. Þá bjarg-
aði Jóhannes eitt sinn á marklínu
hjá Fram — en svo skoraði Fram
sitt þriðja mark.
Á 22. mín. lék Erlendur upp,
lyfti knettinum yfir varnarvegg
inn og Jón Pétursson seystist
í gegn — fékk knöttinn á víta-
teignum, tók hann glæsilega niö
ur á fullri ferð og renndi honum
síðan í markið fram hjá Davíð.
Mjög vel gert hjá Jóni.
fjrslit voru nú ráðin og þaö
breyttu litlu er áhorfendur héldu
því fram, að knötturinn hefði far-
ið yfir markl'inu, þegar Eyleifur
átti hörkuskot undir þverslá og
knötturinn skall niöur á marklínu
og snerist út. Og 1 síðasta upp-
hlaupi leiksins skoraði Fram fjóröa
markið. Ágúst, sem þá var kom-
inn inn fyrir Arnar. lyfti knettin-
um inn í vítateig og Kristinn skall
aði laglega yfir Davíð markmann
4 — 0. Nokkur harka var í leiknum
og hinn ágæti dómari, Guðmundur
Haraldsson, bókaði fjóra leikmenn,
tvo úr hvoru liði.
Sigur Fram vár góður í þessum
leik og leikur liðsins allur til fyrir
myndar. Vörnin var mjög sterk .að
venju, en nú komu sóknarmennirn-
ir á óvart. Értendur lék sinn bezta
leik með Fram — vann nær hvert
einasta skallaeinyígi gegn Þresti og
var með í öllum mörkunum —
og sama er að se'gja um Kristin,
En. Ásgeir var eins og oftast sá,
sem faHegustu hlutina gerir. Hinn
góði sóknarleikur Fram stafaöi’ta's
vert af því hve Sþagavörnin er
slök -- én samt sem áður. má ekki
einblina alveg á það. Hjá Ákra-
nesi er ’erfitt að hæla nokkrum -—
liðiö átti ekkert svar gegn þraut-
hugsuðum og góöum leik Fram.
héðinn
stiga-
hæstur
Héraðssambandið Skarphéðinn
varð stigahæst á landsmóti Ung
mennafélags fslands, sem fór
fram á Sauðárkróki um helg-
ina, hlaut 244 stig. Mikill fjöldi
manns var á mótinu, þátttak
endur um 700 og áhorfendur
um 10 þúsund, þar á meðalfor
setahjónin.
Bezta afrek kvenna á mótinu
vann Kristín Bjömsdóttir UMSK
en hún stökk 1.50 í hástökki og
hlaut fyrir þaö 836 stig. Hún
var jafnframt. stigahæst kvenna
með 16 stig. Karl Stefánsson
vann bezta afrek karla, stökk
14.38 m í þrístökki og hlaut
818 stig. Stjgahæstur karl-
manna var Stefán Hallgríms-
son. I úrslitaleiknum í knatt-
spyrnunríi vann UMF Keflavíkur
UMSK með 1—0. Nánar verður
sagt frá mótinu i blaðinu á
morgun. ,
Trevino
meístari
Bandarískl golfleikarinn Lee
Trevino bætti einni skrautfjöð
ur I hatt sinn á laugardag, þeg-
ar hann sigraði á brezka meist-
aramótinu í golfi i Southport.
Á nokkrum vikum hefur hann
þvi orðið bandarískur meistari
— á opna golfmótinu —j kana-
dískur meistari og nú brezkur.
Trevino sigraði í Southport á
278 höggum. Næstur var Kwan
Lou, Formósu, með 279 högg
og þriðji Tony Jacklin, Eng-
landi, með 280 högg.
Dave
Bedford
frábær
Dave Bedford, hinn 21 árs
enski hlaupari, setti nýtt Evrópu
met í 10009 m hlaupi í lands-
keppni Englands og Frakklands
í Portsmouth á laugardag —
hljóp á hinum frábæra tíma
27:47.0 mín., scm er næst bezti
tími, sem náðst hefur í heim
inum. Aðeins heimsmet Ron
Clarke, Ástralíu, er betra
27:39.4. Dave Bedford setti
einnig nýlega Evrópumet i
5000 m. hlauni og er tvímæla
laust mesta efni, sem nokkru
sinni hefur komið fram í lang-
hlaupum. Hann náði þessum ár-
angri í Portsmouth keppnislaust
— var hring á undan hinum
ágæta hlaupara Tagg. Frakkar
sigruðu í landskenoninni með 5
stiga mun. Eldra EM-metiö i
10000 m átti Þjóðveriinn Haase,
og var það 28:04.4 mín.