Vísir - 12.07.1971, Side 8

Vísir - 12.07.1971, Side 8
8 V í SIR. Mánudagur 12. júlí 1971, VISIR Otgefandi: Reykjaprem ní. Framkvæmdastiöri: Sveinn R Eyjölfsson Ritstjórl- Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltröi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3b Sfmar 15610 11660 Afgreiösla Bröttugötu 3b Slmi 11660 Ritstjón • Laugavegi 178 Sfmi 11660 (5 ifnur) Askriftargjald kr. 195.00 ð mánuði innanlands f Iausasölu kr. 12.00 eintakiö PrentsmiÖÍB Vfsfs — Eddp hf. Ný vinstri stjórn Jjjóðin hefur fengið yfi. J3 nýja vi- :i stjórn. Þessi stjórnarmyndun er fljótt á litið ekki óeðlileg afleið- ing þingkosninganna, þar sem ríkisstjórn Sjálfstæð- is- og Alþýðuflokksins missti meirihluta sinn. Þó varð fæðing vinstri stjórnar erfið. Mikil vandkvæði voru á því að fá samstöðu flokkanna um málefnásamning og skiptingu ráðherraembætta. Undirrót þess er sá ágreiningur um grundvallaratriði, sem er milli þess- ara þriggja flokka. Erfið fæðing Ólafíu kemur held- ur ekki á óvart í ljósi ferils vinstri stjórnarinnar gömlu. Fæstir þeirra, sem minnast vinstri stjórnarinnar frá árunum 1956 til 1958, munu fyllast tilhlökkun við hugsunina um valdaskeið þessa arftaka hennar. í engu stjórnarsamstarfi hefur ríkt slíkur glundroði. Engin dæmi hafa verið um slfk óheilindi í samstarfi. Óheilindin komu berlega í hðs í tveimur mikilvæg- ustu viðfangsefnum þeirrar ríkisstjórnar, land'helgis- málum og efnahagsmálum. í landhelgismálum báru ráðherrar svik hver á annan. I efnahagsmálum vann hver höndin gegn annarri. Innan stjórnarinnar virtist samstaða vera um það eitt að reyna að leyna vand- anum fyrir þjóðinni og fela þá gengisfellingu, sem raunverulega hafði orðið á krónunni. ) Endalok vinstri stjórnarinnar urðu einnig í sam- ræmi við feril hennar. Stjórnarsamstarfið leystist upp á miðju kjörtímabili. Hermann Jónasson forsætis- ráðherra fann enga samstöðu innan stjórnarinnar um neinar aðgerðir í efnahagsmálum. Þá var því stjóm- arsamstarfi formlega slitið, sem um langt skeið hafði ekki verið annað en nafnið eitt. Hlaupið var frá vand- anum og honum velt yfir á eftirkomandi ríkisstjórtiir. Tafi nokkru sinni verið unnt að segja, að ríkis- stjórn hafi gefizt upp, þá var það í þetta sinn. Spor vinstri stjórnarinnar gömlu hræddu svo, að næstu tólf ár voru fáir formælendur nýrrar ríkis- stjórnar þessara flokka. Þessi hrollvekja hefur að nokkru leyti liðið kjós- endum úr minni á því árabili, sem liðið hefur. Að vísu ganga sumir forystumanna flokkanna nú tregir til vinstra samstarfs. Þó hefur það sjónarmið orðið ofan á, að þeim bæri skylda til að reyna þá leið til hins ýtrasta með tilliti til óvæginnar stjórnarandstöðu þeirra. Erfiðum ágreiningsmálum var því skotið á frest, og fórnfæringar framdar á altari málamiðlunar. En vandamál stjórnarsamstarfsins eru enn í eðli sínu þau sömu og þau voru í tíð gömlu vinstri stjóm- arinnar. Eg get ekki sakfellt þá" I slagnum við rikisstjórnina sigraði Cassius Clay með rothóggi i siðustu lotunni Múhameð Alí, sem er enn þekktari sem Cassius Clay, beið ósigur í hringnum fyrir Joe Frazier, en nokkru seinna vann hann sigur, sem er endanlegri og vafalaust mikilvægari fyrir Alí. Hann sigraði ríkisstjórnina fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna. Mál hans kom við grundvallaratriði í deilunum um her- skylduna og stríðið í Víetnam. Cassius Clay Breytt afstaða til herskyldu Með þátttöku Bandarikja- manna í stríðmu í Víetnam varö verulega breyting á afstöðu ungra manna til herkvaðningar. í fyrri styrjöldum mun allur þorri ungra manna hafa látið sér saemilega líka að vera kvaddur í herinn. Þegar óvin- sældir og efasemdir um stríöið í Víetnam uxu, fór taJsverður hluti ungra manna að tregðast við að vera sendur þangað aust ur. Vandamálið hefur siifellt vax ið, og nú munu þeir fleiri, sem telja það í hæsta máta tilgangs laust að setja sjálfan sig í þræl dóm og Iffsháska í striðinu í Víetnam. Margir tala um að af- nema herskyldu. Cassius Clay var einn þeirra mörgiu, sem neituðu að fara í herinn. Hann bar það fyrir sig, að hann værj friðarsinni af trúarástæðum og gæti ekki til þess hugsað að taka þátt í mann drápum. Verða að vera andvígir öUum styrjöldum I Bandarfkjunum hefur verið viðurkennd undanþága frá her skyldu, ef menn eru „af sann- feeringu" friðarsinnar og áherzla í því sambandi lögð á, að menn séu „andvígir ölilum styrjöld- um“. Þess vegna eiga menn ekki að sleppa. þó að þeir teljj stríð ið í Indó-Kina óviturlegt. Þeir verða að vera sama sinnis um öll stríð. Það er auglljóist, að þetta er vandasamt úrskurðarefni fyrir dómstólana, sem fá slík mál til meðferðar. Grunur hefur leikiö á, að það væri nokkuö tilvilj Umsjón: Haukur Helgason unarkennt, hverjir kæmust upp með að neita herþjónustu og hverjir ekki. Múhameð Ali var einn þeirra, sem fóru illa út úr fyrstu lotu málsins. Reyndar tap aði hann öllum lotunum, þar til kom að þeirri síðustu. ÖJíkt þvi sem í hnefaleikum gerist, skipti hin slðasta lota öllu. Boða „heilagt stríð“ Múhameð Ali er í flokki „svartra múhameðstrúarmanna" og tók hann hið nýja nafn, þeg- ar hann gekk I þann flokk. Sam kvæmt trú sinni sagðist hann ekki mega né geta tekið þátt í striði. Ríkisstjórnin taldi þessa af- stöðu ekki rökrétta, með tililiti til þess, að svartir múhameðs- trúarmenn boða „heilagt stríð“, sem þeir kalla „jihad“ til að sigrast á andstæðingum sin- um. Dómsmálaráðuneyti Banda ríkjanna hólt því fram, að and staða Alis við herþjónustu væri einungis „stjómmáMegs og kynþáttalegs eðlis“. Hann væri enginn friðarsinni „af sannfær- ingu“. Með þessum rökum fékk rfk- isstjórnin framgengnt, að Múha- eð Ali var árið 1967 dæmdur fyrir aö neita herskyldu. Dómn um var áfrýjað, en áfrýjunar- réttur komst að sömu niður- stöðu. Áður en mál Alis kom fyrir hæstarétt, höfðu stjómvöld látið nobkuð undan síga. Þau viður- kenndu nú, að þetta væri ekki hræsni ein saman. Hins vegar stóð stjómin á þeirri kenningu, að Múhameð Afli værj reiðulbú inn að heyja „heilagt stríð“ fyr ir trú sína. og þess vegna gaeti hann ekki notið réttar friðar- sinna og fengið undanþágu frá herskyldu. Svartir múhameðstrúarmenn hafa talsvert fylgi í Bandarikj- unum, þó að fremur hafi dreg ið úr afli þeirra vegna klofn- ins imdanfarin ár. Tiil þessa flokks taldist svertingjaforinginn Malcolm X, er var myrtur, eftir að hann Mauf sig frá flokknum. Mál Múhameðs Aúi varð próf- máj fyrir alla svarta múhameðs trúarmenn í Bandarikjunum. Þeir greiða nær aidre; atkvæði í kosningum í Bandaríkjunum, og þá fýsir ekki að fara í striö ,;fyrir hvítingja". Hæstiréttur vísaði algerlega: á bug kenningunni um „heiilaga stríðið“. Dómstólllinn úrskurð- > aði, að máliið hefði verið'flEefet' og þvff spillt á fyrri stigum þess’ með röngum ásökunum stijóm arinnax á hendur Alis og efa- semdir um heiðarleik hans. Með þessu var kollvarpað ölum fyns dómum í rnáli Alis. Mikið fjártjón Hnefaleifearinn er nú oTöinn 29 ára. Hann er þvi kominn yf ir hámarksaldur herskyldu, sem er 26 ár. Þvl mun engin til- raun verða gerð til að taka málið upp. Keppnisbann og fangelsun hef ur oröið Múhameð Alj dýr. Þeg ar forystumenn hnefaleikasam- bandsins sviptu hann heims- meistaratitlinum vegna þessa máls, var hann ösigrandi á tindi frægðar sinnar. Hina mifelu snilli sina hefur hann sýnt nú, er hann hafði nærri hreppt titil inn aftur þjálfunarlítill og nofek- uð þyngri á sér en áður vegna keppnisbannsins. Þótt ekki sé hugsað til annars tjóns, þá er aug'jóst, að Ali hefur orðið af stórum fjárfúlgum vegna þessa síðustu árin. Dómur hæstaréttar varpar einnig ljósi á óréttmætan og flausturslegan úrskurð hnefa- leikasambandsins að svipta hann titlinum og varpa honum út i yztu myrkur f þrjú og hálft ár. Nu er sitthvað gert til aö bæta úr skák, og Ali virðast flestir vegir færir. Enginn hefur þó haft fyrir að biðja hann af- sökunar. Ali er anna stóryrtastur, þeg- ar hann talar um vesöld keppi- nauta sinna og eigin snilld. Það er því óvænt umburðariyndí þegar hann nú segir: „Þeir gerðu ekki annaö en það, sem beim fannst réttast á þeim tíma, Ég gerði það, sem mér fannst réttast. Það er alít og sumt. Ég get ekki sakfeJlt þá.**

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.