Vísir - 16.07.1971, Qupperneq 3
V1 SIR . Föstudagur 16. júlí 1971.
í MORGUN UTLONDI MORGUN UTLOND í MOR
|IO í lyiORGUN ÚTLÖND
E
Nixon
Fer í maí næsta ár — Þjóðernissinnar
á Formósu mótmæla
Richard Nixon forseti
Bandaríkjanna ætlar að
, heimsækja Kína á næst-
i unni. Hann lýsti því yfir
1 í ræðu í sjónvarpi í nótt.
Kissinger helzti ráðunaut-
i ur Nixons í öryggismálum
fór til Peking á ferð sinni
um Asíu fyrir skömmu og
átti viðtal við Chou-En-Lai
forsætisráðherra Kína.
Heimsókn Nixons er ráðgerð 1
maí næsta ár.
Nixon segist munu fara ferð
þessa til að bæta sambúð ríkjanna.
Þetta er í framhaldi af þvf, sem
kaliað hefur verið „ping-pong-
þýða“ sem kom £ Ijós, þegar banda
rfskt borðtennislið fór til Kína fyr
ir skömmu.
Stjórn .kínverskra þjóðernissinna
á eyjunni Formósu hefur mótmælt
harðlega fyrirhugaðri heimsókn Nix
ons til Kína. Fréttamenn segja, að
þjóðemissinnar séu felmtri slegnir
Þetta sé talið þyngsta áfall, sem
Framferði Portúgala
af nefnd
athugað
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
ákvað í gærkvöldi að senda rann
sóknarnefnd til Vestur-Afríku til að
athuga hvað væri hæft í ásökunum
Senegala, sem haida þvi fram að
Portúgalar hafi látið leggja jarð~
sprengjur meðfram Iandamærum
Senegals og Portúgölsku Gíneu.
Ráðið fordæmdi eyðileggingu og
ofbeldisaðgerðir, sem hermenn
Portúgals hafi framið gegn íbúum
Senegal.
heimboð Kínverja
stjóm Ghiang-Kai-Sheks hafi orðið
fyrir síöan kínverskir kommúnistar
hröktu hann ti'l eyjarinnar Form-
ósu árið 1949.
Hins vegar er talið, að fréttinni
sé kuldalega tekiö í Moskvu. Sov
étríkin óttist, að Kínaferð Nixons
muni beint gegn hagsmunum Sovét
ríkjanna.
Það var Kissinger, sem flutti Nix
on boð Ohou-En-Lais forsætisráö
herra um að heimsækja Kína.
Nixon hélt í gær fund með aðal
ráðunautum sínum í öryggismálum
og öryggisráð bandarísku stjómar-
innar kemur saman í dag. Aðalum
ræðuefni á að vera ástandið £ V£et
nam og Mið-Austurlöndum. Annars
var ekkert frekar gefið upp um efni
fundarins.
Nixon tekur heimboði kinverskra kommúnista opnum örmum
Skæruliðar höfðu sjúkl-
inginn burt með sér
Fimm vopnaðir menn réðust 1
morgun inn f sjúkrahús í Belfast og
höfðu einn sjúklinginn á burt með
sér. Þetta munu hafa veriö félagar
í hinum ólöglega „lrska lýðveldis-
her“. Sjúklingurinn mun einnig
vera f þfeimr,saintökum. Hann særð
ist fyrir skömmu þegar sprengja
sprakk f kaþólska hverfinu í Bel-
fast.
Mennirnir fimm yfirbuguðu verði
og kefluöu þá. Einn þeirra klæddi
sig í hvítan læknisslopp og þeir
fóru inn í sjúkradeildina, þar sem
félagi þeirra lá.
Þar voru fyrir nokkrir lögreglu
þjónar, sem gættu hans. Skyndi
Iega miðaði sá í Iæknisbúningnum
vélbyssu á lögregluþjóna, og hin
ir fjórir þustu inn. Einn lögreglu-
manna varðist en var sleginn niður.
Hinn særði var borinn út f vörubif-
reið- og ekiö burt með miklum
hraða.
Lögreglan kom strax fyrir vega-
tálmunum víða í Belfast. Lögreglu
sveitir tóku sér stöðu á öllum þjóð-
vegum, sem liggja til Irska lýðveld
isins, þar sem búizt var við að þang
að vildu þeir félagar fara.
Peronistar tóku smábæ
— Lögreglulidið lokað inni — 70 milljónir / ránsfeng
w
Tilboð óskast í eftirfarandi framkvæmdir
við læknisbústað á Hólmavík:
1. Steypa upp hús, múrhúða og má'la
það að utan.
2. Raflagnir, fullnaðarfrágangur.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavík og hjá sýslumann-
inum á Hólmavík.
Raflagnir gegn 1.000 kr. skilatryggingu.
Byggingaframkvæmdir gegn 2.000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð 27. júlí 1971, kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SlMI 10140
Juan Peron fyrrverandi einræðis-
herra á sér enn holla stuðnings-
menn í Argentínu.
Fjórtán manna hópur
skæruliða, vel vopnaður
hertók í fyrrinótt lítinn bæ
í Argentínu, Santa Clara
De Saquier. Árásarmenn
lokuðu um fimmtíu manns
inni í fangelsi bæjarins, þar
á meðal lögregluliðið, og
síðan urðu þeir á brott með
um 10 milljónir íslenzkra
króna.
Hópurinn ruddist inn f bæinn
skömmu eftir miðnætti og tók lög
reglustööina, járnbrautarstöð, og
pósthúsið. Síðan létu þeir greipar
sópa f bankaútibúinu.
Flestir af hinum 3500 fbúum bæj
arins voru sofandi, meðan þessi ó-
sköp dundu yfir. Ræningjamir
voru snarir f snúningum, og ekki
varð tjón á mönnum.
Jafnskjótt og þeir komu til bæj
arins f bifreiðum sfnum, skiptu þeir
sér í sex hópa. Mcð byssur í hendi
söfnuðu þeir öllum, sem urðu á vegi
þeirra og fluttu til fangelsisins.
Árásarmenn segjast vera stuðn-
ingsmenn Perons, sem fyrrum var
forseti í Argentínu.
Fvrr í ár hafa skæruliðaflokkar
ráðizt á smábæi í landinu með svip
uðum aðferðum. Neyðarástandi var
lýst yfir f héraðinu og lögreglan ger
ir nú mikla leit að skæruliðunum
Sex menn sem grunaðir eru um
samvinnu við skæruliða, hafa ver-
ið handteknir.
Frá vöggu til grafar
íjallegar skreytingar
Blómavendir í miklu
úrvali
Daglega ný blóm
Sendum um allan bæ
Silla & Valdahúsinu
Álfheimum — Sfmi 23-5-23.