Vísir - 07.08.1971, Qupperneq 1
VISIR
61. árg. — Laugardagur 7. ágúst 1971. — 176. tbL
Gömul hús metin á Akureyri
— 230 gömul hús skoóub og metin með tUíiti ti1 varbveizki
Akureyrarbær hefur að undan- I aðist þessa athugun á Akureyri og
fömu látið skoða og meta gömul sagði í viðtali við Vísi í gær. að
hús i bænum með tilliti til varð- alls hefði hann athugað 230 hús í
veizlu oc væntanlegs aðalskipulags. I bænum, en þau eru öll byggð fyrir
| Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt ann I árið 1927. Sagði Þorsteinn að mikið
Grafið í Aðalstræti næstu 2 árin:
Ingólfsbær verður uð fínnust“
— ella lendir borgarstjóri i vandræbum með
ræður sinar, segir Geir Hallgrimsson
„Slæmt væri það fyrir borg-
arstjórann í Reykjavík, ef í
ljós kæmi viö uppgröftinn í
Aðalstræti 16, aö Ingólfur
Amarson hefði aldrei verið til
eða ekki numið hér land —
borgarstjórinn ætti þá í vand
ræðum með að finna efni f
ræður“, sagði Geir Hallgríms
son í gær á fundi, er hann og
vísindamenn þeir sem að upp-
greftrinum standa, héldu með
blaðamönnum.
Geir HaMgrímsson sagði enn-
fremur að Reykjav’ikurborg
hefðj í samráði við þjóðminja-
vörð ákveðið að kosta rannsókn
ið við Aðalstræti, þar sem talið
er að fyrsti Víkurbærinn hafi
staðið.
Markmið rannsóknanna er að
staðsetja nákvæmlega elzta
bæjarstæði í Reykjavík. Raunar
mun grunnur Uppsalahússins
gamla þar sem grafið er nú,
ekki vera heppilegasti staðurinn
til að grafa eftir minjum, en
sem stendur var ekk; fært að
hefja gröftinn annans staðar. —
Þjóðminjavörður taldi þó, að
árangurinn af greftrinum í sum
ar hefði verið fullnægjandi, og
sagði hann að starfið í sumar
hefði styrkt vísindamenn í
j>eirri trú að landnámsbærinn
hafi staðið norðar eða jafnvel
austar. „Þar með teljum við
okkur vita, hvar bera skuli niö-
ur næsta ár“.
Uppgreftrinum verður haldið
áfram þar S Aðalstræti a.m.k.
2 næstu ár, en samkvæmt skipu
lagi Reykjavikur, verða gömul
hús við Aðalstr. rifin og svo gat
an sjálf lögð aif en f staðinn
kemur auibt svæði, grasi gróið.
Aðspurður sagði borgarstjóri,
að lóðir þær, næstar Uppsala-
lóðinni, væru í einkaeign og
væri því eftir aö semja við eig
endur þeirra um kaup og niður-
rif á húsinu númer 18 viö Aðal
stræti". — GG
væri um heillegar gamlar bygging-
arsamstæður, einkum í innbæmim.
Sagði Þorsteinn að tiltölulega lítið
hefði verið hróflað við gömlu hverf
unum, gömlu húsin hafa yfirleitt
ekki verið látin víkja fyrir nýrrí
byggingum. Hins vegar hafa elztu
íbúðahverfin á Akureyri farið illa
í eidsvoðum.
Elzta hús Akureyrar er Laxda’-s-
hús, byggt laust fyrir 1800, en nokk
ur hús standa á Akureyri frá önd-
verðri 19. öld.
Þorsteinn sagði að í mati sínu
hefði hann fyrst og fremst haft i
huga varðveizlugildi og notagildi
húsanna. Hann mun síðar skila á-
liti til bæjaryfirvaldanna, en vænt-
anlega verður tekið trlíit til þess-
ara athugana við aðalskipulag Ak-
ureyrar. sem nú er á döfinni.
Akureyringar eiga sínar „torfur"
engu síður en Reykvikingar og ef-
laust eiga eftir að koma þar upp
deilumál áiika og „Bemhöftstorfu-
málið" þegar fram h'ða stundir og
„reiknistokksmenningm” riður
yfir Akureyri. — JH
Isinn enn á
Húnaflóa
Istungan virðist vera enn á sín
um stað á Húnaflóa. Freyfaxi tii-
kynnti ís á siglingaleið á Húna-
flóa í gær. Istungan nær inn á
HúnaF.óa að stað sem er réttvísandi
75 gráður og 18 sjómilur frá Sel
skeri. Innan ístungunnar er sigling
greiðfær. — SB
Ætti að banna berja-
tínslu fyrr en 20.
Fólk er nú viða farið að huga
að berjum. Veðráttan í sumar
gefur tiiefni til bjartsýni varð-
andi berjasprettuna. Hins vegar
er Þórður á Sæbóli sá kunni
berja-spámaður á öðm máli, en
hann telur sprettuna með minna
móti viða á Snæfellsnesi. Aftur
á móti hafði hann frétt af góðri
berjasprettu vestur við Djúp.
í viötali við Vísi bls. 13 í dag
segir Þórður m. a.: „Það ætti að
banna með lögum að tína ber
fyrr en 20.“ og virðist hann
þeirrar skoðunar að berjunum
sé hætta búin af „ofveiði", engu
síður en fiskstofnunum.
— sjá bls. 3
Böðlar önnum kafnír
Böðlar eru önnum kafnir í Mið-
Austurlöndum og Afríku. Víða
draga aftökur til sin þúsundir á-
horfenda eins og um leiksýning
ar eða sirkus væri að ræða. —
Um aftökumar þar eystra er
fjailað í grein í opnu blaðsins i
dag.
Sjá bls. 8
Grýta viö beztu heilsu
Endurvakning Geysis leiðir hug
ann að öðmm að vísu ekki eins
frægum hver, Grýtu, sem menn
vom hræddir um að eithvað
væri farinn að láta á sjá. Sam-
kvæmt uppiýsingum Eiriks
Bjamasonar í Hveragerði er
Grýta við beztu heilsu og ræsk
ir sig rækilega öðm hverju.
— sjá bls. 3
Utanríkisráðherra heimsæk-
ir Bretland og Þýzkaland
Talar á AHsherjarbinginu 29. september
Einar Ágústsson utanrfkisráð
herra skýrði frá því í sjónvarps
viðtali í gær, að j»mn hefði lýst
því yfir á fyrsta fundi landhelg
isnefndar í gær að ríkisstjórnin
teldi tillögu Bandaríkjamanna á
landhelgisráðstefnunni í Genf
með öllu ófullnægjandi. Rikis-
stjórnin fagnaði að vísu vaxandi
skilningi á sérstöðu strandríkja
sem fram kæmi í tillögu Banda-
ríkjamanna en tillagan væri
engu að siður í algjöru ósam-
ræmi við yfirlýsta stefnu ríkis-
stjórnarinnar.
Landhelgisnefndin, sem fulltrúar
alira þingflokka skipa, var einhuga
um þetta áht.
Ennfremur skýrði ráðherra frá
því, að hann munj bráðlega fara
í heimsókn til Bretlands og Þýzka
lands ti' þess að kynna þar sjónar-
mið Islands I landbelgismálum.
Hann gat þess, að málið yrði ræki-
'lega kynnt á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna í haust. Hefði hann þegar
pantað ræðutíma í almennum um-
ræðum á Allsherjarþinginu 29. sept-
ember og mundi meginhluti ræðu
hans fjal’a um landhelgismálið.
Næstu daga veröur enskum bækl-
ingi um sjónarmið I’slands dreift á
fundi hafsbotnsnefndar Sameinuðu
þjóðanna í Genf.
Hans G. Andersen þjóðréttar-
fræöingur flutti fyrir hönd ríkis-
stjómarinnar rseðu um landhelgis-
málið á f'undi hafsbotnsnefndarhm
ar f gær. — HH
Mikill mannfjöldi var saman-
kominn í Herjóifsdal þegar
þjóðhátíð hófst í Vestmanna-
eyjum í gær. Veður var með
eindæmum gott, en búizt við
að eitthvað færi að þykkna ’
upp með kvöldinu. Hátíðin er
með meiri íburði í skreyting-
um að þessu sinni en endra-
nær, vegna 50 ára afmælis
Týs, sem heldur hátíðina að
þessu sinni. Myndin er tekin
í Eyjum í eftirmiðdag í gær.
' Nánar um þjóðhátíð á bak-
' síðu. — Sjá ennfremur Vísir
J spyr á bis. 9.