Vísir - 07.08.1971, Qupperneq 2
Getur Vutikunið
bjorguð börnum
frú Limbo?
Harðar umræður eru hafnar
meðal rómversk kaþólskra guð-
fræðinga um örlög þeirra barna
sem deyja án þess að þau hafi
verið skírö.
Geta sálir óskírðra barna kom-
izt til himna? Hið opinbera sjónar
mið í þessum efnum er það sama
og flestir kaþó’.skir munu vera trú
aðir á, að það skásta sem óskírðu
börnin geti vonazt eftir sé að kom
ast til Limbo. Limbo er eins og
menn vita eins konar fordyri hel-
vítis, forstofa eða yzti hringur,
þar sem er ekki mjög heitt.
Eftir því sem þaö góða skáld
Dante segir, þá dvelja sálimar í
Limbo I nokkuð góðu yfirlæti,
þær kveljast ekki eins og þær sem
innst inni f helvíti lenda, en samt
sem áður reika Limbo-sálimar
um í miklum ’.eiðindum, af því að
þær bera f brjósti sterka þrá eftir
að sjá guð. Aftur á móti vita
sálimar að það þýðir ekki að gera
sér von um svo fráleitan hlut.
Limbo var á sínum tfma fundið
upp sem málamiðlun. Hinn heilagi
Agústfnus boðaði skýrt, að allir
óskfrðir fæm beint til helvítis, án
viðkomu. Þetta fannst mönnum
snemma nofckuð harkalegt, og
þess vegna var Limbo fundið upp.
Núna eni menn enn að linast og
finnst mörgum guðfræðingum al-
veg nógu slæmt að senda óskýrðu
bömin til Limbo. Em guðfræðing-
arnir jafnvel famir að stinga upp
á því, að vel geti verið að óskírðu
sálirnar fari til himnaríkis, enda
varla mjög syndum flæktar.
í tímariti Jesú'ita „La Civiltá
Cattolica'* segir hinn æmverð-
ugi íaðir Jean Galot, að sér virð-
ist það vi’.limannlegt og fárán-
legt að halda að himnaríki sé lok-
•að öðmm en skírðum. Hann spyr:
„Hvernig væri hægt að kalla guð,
sem svo illt hefur gert, guð ást-
arinnar, elskunnar? Maður svona
rétt ímyndar sér, að einn liður
eilffrar himnaríkissælu sé fólginn
f návist ötö’.ulegs fjölda smá-
bama".
Erkibiskupinn Ferdinando Lam-
brusohini frá Perúgfu sagði ný-
lega í grein í vatikan-blaðinu
„L’Osservatore della Domenica”
að guð hljóti að hafa huldar leiðir
til að bjarga sálum óskfrðra
bama.
□□□□□□□□
lohn Wnyne í
mölaferlum
John Wayne, kúasmalaleikar-
inn frægi, á nú f málaferlum viö
Paramount-kvikmyndafélagið.
Hann heldur því fram, að kvik-
myndafé'.agiö hafi verið of fljótt
á sér að selja sjónvarpinu sýning-
arréttinn á myndinni „Tme
Grit“. Hann heldur því fram, að
á þeim tíma hafi vel komið til
greina, að hann fengi fleiri verð-
laun fyrir leik sinn í myndinni, og
þá hefði verið hægt að pína sjón-
varpsmennina til að borga meira
lyvir myndina. John Wayne met-
ur Tfiðn sitt á 150 mil'ljónir króna.
DEAN MARTIN I
KVENNASTANDI
Dean Martin gamli er e.t.v. ekki J
eins gamall og maður hefði haldið •
Hann er reyndar orðinn fimmtíu 2
og tveggja ára, en nú hefur hann •
sýnt það frískleikamerki að gefa«
fegurðardísinni Cathy Hawn trú-J
lofunarhring, þótt um trúlofun •
geti ekfci verið aö ræða, þar sem *
Martin er giftur og hefur veriðj
giftur síðustu tuttugu ár. en hann •
bíður nú eftir skilnaði. J
Cathy Hawn er feguröardís íS
Hollywood og hefur að líkindumj
mikinn áhuga á að verða íræg •
skapgerðarleikkona. Hún er 23 J
ára gömul. Hringurinn, sem Dean %
Martin gaf henni er ekki sagðurj
vera neitt slor, jafnve'. ennþá •
fínni og dýrari, en demantshring- J
urinn er Richard Burton skenkti*
Elísabetu sinni Taylor á dögun- e
um. ’
■
Sonja, krónprinsessa Norð-
manna, býr nú £ algerri einangr-
un, meðan hún gengur með barn.
Haraldur ríkisarfi, eiginmaður
hennar, hefur tekið sér frl frá
opinberum störfum og skyldum
til að geta dvalið hjá henni I
sumarbústað úti í hinum norska
sfcerjagarði.
Krónprinsessan hefur einu sinni
misst fóstur. Þess vegna skiptir
nú mik'.u máli, að hún fái næga
hvíld og næði, meðan hún gengur
meö barniö. og Haraldur gerir
allt, sem í hans valdi stendur til
að stuðla að því.
•
Blaðburðardrengurinn hefur fyr»
irmæli um að skilja blöðin eftir*
við afleggjarann að bústaðnum, J
og sendi'.linn frá kaupmanninum •
kemur aðeins sjaldan með vörur. J
— Við fáum það sem við þurf- J
um, þegar einhverjir vinir okkar*
koma í heimsókn frá Osló. J
Haraldur krónprins getur þó»
ekki á sér setið að skreppa burt J
annað slagið, og næst ætlar hann J
að bregða sér til Travemiinde til •
að taka þar þátt í siglingakeppni, J
sem hefst 8. ágúst. •
Eva heldur
sér vel...
Eva Raubar Staier heldur sér
bærilega, enda er varla hægt að
tala um að aldurinn hái henni
stórlega, því að hún er ekki nema
21 árs.
I fyrra tók hún þátt í fegurðar
samkeppni um titilinn ungfrú Al-
heimur fyrir hönd heimalands
síns, Austurríkis, og auðvitað
sigraði hún í þeirri keppni. Margir
kalla hana ennþá fegurstu konu
heims, þótt nú hafi verið valin
ungfrú Alheimur fyrir árið 1971.
Eva er ljósmyndafyrirsæta að
atvinnu, en hún hefur fengið fjö’.d
ann allan af kvikmyndatilboðum,
sem hún hefur hafnað, því að hún
er ólík æðimörgum starfssystrum
sínum að því leyti, aö húa hafur
ekki minnsta áhuga á kvikmynd-
um.