Vísir - 12.08.1971, Qupperneq 16
Flmmtudagur 12. ágúst 1971.
Hjólreiða-
maður rotast
• Hjólreiðamaöur einn, sem var
á leið um Bjarkargötuna í gær
kvöldi, var svo óheppinn að detta
af farartæki sínu í götuna og rot-
ast.
• Lögregla og sjúkralið kom þeg-
ar á staðinn, og var maðurinn
fluttur á slysadeild Borgarspítal-
ans, en áður en þangað kom, var
maðurinn kominn til sjálfs sín, —
Méiðsli hans voru ekki talin alvar-
leg. — ÞB
Umferðaróhöpp
fyrir norðan:
Snyrtileg
bílvelta
Tvö umferðaróhöpp urðu i nám
unda við Akurevri í gær. Bifreiö
var ekið út af á Vaðlaheiði í nánd
við Birgishnjúk.
Ökumaður bifreiðarinnar hlaut
einhver meiðsli, sem þó eru ekki
talinn alvarleg, og var fluttur í
sjúkrahúsið á Akureyri. Hann hafði
verið á leið frá Akureyri til Húsa-
vikur. er slysið varð. Með honum i
bflnum var ungur drengur,. sem
s'app ómeiddur.
1 gærkvöldi valt bíll við Lónsbrú.
Sú bflvelta var eins snyrtileg og
ein bilvelía getur verið, því að eng
inn meiddist, og bíllinn stóð á hjól
unum eftir sem áður, óskemmdur
’ð mestu.
Bílstiórinn ók áfram eins og ekk
ért hefði i'skorizt; 'én kom þó við
f lðgreglustöðinni á Akureyri til
-ð láta vita af atburðinum. — >B
//
//
\
\
1
4
Rétt eins og
i alvörubúð
— segir afgreiðslu-
fólkið i Frihöfn
Keflavikurvallar
„Þetta er svo sannarlega orð
íð eins og i alvörubúð héma hjá
okkur í Fríhöfninni,“ sagði einn
afgreiðslumannanna þar í við
tali við Vísi í morgun. Hann
má lika vera hreykinn, að því
er við komumst næst er að-
elns ein meiriháttar flughöfn
önnur i Evrópu, sem býður upp
á frihöfn með kjörbúðarformi.
Hún er í Amsterdam.
Viðskiptavinir Fríhafnarinnar
á Kéflavikurflugvelli geta nú
ranglað um miili vöruhlaðanna
á naér helmingi stærri gólfifleti
en fyrir breytinguna, sem átti
sér þar stað um mánaðamótin
síðustu. Það er þó aðeins áfengi,
tóbak og sælgæti. sem afgreitt
er með kjörbúðarhætti. „En
mesta salan hefur jú alltaf verið
í þeim vamingi,“ útskýrði af-
greiðslumaðurinn — „enda hef
ur það flýtt mikið fyrir afgreiðsl
unni hér að koma þeim vörum
í sjálfsafgreiðslu, Nú er okkur
farið að takast að áfgreiða alla
þá sem hingað koma, en með
gamla iaginu var það ekki fá-
títt að fólk þyrfti frá að
hverfa sökum seinlegrar af-
greiðslu."
Hvort sem það er hinum
breyttu skilyrðum í Fríhöfninni
að þakka eöa ekki, var salan
þar 20% meiri eftir breytinguna,
en á sama tíma f fyrra.
-ÞJM
;
,Ahuginn mætti vera meiri'
— giróþjónustan virðist jb<5 mæta vaxandi
skilningi hjá almenningi og fyrirtækjum
„Áhuginn á gíróþjónust-
unni er heldur að vaxa bæði
hjá almenningi og fyrirtækj-
um en hann mætti gjarnan
verða meiri“, sagði Þorgeir
Þorgeirsson forstöðumaður
gíróþjónustunnar í viðtali við
Vísi í morgun.
Helztu fyrirtæki sem nú eru
aöilar að gíróþjónustunnj eða
munu verða það eru sími, raf-
magnsveitur ríkisins og Raf-
magnsveita Reykjavíkur og
Ríkisútvarpið. Nokkur happ-
drættanna hafa þegar gerzt að-
ilar að gíróþjónustunni, t d.
Happdrætti Háskólans og Happ
drætti Krabbameinsfélagsins og
samkvæmt þvf sem Þorgeir
sagði eru nokkrir aðiiar, sem
þurfa að innheimta félagsgjöid
farnir að huga að því að koma
þeim inn í gíróþjónustuna.
„Ég vil benda á hagkvæmni
gíróþjónustunnar, þegar greiðsla
á áskriftargjöldum er annars-
vegar og hef þá blöðin ’i huga
og tímarit auk árgjalda og ann
arra félagsgjalda. Það væri
mjög ánægjulegt, ef Vfsir og
önnur blöð notfærðu sér þetta.“
Þorgeir sagði að tryggingar-
félögin væru ekki enn farin að
notfæra sér gíróþjónustuna. >á
sagði Þorgeir að ef stofnun eða
fyrirtæki pantaði þúsund eða
fleiri eyöublöð fái þau prentun
á nafni, númeri og smá‘ inn-
heimtutexta ókeypis
—SB
Fáeinar mínútur framyfir
Æ, bara smástund út í sólina — Þaö er ekki seinna vænna að njóta sumarblíðunnar
áður én haustar og síðustu dagarnir hafa óneitanlega verið vel til þess fallnir. Eng-
inn vinnuveitandi er svo haröur aö hann sjái ekki í gegnum fingur við starfsfólk sitt
— fáéinar mínútur fram yfir í kaffitíma, rétt meöan sólin skín skærast — einkum og
sér í lagi ef um er að ræða ungar ljóshærðar blómarósir eins og þessar starfsstúlkur
Landspítalans. Þær heita Ingibjörg Richardsdóttir og Sigrún Edda Steinþórsdóttir og
brugðu sér út undir vegg hjá Landspítalanum til þess að njóta sólarinnar smástund
meðan hún er enn svo hátt á lofti.
Ljósm. Ástþór.
Bílatrygging hækkar ekki
fyrr en um áramót
— Óvist hvað þá verður
Bifreiðaeigendur geta verið
sáttir við tryggingafélögin fram
til áramóta að minnsta kosti,
þar sem iðgjöld af bifreiðatrygg-
ingum munu ekki hækka 1. sept
ember eins og áformað var. ÖII
áform um hækkun iðgjaldanna
stranda á verðstöðvuninni, sem
nú hefur verið framlengd til ára-
móta sem kunnugt er. Hins veg-
ar má búast við að trygginga-
félögin fari fram á hækkun um
áramót.
Að sögn Gunnars Ólasonar, full
trúa hjá Tryggingu hf. verður erf-
itt fyrir tryggingarfélögin að láta
þap iðgjöld, sem inn koma á þessu
árí duga fyrir tjónum. — Hins
vegar er tómt mál að ta’a um
hækkun, sagði Gunnar, meöan ekki
er vitað, hvaða ráðstafanir ríkis-
stjórnin hyggst gera um áramótin.
Tryggingafélögin fóru fram á
allt að 41.5% hækkun á iögjöld-
um ábyrgðartryggingar sem féllu
í gjalddaga í vor og 19,5% hækk-
un á kaskótryggingum Þeim var
þá synjað um hækkun, þar sem
verðstöðvun gilti til 1. september.
— Tryggingafélögin Settu þann
varnagla á kvittanir fyrir iðgjöld-
unum 1. maí. að þau áskildu sér
rétt til hækkunar 1. september og
bjuggust því bílaeigendur við ein
hverjum útgjöldum af þeim sökum.
Stjórnskipuð nefnd var skipuð
til þess að endurskoða þessi mál
og er hún starfandi enn. —JH
Hafði verið
látin í tvo
mánuðS
Lögreglan f Ostó fann í gær Hk
70 ára konu í íbúð hennar, og hafði
hún verið Iátin í tvo mánuði.—
Konan átti enga aettingja í Oslö og
umgekkst ekki nágranna sfna.
Húsvörðurinn kallaði lögregkina
á staðinn, og hún branzt irm í íbúð
ina. I póstkassa fundust bréf með
ávísunum ellitrygginganna fyrir
júní, júK og ágúst, að sögn norska
blaðsins Aftenposten.
Á ári hverju fjallar lögreglan I
Osló um nálægt sext-m danðsföll,
þar sem gamalt fólk eða aðrir ein-
búar finnast látnir i ibúöum sínum.
—HH
Viðskipfa- og Img-
fræðingar stofna
rádgjafahlufafékig
Nokkrir sénfræðingar, mest viR-
skipta- og hagfræðmgar, bafe stofn
aö hhitafélagið „Hagvang", — sem
ætlar að taka að sér h?vers kofw
ráðgjafar- og rannsóknarþjófnKtu á
sviði þjóðhagfræði og rekstrarhag-
fræði. Þá hyggst félagið hafa með
höndum rekstur fasteigna og lána-
starfsemi. Hlutíhafar em 2fl.
Hver hlutihafi leggur fram 16
þús., þannig að hlutafé er 210
þús. krónur.
Formaðtrr stjómar er Garðar Sig
urgeinsson viðskiptafæðing«r, vara
form. Garðar Ingvarsson haffraeð
ingur og meðstjómandi Kjartan Jó-
hannsson verkfræðingur. —HH
Norðmanna-
slagur bak við
Þjóðleikhúsið
• Fjórir norskir sjómenn fóru að
fljúgast á upp úr leiðíndum
bak við Þjóðleikhúsið í gærdag.
Norðmennirnir drógu ekki af
sér við áflogin, svo að nærstaddir
aðilar kvöddu til lögregluna tH að
reyna að afstýra því, að ti? mann
víga kæmi.
Þegar Iögregluþjónarnir komu á
staðinn „slógust Norðmennirnir
hressi!ega“, eins og segir í lögreglu
skýrslunni, en fljótlega tókst þó að
ska-kka leikinn. Þá lá einn Norð-
mannanna óvígur i valnum, en við
nánari athugun reyndust meiðsli
hans ekki alvarleg.
Lögreglumönnunum íslenzku
tókst að sætta Norðmennina, og þeg
ar sættir voru komnar á, var þeím
leyft að halda til skipsins, sem
flutti þá hingað, en það er ms. Pet-
er Olsen.
Fóru þeir um borð með friði til
að kasta mæðinni efti-r barsmíðam
ar. —iÞB