Vísir - 14.08.1971, Blaðsíða 8

Vísir - 14.08.1971, Blaðsíða 8
VISIR . Laugardagur 14. ágúst 197t VISIR Otgefandl: Reykjaprenr nf. ftramkvæmdastjöri: Sveinn R EyjöHssoe Ritstjöri: Jónas Kristjánsson PWttastjöri: Jón Birgir Pðtursson RftstjórnarfuUtrúi: Valdlmar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannessoo Auglýsingar : Bröttugötu 3b Sbnar 15610 11660 Afgreiðsla • Bröttugötu 3b Stmi 11680 Ritatjörs: Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 Uaur) Askriftargjaid kr. 195.00 á mánuði innaniands f lausasðlu kr. 12.00 eintakið Prentsmifiia Vtsis — Edds ht. Múrverkið mikla Tíu ár voru í gær liðin, frá því að stjómin í Austur- Þýzkalandi stöðvaði frjálsar samgöngur milli hinna tveggja hluta Berlinar og hóf byggingu hins alræmda Berlínarmúrs. í Austur-Berlín töldu menn af þessu tilefni ástæðu til að útdeila heiðursmerkjum til þeirra, sem stóðu að múrverkinu á sínum tíma. Múrinn var reistur til að hindra flótta fólks vestur. Snemma morguns var verkið hafið og brátt höfðu verið skorin sundur bönd fjölskyldna og ástvina. Berlínarbúar höfðu ekki búizt við slíku þótt mörg váleg tíðindi hefðu orðið. Það var mikil lífsreynsla að vera í Berlín þennan dag. Útlendingar fengu enn að fara yfir til Austur- Berlínar, þótt borgarbúar mættu það ekki. Austan Brandenborgarhliðs úði og grúði af sovézkum skrið- drekum. Skammt frá, undir húsveggjum, stóðu þöglir Austur-Berlínarbúar og horfðu á hervirkið eins og væm þeir við útför náins vinar. í örvæntingu reyndu margir að flýja þennan dag, og blóð rann í síkjunum. Það var átakanlegt að vera áhorfandi þessa harm- leiks, þótt hann vekti um leið þakklæti fyrir það, að íslendingar hafa aðeins þurft að horfa á í fjarska. Síðan þá hefur múrinn hringað sig um Berlín eins og kyrkislanga. Hann heldur hátt á aðra milljón manna í helgreipum sínum. Visnuð blóm jg kransar vestan megin minna á þá sjö tugi manna, sem hafa látið lífið í tilraun til flótta yfir múrinn. Það er Berlínarbúum lítil huggun, þó að austur- þýzk stjórnvöld geti frá sínum sjónarhól fundið rök fyrir múrverkinu. Fólksflóttinn frá Austur-Þýzka- landi var orðinn svo mikill, að til stórvandræða horfði í efnahagsmálum og atvinnulífi. Það voru ekki sízt menntamenn, sem fóru vestur. Austur-Berlínarbúum var þann dag sagt, að þetta væri „varnarveggur“ gegn ásókn auðvaldssinna. Því fögnuðu ungir kommúnistar í gær þessu afmæli. Frá bæjardyrum Kommúnistaflokksins var ekki um að sakast. Múrinn hafði náð tilgangi sínum. Varla nokk- ur maður gat lengur komizt burt úr ríki þeirra. „Fjár- festingin“ í múrnum hafði gefið arð. Willy Brandt kanslari Vestur-Þýzkalands sagði fyrir skömmu, að góðar vonir væru um lausn Berlínar- málsins fyrir árslok. Hann batt vonir við fund fjór- veldanna, sem staðið hefur undanfama daga. Enn hefur þó ekkert frétzt af þeim fundi, sem bendir til skjótrar niðurstöðu. Vestur-þýzka stjómin hefur sett samkomulag um Berlín sem skilyrði fyrir staðfestingu á samningi sín- um við Sovétstjómina. Sovétmenn leggja mikið upp úr, að samningurinn verði staðfestur. En fyrir það verða þeir að losa kverkatökin á Berlín. Hörð barátta um Timaritið Newsweek segir frá stöðunni i deilum Bandarikjanna og rikja Subur-Ameriku og landhelgismálum almennt „Valdsvæði ríkja end- ar, þar sem vopnavaldi þeirra lýkur“, sagði hol- lenzkur lögfræðingur ár- ið 1703. „Réttur hins sterkari“, sem þessi orð lýsa, var lengstum sá réttur, sem gilti í alþjóða samskiptum, og er enn að miklu leyti ráðandi. Þeta er ein spurningin í Iandhelgismálum okkar og annarra: Ræður sá sterki enn eða skiptir nú meira máli, hvað er sann gjarnt og réttmætt? „Alþjóðadómstóllinn gagnslaus“. Bandaríska tímaritið News- week fja'lar um landhelgismálin í síðasta hefti og einkum um landhelgismál Suður-Ameríku- ríkja, sem sum hver hafa fært út einhliöa í 200 sjómílur. Tíma- ritið segir að „sem betur fer sé líklegt að lögfræöingar óg „diplómatar'1 muni brjóta málið tíj mergjar" f” Genf,: þar' sem fulltrúar 86 rikja hafi setið á fundum í meirá en tvær vik- ur og undirbúið ráðstefnu, sem verði árið 1973. Sú ráðstefna verði þriðja tilraunin á fimmtán árum til að fá úr því skorið í eitt skipti fyrir öli_ hver ráði liverju á, í undir og jafnvel yfir höfunum. „Alþjóðadómstóllinn í Haag er gagnslaus í þessu tilviki", segir tímaritið, þar sem ákvarð- anir hans séu þvi aðeins bind- andi, að málsaðiiar skuldbindi sig fyrirfram til að hlíta úr- skuröi hans. „Endurskoða efnahags- aðstoð við Ekvador“. Newsweek segir, aö sumir Ktj á Bandaríkin, Sovétríkin og ýmis önnur mikil siglingariki sem ofbeldisseggi, sem ræni frá vanþróuðu ríkjunum alls konar auöæfum í hafinu, og telur tfmaritið þetta skritið. 25 ríki heims hafi aðeins þriggja sjómílna landhelgi og 44 hafj tólf sjómílur. — Þá ræðir tfmaritið um deilurnar milli Suður-Ameri'kuríkja og Bandarfkjanna um þessi mál. Ekvador hafi til dæmis tekið 26 bandarísk fiskiskip á þessu ári. Bandaríska stjómin hafi svarað þvf með því að hætta vopnasendingum til landsins og hóta að „endurskoða" efnahags- aðstoðina við Ekvador, en hún nemi 25 milljónum dollara (2200 milijónum króna). Þá hafj stjórn Ekvador, rekið úr landi alla hemaðarsendinefnd Bandarikj- anna, 37 manns. Brasilía endurnýjar flotann. Ötfærsla Brasilíu í 200 sjó- mílur hafi tekið gildj i júnimán- Uðj siðastliðnum. Stjórnvöld þar hafi þegar í stað gert út skip og ... softikho* "'Cf 200 (>.« u.s. . ■ i ÍTfí'i Itottí ta i ' . . . ,»i -Oof* tikfkíitbiHi . MtWO l i flugvélar tij að reka , burt veiði- “ þjófa (sem tímaritið hefur inn-')2 an gæsa-lappa). Fiskiskip frá Japan, Suður-Kóreu, Guyana og Súriam hafi hraðaö sér brott en: i2/>S, ytnt'f ekki bandarísku skipin. Banda- rísk skip hafi hunzað útfærsluna, og lagt net s’in. Bandaríska þing- ið hafi frestað lagasetningu, sem; / ,. , ætluð hafi verið til að hjálpa \ Brasilíu og öðrum kaffirikjum A tij að halda kaffiveröinu óeðli-: \ lega háu. Þingmenn á þingi ^ Brasilíu urðu æfir. Brasilíustjórn '—j hyggst verja nær 30 milljörðum f’ttn/h r króna til að endurbæta flota; sinn til að takast á við hvern þann, sem seilist inn fyrir land- 4 ^ helgina. ͧ Truman - tilkall til landgrunnsins. Newsweek bendir á. að fall- byssur dragi nú langt fram yfir þrjár milur, gömlu landhelgis- mörkin. Tækniframfarir við fiskveiðar hafi jafnframt gert fiskimið fjarr; landi mun hag- kvæmari en áður var. Reyndar hafi þaö veriö Bandaríkja- menn sjálfir, sem manna fyrstir hafi viðurkennt þessr breyting- ar og Harry Truman forseti Bandaríkjanna gerði árið 1945 tilkall til einkaréttar Bandaríkj- 200 Harry Truman fyrstur af stað 111111111111 fl® SffiEI ■ ■■■■■BfilBIEBEg Umsjón: Haukur Helgason anna á landgrunni sínu, sem nær 50—150 mílur út af austurströnd Bandarfkjanna. Slíkt landgrunn sé ekkj viö vesturströnd Suður- Ameríku, en Chile, Ekvador og Perú hafi vitnað til Truman- yfirlýsingarinnar árið 1952, þeg- ar þessj ríki gerðu Santiago- samþykkt sína um tilkalj til einkaréttar á fiskveiöum í 200 sjómílur. Með þeirri útfærslu hafi ríkin náö til Humbolt- straumsins, þar sem eru einhver auðugustu fiskimiö heims Nú geri tíu ríkj Suður-Ame- riku tilkall til 200 sióm'Ona fisk- veiöilögsögu. Þessi ríki leggi sig fram um að fá stuðning ríkjanna Útfærsla Suður-Ameríkurikj- anna — Tölumar sýna, hve- nær fært var út og hve marg- ar mílur hin einstöku ríki eigna sér. í „þriöja heiminum“, Asfu og Afríku. Gínea hafi lýst yfir 130 mílna landhelgi út af vest- urströnd Afríku, og Afrikuríkið litla Sierra Leone hafi f ár fœit út f 200 mllur. „Skrítin bandalög“ Tímaritiö hefur það eftir John R. Stevenson, sem er foimaður bandarísku sendinefndarinnar á Genfarfudinum og sá, er lagði fram bandarísku tillögumar í síðustu viku, aö væru 200 sjó- ’mílur reglan mundi „millj 25 og 50% hafanna falla undir landhelgj einstakra ríkja“. Minnt er á tillögur Bandaríkj- anna um tólf mflna landhelgi, en. sagt, að á því séu mikil vandkvæði. Síðan ræðir News- week nánar um bandarísku til- lögurnar um reglur á sundum og siglingaleiðum. Newsweek bendir á, að þessi deila hafi leitt til skrítinna bandalaga. Til dæmis séu Banda- ríkin og Sovétríkin harðir keppi- nautar á höfunum, en sem flota- veldi standi þau saman í and- stöðunni viö 200 sjómflna land- helgi. Á sama hátt leiti stjómir í Suður-Ameríku, sem sumar séu mjög hægri sinnaðar, nú samstöðu við hlutlausu ríkin. Kínastjórn styíVi 200 mílna menn þótt landiÖ sjálft hafi tólf mílna iandhelgi, og Pekingstjóm in tali um „samsærj Bandaríkja- manna og Sovétmanna" í þess- um efnum. „Vilja/taka 188 og gefa okkur 12“. Þeir ætli. segir Pekingstjórnin, aö skipta höfunum á milli sín. Suöur-Amerikumenn muni ekki sæt.ta sig við þá lausn, sem Bandarfkin lesgia til. Tímaritið hefur eftir starfsmanni í utanrík" isráðunevti Perú: „Bandaríkin vilja skipta 200 mílunum. Gefa okkur tó’f en hafa sjálfir 188. Ef við værum svo heimskir að sambykkia þá mundu stór- vejdin sölsa undir sig hafið“. ((

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.