Vísir - 17.08.1971, Blaðsíða 4

Vísir - 17.08.1971, Blaðsíða 4
Bætti mefið um sekúndu! >rJá, ég er ánægöur meö sundiö“, sagði Finnur Garöars- son, þegar Vísir talaði viö hann eftir metsundið og bronsverö- launin i 100 m skriðsundi á NM á sunnudag. „Sundið var vel heppnað — snúningurinn góður, en það eina, sem gat verið betra var, þegar ég snerti bakkann. Ég kom með hálf- boginn handlegginn á bakkann og hann rann niður. Þetta liefur kostað mig 1—2 sekúndubrot, en varla silfurverðlaunin“ sagði Finnur og brosti, enda rnátti hann vera ánabgður með hinn á- gæta árangur sinn, þar sem hann bætti íslandsmet sitt í þessu stutta sundj um 9/10 úr sekúndu. Slíkt er óvénjulégt í -prettsundi. — hsím. 4 Furðulegur trassaskapur Nóttina fyrir NM í sundi var unnið að fylla upp í rennuna á sundlaugarbarminum til þéss að fá sléttan bakka. Slíkt var auðsynlegt, bar sem bess er krafizt á alþióðamótum. ís- !enzka sundfólkið er vant þvi snúa sér á þann hátt að grípa í rennuna — en nú var aðeins sléttur bakkinn oe bví snúning- ir margra heldur lélegir. Einkum var þétta slæmt hjá Leikni Jónssvni í 200 m bringu- -undinu — hann sneri sér með 'ivf að erípa upp á sundiaugar- harminn, sem auðvitað kann okki góðri iukku að stýra. Vafasamt er bó. að Leiknir hafi orðið af guiiverðlaunum í ' s""dlnu vegna bessa. Til bess '’?föi hinn litli, en knáj Svíi, Göran F.rikson, of mikla yfir- hurði. Hins vegar er ekki hægt af afsaka þann trassaskap. sem ■ arna kom fram — ioksins. þeg ar fyrsta stórmótið í sundi er ’'áð hér. er farið að hunsa til ’-ess örfáum kluklo'stundum Fvrir mótið. að fá siéttan bakka — sem sagt rennt upn f renn- una — og hví enninn möguleiki fvrir ísienzka sundifólkið að æfa snúninga við þær aðstæðnr. sem barna sköpuðust F.rlendu kepp- endumir bekkja ekki annað en sléttan bakka og kom þetta þvi ekki að sök fyrir þá. — hsím. MIMIMIÍIMIMM9IMH — og fallið niður / 2. deild virðist blasa við KR í hávaðaroki mættust KR og Breiðabíik á Laugar dalsvelli» n;ær og lauk leikn um án þess mark væri skorað, en allt lánið — öll heppnin var öðrum megin, hiá Breiðabliki. Fjórum sinnum tókst leikmönnum Staðan í 1. deild Staðan í 1. deild eftir leikina í gær: Keflavík 10 6 2 2 24-12 14 ÍBV 10 6 2 2 24-12 14 Fram 10 6 1 3 24—16 13 Akranes 11 6 0 5 23—22 12 Valur 11 5 2 4 21-21 12 Akrrcvri 11 3 1 7 19—25 7 Breiðablik 113 17 8—26 7 KR 10 2 1 7 7-16 5 Næsti leikur er í Vestmannaeyj- um annað kvöld — miðvikudag — milli ÍBV og Fram. Um helgina !eika Akranes — KR, og Keflavík — Vestmannaeyjar á laugardag kl. 4, Breiðablik — Akureyri á sunnu dag kl. 4, og Fram — Valur á mánu dag kl. 19.30. liðsins að bjarga á mark- línu á síðustu stundu og í eitt skiptið virtist knöttur inn jafnvel fyrir innan marklínuna, og tókst því að ná jafntefli í leik, sem sanngjarnt hefði vérið að KR ynni með minnsta kosti tveggja marka mun. Það hefur oft verið skrifað um KR-heppni í blöðin, en það verður víst ekki gert í sumar, og allra sízt eftir þennan leik. KR var ó- heppið í þessum ieik og eftir hann virðast mjö'g litlar ’.íkur á því, að liðið haldi sæti sínu í 1. deild. — Það verður þvi sennilega hlut- skipti „gamla, góða KR“ að leika í 2. deild næsta ár. Liðið á nú fjóra ’.eiki eftir, tvo gegn Keflavík, og einn við Fram og Akranes og þeir gefa varia mörg stig, ef nokkuð. — Það er þó ekki rétt að afskrifa KR alveg, þó útiitið sé slæmt, en vissu lega standa Breiðablik og Akureyri mun betur aö vfgi með tveimur stig um meirþvjiyprt :!lj{S( þess • eftir að leiká -innbyrðis. Það var ekki hægt að sýna rhikl'a knattspyrnu í rokinu í gær, en það kom þó greinilega í Ijós, að lið KR yar sterkari aðilinn í þessari viðureign. Vörnin var sterk með þá Ellert og Þórð sem beztu menn á miðjunni og Breiðablik fékk sárafá tækifæri í leiknum. KR lék undan vindinum i fyrri hálfleik og sótti miklu meir — knötturinn var nær stöðugt á vall- arhelmingi Breiðabliks. Strax á 6. mín. komst Baldvin Baldvinsson einn í gegn en spyrnti beint á Ól- af Hákonarson, markmann. Knött- urinn hrökk til Atla Héðinssonar, en Magnús Steinþórsson bjargaði skalia hans á marklínu. Rétt á eftir náði Breiðablik sínu hættulegasta upphl'aupi í hálfleiknum — Þór Hreiðarsson komst í gegn, en Magn- ús varði spyrnu hans. Knötturinn fór til Ólafs Friðrikssonar, sem spyrnti aftur á markið. Knötturinn fór í KR-ing og í horn. En sóknarþungi KR hélt áfram. Á 15. m’in. fékk Sigurður Indriða- son knöttinn eftir hornspyrnu og spyrnti á markið, en nú bjargaði Steinþór Steinþórsson á marklínu og á næstu mín. fékk KR annað horn. Ellert fór fram og fékk knött inn inn f vítateig. Hann spyrnti fast á markið — knötturinn fór framhjá Ólafi márkverði og virtist kominn yfir línu, þegar Guðm. H. Jónsson spyrnti frá að baki mark- varðar Dómarinn var vel staðsett ur mak - en EU- ert imótmæltr: Síðustu 12! mfn. hálfieikgjns for Ellert alveg í sóknina og skapaði þá Atla fráþært tækifæri, þegar hann skailaöi knöttinn fyrir fætur hans, þar sem hann stóð á mark- teignum. En Atli hikaði aðeins og Ólafi tókst að verja. Tvö önnur góð tækifæri fékk Atli, en spyrnti f bæði skiptin framhjá. Á loka- mínútunum náði Breiðablik tvívegis snöggum upphlaupum og án EHerts í vörninni var hún talsvert opin. Þetta kom þó ekki að sök — Magn ús Guðmundsson varði, en meidd- ist og lék draghaltur í sfðari hálf- leik. Þó Breiðablik léki undan vindin- um í síðarj hálfleik var aldrei um þá einstefnu að ræða, sem var í þeim fyrri. og Breiðablik fékk raun verulega aðeins eitt tækifæri, þeg- ar Einar Þórhallss. spyrnti framhjá á 20. mín. En KR-ingar náðu af og til upphlaupum og á lokamínút- unni var allt á suðupunkti, knött- urinn dansaði um í markteig Breiða bliks, en inn vildi hann ekki og mikiö var þá afrek Guðm. H. Jóns sonar, þegar honum. næstum í axl- arhæð, tókst að spyraa frá á mark linu á síðustu stundu. Lið KR barðist af krafti f þess- um leik og var sterkari aðilinn. — Vörnin var allt önnur og betri síð an Ellert byrj'aði á ný og síðan hef ur liðið reyndár ekki taj>að leik. — En nægir það gegn hinum sterku liðum, sem félagið á eftir? — Leik- menn Breiðabliks vcru óvenju dauf ir í leiknum. Kannski hin þjakandi taugaspenna augnabliksins hafi haft þessi áhrif á leik liðsins, en vissulega var það mjög heppið að tapa ekki leiknum. -—hsím. Ellert Schram, annar frá hægri, skallaði knöttinn fyrir fætur Atla Héðinssonar inn á markteig. Hinn ungi framherji hikaði allt of lengi, Guðmundur H. Jónsson komst á milli. Atli renndi knettinum framhjá honum, en Ólafur Hákonarson varði frekar laust skot hans. Ljósm. BB. Tekst íslenzka sundfölkinu að jafna metin gegn Dönum? Landskeppnin i sundi hefst i Laugardalslaug i kvöld í kvöld hefst í Laugar- dalslauginni landskeppni íslands og Danmerkur og er það í fjórða skipti, sem íöndin leiða saman hesta sína í landskeppni á þess- i*m vettvangi. Danir hafa tvívegis sigrað, en íslend- ingar einu sinni og nú virð ast goðir möguleikar á því að metin verði jöfnuð. Fyrsta landskeppnin .var i Kaup- mannahöfn 1964 og unnu Danir þá með miklum mun, einnig 1966, þeg- ar Laugardalslaugin var vígð. En H síðustu landskeppni — 1969 í Kaupmannahöfn — bar ísland sigur úr býtum með tveggja stiga mun, 151 stigi gegn 149. Þd var keppt í 22 landsliðsgreinum eins og nú verður gert og þájýgraði ísland á síðustu grein keppninnar, boðsundi. Fróðir menn segja, að hið sama geti orðið uppi á teningnum nú. Islenzka sundfólkið náði góðum árangr; á Norðurlandamótinu um helgina og það bætti yfirleitt ár- angurinn eins og vel gefur til kynna að 12 íslandsmet voru sett. Fyrir þetta mót var danska sundfólkið sigurstranglegra í landskeppninni, en eftir það eru miklu meiri líkur á jafnri keppn, — jafnvel miklir möguleikar á sigri Islands. Keppnin hefst í kvöld kl. átta og verður fyrsta grein mjög dönsk — 200 m baksund karla, þar sem hinn frábæri sundmaður Eyvind Pedersen er meðal keppenda. En eftir 400 m skriðsund kvenna kem- ur svo íslenzk grein, 200 m bringu- sund og þar ættu Leiknir og Guð- jón að geta tryggt tvöfaldan Jsl. sigur og keppnin að jafnast. óg þannig mun það ganga áfram — skemmtileg keppni í flestum grein- um, en á morgun lýkur svo lands- keppninni. Það er alttaf gaman að vinna Dani — en tekst það nú?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.