Vísir - 17.08.1971, Side 9

Vísir - 17.08.1971, Side 9
VÍ SIR . Þriðjudagur 17. ágúst 1971. nmng 7 Blm. V'isis heimsækir húsin á Bernhöftstorfunni Ðanskar fúaspýtur ellegar menningarlegar minjar? Á að brenna heila klabbið og jafna við jörðu eða á að leggja allt kapp á að endurbyggja húsin í sinni upprunalegu mynd? Hvaða hús? — Auðvitað húsin á Bernhöftstorf- unni, einna umdeildust hús á fslandi. Enginn veit, hvað verður um þessi hús, en flestir Reykvíkingar virðast hafa ákaflega fastmótaðar skoðanir á þeim — annaðhvort vilja menn hafa húsin þarna eða þeir vilja, að þau verði mölvuð mélinu smærra, og svo vilja sumir, að reynt verði að flytja húsin burt. Ekki lítur þó út fyrir, að allir hafi myndað sér þessar ákveðnu skoðanir sínar eftir skynsamlegu viti. Andstæðingar húsanna segja gjarnan, að þau séu ekki annað en ormétnar fúaspýtur, sem hangi uppi af gömlum vana. jþeir, sem vilja halda húsunum á sínum stað, segja, að þau séu geysilega fögur og séu merkileg og menningarleg heim ild um sögu Reykjavíkur, og þar að auki í góðu ástandi. Andstæðingar húsanna segja, að þar sé dýratíf fjölskrúðugra en annars staðar í Reykjavík, að því er meindýrum viðkemur og skorkvikindum. Húsaverndarar segja, að með tiltölulega lltilli fyrirhöfn megi hressa upp á húsin og stunda ' þar menningarlega og jafnvel arðbæra starfsemi. Hafandi heyrt þessar og raun ar miklu fleiri staöhæfingar um húsin á Bernhöftstorfunni gerði blaðamaður Vísis tilraun til aö athuga málið á Mutlausan hátt upp á eigin spýtur. Lyklavöldin að gömlu húsun- um hefur Sigurður Ólason, og hann var þegar í stað til í að leyfa ljósmyndara Vísis og biaða manni aö sjá þessi frægu hús að innan. Um sitt persónulega álit á framtíð húsanna sagði Sigurður, aö hann, væri svartsýnn á, að hægt væri að flytja húsin ó- skemmd burt af staðnum, eins og sumir viidu gera. „Eflaust er hægt að gera einhver af þess um húsúm í stand“, sagði Sig- urður. ,,En það kostar óhemju mikiö fé, og ég er þeírrar skoff- unar, aö hægt sé að gera þarfari hluti fvrir það fé.“ Turnherbergið á Amtmannsstíg 1 er fallegasta herbergði i húsunum á Bernhöfístorfunni. Það er íslenzkt en ekki danskt og raunar ekki eldra en frá 1905. Þessi mynd er tekin úr einu herbergjanna á loftinu í Banka- stræti2. Það er stjórnarráðið sem sézt út um gluggann. Þarna er þá komið fram enn eitt sjónarmiðið í sambandi við húsin, óvenju hófsamt. TjMzt húsanna er Bankastræti 2, byggt árið 1834, og þar er höndlað enn í dag, og inn í húsið fórum við í gegnum verzl unina. Fyrir dyrum eru ramm- legir slagbrandar til að innbrots þjófar láti ekki greipar sópa um vörur verzlunarinnar. eru. húsakynnin reisu- leg, þo að þétta hafi eflaúst:aHt’' sjá, sé í merkilega góffu standi. Bit- ar í lofti virðast ófúnir og svo aðrir innviðir. Ekk; verður vart við sagga, og hvað rottum og meindýrum viðkemur, varð ekki vart við slfk dýr á þessari skoð unarferð, þótt það sanni auðvit- að hvorki eitt né neitt. Frá sjónarmiði nútímamanns- ins er húsnæöið í Bankastræti 2 hvorki hentugt, fallegt né vist- legt. Það liggur í augum uppi, aö hægt væri aö laga húsið, en það verður ekki gert nema fyrir mikið fé. Og til hvers á að laga húsið? Til þess eins að viðhalda því? Eða til þess að reka þar ein hverja menningarlega starfsemi? Er húsið sjálft svo merkilegt og fallegt, að Reykvíkingum sé heilög skylda að viðhalda því? Ef áuka á fjárframlög til menn ingarstarfsemi, er þá ekki vit í að reyna að hafa hana í skárra húsplássi og hentugra? Þessum spumingum veröur ekki svarað hér, en það er ekki svo vitlaust að velta þeim fyrir sér, áður en afstaða er tekin til húsanna á Bernhöftstorfunni. 'Um sögu Bankastrætis 2 er þetta að segja: Þetta er fbúðar- hús, brauðgerðarhús og gevmslu hús, byggt árið 1834. Frá upp- hafi byggingasamstæða um lok- aðan hús^igarð, lítið brevtt frá upphaflegri gerð. Árið 1861 var byggt stórt geymsluhús við suðurenda húsagarðsins og ár- ið 1885 var reist sölubúð við norðurenda hússins. Danskur bakari, Bernhöft aö nafni, keypti eignina árið 1845, og síöan var hún í eigu afkomenda þessa brauðgerffarmanns, sem þótti á- kaflega fær í sínu fagi. j^æst var haldið yfir í Amt- mannsstíg 1, en það er íbúð arhús, byggt árið 1838. Þessu húsi hefur verið brevtt talsvert frá upprunalegri gerð. Árið 1859 var húsið lengt til noröurs um tvö stafgóíf, kvistur settur á vesturhlið þess og inngangur færður að Amtmannsstíg. Tum byggingin er frá 1905, teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni. Þetta hús er kailað „Land- læknishúsið“, síðan Guðmundur Bjömsson landlæknir bjó þar. Neðri hæöin lítur ekki sérlega gamaldags út, eftir állar þær bréýtingaf,' sem' 'gérð&r hafa ver ið á húsinu, en henni er jlla við ‘Kalflfð. U " Sumir hafa stungið upp á því, að þama verði kcwnið upp kaffi- stofu, þar sem hægt verði að sitja og horfa yfir Lækjargöt- una. Það er ekki svo vitlaust að fá fleiri og betri kaffihús fyrir þá, sem hafa tíma til að stunda þau, en Amtmannsstígur 1 lítur ekki út fyrir að vera heppilegt húsnæði til slíks reksturs. Þar er of lágt undir loft, og sömu leiðis eru gluggamir ofurlitlar bomr, svo að lítiö fer fyrir út- sýninu. ^thyglisverðast við þetta hús er turninn, en hann er reynd ar ekki nema rúmlega sextiu og fimm ára gamall, svo að vafa samt er að telja hann meðal heilagra fornminja. Hann er eins og fyrr segir teiknaöur af Rögnvaldi Ólafs- syni, fyrsta íslenzka arkitektin- um. Tumherbergið er einkar fallegt, og þar er öl'lu bjálka- verki fyrir komið af mikilli list og smekkvísi. Sem sagt: Ósköp snoturt en varla stórmerkilegt. Að iokinni skoöunarferð um Bernhöftstorfuna veröur manni ljóst, að það mál, sem deilt er um, veröur erfitt að leysa. Það er skaði, ef þessi hús verða öH jöfnuð við jörðu, en ekki er heldur hægt að láta þau standa áfram gersamlega ónotuð og vanhirt unz þau grotna niður af sjálfu sér. Fyrir peninga er hægt að lag færa húsin, en til þess þarf rrlikla peninga. Væri þeim pen ingum ekki skynsamlegra að verja til einhvers annars? Ein- hvers sem er meira lifandi en gömul hús? Og eru þessi hús svo merkileg, að það svari kostn aði að gera þau upp? Það er gmndvallarspumingin. —ÞB lÍSRSrö — Hvað finnst yður, að eigi að gera við Bemhöftstorfuna? Vaigeir Tryggvj Ingimundarson, starfsm. hjá Símanum: — Að sjálfsögðu á að láta hana hverfa og tyrfa s’iðan torfuna. Ingibjörg Eyþórsdóttir, barna- pía: — Mér finnst að þau eigi að fá að standa, þvl aö þau eru búin að vera þarna svo lengi. Þaö þarf bara að gera þau soldið upp .... Guðmundur Kr. Símonarson, verzlunarm.: — Það verður að varöveita þessi hús, þar sem mörg þeirra eiga það mikið sögu legt gildi. Því gildi þyrftu þau ekki að tapa við það að verða flutt á safn eins og t.d Árbæ. Þangað finnst mér að megi flytja þau og fá hér nýtt skipulag I þeirra stað. Það yaer; fásinna að gera þáu upp hér.1 ’ Guðmundur Daðason, iðnverká- maður: — Ég er nýfluttur í borgina og hef því lítið áttað mig á miðbænum ykkar enn. En svona fljótt á litið virðist mér kunna að verða töluverður sjón- arsviptir við það að þessi gömlu hús hyrfu. Gísli Helgason, verkam.: — Þauy á alls ekki að rifa. Það á að dubba þau upp í sína gömlu mynd og svo mætt; nýta þau á ýmsa lund T.d. mætti hafa þarna barnagæzlu fyrir þær mæður, sem eru að vinna eða verzla hér í miðbænum. Ámi Árnason, nemi Akureyri: - Ég hef ekki myndað mér neina skoðun á því. Veit nefnilega ekki hversu merkileg þessi hús eru. Hins vegar finnst mér þau nióta sín ágætl.ega hér viö Lækj- argötuna.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.