Vísir - 22.09.1971, Blaðsíða 3

Vísir - 22.09.1971, Blaðsíða 3
V1SIR. Miðvikudagur 22 september 197L I MORGUN UTLÖNDÍ MORGUN UTLÓND S MORGUN ÚTLÖND I MORGUN UTLÖND titosjón: Haukur Helgason Óvíst um stjórnarmyndun: DANSKA STJÓRNIN TAPADI Jufnudarmenn bættu við sig óttu þing- * mönnum og sósíalistur sex — Urslitin velta á endurtalningu og úrslitum í kosningum í Færeyjum 5. október. Stjórn dönsku borgara- flokkanna tapaði talsverðu fylgi í þingkosningunum í gær, en stjórnarandstaðan, jafnaðarmenn og sósíalist- íski þjóðarflokkurinn unnu mikið á. Þegar grófri taln- ingu var lokið í morgun, kom í Ijós að stjórnarflokk amir höfðu fengið 88 þing menn kjöma en stjórnar- andstaðan 87, svo að „fín- talning“ ræður úrslitum, þar sem fáum atkvæðum munar víða. Hins vegar er óvíst að Hilmar Bauns- gaard forsætisráðherra treysti sér til að halda sam- starfi borgaraflokkanna á- fram, þótt þeir kynnu að hafa eins þingmanns meiri hluta. Auk þess á eftir að kjósa tvo þingmenn í Fær- eyjum til setu á danska þinginu. Samkvæmt gróftalningunni í morgun höfðu jafnaðarmenn fengið 70 þingmenn og bætt við sig 8, í- haidsflokkurinn fékk 31 og tapaði 3, vinstri flokkurinn 30 og tapaði 4. Flokkur Baunsgaards, Róttæki vinstri flokkurinn fékk 27 þing menn, sem er óbreytt, Sósíalistíski þjóðarflokkurinn fékk 17 og bætti við sig 6. — Þingmönnum hefur verið fjölgað lítilsháttúr fná því er áður var. Stjórnarflokkamir höfðu fengið 46,7 af hundraði atkvæða og stjóm arandstaðan 46,4 af hundreði. Auk þess skorti Kristilega þjóðarflokk- inn aðeins 754 atkvæði til að ná tveimur af hundraði atkvæða og fá þar með þingtnenn kjöma. Þegar Hilmar Baunsgaard geng ur fyrir konung um hádegisbilið í dag er búizt við að hann geri eng ar tillögur um stjórnarmyndun, held ur verði beðiö eftir nákvæmari talningu atkvæða og jafnvel kosn ingunum í Færeyjum sem verða 5. október. Komst Kristilegi flokkurinn yfir það lágmark atkvæða, sem lög á- kveða, að þurfi til að fá þingmann kjöma, getur þaö breytt tölu- verðu. Flokkurinn mundi þé lík- lega fá fjóra þingmenn og taka tvo af jafnaðarmönnum, einn frá Vinstri flokknum og einn frá Rót- tæka vinstri flokknum. Búizt hafði verið við fylgisaukn- ingu jafnaðarmanna og sósíalist Hilmar Baunsgaard forsætisráðherra — Þðtt stjómin tapaði, stóð flokkur hans ístað. íska þjóðarflokksins. Fylgisaukn- ing hinna siðarnefndu má að miklu leyti rætur í andstöðu flokksins við inngöngu í EBE. Forystumenn fiokksins bentu á, að Vinstri flokk urinn hefði tapað mestu, en hann berðist harðast flokka fyrir inn- göngu í EBE. Það kom á óvart, að flokkur Hilmars Baunsgaards skyldi halda þingmannatölu sinni í kosn- ingunum. Voru fréttaskýrendur sammála um það í morgun, að þetta væri persónulegur sigur fyrir forsætisráðherrann. Íhaldsmenn og Vinstri flokkurinn svonefndi sem er borgaralegur flokkur, biðu mestart ósigur í kosn ingunum. Að sumu leyti er þetta talið merki um vaxandi andstöðu við inngöngu í EBE, en auk þess hefur hinn nýi kristilegi flokkur tekið fylgi af þeim, einkum frá Vinstri flokknum. Hansen fjármála ráðherra og Poul Hartling utan- ríkisráðherra hörmuðu í morgun að flokkar þeirra heföu tapað svo mjög Hartling sagði, að það þæri ógæfu legt að nú væri ekki unnt að benda á skýrar línur um stjórnarmyndun. Ýmsir smáflokkar buðu fram 1 kosningunum, svo sem kommúnist- ar, er fengu 1,4% atkvæöa og eng an þingmann en þeir höfðu haft einn á seinasta þingi, eftir að hann gekk úr öðrum flokki yfir til komrn únista, Flokkur Sósíalista fékk 1,6% og engan kjörinn, Réttar- sambandið 1,7% og engan ing- mann og Slésviski flokkurinn 0,3% atkvæöa. _ Samkvæmt gróftalningunni skipt ust atkvæðin þannig milli stærri flokkanna: Jafnaðarmenn 37,3%, áður 34,2% Róttæki flokkurinn 14,3%, áður 16,0% fhaldsflokkurinn 16,7% áður 20,4% Vinstri flokkurinn 15,6% áður 18,6% Sósíalistfski þjóðarflokkurinn 9,0% áður 6,1% Baunsgaard sagði í nótt að ékki kæmi til greina, að núverandi stjórn sæti áfram, ef hún yrði að styðjast við Kristilega flokkinn á þingi. — Jens Otto Krag foringi jafnaðarmanna viil minnihlutastjórn þeirra. Foringi jafnaðarmanna, Jens Ottol Krag, sagðist vænta þess, að Baunsgaard mundi biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sittt. Stjórnin I heföi orðið að gjailda fyrir stefnu sína i efnahagsmálum. Krag æskti eftir minnihlutastjóm jafnaðar- mannaflokksins. Orðrómur um sjúkleika Maos og upplausn í Kína Orörómur er á kreiki um, að Mao Tse Tung, formaður kínverska kommúnlstafiokksins sé alvarlega sjúkur eða jafnvel látinn. Orðrómur þessa efnis hefur raunar komiö upp fyrr á árum og reynzt ósann- ur. Starfsmaður kfnverska sendi- ráðsins í Ottawa segist ekkert hafa, verska alþýðulýðveldisins. Þar hafi um þetta frétt frá Peking. 1 innanlandsflug legið niðri í þrjá Fréttamenn hlustuðu á hvert orð daga, og nú sé ógerningur að ná I kínverska útvarpinu í morgun, en sambandi við Chou-En-Lai forsætis- ekkert var sagt um sjúkleika Maos.1 ráðherra. Aðrar fréttir herma, aö mikil ólga sé í Peking, höfuðborg Kín- Sósíalistískur meirihluti í Osló Sósíalistfskir flokkar munu á- fram hafa meirihluta í borgarstjórn Osló, en þar lauk talningu í nótt. Samkvæmt grófri niðurstöðu hef ur Verkamannaflokkurinn fengið 35 fulltrúa og tapað 2, Hægri flokk- urinn 30 og tapað 3, Sósíalistíski þjóðarflokkurinn 8 og unnið 2. Vinstrí flokkurinn tapiar 1 og fær 3, Miðflokkurinn fær 2 og vinnur 1, Kristilegi flokkurinn fær 5 og bætir viö sig 1 og vinstri sósíalistar fá 1 kjörinn, og náttúruverndar- menn 1. Þá verða fulltrúar sósíalistískfa flokka 44 á móti 41 fulltrúa borgara flokka. Mao Tse Tung Var sagt, að hætt væri við há- tíðahöld á þjóðhátíöardaginn 1. október, en fréttamaður japönsku fréttastófUnna^. í Peking neitar þessu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.