Vísir - 22.09.1971, Side 13

Vísir - 22.09.1971, Side 13
V í SIR. Miðvikudagur 22 september 1971. •••••••••••• t „Vil bólusetja með varúð" — segir Halldór Hgnsen, læknir á barnadeild Heilsuverndarstöðvarinnar um bólusetningu gegn bólusótt T erlendri frétt í blaðinu í gær * var haft eftir talsmanni Al- þjóðlegu heilbrigðismálastofnun- arinnar 'i Genf að í þeim ríkjum, sem heilbrigðismál væru í góðu lagi væri án áhættu hægt að hætta reglubundinni bólusetn- ingu við bólusótt. 1 þessari frétt er einnig haft eftir talsmanni þessum, áö í lönd um eins og Bretlandi og Banda- ríkjunum sé áhættan við bólu- setningu talin meiri en hættan á að veikjast af sjúkdómnum — Bretar hafi fyrir árj hætt skyldu bólusetningu og búizt er við, áð Bandaríkjamenn fetj í fötspor þeirra. P'jölskyldusíðán sneri sér til Haildórs Hansens læknis á barnadeild Heilsuvemdarstöðvar innar og spurðj hann hvort gætt hefðí veikinda sökum kúabólu setningar hérlendis. „SVðustu tíu árin hefur ekki gætt alvarlegri veikinda af kúa bólusetningu en smákvilla. Frum bölusetningin er innan tveggja ára aldurs barnsins samkvæmt lögum, og er yfirleitt bólusett með varúð og sleppt þeim börn um. sem ekki þykir ráðlegt að bólusetja og eitthvað sérstakt er að, t.d. eksem, hjarta- eða nýma sjúkdómar. Önnur hafa verið bólusett, þeg ar þau eru í góðu standi til þess“. — Hvenær er svo bóhisett i annað sinn? „Venjulega í skólunum, þegar þau eru tólf ára en skylda er, að það sé gert fyrir fermingu". Halldór sagði, að þegar ís- lenzku lögin um skyldubólu- setningu gegn kúabólu hefðu verið sett hefðu þau verið dá- lítið umdeild og þá á hvaða aldri frumbólusetning færi fram, tal- að hefði verið um áldurinn 1—4 ára en það atriði væri umdeiit viðar en hér. — Hvert er persónulegt álit yðar á kúabólusetningu? „Það er aö ég vil bólusetja meö varúð“. Halldór telur að öðru máli skipti hérlendis en erlendis, þar sem um fjöldabólusetningar væri að ræða og læknum erfitt um vik að skoða fólk á undan og eftir og vita um umhverfi þess. „í fámenninu hér er miklu auðveldara að hafa samband við fólk og fylgjast með því, sem gerist. Hér er skoðaður hver einstaklingur og maður veit allt um hann í stað þess, að erlend- is er læknirinn í þeirri aðstööu að bólusetja' hvern útréttan hand legginn af öðrum“. Halldór upplýsti ennfremur að hér væri skyldubólusetning við mænusött. barnaveiki, kíg- hósta og stífkrampa. — SB it, w ;* i 1 '' " ' 1 i 7 3 Skoðun á barnadeildinni. - ÞETTIEFNI - Þriggja ára reynsla hérlendis hefir sannað, að BAKERSEAL er í algjörum sérflokki meðal þéttiefna. BAKERSEAL, er árangur þrotlausra tilrauna í leit að þétti- efni, sem þyldi þann gífurlega þrýsting, titring og hita, sem fram kemur í olíulögum bortuma, enda heldur efnið 750 KG þrýsting á amerískum fittings, án hamps. Hins vegar held'- ur það auðveldlega 4 KG, án hamps á evrópskum fittings. Almennt gildir að nota lítinn hamp og grunnan skurð. BAKERSEAL, þolir 315 gráðu hita, án þess að harðna og er því tilvalið sem þéttiefni á pakkningar útblástursgreina og headpakkningar. Aðaluppistaðan í efninu eru fínmuldar teflonagnir, en teflon er meðal annars notað til þess að sóla með strokjám og steikarpönnur. Teflonið hefir auk þess þann eiginleika aö þenjast út í gengjurnar og þolir því að slakað sé lítillega á herzlu án þess að leki komi fram. Af þessum sökum er BAKERSEAL líka tilvalið sem sraurn- ing á bolta og rær, sem ekki mega bíta sig fasta, t.d. felgu bolta. BAKERSEAL er eina þéttiefnið sem er þrifalegt I notkun og sérlega drjúgt i notkun. Fáanlegt i 3 og 8 oz. túpum. Smasala: Heildsala: Isleifur Jónsson hf. HÁBERG HF. Bolholti 4. Skeifunni 3e Sími 36920 Sími 33345. Atvinnurekendur -Ungan mann vantar vel borgaða aukavinnu við akstur Er vanur akstri stórra vörubifreiða. Er með meira próf. Akstur á eigin bifreið kemur til grc'..a. Góð með mæli fyrir hendi. Uppl. í síma 17796. Óskum eftir oð ráða 2 stúlkur til afgreiðslustarfa. Vaktavinna. Uppl. í dag og á morgun frá kl. 14—18. Söbechsverzlun, Búðargerði 9. Skóli Emils hefst 1. október Kennt á hormoniku, munnhörpu, gítar, píanó, melódiku. Hópatímar og einkatímar. — Inn ritun í síma 16239 kl. 6—8. Hef einnig hljóðfæri til sölu. Emil Adólfsson, Nýlendugötu 41.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.