Vísir - 22.09.1971, Page 16

Vísir - 22.09.1971, Page 16
—7 v 22. scpt. mi vinlega í fremstu víglinu" — Steingrimur svarar svari Braga Asgeirssonar Veiddi lax með berum höndum Kært til sýslumanns vegna óvenjulegrar veiði- aðferðar við fossinn Glanna i Norðurá Þó að stangaveiði hafi verið með afbrigðum góð í Norðurá í sumar virðist það ekki hafa nægt sumum veiðimönn um. Maður nokkur hef- ur nú verið kærður fyrir allóvenjulega og ólög- lega veiðiaðferð við foss inn Glanna í Norðurá. Þannig háttar til viö Glanna, þegar vatn er Ktið í ánni, aö laxinn getur verið nokkuð lengi að sprikla upp og er þá oft auðvelt að ná honum, jafnvel með berum höndunum. M'aður þessi er ákærður fyrir að hafa notfært sér þetta og krækt sér í laxa þarna með guðsgöfflunum og öðrum tiltækum tólum, sem ekki samræmast reglum um lax- veiði í ám. Að sögn sýslumanns í Borg- arnesi, Ásgeirs Péturssonar, er rannsókn málsins að ljúka og verður ákæran send saksóknara til ákvörðunar. Það var Stanga- veiðifélag Reykjavíkur, sem kærði manninn en vitnaleiðslur hafa farið fram vegna málsins og munu tveir menn hafa orðið sjónarvottar að þessum óvenju legu veiðiaðferðum. — JH Sonja að fæða Sonja krónprinsessa, eigin kona Haralds ríkisarfa f Nor egi, var í morgun flutt í fæð ingardeild ríkissjúkrahússins í Osló til að ala bam sitt. Norðmenn bíða spenntir. Þeim hjónum hefur ekki áð- ur orðið bams auðið. —HH Steingrímur Sigurðsson, listmál- ari og Bragi Ásgeirsson, listmál ari og gggnrýnandi em komnir í hár saman. Steingrímur segir Braga hafa ..allt í einu farið út“ er sá síðar- nefndi kom að skoða sýningu þess fyrrnéfnda í Casa Nova. Bragi seg- ist aldrei hafa gengið um salar- kynnin, heldur hafi hann vikið frá, þegar hann hittj Steingrím, óupp- iitsdjarfan, þar sem hann sat utan við sýningarsalinn og hafði engan f?est að skoða sýninguna. Steingrímur segir Braga fara með ósatt mál, þegar hann kallar salina tóma. Hann segir Braga líka fara með ósatt mál. þegar hann segir Steingrfm óupplitsdjarfan, ..augnaráðið var flóttalegt og ve- rældarlegt", segir Bragi. „Ég hef aldrei þótt óupplitsdjarf ur að ég held, og ævinlega verið eldlínu þau 46 ár sem ég hef lif- að“, segi,- Steingrímur, „og ég hef aldrei fengið orð fyrir annað en að horfa beint framan í fólk af hvaða sauðahúsi sem það er. Ég horfj líka beint framan í Braga og bá klíku sem hann kemur fram cyrir“. Steingrímur kallaði Braga engan ii'tdómara, þar sem hann væri menntunarlaus í listfræðum. Bragj sagði Steingrím skrökva bví, þar sem, Hhann heföi verið 'imm ár ( listaháskóla. Steingrímur segir áð Bragi hafi kannski verið í fimm ár á Ítalíu, en hvað var Bragj að geite þar? 'ar hann i skóla?“ — Þetta virðist vera gersamlega óleysanlegt mál — enda stendur “kki til að sætta hér deilur milli tveggja listamanna og kannski ‘veggja hópa sem öndverðir eru um listir, og mælist Vísir hér með til þess, að þeir listamenn láti deilu þessa liggja f láginnj í bili. - GG Vilja fá gesti á skíðatimanum Góð nýting hótela á Akureyri i sumar Hótelpláss á Akureyri hefur verið vel nýtt í sumar frá júní byrjun og fram í miðjan sept- ember. Hjá hótelstjóranum á K'EA feng- um við þær upplýsingar að í sumar hefði verið meira og minna fullt og veriö svo fram að 10. september en þá heldur farið að draga úr því. Helgarnar hafa þó yfirleitt .verið upppantaðar og til dæmis var allt fullt um síðustu helgi, en þá hélt Félag ísl. bifreiðaeigenda aðalfund sinn á Akureyri. Um næstu helgi veröur einnig allt hótelpláss upp- pantað á Akureyri en Samband ungra sjálfstæðismanna mun þá þinga þar. Varðandi veturinn vonuðu þeir á KEA að áhugi á vetraríþróttum yrði til þess að fleiri myndu sækja til Akureyrar á skíði, ef svo yrði er ekki vafi á því að það yrði mikil lyftistöng fyrir hótelin á Akureyri. Mjög svipuð svör fengust hjá FJALLVEGIR TEPPAST en snjór minni en i ágústhretinu Fyrirboði vetrar Iætur ekki standa á sér á þessum árstíma enda byrjar haustmánuður á morgun. — Víða á landinu hefur snjóað í fjöll og frost verið á nóttum. í gær teppt ust fjallvegir á Vestur- og Austur- landi. Þorska'fjarðarheiði og Trölla- tunguheiði voru ófærar ’i morgun en verða ruddar í dag. Veghefill var kominn af stað f morgun til að ryöja snjó af Námaskarði. Vaöla heiöj var aðeins keðjufær vegna hálku. I morgun voru fjöll í nágrenni Akureýrar alhvít niður undir bæi, og hér sunnanlands hefur gránað í fjöll. Ekkj er þetta eins mikil snjó koma norðanlands eins og í hret- inu, sem gerði seinnihluta ágúst- mánaðar. Búast má við að fært verðj á fjallvegum í dag að mestu og snjó taki upp. I nótt var næturfrost víða um land. Mesta frostið var á Hvera- völlum 6 stig. 5 stig á Grímsstöð um á Fjöllum og 3 stiga frost i Kvígindisdal og á Akureyri var eins stigs frost. Sólskin var á sunnan- og vestan- verðu landinu í morgun en skýjað á Norður- og Austurlandi. — SB hótelstjóranum á Hótel Varðborg. Sagði hann að mest væru það ís- lendingar, sem gistu hótelið þegar komið væri þetta langt fram á haustið, væru það vinnuhópar í helgarfríum og einnig nytu þeir góðs af þeim fundahöldum, sem hafa verið og eru ráðgerð á næst- unni. Hópur brezkra ferðaskrifstofu- manna hefði gist hjá þeim fyrir nokkrum dögum, hefðu þeir verið í boðsferð á vegum Loftleiða. Sagð ist hótelstjórinn vona að ferða- mannatíminn myndi lengjast og þeir fá fleiri gesti yfir vetrartím- ann. Ef snjóleysi hrjáir Sunnlend- inga áfram þá má búast við því að fólk fari að sækja meira til Akur- eyrar á skíði, eða svo vonuðu þeir. — JR Öll skólabörn fengu réttafrí 0 í gær var gefið frí í öllum barnaskólum borgarinnar til þess að kra'kkarnir kæmust I rétt- ir, en í gaer Var réttað f Hafravatns rétt og var þar að vonum æði margt um manninn. — Lætur nærri að fólkið hafi verið fleira að höfðatölu en kindumar. 0 í dag er réttað í Kollafjarðar- rétt og þangað liggur mikill fólksstraumur. Þótt ekkj sé gefið frf f barnaskólum skyldustigsins, er það siður á sumum barnaheimil- um að fara með elztu krakkana f réttir og verður þá Kollafjarðar rétt fyrir valinu # Fríið, sem gefið er í barna- skólunum á raunar að heita mánaðarfri og hefur verið gefið frf þennan þriðjudag nú um árarað- ir, enda sækja krakkarnir það stíft að fá að komast í réttir. — JH DANIR SLÁ OKKUR GJÖRSAMLEGA YIÐ — Reykja fimmfalt magn af vindlum miðað við okkur Á þessari mynd sjáum við glögglega hversu mikill munur er á frammistöðu okkar íslendinga við vindlareykingar í samanburði við afköst Dana. Mikið vantar enn upp á til að við íslendingar náum að kom ast með tærnar þar sem Dan- ir hafa hælana, hvað vindla- reykingar áhrærir. Á síðasta ári voru reyktir hér nær 57 vindlar yfir árið á hvert mannsbarn í landinu, eða 5 vindlum meira en á árinu 1967 er Danir svældu niður hvorki meira nA ^^na en 254 vindla á lands- mann. Eitthvað mun hafa dregið úr tóbaksneyzlu viðast hvar næstu tvö til þrjú árin á eftir. Árið 1969 voru t.d. reyktir hér fjöru- tíu og níu og hálfur vindill á hvert mannsbam, en strax á ár- inu þar á eftir höfðu \<ndla- reyking'amenn náð sér aftur á strik hér sem erlendis og reykf um við þá sem fyrr 57 vindla á mann. Enn sem fyrr er það þó aðeins sem krækiber í helvíti f samanburði við atorkusemi Dana. Við Islendingar þurfum þó ekki að blygðast okkar að öllu leyti fyrir frammistöðu okkar. Norðmenn standa okkur t. d. iangt að baki, reykja árlega rétt um átta vindla á mann. — Meira að segja Englendingar og Svíar ná ekki aö reykja eins marga vindla og við á ári og við erum eilítið framar en sjálfir Ameríkumenn á því sviði Þjóðverjar, Hollendingar og Svisslendingar eru hins vegar framar Hollendingar fremstir með um 120 vindla reykta á ári á hvern landsmann. —ÞJM

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.