Vísir - 28.09.1971, Side 4
/
4
V I S I R . Þriðjudagur 28. sentember 1971.
Leeds vann
Derby 2-0
Loks vann Leeds góðan sigur. I
gærkvöldi mætti liðið Derby á
heimavelli sínum í deildabikarnum
og sigrað; með tveimur mörkum,
sem Peter Lorimer skoraði. Fyrri
leik liðanna í þessari 2. umferð
lauk með jafntefli 0 —0 í Derby.
Þá kom talsvert á óvart í gær
í brezku keppninni, að skozka lið-
ið Airdrie sigraði Manch. City 2—0.
Fyrri leik liðanna í Manchester
lau|k með jafntefli 2—2, svo City
er þar með úr keppninni. Hins veg-
ar vann Huddersfield t Morton í
gær 2—1 og sló Morton úr keppn-
inni. Einn leikur var í 2. deild.
Millvall og Sheff. Wesd. geröu
jafntefli 1—1.
Leika
gegn FH
Á fimmtudagskvöld fer fram
leikur í Hafnarfirði f handknattleik
milli FH og úrvalsliðs, sem blaða-
menn völdu. Leikurinn er fjáröfl-
unarleikur vegna þátttöku FH í
Evrópukeppninni.
Pressuliðið verður skipað þessum
leikmönnum: Ólafur Benediktsson,
Val, Guðmundur Gunnarsson, ÍR,
og Guðión Eriendsson, Fram mark-
menn, Ólafur Jónsson, Gísli Blön-
daj og Stefán Gunnarsson. Val,
Björgvin Björgvinsson, Sigurður
Einarsson og Axel Axelsson. Fram,
Einar Magnússon, Guðjón Magnús-
son og Sigfús Jónsson, Víking,
Brynjólfur Markússon, ÍR, og
Stefán Jónsson, Haukum.
Jack Bodell
EM-meistari
1 gær kepptu brezku hnefaleik-
ararnir Joe Bugner og Jack Bodell
um Evrópumeistaratitilinn í þunga-
vigt í hnefaleikum — og jafnframt
um brezka og samveldistitilinn.
Hinn 21. árs Joe Bugner hélt öllum
þessum titlum.
En í gærkvöldi á Wembley hafði
hann litla möguleika gegn hinum
reynda Bodel] — og vann aðeins
eina lotu af 15. Bodell vann örugg-
lega á stigum og nvr Evrópumeist-
ari hefur verið krýndur. Bugner
tókst að slá Bodell niður í 12. lotu,
en tókst ekki að fylgja því eftir,
en þáð var l’ika í eina skiptið. sem
þessi ungi risi sýndi tennurnar í
keppninni.
Finnar góðir
Á frjálsíþróttamóti í Tammer-
fors um helgina stukku tveir Finn-
ar 2.16 metra í hástökki. Það voru
þeir Asko Pesonen og Johannes
Lathi — og árangur hins síðar-
nefnda er nýtt, finnskt unglinga-
met.
Seppo Simola og Matti Yrjola
vörpuðu kúlu báðir 19.17 metra
og Risto Miettinen kastaði sleggju
66 50 metra. Á móti í Raumo á
sunnudag varpaði Bo Grahn kúl-
unni 19.14 metra', en Simola, finnski
methafínn, varð annar með 19.01
m. As"o Pesonen stökk þá 2.15 m
í hástÖkJci.
Þama eru framtíðarmenn íslenzkrar knattspyrnu, íslenzka unglingalandsliðið, sem sigraði írland 4—3, ásamt þjálfurum sínum,
Liðið Ieikur í Dublin 20. október. Ljósmynd BB.
Bikarkeppni K.S.I.
í gær var spennandi augna
blik fyrir íslenzka knatt-
spyrnumenn og þá ekki
síður fyrir forustumenn fé
laganna, þegar dregið var
í 1. umferð Bikarkeppni
KSÍ. Fjögur lið úr 1. deild
inni lenda saman í umferö
inni. en þrjú voru heppin
og fá að sitja yfir í um-
ferðinni.
Hins vegar munu Þróttarar i
Reykjavík ekki telja sig heppna,
þvl þeir veröa að fara austur á
Norðfjörð til að leika þar við nafna
sinn — Þrótt Neskaupstað -f- og
það lið, sem sigrar í þeim leik
kemst beint í 2. umferð ásamt
Akranesi, Vestmannaeyjum og
Víking, sem sitja yfir 5 1. umferð-
inni.
í 1. umferð eru fjórir leikir og
var drátturinn þannig:
Völsungar—Valur
ísafjörður—Akureyrí
Keflavík—Breiðablik
Fram—K.R.
Þau lið, sem talin eru á undan
eiga heimaleikinn. Valur verður því
að fara norður á Húsavik og leika
þar, og Akureyringar til ísafjatöar.
Fram og KR. mætast á MelaveBin-
um, en Keflavík og Breiðablik værtt
anlega á grasvellinum í Keflavík.
Þegar þessum fjórum leikjum er
lokið komast sigurvegaramir 1
hattinn í 2. umferð ásamt öðru
hvoru Þróttar-liðinu, ÍA, ÍBV og
Víking.
Áður en landslcikurinn milli íslands og írlands hófst á sunnudag
léku Ármann og Akranes — kvennalið félaganna í knattspyrnu
og veittu áhorfendum góða skemmtun. Framför er mikil hjá
stúlkunum frá því fyrsti kvennaleikurinn var háður. Ekki tókst
þeim þó að skora á sunnudag, en það var mest vegna stórgóðrar
markvörzlu Akranes-stúlkunhar. Ljósmynd BB
Danir sigruBu
Norðmenn 4-1!
Danir unnu auðveldan
sigur gegn Norðmönn-
um í landsleik í knatt-
spyrnu í Osló á sunnu-
daginn — skoruðu fjög-
ur mörk gegn einu. Þó
var Leschley Sörensen,
formaður landsliðsnefnd
arinnar dönsku, engan
veííinn ánægður með
leik sinna manna, en
mótstaðan var liins veg-
ar léleg.
Aðeins 11 þúsund áhorfendur
sáu leikinn. Schriver skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Dani
eftir aðeins 9 min. og á 16.
mín. Kristen Nygaard. Ivar
Schriver bætti við þriðja marki
Dana áður en Jan Fuglset skor-
aði fyrir Noreg. í síðari hálfleik
skoraði Schriver fjórða mark
Dana.
I frétt frá NTB um leikinn
segir — og það er svo dæmigert
fyrir Norðmenn í sambandi við
okkur íslendinga — „leikur
Tom Jacóbsen sýndi, að norsk
knattspyrna á enn efni, sem
geta komið okkur á aðeins
hærra stig en ísland og Liedht-
enstein".
Þá vitum við það. íslendingar
eru að áliti Norðmanna jafn-
góðir Liechtensteinum, þar sem
knattspyrna varla þekkist I
dvergríkinu við landamæri
Austurrikis. En þetta er ekkert
nýtt i skrifum norskra — það
er leitun á þjóð í heiminum, ef
hún þá finnst, sem lítur eins
niður á okkur íslendinga og ein-
mitt þessir „frændur" okkar.
En hverju þeir hafa af að i
— það er spurning.
I