Vísir - 28.09.1971, Page 8

Vísir - 28.09.1971, Page 8
> V 1 S 1 R . Þriðjudagur 28. september 1971, ISIR Otgetanm: KeyK)aprenr at. Pramkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfssoo Ritstjóri- Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson RitstjómarfuUtrúi: Valdimar H Jöhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3b Simai 15610 11660 Afgreiösla- Bröttugötu 3b Sími 11660 Ritstjóra: Laugavegl 178. Siml 11660 (5 linur) Askriftargjald kr. 195.00 á mánuöi innanlands I lausasölu kr. 12.00 eintakiö Prentsmiöja Vtsis — Edda hf. Dauða höndin Predikanir um vöruvöndun og vörugæði eru sérlega algengar hér á landi, ekki hvað sízt í sambandi við fiskveiðar og fiskvinnslu. Menn benda á sívaxandi kröfur til fiskafurða erlendis og vaxandi verðmun á fyrsta flokks vöru og annarri vöru. Síðan er bent á leiðir til úrbóta, sem hafa átt erfitt uppdráttar hér á landi, og spurt, hverju þetta seinlæti sæti. Fiskkassarnir eru nýjung, sem allir eru sammála um, að sé til mikilla bóta. „Þetta er örugglega bezta aðferð, sem notuð er við geymslu á fiski“, sagði einn frystihússtjórinn í viðtali við Vísi í vikunni sem leið. Fiskurinn er slægður og ísaður niður í þessa kassa um borð í skipunum og síðan liggur hann óhreyfður í kössunum, unz hann kemst í vinnslu. Fiskurinn hef- ur þá ekki orðið fyrir neinu hnjaski og er því hin bezta markaðsvara, sem selst 'a háu verði erlendis, Það er búið að tala lengi um þessa fiskkassa, en samt eru þeir óvíða komnir í notkun. Sjómenn eru óspart skammaðir fyrir seinlæti og skilningsleysi í þessu máli. En það er ekki víst, að sökin sé aðallega þeirra. Að vísu er oft erfitt fyrir menn að taka iipp nýj- ar vinnuaðferðir Þær ganga stundum illa, meðan verið er að læra þær, og oft vantar tæki og áhöld til að nýta rétt hinar nýju aðferðir. Og svo gefast menn upp, áður en þeir læra réttu tökin. Meginskýringin liggur þó annars staðar. Hún er sú, að sjómenn fá ekki þá verðhækkun, sem þeir eiga að fá fyrir aukna fyrirhöfn og aukin vörugæði. Hér á landi tíðkast ekki eins og erlendis, að fiskur sé seld- ur á uppboði, þegar hann kemur í land. Á uppboð- unum ræður framboð og eftirspurn, og verðmunur er ákaflega mikill á góðum og lélegum fiski. Gæða- fiskurinn er keyptur á háu verði, en lélegi fiskurinn fer fyrir lítið, ef hann selst þá yfirleitt. Hér eru það hins vegar ráð og nefndir, sem ákveða fiskverð og taka ekki nándar nærri nóg tillit til gæða. Verðmunur á góðum og lélegum fiski er allt of lítill og endurspeglar alls ekki raunverulegt verðgildi á sama hátt og uppboðin erlendis gera. Það er ekki von, að sjómenn vilji taka upp endurbætur, ef þær gefa þeim sáralítið í aðra hönd, annað en aukna fyrirhöfn. Sama vandamálið er í landbúnaðinum, þar sem ráð og nefndir ráða verði. Hneykslazt er á því, að bændur vilji ekki bæta ullina sína og gera hana marg- falt verðmætari. Því er hins vegar gleymt, að þeir fá lítið spm ekkert meira fyrir góðu og verðmætu ullina. Sjálfvirkni markaðsins er bannorð í þessu þjóðfé- lagi hálfþjóðnýttra atvinnuvega. Hin dauða hönd hins opinbera skipulags, kerfisins, hvflir á verðlagsmálum sjávarútvegsins, eins og á ýmsum fleiri sviðum at- vinnulífs íslendinga. Áhugi Dana á klámi dvínar — Nú eru það helzt útlendingar, sem kaupa, eftir fjögurra ára reynslu af „frjálsu klámi" Eftir nærri fjögurra ára reynslu af „frjálsu klámi“ mun Dönum almenn finnast beir hafi staöið sig vel. Þeir séu í þeirri eftirsóknarveröu aðstöðu aö geta haft það, ef þeir vilja, eöa látið það eiga sig, eins og flestir vlrö- ast gera. Það er einungis lítiil minnihiuti. sem enn virðist hafiu teljandi áhuga á klámmyndum. Flestir aðrir hafa misst áhugann eftir stuttan tfma. „Opnuðum dyrnar á dul- arfulla herberginu“ Hvort sem það hefur verið til hins betra eða verra, þá hafa Danir óumbeðið lagt það á sig að standa af sér allan tilfinninga hitann, sem þessu fylgdi. Þeir hafa sætt sig við, að verða „ai- ræmdir" um allan heim sem „klámþjóð", Nú segjast flestir Danii* einfa'ldlega vera leiðir á klámi, hafa fengið nóg. „Við opnuðum dymar á lok- aða, dularfulla herberginu i enda gangsins, þar sem enginn hafði mátt fara inn,“ er haft eftir sálfræöingi í Höfn. „Það reynd- ist ekki vera nærrj því jafn skelfilegt að koma þar inn og sumir höfðu búizt við. Það hef- ur orðið greinileg breyt- ing á afstöðunni, þega'r búið var að losa fólk við hinn óeðlilega ótta“. Að minnsta kosti virðast ráða- menn landsins þess fullvissir, að með þessum óvenjulegu að- ferðum, sé þeim að takast að temja villidýrið. 90% til útlendinga Það selst nú miklu minna af klámi I Danmörku en var fyrir tveimur árum. Árið 1969 var á- ætlað, að klám hefði selzt fyrir sjömilljarða Islenzkra' króna. Nú mun talan vera nær þremur milljörðum. Margir telja, að eftir svo sem fimm ár veröi „aðdrátt arafl" klámsins að mestu úr sög- unni nema ef til vill fyrir for- vitin ungmenni. Klámkaupmenn í Kaupmannahöfn telja útlend- inga kaupa 90 af hundraöi allr- ar framleiðslunnar annaðhvort ferðamenn, sem þangað koma eða útlendingar, sem panta þessa framleiöslu. Danir eru iðn- ir í útflutningi á klámi, til dæm- is til Þýzkalands og Bandaríkj- anna. þar sem lög eru enn sera komið er strangari en í Dan- mörku. Margir hafa haldið, að Dan- mörk; væri ein á báti i þessum efnum. Raunar er löggjöf nú svipuS íJmSvíþjóð, þótt minna hafi borið á þvíi Klámverzlunin llllllllllll M) MIM Umsjön: Haukur Helgason dafnar stöðugt í Bandaríkjunum og Vestur-Þýzkalandi og f Bret- landi eru lfklega álíka margar verzl. er bjóða þessa vöru og í Danmörku, en í Bretlandi þurfa menn yfirleitt að heimsækja bakherbergi verzlana til þess ama, og verðið er þar ef til vill sex sinnum hærra. Hefur gildi á víðara sviði í Danmörku sýna margir klúbbar „lifandi sýningar“ á kynmökum, og þeir auglýsa sýningarnar 1i hinum virðuleg- ustu dagblöðum. Þá skortir vfst ekki klámkvikmyndir í litum i hátt I tfu kvikmyndahúsum i Höfn. Hið merkasta við „dönsku tilraunina" er ekki, hversu greiðan aðgang áhugamenn eiga að klámi, heldur hitt, að dönsk stjómarvöld hafa gert þetta frelsi að úthugsaðri aðferð í fé- lagsmálastefnu sinni. Samkvæmt dönskum lögum getur sérhver borgari, sem kominn er yfir 16 ár, séð hvers konar klámfram- leiöslu, sem hugsazt getur, allt út í afbrigðileika af ýmsu tagi. Þessi tilraun hefur þvf gildi langt umfram það, hvort menn koma höndum yfir klám eða ekki. Hún er einstakur vettvang ur fyrir athugun á þvf, hvernig menn bregðast við fullkomnu frelsj á einhverju sviði. Danir veltu frá upphafi fyrir sér sömu rökum og aðrir, með og móti. Hvaða áhrif hefur þetta á bömin? Leiðir frelsið til auk- innar lausungar og kæruleysis gagnvart kynferðismálum? Eyk- ur það kynferðisglæpi? Þing- nefnd var f tvö ár að kynna sér gögn málsins og skoðanir úr öllum áttum, áður en hún mælti loks með því árið 1967, að bann- ið skyldi upphafið. 57% fylgjandi lögumim Samkvæmt skoðanakönnun, sem gerð var í fyrra, voru 57 af hverjum 100 Dönum sato- þykkir frelsinu eftir þá reynslu, sem hafðj fengizt 16 af 100 voru óákveðnir, 25 af 100 and- vfgir frelsinu, og flestir hinna sfðastnefndu mótmæltu auglýs- ingum í búðargluggum, sem þeim fundust oft móðgandi. Jörgen Langkilde, sem var for maður f þingnefndinni, var spurð ur, hvort hann mundi aftur mæla með frelsinu, ef hann fengi að ráða. Hann sagði að fjögurra ára reynsla hefði ekki breytt áliti nefndarinnar, sem var á þá leið, að klám væri ekki skaðlegt og það væri órétt af rfkisvaldinu að skipta sér af því, hvað einstaklingnum fyndist hann mega horfa á. Hann rifj- aði upp, að ein aðalorsökin fyi ir nýju löggjöfinni hefði verið, hversu erfitt það reyndist fyr dómstóla að úrskurða hin enda lausu mál um skilgreiningu á klámi. Langkilde sagðist hafa á- hyggjur af því, að sennilega væri ekki nægilega fylgt fram þeirri reglu, sem nefndin setti, að klám mætti ekki sjást frá göt- um. Úr þessu þyrfti að bæta. Hann sagði, aö unga fólkið virt ist ekki hafa mikinn áhuga á kláminu. Ekki snúið aftur Ole Barfoed skólastjóri f mið skóla í Höfn segir, að klám hafi aldrei verið vandamál í skólan- um, þótt búð væri á næsta götuhorni. Eftir að nýju lögin voru sett virtist áhugi ungmenna hafa minnkað til mikilla muna. I rauninni virðist einsýnt, að meirihluti Dana telur ekki, að frelsið hafi verið til tjóns. Enn eru þó margir andvígir því, þótt yfirleitt beri ekki mikið á þeim umræðum. Hvað sem ö>Iu líður, þá eru ekki taldar TTkur a, að breytt verði aftur til hins gamla í Danmörku.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.