Vísir - 28.09.1971, Page 16
Jr
Veghefillinn
haggaðist
ekki en fólks-
bíllinn kút-
veltist
Veghefill lenti í hörðum árekstri
uppi á Hellisheiði í gærkvöldi um
kl. 20.20, þegar fólksbíil, sem mætti
honum, rakst utan í hefiltönnina.
Við áreksturinn kútveltist fólks-
bíllinn og fór þrjár veltur eftir
veginum, en hefillinn haggaðist
varla.
I fólksbílnum voru þrír menn og
hefilstjóranum til mikillar undrun-
ar skriðu þeir allir út úr bílflakinu,
( einn alls ómeiddur og hinir tveir
' lítilsháttar skrámaðir. Bíllinn, sem
var nýlegur. var gjörónýtur eftir
áreksturinn og loftferðina. — GP
//
Kaupkröfurnar geigvænlegar
— Þýða 30-50°]o hækkun, segir Barbi Frið-
riksson, skrifstofustjóri Vinnuveitendasam-
bandsins
Kröfur verkalýðsfélag-
anna eru geigvænlegar,
að okkar áliti, sagði
Barði Friðriksson, skrif
stofustjóri Vinnuveit-
endasambandsins í við-
tali við Vísi í mórgun.
Með kröfunum er farið
fram á 30—50% kaup-
hækkun í viðbót við
þá 28% útgjaldaaukn-
ingu á kaupgreiðslum,
sem orðið hefur á síð-
ustu átján mánuðum. —
Þetta þykir mönnum í-
skyggileg þróun að von-
um.
Atvinnurekendur munu taka
afstöðu til kröfugerðar verka-
lýðsfélaganna á fundi stóru
framkvæmdastjórnar Vinnuveit-
endasambandsins, en hana skipa
40 menn. Munu vinnuveitendur
sttia væntanlega svara kröfun-
um á næsta samninga'fundi, sem
boðaður hefur verið á fimmtu-
daginn
Barði sagðj að samkvæmt út-
reikningum Vinnuveitendasam-
bandsins þýddi minnsta kaup-
hækkunin, sem farið væri fram
á 30% hækkun. Þá væti vinnu-
tímastyttingin reiknuð sem 10%
hækkun, en deilitala í mánaðar-
Ósanngjarnt að refsa okkur
ef FÍ-þotu skortir verkefni
— segja Loftleiðamenn, sem eru nú að kaupa Norðurlandabotu
0 Loftleiðir munu nú í þann
veginn að reka endahnútinn á
kaup „Norðuriandaþotunnar“
svokölluðu, en það er þota af
gerðinni DC 8-55, sem félagið
ætlar í framtíðinni að fljúga
milli Islands Og Skandinavíu.
Þota þessi tekur 180—190
manns í sæti, og verður önnur
þotan sem Loftleiðir eignast.
Að sögn Helgu Ingólfsdóttur hjá
Loftleiðum, fór Alfreð Elíasson, for-
stjóri félagsins til New York í
gær að reka endahnútinn á þessi
kaup. Loftleiðir hafa ekki haft
leyfi til að fljúga á hinum lágu
fargjöldum sem félagið er frægt
fyrir til Skandinavíu, en nú mun
ætlunin að fljúga fimm sinnum í
viku til Skandinavíu héðan og þá
á jafnháum fargjöldum og IATA
flugfélögin.
Loftleiðir hafa sent frá sér grein
Nóg fyrir aðra botuna
„Ekki fullnægjandi verkefni fyrir báðar"
„Við höfum verkefni fyrir aðra
þotuna — meira en nóg fvrir hana.
Og svo viss verkefni fyrir hina
botuna — ekki kannski fullnægj-
andi verkefni, en það er ýmislegt
í deiglunni sem kann að koma á
daginn síðar“, sagði Örn Johnson,
forstjóri Flugfélags íslands, er
Vísir hafði af honum tal í morgun.
Örn kvaðst ekki geta neitt sagt
um greinargerð Þá sem Loftleiðir
hafa sent frá sér, vegná uppá-
stungna um að önnur þota F.I. yrði
nýtt í ferðir fyrir Loftleiðir, þar
sem hann værj nýkominn frá út-
löndum, og vissi því ekki um hvað
málið snerist. — GG
argerð, sem er svar við hugmynd
er sett hefur verið fram í Tíman-
um. Birti Tíminn fyrst frétt undir
fyrirsögninni „Er stórstyrjöld is-
lenzku flugfélaganna að hefjast?"
— og var í þeirri frétt spurt, hvort
ekki væri þjóðhagslega hagkvæmt
að Loftleiðir leigðu aðra þotu F.í.
til Skandinavíuferðanna í stað þess
að leigja stærri þotu og erlenda til
notkunar á þessari flugleið.
Svara Loftleiðamenn því til, að
þeir geti ekki notað þotu F.í. á
þessarí leið, hún sé of lítil og hafi
ekki nægilegt flugþol til aö fljúga
í einum áfanga milli íslands og
Bandaríkjanna. Einnig segja Loft-
leiðamenn að ekki geti þaö sann-
gjamt talizt að refsa Loftleiöum
fyrir það að ekki séu nægjanleg
verkefni til fyrir F.í. þotuna —
væntanlega hafi sú þota verið keypt
til að mæta vaxandi þönf F.l. —
og raunar fráleitt að F.í. reikni með
öðm en að ráðstafa sjálft flugkosti
sinum í samræmi við eigin áætlan-
ir um hagkvæman rekstur. — GG
Skaut að gamni sínu í
öryggishjálm verkamanns
— Dýrt „spaug", sem kostaði byssu og byssuleyf,
0 Þegar verkamenn, sem
vinna í nýbyggingu Lands-
bankans á Akranesi, komu úr
kaffihléi sínu í fyrradag brá
beim illilega í brún.
0 Einn þeirra fann gat eft-
lr byssukúlu í öryggishjálmi
sínum, þar sem hann hafði
hengt hann upp, á meðan
hann var í kaffi.
Lögreglunni var gert viðvart, því
að mönnum leizt ekki vel á að
stunda störf sín uppi á nýbygging-
unni, sem er risin upp á þriöju
hæð, á meðan einhver brjálæðingur
hefði þá að skotmarki á meðan.
Með því að hengja hjálminn aft-
ur á þann stað, þar sem hann rafði
verið, þegar skotið lenti í honum,
tókst lögreglunni að miða út skot-
línuna frá nýbyggingunni, sem
stendur við Silfurtorg á Akranesi.
Fóru lögreglumenn að einu húsa
þeirra, sem bar í skotlínuna og
báru upp erindi sitt, og gekkst þá
24 ára gamall maður,strax við þvi
að hafa hleypt af skotinu, svo að
lögreglan þurfti ekki að leita lengra.
Sagðist hann liafa labbað sig út
á svalir hússins með riffil sinn, og
kaup verður 173,30 með 40
stunda vinnuviku, en er með 44
stunda viku, 190,67 og þýöir það
að sjálfsögðu hækkað tímakaup.
— Lægstu kauptaxtarnir eiga að
hækka meira samkvæmt kröf-
um verkalýðsfélaganna. Þannig
á 1. taxti Dagsbrúnar að fær-
ast upp í 4. taxta Og þýðir það
útgjaldaaukningu á launum um
50%, 2. taxt; Dagsbrúnar á að
hækka upp í 4. einnig og þýðir
þaö 46,33% hækkun samkvæmt
okkar útreikningum. 3. taxti á
svo einnig að hækka upp í 4.
og veröur þar 41,96% hækkun.
Þessar tölur eru þó heldur of
lágar. — JH
ÞaS er handagangur í öskjunni í sláturhúsinu við Víðistaði,
en þrátt fyrir að unnið sé hröðum höndum við afgreiðslu
störfin sést aldrei högg á vatni, stöðugt hlaðast upp nýir
dallar nýrra viðskiptavina.
Mikil ÖS
engin
— Hafnfirðingar slátra i grið og erg
i
þegar hann hafi virt fyrir sér út-
sýnið, kom hann auga á rauðan
öryggishjálm, sem hékk uppi á
Landsbankabyggingunni. Var þetta
honum of mikil freisting, og hann
gat ekki setið á sér, að glettast viö
verkamennina. Sendi hann eina
kúlu í hjálminn, Hafði hann síðan
haft gaman af að virða fyrir sér
viðbrögð verkamannanna þegar þeir
uppgötvuðu skotgatið í hiálminum.
Spaug mannsins féll ekki í góðan
jarðveg, því að menn sáu fátt fynd
ið við athæfið. Lagði lögreglan hald
á bvssu hans og svipti hann byssu-
leyfi. — GP
I Hafnarfirfti eru þeir nú f
ó&a önn að slátra. Er Vísir leit
við í sláturhúsinu vift Víftistaði
þar sufturfrá í gær var verið að
sinna kaupendum, sem lagt
höfftu inn koppa sína og kirnur
á föstudaginn í siftustu viku. í
sláturhúsinu við Víðistafti hafa
þeir sem sé þann háttinn á, að
láta viðskiptavinina leggja inn
sín ílát ásamt pöntununum og
vitja þess síðar.
„Annars yrði soddan biöröð.
Biðröð, sem næöi langt inn í bæ-
inn,“ sagði stúlkan í afgreiðsl-
unni og baðaði út höndunum.
Hún var nýbúin að veita viðtöku
ílátum sjö fjölskyldna á einu
bretti og í þau kvaðst hún ekki
sjá fram á að geta lagt nærri
strax. Svo margir væru á undan.
„Það er bæöi meira framboð
og eftirspurn á slátri og innmat
nú en áður. Það em alltaf stöð-
ugt að aukast við mig viðskipt-
in,“ sagöi Guðmúndur Magnús-
son, sem sláturhúsið rekœ".
Ástæðuna fyrir velgengninni
kvað hann tvímælalaust vera þá
að hann væri svo liðlegur við
viðskiptavinina. Bæði fjáreigend
ur og húsmæður.
Slátrun hóf Guðmundur fyrir
um hálfum mánuði og hefur ver-
ið slátrað að jafnaði 250 fjár á
dag. „Og ég verð að út mánuð-
inn, svo að viö slátrum hér
áreiðanlega um sjö til átta þús-
und fjár í allt að þessu sinni,"
sagði Guðmundur.
Loks gat hann þess, að hann
væri fyrir löngu búinn að
stækka viö sig hefði hann fengið
löðarréttindi til frambúðar. „Þá
vær; ég jafnvel búinn að koma
hér upp íshúsi," sagði hann.
v - ÞJM