Vísir - 29.10.1971, Side 16
8;,!!S!!!!!í!í!íSj;'
...1» i>ím“'
ÍSIR
Landakotstún, og stöðvaðist hann
ekki fyrr en eftir að hafa runnið
nær 40 metra frá árekstrarstaðnum.
Kona, sem var farþegj í annarri
bifreiöinni meiddist. Hún skarst á
báðum fótum. á glerbrotum úr
mælaborði bflsins. Var hún flutt í
sjúkrahús. — GP
Harður árekstur varð á gatna-
mótum Öldugötu og Ægisgötu 1
gærkvöldi rétt fyrir kl. 11, þegar
bifreið, sem ekið v,ar suður Ægis-
götu, rakst á aðra fólksbifreið, sem
var á leið austur Öldugötu á tölu-
verðum hraða.
Við áreksturinn munaði minnstu,
aö annar billinn kastaðist upp á
• •
Markús Orn Antonsson
Átjánda kaffisala Kvenstú-
dentafélags íslands verður hald-
in að Hótel Sögu á sunnudag
kl. 3. Sem endranær á þessum
árlegu kaffisölum verður til
skemmtunar tízkusýning.
Ágóðan verður varið til að
veita konum i sérnámi heima og
erlendis námsstyrki, Skiptir fé
það, sem safnað hefur verið og
veitt á hinum 18 árum hundruð-
um þúsunda. Undanfarin ár hafa
3—4 konur að jafnaði árlega
hlotið þessa styrki, og nú síðast
fjórar á þessu ári. — SB
Ágóðinn fer í
nómsstyrki
Kvenstúdentar taka að sér
hlutverk sýningastúlknanna
og leggja fram vinnu sína end
urgjaldslaust.
ÍEftir harðan árekstur við gatnamót Ægisgötu og Öldugötu hrökkl
Jaðist önnur bifreiðin (t.v.) álla leið út að Túngötuhomi og lenti
Jþar uppi á gangstétt, nær 40 m frá árekstrarstaðnum, ^
FIB verður
ney tendaf élag“
— ekki rekstraraðili, segir nýi formaðurinn
Kjartan Jóhannsson,
læknir í Kópavogi hefur
verið kjörinn formaður
FÍB og sagði hann Vísi í
morgun að ný stjórn FÍB
hyggðist vinna að því að
gera FÍB fyrst og fremst
að hagsmunasamtökum
bíleigenda, neytendafé-
lagi, en ekki rekstrarað-
ila.
,,Það er ætlun þessarar
stjórnar að standa ekki í nein-
um beinum rekstri, og halda
annars áfram á svipuðum
grunnj og áður að vinna' að hags
munamálum bíleigenda. Sem
dæmi má nefna það hagsmuna-
mál bíleigenda að þurfa ekki að
greiða sérstakt afnotagjald af
útvarpstækjum 'i bílum og svo
viljum við gjarnan starfa að
slysavarnarmálum með þeim
aðflum sem helzt sinna þeim.
Einnig viþum við gera átak
í þeim málum er að trygginga-
félögunum snúa, svo sem benda
tryggingafélögum á að rúðubrot
H f'
gerast helzt þar sem olíumöl er
á vegum — það virðast trygg-
ingafélög ekki enn vita"
Sagði Kja'rtan að nýkjörin
stjórn FÍB hefði svo nýlega
tekiö til starfa, að hún gæti
varla enn gert sér grein fyrir
hvað væri framundan, „við
höfum ekki enn fengið reikn-
inga' félagsins frá endurskoð-
anda en við, eins og flestir aðrir,
erum áfram um að gera FÍB
fyrst og fremst að neytendasam-
tökum“.
Auk Kjartans eru í stjórn-
inn; Ha'ukur Pétursson, ritari,
Guðmar Magnússon, gjaldkeri,
Guðmundur Jóhannsson, með-
stjórnandi og Pétur Maack Þor-
steinsson, meðstjórnandi — GG
Stöðvaðist 40 m.
frá árekstrarstað
formaður Heimdallar
Markús Öm Antonsson var
CONCORDE KEMUR EKKI
— Misskilningur á orðalagi i bréfi
Engin Concordevél kemur
hingað 3. nóvember eins og
áður var búið að boða. Mis-
skilningur kom upp í bréfum
og stjórnvöld hér veittu Con
corde leyfi sitt til lendinga.
Misskilningurinn i bréfaskrif-
unum var sá, að Frakkarnir ósk
uðu aðeins eftir að fá aðstöðu
BREGUET 1150 — vélin sem
kemur 3. nóv.
ti] að reyna einhverja hluta
Concorde hér á landi og mun
einhver önnur flugvélategund
notuð til þess likíega Cara-
velle. Concorde kemur hins veg
ar a’ils ekki.
Verður þetta mörgum flug-
áhugamönnum til ama, því
margir í hópi flugáhugamanna
höfðu hlakkað til að sjá þessa
frægustu flugvél koma hingað.
Hins vegar geta ýmisr blaða-
menn andað léttara, en sam-
kvæmt skrifum þeirra var ótti
þeirra við vélina takmarkalaus.
- JBP
kjörinn formaður Heimdallar á aö-
alfundi félagsins í gær.
Aðrir í stjóm eru þessir: Árni
B. Eiríksson, tollþjónn, Garðar
Siggeirsson, verzlunarstjóri, Gunn-
ar B. Dungal frkvstj., Gústaf Niels-
son, menntaskólanemi. Hafsteinn
Árnason, verzlunarskólanemi,
Haukur Hjaltason, frkvstj., Jóhann-
es Long heilbrigðisfulltrúi, John
Fenger viðskiptafræðinemi, Jón Ó.
Halldórsson, Öskar Magnússon,
menntaskólanem; og Skúli Sigurðs-
son, lögfræðingur.
Franikvæmdastjóri Heimdallar er
Páll Stefánsson.
í samræmi við skipulagsbreyt-
ingu á Sambandj ungra sjálfstæðis
manna var skipulagi Heimdallar
breytt, og verður hann nú kjör-
dæmissamtök ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjavík. Munu því
verða stofnuð félög ungra sjálf-
stæðismanna í einstökum hverfum
borgarinnar og þau verða aðilar
að Heimdalli. Eitt slíkt hefur starf-
að um skeið í Vogahverfi. — IIH