Vísir - 15.11.1971, Síða 3
VISIR . Mánuðagur r5. no«
I IVIORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Úf LÖND í MORGUN UTLOND
Time segir:
Lin Piao reyndi nsarg oft
að myrða Mao Tse Tung
Dóttir hans kom upp um hann
Leyniþjónustumenn frá
Vesturlöndum segjast vita
hermálaráðherrann Lin
Piao hafi „margs sinnis
með vissu, að kínverski | reynt að myrða Mao Tse
„Öðru vísi mér áður brá ...“ Þessi mynd var tekin áður en snurða
hljóp á þráðinn hjá þeim Lin Piao og Mao formanni.
Kosið i A-Þýzkalandi:
NEI-ATKVÆÐIN
• • • •
Eini listinn sem var borinn fram
í kosningunum í Austur-Þýzkalandi
í gær fékk 99,85 prósent atkvæða.
Þetta er mkið „fylgi” en þó hafa
tVöfalt fleiri kosið gegn kommún-
istum en árið 1987, þegar listinn
fékk 99,93 prósent atkvæða.
Kjörsókn var heldur minni en
1967. Þá kusu 98,82% en nú 98,48%
af 11,4 milljónum, sem eru á kjör-
skrá. Formaður kjömefndar, Fried-
rich Ebert, sagði í sjónvarpi, að úr
slitin sýndu að fólkið styddi á-
kvarðani.r flokksþi-ngs kommúnista-
flokksins í júní síðastliðnum.
Flest „nei-atkvæðin“ vom greidd
gegn Wilili Stoph forsætisráðherra í
Dresden. 0,35%. — Gegn flokksfor-
manninum Erich Honeoker voru
„nei-at'kvæðin 0,22% í Karl Marx
borg og Walter Ulbricht fyrrver-
andi æðsti maður flokksins hlaut
sama magn andstöðuatkvæða í kjör
dæmi sínu í Leipzig.
Skæruliðar Austur-
Pakistan skeinu-
Tung“, að sögn bandaríska
tímaritsins Time í gær.
Lin Piao sé búinn aö vera sem
stjórnmálamaður, ef hann er þá
ekki dauður, segir í greininni í
Time. Undanfarna daga hafa ýmiss
konar sögusagnir heyrzt um Lin
Piao, sem hafði verið talinn „krón-
prins“ Mao Tse Tungs. Hefur
meðal annars verið sagt, að hann
hafi framið sjálfsmorð og forystu-
menn i kommúnistaflokknum hafi
skýrt almenningi frá því á borg-
arafundum í kínverskum borgum
síðustu vikur.
Time segir, að samsæri Lin
Piaos hafi verið afhjúpað í septem 1
ber. Hann hafi þá flúið með konu
sinni, sonum og tveimur fylgis-
mönnum sínum. Flugvél þeirra hafi
verið skotin niður yfir Mongólíu.
Sögunni fylgir að dóttir Lins,
Lin Tou-Tou, hafi aðvarað óvini
föður síns um flóttatilraun hans.
Níu lík hafi fundizt í flugvélinni
og Rússar hafi borið kennsl á lík
Lin Piao er þeir fundu það. Time
segir að Rússarnir hafi fundiö
merki um átök í flakinu, sem hafi
bent ti'l þess að einn af áhöfninni
hafj reynt að ræna flugvélinni.
Sex af 21 meðlimum æðsta ráðs
kfnverska kommún'istaflokksins
hafa ekki sézt opinberlega síðan í
september og aðeins níu af æösta
ráðs mönnum hafa látið til sín taka
að marki undanfama mánuði.
Umsjðn Haukur Helnason
163
Norður-
Yíet-
namar
féllu
163 Norður-Víetnamar féllu f á-
rás á herbúðir Suður-Víetnama f
miðhálendi S-Víetnam í gær. að
því er herstjórnin í Saigon segir.
Bardagarnir voru þeir hörðustu
um margra vikna skeið og stóðu í
eina klukkustund. Herstjórnin seg
ir, að 29 hafi faMið í liði Suður-Ví
etnama og 32 særzt.
Suöur-Víetnamar fengu aðstoð
bandarískra þyrla, sem skutu á á-
rásarmennina og munu um 50 hafa
fallið í þeirri skothrið.
Kostnaður nútímalífsins
Þessi mynd gæti minnt íslendinga á framtíðarmöguleika. Vegna hins slæma drykkjarvatns
í Rotterdam hefur snjall fjármálamaður þar tekið til við að flytja inn ferskt drykkjarvatn
frá Noregi. Vatnið er selt í tveggja lítra ílátum, sem kosta um 30 krðnur.
hættir stjórninni
Skæruliðar sjálfstæðis-
hreyfingar Austur-Pakist-
an ráða héruðunum
Saldanadi og Nayanpur í
Comillafylki eftir harða
bardaga við stjórnarherinn
að sögn indversku frétta-
stofunnar í morgun.
Sveitir Bangla Desh-skæruliða vörp
uðu sprengjum á 40 herskóla stjórn
arhersins og felldu um 30 af stjórn
arhermönnum. Að minnsta kosti
tuttugu aðrir féllu á laugardaginn
í hörðum bardögum í Dinajpur-
héraðinu.
Indverski hermálaráðherrann
Jagjivan Ram sagði í gærkvöldi, að
stríð gæti brotizt út á hverri
stundu mi'lli Indverja og Pakistana
vegna flóttamannavandamálsins
og hættuástandsins við landamær-
in. Ram á að flytja ræðu á þingi
í dag. Búizt er við að þingheimur
krefjist þess að stjórnin geri afger
andi ráðstafanir til að leysa flótta-
mannavandamálið eins fljótt og
nokkur kostur er.
Ríkisstjórnin býst einnig viö að
kröfur komi fram um viðurkenn-
ingu á Bangla Desh og aukningu á
aðstoð við skæruiliðana. Hægri
flokkurinn Jan Sangh hefur til-
kynnt að hann muni krefjast um-
ræðna um það sem flokkurinn kall
ar „skort á vilja ríkisstjómarinnar
að láta flóttafólkið fara aftur heim
til A-Pakistan“.
Þrátt fyrir allan þrýstinginn, sem
stjórnin verður fyrir úr ýmsum
áttum, mun Indira Gandhi vænt-
anlega bíða með afgerandi aðgerð
ir fyrst um sinn, þar til betur kem-
ur í ljós hver áirangurinn hefur
orðið af för hennar til vestrænna
landa fyrir skömmu.
Borðstofuhúsgögn
fyrir