Vísir - 24.11.1971, Side 4
v-l Sl &. iVtrðvmuaaKtir i
Spjallob og spáð um getraunir:
Heimasigrar ættu enn
að verða miklu fleiri
Þaö var alls staðar sama
sagan, þar sem enskir leik-
ir eru notaðir við getrauna
starfsemi — vinningsseðl-
ar hlóðust upp. Þúsundir
voru með 12 rétta í Noregi
á laugardaginn og 441 kr.
norsk kom í hlut. Fyrir 11
rétta voru þar greiddar 32
kr. norskar eða rúmar 400
kr. íslenzkar. Þannig fer
þegar næstum öll úrslit eru
samkvæmt áætlun — og
meira að segja sú spá okk-
ar rættist að yfir fimmtíu
þúsund miðar mundu selj
ast hér á landi.
Það er því til lítils að gera sér
miklar vonir um stóran vinning,
þegar úrslitin eru eðlileg og
bezt að gera sér grein fyrir því
strax. Falskar vonir valda leiðind
um.
En við skulum nú vinda okkur í
að líta á leikina á næsta seðli —
laugarcj^ginn 27. nóvember. Eins og
STOKE
GEGN
WEST
HAM!
Það verður Stoke City, sem leik
ur gegn West Ham í undanúrslitum
deildabikarsins enska. í gærkvöldi
sigraði Stoke Rovers I Bristol með
i—2. Þeir Greenhoff Smith, Bern-
ai-J og Conroy skoruðu fyrir Stoke
áður en þeir Stubbs og Geoffrey
(víti) skoruðu fyrir Bristol Rovers.
Stoke og West Ham leika saman
tvo leikj í undanúrslitum og það
liðið, sem sigrar, mætir annað
hvort Chelsea eða Tottenham i úr-
slitum.
áður eru mörg liðanna mjög sigur-
strangleg og það ætti þvi að vera
hægt að tína nokkra ,,örugga“ leiki
út — og mér virðist að minnsta
kosti í fjórum leikjum sé hægt
að búast við útisigrum. Og þá eru
það leíkirnir.
Arsenai — c. Palace 1
Það merkilega skeði I fyrrahaust
að Palace náði jafntefli á High-
bury — eftir að hafa í sömu viku
slegið Arsenal út í deildabikam-
um. En það gerist varla nú, þrátt
fyrir þá staðreynd, að Arsenal hef
ur tapað þremur síðustu leikjum
sfnum, þar á meðal á heimavelli
fyrra laugardag gegn Manch. City.
Áður hafði Ársenal unnið fjóra
heimaleiki T röð. Þetta er þriðja
leiktfmabil Palace í 1. deild og enn
hefur Iiðið ekki unnið annað Lun-
dúnalið í leikjum i 1. deild. ÓlTk-
legt er að fyrsti sigur komj gegn
ensku meisturunum — þó hins
vegar alit getj skeð í enskri knatt
spyrnu. Heimasigur.
Chelsea — Tottenham X
í fyrraha-ust sá ég leik þessara
liða á Stamford Brigde og eftir
jafnan leik skoraði Tottenham tvö
mörk síðustu 5. mfn og sigraði
2 — 0 Frábær Ieikur í ausandi rign
ingu. STðustu átta árin hefur
Cþelsea unnið To^nham Jimm
sinnum á „Brúnni", einu sinni
gert jafntefli, en tvisvar hefur
Tottenham unnið. Chelsea hefur
staðið sig vel að undanfömu hlot
ið níu stig af tíu mögulegum. —
En Tottenham hefur ekki tapað
leik í London í haust og spáin þvT:
Jafntefli.
Huddersfield — Derby 2
Á síðasta leiktímabili gerðu lið
in jafntefl; T Huddersfield 0—0. —
Þegar þau mættust f 2. deild vann
Huddersfield yfirleitt. En Derby
er mun betra lið núna — hefur
unnið fjóra leiki úti, gert þrjú
jafntefli og tapað tveimur —
reyndar tveimur þeim síðustu. —
Huddersfield hefur unnið 3 leiki
heima, tapað 4 af 9. Útisigur.
Leicester — Everton 1
Þrátt fyrir stórsigur Everton sl.
laugardag hef ég meiri trú á að
Leicester sigri í þessum leik --
liðið er í mikilli framför og hefur
ekki tapað á heimavelli T mánuð.
Liðin hafa ekki mætzt í Leicester
2 síðustu árin — sex árin þar á
undan í 1. deild vann Leicester
3—2 jafnt og Everton vann einn
leik. Heimasigur.
Liverpool — West Ham 1
Liverrpool hefur unnið West Ham
f sTðustu 5 leikjum liðanna á An-
field og ætti að bæta þeim sjötta
við þama. Liverpooi er mjög sterkt
lið á heimavelli nú — 6 vinning-
ar og tvö jafntefli, gegn Manch.
Utd. og Chelsea. West Ham hefur
aðeins unnið einn leik á útivelli,
tapað fjórum af 8. Heimasigur.
Manch City — Coventry 1
Síðan Coventry komst í 1. deild
hefur liðið aðeins einu sinni hlotið
stig á Maine Road — á síðasta
keppnistTmabiIi 1—1 — en hina
leikina þrjá vann City. Manch.
City er með mjög góðan árangur
á heimavelli 7 vinninga, 1 jafntefli
og 1 tap — en Coventry hefur
tapað 5 leikjum á útivelli, unnið
einn af níu. Heimasigur.
Nottm. For. — Leeds 2
Síðan Leeds komst í 1. deild hef
ur liðið unnið 4 leiki f Notting-
ham tapað einum leik og gert tvö
jafntefli — fyrsta árið og á síðasta
keppnistímabili. Sl. laugarag tókst
Leeds f fyrsta skipti að vera með
aila sfna bezfÚ mehn — enginn
meiddist og Leeds með sitt bezta
lið er of gott fyrir FÖrést. 'Úfisigur.
Enn
litlar
breyt-
ingar ,
Hvaö skeður nú á Highbury? — Síöast vann Manch. City meist
ara Arsenal þar og þessi mynd er frá leiknum. John Radford,
sem leikiö hefur í enska landsliðinu, á þar í höggi við hina
snjöllu framverði City — Mike Doyle og Alan Oakes, en þeir em
náskyldir.
ivrópuleikir
FH við Fiunu
FH fær finnsku meistarana í
Evrópukeppninni í handknatt-
leik og finnska liðið UK 51 kem
ur hingað til lands í dag. Báðir
leikimir verða háðir í Laugar-
dalshöllinni — hinn fyrri annað
kvöld, en sá síðari á föstudags
kvöld.
Með báða leikina á heimavelli
— en FH tókst ag ná samkomu-
lagi við Finna um það og hefur
heyrzt að liðið borgi Finnum
1000 dollara í ferðir og uppihald
— ættu sigurmöguleikar FH aö
vera mjög miklir. Finnska liðið
hefur þó á stundum náð athyglis
verðum árangri í þessari keppni,
en er varla nógu sterkt til að
standast FH snúning — það er
að segja ef leifcmönnum FH og
þá einkum einum leikmanni liðs
ins, Geir I-Iallsteinssyni, tekst
vel upp. Dómarar 1 leíknum
verða norskir.
Sir Alf Ramsey hefur valið 16
leikmenn til aö taka þátt i leik'
Englands og Grikklands i Evrópu
<epf«ii laodsliða hinn 1. des-
smbet í Aþanu. England má
tapa þeivn leik með 3ja marka
itiun til að ná sæti í átta liða úr
slitum.
Leikmennimir eru: Gordon
Banks, Stoke, Peter Shilton,
Leicester, Poul Madeley, Terry
Cooper og Norman Hunter,
Leeds, Bobby Moore og Geoff
Hurst, West Ham. Francis Lee
og Colin Bell, Manch. Citv, Pet-
er Storey. Arsenal, Alan Ball
Everton, Emlyn Huges, Liver-
pool. Roy McFarland Derby,
Rodney Marsh, QPR og Martin
Peters og Martin Chivers, Tott
enham.
Belgía og Portúgal gerðu jafn
tefii í Lissabon á sunnudag í
sömu keppni og nægði það
Belgíu ti! að komast áfram. —
Þann rétt hafa einnig Sovétrík
in og Vestur-Þýzkaland unnið
sér.
ShefL Utd. — Ipswidi I
Það er nú komið ár og dagur
síðan þessi lið hafa mætzt í deilda
keppninni — ein átta ár og þá
vann Sheff. Utd. 1 — 0 á Brammal
Lane. Mjög hefur hallað undan
fæti hjá Sheffield-liðinu eftir hina
ágætu byrjun í haust, en það ætti
þó að vera nógu sterkt til að sigra
Ipswich Rétt er þó að hafa í huga,
að Ipswich hefur gert jafntefli í
nær helming leikja sinna. Heima-
sigur.
Sbuthampton — Manch. Utd. 2
Dýrlingarnir eru nú á sTnu sjötta
leiktímabili í 1. deild og í fyrri
leikjunum fimm hafa þeir náð 50%
árangr; ,á heimavelli gegn Manch.
Utd. — tveir vinningar, eitt jafn
tefli, tvö töp. í fyrra vann South-
ampton 1 — 0, árið áður Man. Utd.
3—0. Southampton tapaði mjög
illa I Liverpool gegn Everton á laug
ardag — en vann Leeds á heima-
velli vikuna á undan Manch. Utd.
efsta liöj í 1. d. ætti að hafa sigur
möguleika í þessum leik. Utisigur.
Stoke — Newcastie 1
Rúm sex ár eru síðan Newcastle
náði aftur sæti sínu í 1. deild og
■ leikjunum sex hefur liöið tvisvar
unnið í Stoke — fjörum sinnum
tapað og þarna ætti fimmta tapið
að bætast við. Stoke er sterkt lið
á heimavelli — hefur unnið fimm
leiki af átta eitt jafntec,i en New
castle hefur engan sigur á úti.elli
— aðeins tvö jafntefli í 9 leikj-
"m. Heimasigur.
WBA — Wolves 2
Steinsnar er á milli West Brom-
wich og Wolverhampton I Miðl.
og leikir liðanna hafa oftast verið
jafnir. • Á siðasta keppnistTmabili
sigruðu Ulfarnir 4—2 og eru nú
með miklu betra lið en A'lbion og
ættu að vinna. Utisigur.
Norwich — Middlesbro I
Norfolk-liðið Norwich, se.„ aldrej
hefur leikið í 1. deild, hefur haft
forustu í 2 deild nú frá byrjuti.
Liðið er meö mjög góðan árangur
á heimavelli — 6 vinninga og þrjú
jafntefli, ekkert tap, en Midlesbro'
er slakt lið á útivellj — fimm töp,
eitt jafntefli og tveir vinningar.
Síðustu 8 árin hefur Middlesbro þá
náð 50% árangri T leikjum sínum
í Norwich — en mun líklegri er
þó núna heimasigur. —hsím.
Staðan í 1. deild:
Manch. U. 18 12 4 2 38:20 28
Manch C. 18 9 7 2 31:13 25
Leeds 1S 10 5 3 32:17 25
Derby 18 10 3 5 25:17 23
Sheff. U. 18 10 3 5 28:21 23
Liverpooj 18 9 4 5 26:20 22
Tottenham 17 8 5 4 35:23 21
Chelsea 18 7 5 6 26:24 19
Wolves 18 7 5 6 29:27 19
Stoke 18 8 3 7 19:19 19
Arsenal 17 9 0 8 27:23
Ipswich 18 5 8 5 16:16 18
West Ham 18 6 5 7 19:18 17
Coventry 18 5 7 6 21:28 17
Everton 18 6 3 9 21:20 15
Leicester 18 5 5 8 20:24 15
Southa'ton 18 C 3 9 23:38 15
Huddersf. 19 5 3 11 15:28 13
Newcastle 18 4 4 10 17:28 12
WBA 18 3 5 10 12:21 11
Nott. For 19 3 5 11 24:38 11
C. Palace 18 3 4 11 13:33 10 — hsim.