Vísir - 24.11.1971, Page 7
V-’ifc'S'TR. Miílivikudagur 24. nóvember 1971.
7
cTMenningarmál
frá og með þessum vetri. Og
víðar i menntaskólum hafa orð
ið hamingjusamlegar framfarir
á tónlistarsviðinu, ég nefni kór
Menntaskólans við Hamrahl’íð.
En hvað eigum við að bíða lengi
eftir þvi, að tónlistardeild verði
komið á laggirnar í Háskölan-
um? Enn er Guðfræðideildin ein
astj vettvangur tónlistar í Há-
skóla Islands, að Stúdentakórn-
um þó ógleymdum. >eir stúdent
ar, sem hafa haft þá gæfu að
nema tónlist meöfram (í Tónlist
arskólanum) bera um það ein
um róm; að i framhaldsnámi
meö menningarþjóðum standi
þeim allar dyr opnar, „einungis"
af því að þeir kunna kannski
að kalla fram tón f fiðlu.
nú ætiar Sinfóníuhljöm-
sveit fslands að samverka
góðum mönnum viö að efla fram
haldsskólanemum tónlistaskyn.
Á föstudaginn var hélt hljóm-
sveitin aðra tónleika sTna á
þessu starfsári til handa fram-
haldsskólunum. Húsfyllir var.
Tónlistarkennarar höfðu bersýni
lega látið venjulegar kennsiu-
stundir niður falla þessa dag-
skólum
stund til þess að gefa nemendum
sínum kost á að vera viðstadd
ir prýðilegan tóniistarflutning
gegn vægu gjaldi. Atli Heimir
Sveinsson, tónskáld, sem nú er
kennari MenntaskóJans við Lækj.
argötu f sinn; grein, kynnt; verk
in, og gerði það ágæta vel. Ge-
orge Cleve stjómaðj hljómsveit
inni Á efnisskránni voru tvö
verk ólík eftir samtímamenn
á öndveröri 19. öld, Rossini o-g
Beethoven: Forleikur að öper-
unnj Semiramide og Hetjusin-
fónTan Flutningurinn var góð
ur, einkum tókst sinfónían vel.
Undirtektir skólafólksins
sýndu, að hér er ekki hlaupið
til einskis, enda eftirmiðdags-
tónleikar eins og þessir fima
mikil hressing í íslenzku skamm
degi.
Einn af brautryðjendum tónlistarkennslu barna og unglinga er Sigursveinn D. Kristinsson —
myndin er úr Tónskóla hans í Reykjavik.
Tónlist í
T’TsClendir stúdentar. sem hér
dvelja koma óðara auga á
tvær gloppur í námsskránni ís-
lenzku: Það vantar í hana íþrótt-
ir og tónlist. Sú var þó tíð, að
orð fór af íslendingum fyrir
fnæknleik Er skemmst að minn
ast heimsmeta Gunnars frænda
vors á Hlíðarenda, sem enn
standa óhnekkt Um tónlistina
gegnir nokkuð öðm máli. Aldar
andi á íslandi hefur einlægt
EFTtR
GUNNAR
BJÖRNSSON
lagzt í gegn þessari hjákátlegu
Tþrótt, það er alveg nýskeð ef
íslendingar eru hættir að Jíta
á tónlist eins og afkáralegan
dónaskap upp; í sveit. Þó munu
á dögum nokkrir þeir menn, er
telja Egil Skallagrimsson hafa
sungið Höfuðlausn undir laginu
In dulci jubilo (Sjá, himins opn
ast hlið).
Ckólafólk T öðrum löndum hef
k'7 ur vanizt tónlist sem frá-
bæru tómstundagamni. Erlendis
er ekki sá skóli, hversu lítilfjör
legur sem hann annars kann að
ve©a, að þar sé ekkj tónlist í
hávegum höfð og tónmennt alls
konar i miklum blóma. Bæði
syngja menn þar og leika á
margs konar hljóðfæri sér til
gamans og til að hafa af fyrir
sér á iöngum eftirmiódögum ell-
egar vetrarkvöldum. Þar spretta
upp kórar og hljómsveitir, stærri
og smærri sem hafa á efnis
skránni tónverk, tekin hvar sem
er úr spjaldskrá aidanna: svo
vel Monteverdj sem Mahler. Eða
menn skemmta sér við stofu-
tónlist svokallaða og mæla sér
þá mót saman fjórir eða fimm
T herbergi á einhverjum stúdenta
garðinum, og það er komið mið
nætti áöur en þú veizt af. Og
enn er ótalinn sá þáttur, sem
tónlistarfólk skólanna á í því
að auka músíkölskum löndum
sínum yndi með þvT að færa upp
opinberlega mörg uppáhaldsverk
tónbókmenntanna með árangri,
sem er samkeppisfær hvar sem
er.
Erlendir námsmenn, sem dvelja
hér um stundasakir á Garð-
inum hjá mér, eru stöku sinn-
um að reyna að koma íslenzkum
skólabræðrum sínum til i tón
Iistarfegu tilliti en ævinlega
með dapurlegum árangri þvT
að íslenzkir stúdentar vilja
miklu heldur sitja og lesa dag-
blöðin en leika á hljóðfæri að
ekki sé taiað um að lúka munni
sundur í söng, Og hvernig á
annað að vera? Þaö er í þessum
punkti, sem útlendingarnir
spyrja með undrunarsvip: Er
ykkur ekkj kennd tónlist T skól
anum?
lVjú ber að fagna hárri röddu
1 ” sérhverju hænufeti, sem stig
ið er götuna fram eftir veg. í
Menntaskólanum við Lækjar-
götu er tónlist orðin valgrein.
Hlaðrúmin komin
STERK OC ÓDÝR
mm- o /fpp s A ö Ð
HÚSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATÚN — SfMI 18520
mmmsszmaMwmmmmMm
ÞESSA AUGLÝSINGU
KOMIZT ÞÉR EKKI HJÁ AÐ LESA
VIÐ HÖFUM FENGIÐ
eins og amma okkar notaði, úr birki í eftirtöldum stæröum og veröum:
100 cm 257.00 180 cm 415.00
120 cm 296.00 200 cm 453.00
140 cm 331.00 220 cm 498.00
160 cm 374.00 240 cm 538.00
GJAFAHÚSIÐ
Skólavörðustig 8 og Laugavegi W, Smiöjustígsmegin.
Viö tókum þær ólitaðar vegna þess aö þá getiö þér sjálf ákveðiö hvort þér takið hana
með glæru lakki, bæsið hana eða málið, allt eftir því, hvaöa litur hentar yöur, eöa þá
bara nota hana eins og úhn er í viðarlit.
Hver stöng er pökkuö inn í pjast, og allt fylgir með: l hringur fyrir hverja 10 cm, hengi
til að festa hana upp og plastkrókar á gardínuna. Það er ekkert mix við aö setja hana
upp.
Þessar stangir eru aðeins seldar í verzlunokkar á Laugavegi 11, Smiðjustígsmegin, í
kjallaranum, og til okkar eruð þér alltaf velkomin, þó ekki sé hátt tfl lofts né vítt til
veggja