Vísir - 30.12.1971, Blaðsíða 8
V í S IR . Fimmtudagur 30. desember 1971.
Q
Utyefancu : KeyKjapreoi hf.
í'rato'*væmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjöri Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir ''Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Augiysingastjóri : Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar : Hverfisgötu 32. Símar 15610 11660
Afg. -Ia: Hverfisgötu 32. Sími 11660
Ritstjórn: Síðumúila 14. Sími 11660 (5 11010')
Áskriftargjald kr. 195 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 12.00 eintakið.
Prentsmiöja Vísis —- Edda hf.
Ragnarökum afstýrt?
]\ú er tímabil góðra vona í heimsmálum. Þetta hefur
gerzt áður. Eitthvað í fari Krustjevs vakti á mektar-
dögum hans vonir um, að við þennan alþýðlega ör-
geðja mann mætti semja um deilumálin. Þá var Stalín
allur. Kennedy lagði sig fram um sættir. Þetta bjart-
sýnisskeið stóð alllanga hríð, allt fram til Kúbudeil-
unnar og raunar öliu lengur.
Vonirnar brustu, og kalda stríðið var aftur í hásæti.
Herir skullu saman í Indó-Kína. Rússar kúguðu
Tékka. En nú er aftur skeið góðra vona.
Hinir bjartsýnustu fullyrða, að loks sé risaveldum
heims orðið ljóst, að framhald vígbúnaðarkapphlaups
geti aðeins leitt til glötunar, jafnvel ragnaraka, heims-
endis. Rök mannkynssögunnar segja okkur, að þetta
muni gerast, ef hjólinu verður ekki snúið við og haf-
izt handa um niðurskurð atómvopna og eldflauga-
staflanna.
Bjartsýnismenn benda á þá viðurkenningu, sem
Kína hefur hlotið á því ári, sem nú er að líða, sem eitt
mark um viðurkenningu á staðreyndum heimsmál-
anna. Þeir benda á samningana um Berlín, sem loks
tókust fyrir nokkrum dögum. Þeir segja, að árangur
hafi orðið af viðræðum risaveldanna um takmörkun
vígbúnaðar, þótt þar sé enn mest byggt á óstaðfest-
um fregnum.
Tvímælalaust eru horfur betri en jafnan áður frá
^upphafi kalda stríðsins á því, að samningar takist um
fækkun í herafla í Evrópu beggja vegna víglínunnar.
Viðræður um þessi mál munu væntanlega hefjast inn-
an skamms. Reynt er að ná samkomulagi um tilhög-
un öryggismálaráðstefnu Evrópu, þar seu; i.astur og
vestur leituðu málamiðlunar. Það er ekki út í hött
að setjr. trr.v.st r"t á þetta. Annað væri að bíða enda-
lokanna án vonar nm h‘3rgun.
Við skulum íhuga, hve ói-'klegt það var talið fyrir
nokkrum árum, að austur og vestur semdu um Berlín
eða Vestur-Þjóðverjar gerðu samninga við Pólverja
og Rússa. Þetta hefur gerzt árið 1971.
Við skulum enn fremur minnast þess, að fáir hefðu
þá talið hugsanlega samninga risaveldanna um tak-
mörkun kjamorkuvopna, eldflaugasmíði eða fækkun
í herafla í Evrópu. Þetta eru flestir nú á einu máli um,
að komi mjög til greina. Að vísu var þegar árið 1963
samið um bann við kjamorkutilraunum ofanjarðar,
og á öðrum tímum hefur birt um skamma hríð og
samkomulag náðst um einstök atriði. En um það ættu
menn að vera á einu máli, að árið 1971 hefur verið
öðmm árum merkilegra í þessum efnum.
Þó eru blikur á lofti, og enn heldur vígbúnaðar-
kapphlaupið áfram óhindrað. Enn stefnir til ragna-
raKa, En enginn skyldi varpa frá sér voninni né loka
augunum fyrir því jákvæða, sem hefur gerzt árið 1971.
HVAÐ ER
Magnús Torfi Ólafsson,
menntamálaráðherra
„Það minnisstæðasta, sem
mig henti á þessu árj er ekki
eitt einstakt atvik, heldur keöja
samhangandi atburða, sem hóf
ust með því aö ég var ófor-
varandis beðinn að fara í fram
boð hér í Reykjavlk í efsta
sæti á framboðslista til alþing-
is. Þá var svo áliðið á fram-
boðsfrest að ég gat ekki tekið
mér nema sólarhrings umhugs
unarfrest. Þá svaraði ég ját-
andi. Síðan tók við kosninga-
barátta, sem lauk með sigrifyr
ir minn flokk, bæði hér í Reykja
vík og víöar Af þeim sigri
hlutust stjórnarskipti í landinu
og svo atvikaöist að ég var
setztur í ráðherrastól 2/2 mán
uöj eftir að það kom fyrst til
orða að ég yrði f framboöi.
Þetta gerir að vonum árið 1971
minnisstæðara en nokkurt ann-
að ár, sem ég hef lifað fráþv’í
ég varö fulltíða."
Ellert Schram,
alþingismaður
„Satt að segja er ég svo upp-
tekinn af verkefnum morgun-
dagsins, að ég hrekk upp þeg-
ar ég á að fara að rifja upp
minnisverða atburði, og þarfað
hugsa mig um tij aö muna
hvort þeir áttu sér staö 1 fyrra
eða í ár Kannskj er þetta und-
arleg gleymska eða glópska, en
um leið vitni um hraða og við-
burðaríka atburðarás — f því
sambandi velt; ég því fyrir mér,
hvort nokkur hafi í raun taum
hald á lífshlaupinu — sé ekki
leiksoppur atburða, hvort það
sé ekki svo með flesta, að
lTf þeirra stjórnist af stimpil-
klukku og fundarhöldum. Með
hliðsjón af heiöarlegri viðleitni
til að njóta lffsins, þá kemst ég
að þeirrj niðurstöðu að dagur
inn í gær er mér minnisstæð-
astur, dagurinn í dag skemmti-
legastur og dagurinn á morgun
eftirsóknarverðastur.“
Jóhíann Hafstein,
form. Sjálfstæðisflokksins
„Mér eru stjórnmálin efst í
huga eins og fyrrj daginn en
þar koma fyrst upp úrslit al-
þingiskosninganna. Með þeim
lauk einstöku stjórnartTmabili,
þar sem Sjálfstæöisflokkurinn
hafðj óslitna stjórnarforystu í
12 ár, Á þessu tfmabili voru
miklar framfarir f þjóðlífinu.
Þó er á það að líta, aö þar voru
bæöi góö ár og erfið Nú auk
þess gleymum við ekki, að á
þessu ári færðu Danir okkur
Konungsbók og Flateyjarbók,
sem er upphaf að endurheimt
hinna fomu handrita.“
Einar Ágústsson,
utanríkisráðherra
„Þetta hefur verið mér afar
viðburðaríkt ár og ánægjulegt.
Ég held þó að af mörgu sé
mér langminnisstæðast, þegar
ég flutti ræðu í fyrsta skipti á
þingj Sameinuöu þjóðanna.
Mér fannst hátTölegt að
geta flutt þar sjónarmið ís-
lendin'ga í landhelgismálinu og
fá að þvi er mér fannst gott
hljóð, talsveröa eftirtekt og
sæmilegar viötökur.**
Jónas Árnason,
alþingismaður
„ÞrTr atburöir, held ég, að
veiCi mér minnistæðastir. I
fyrsta lagi þegar hinn nýi ut-
anríkisráðherra, Einar Ágústs-
son, hélt ræöu sína hjá SÞ í
haust, en þá kvað viö nýjan
tón hjá okkur í utanrTkismál-
um.
Og í öðru lagi hin sögulega
atkvæðagreiðsla þegar þessi
breytta stefna okkar var stað-
fest og við létum lokið fyrri
hlýðnisafstöðu okkar við Banda
ríkjamenn og greiddum at-
kvæði gegn hinni fáránlegu til-
raun 'þeir>a til þess aö halda
þessum s'ncssn Ænverja á meg
inlandinu utan SÞ.
En sennilega verður mér
persónulega eftirminnilegust sú
stund, þegar ég hitti garpana í
Aberdeen í þættj sjónvarpsins
þar um landhelgismálið."
Friðrik Ólafsson,
fulltrúi
„Hvað viðkemur mínum per-
sónulegu hugðarefnum, þá er
mér efst í huga þessi eindæma
sigurganga Fischers T einvíg-
inu í vor, sem var hreint alveg
ótrúlegt afrek. En það eru svo
sem margir viöburðir. sem
verða manni eftirminnilegir,
eins og aðild meginlands Kína
aö Sameinuðu þjóðunum, stjórn
arskiptin hér heima og svo
framvegis og svo framvegis."
Ámi Tryggvason,
leikari
„Þaö sem mér er minnisstæð
ast á árinu, er það, að ég
þurftj að fylgja föður mínum
og bróður til grafar samdægurs.
Þeir dóu með fimm daga milli-
ur og þeir yoru jarðaðir í HrTs-
ey í því dýrlegasta veörj sem
hugsazt getur í júní.
Annars er dvöl mín í Hrísey
T tvo mánuði ár uvert dy.ieg-
ast.i og eftirminnilega?ti tími
hvers árs í mínum huga."