Vísir - 25.03.1972, Blaðsíða 1
r
vism
TÖPUÐU ENGUM LEIK!
íslenzka landsliftif) i handknattleik hlaut þriðja sætið i forkeppni Ólympíuleikanna á Spáni — sigraði
Pólland i gærkvöldi i Madrid með 21 - 19. islenzka liðið lék sex leiki i förinni — tapaði engum, vann fjóra
og gerði tvö jafntefli. I.iðið skoraði samtals 120 mörk i þessum leikjum — eöa að meðaltali 20 inörk i leik
og fékk á sig 82. Geir Hallsteinsson skoraöi nær þriðjung marka íslands, eða samtals 38, og er það glæsi-
legt afrek — eins og öll frammistaða liösins i keppninni hefur verið, sannkölluð sigurför og verðlaunin
eru farseðlar og keppni á ólympiuleikunum iMiinchen iseptember. Sjá iþróttir bls 9
62. árg. — Laugardagur 25. marz 1972 — 72.tbl.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦
} Beint frá }
j borði, — •
♦
' að grœnu
borðunum
Það var ekki til setunnar
boðið fyrir brezku bridge-
sveitina, sem kom til
Reykjavikur i gærkvöldi til
að keppa við íslenzkt bridge-
fólk. það var lialdið rakleitt
frá Keflavikurflugvelli svo
að segja beint að grænu
borðunum’i Domus Medica.
— Sjá bls. 5
★
• •
Okumenn
við „próf-
[borðið" hjá
kennara-
efnum
Nokkrir ungir kennara-
nemar héldu út á götuna i
rigninguna og rokið i
hádeginu i gær og tóku til við
að gcra könnun á hádegis-
umferðinni i Reykjavik. A
annaö þúsund bilar komu við
sögu i könnuninni, sem Guð-
m u n d u r Þo r s t e i n s s o n,
kennari, stjórnaði. Og hvaða
einkunn fá svo mettir og
glaðir ökumenn höfuð-
borgarinnar hjá kennara-
efnunum? — Sjá bls. 2
★
Gagnrýn-
andinn
undir
smásjánni
Gagnrýnendur þykja
mörgum ,,hinir verstu
incnn”, einkum þeim, sem
þeir fjalla um á annan hátt
en þann, sem sá gagnrýndi
heföi óskaö eftir. En hann
Ý Gunnar Björnsson, tónlistar- ♦
gagnrýnandinn okkar, getur 7
♦ lofaö menn ekki siður en
^ gagnrýnt, eins og sjá má i
pistli hans í dag. Þá er það og
frétt varðandi gagnrýn-
endur, að út er komin
skáldsaga, sem fjallarum þá
og pólitik þeirra.
—Sjá bls.2 og 7
í
♦
t
♦
Sérmálin
enn
óleyst
Sjá baksiðu
KÚREKAR
OG BÆNDUR
Já, kúrckar og hændur ættu að vera finir. Það er óhætt að undirstrika það.
í Oklahoma, söngleiknum, sem Þjóöleikhúsið er nú að taka til sýningar er einmitt fjallað um
sambúöarvandamál i Bandarikjunum hér áöur fyrr, þegar þessir starfshópar voru allt annað en vin-
samlegir hvor i annars garð. llér er litmynd, sem Bjarnleifur Bjarnleifsson tók af einu söngatriða
leiksins, sem var á aðalæfingu i gærkvöldi og verður frumsýndur i kvöld.
Skaðabótakröfur ó hendur Bobby
Físcher upp ó margar milljónir
ef hann gerir alvöru úr samningsrofi
Missi Bobby Fischer
réttinn til að mæta
heimsmeistaranum
Spasski í einvigi vegna
þrákelkni sinnarog kröfu
gerðar, biða hans væntan-
iega málsókn og skaða-
bótakröfur, sem skipta
milljónum.
Skáksamband islands og
Skáksamband Júgóslaviu munu
vafalitið gera kröfur um, að
þeim verði bættur sá fjárhags-
legi skaði, sem samböndin
hefðu órðið fyrir. Samböndin
hafa þegar lagt i margskonar
kostnað vegna undirbúnings.
Skáksamband tslands telur, að
fastur undirbúningskostnaður
vegna einvigisins muni ekki
verða minni en 2-3 milljónir
króna. Þvi nær sem liður þeim
degi, sem einvigið á að fara
fram, þvi hærri verður að sjálf-
sögðu sá kostnaður, sem sam-
böndin leggja i.
Samningarnir i Amsterdam
voru undirritaðir af Edmond-
son, sem hafði að allra dómi
tvimælalaust heimild Fischers
til að undirrita slikan samning
fyrir hans hönd. Þessu virðist
Fischer nú neita, en Edmondson
jafnt sem aðrir telja Fischer
ekki hafa nein lagaleg rök fyrir
máli sinu. .
Samningarnir eru bindandi. 1
lögfræðilegum skilningi má
likja þeim við verktakasamning
til dæmis um byggingu raforku-
vers. Verkið var boðið út, til-
boða var leitað, eins og kunnugt
er, en málsaðilum, Fischer og
Spasski, gefinn köstur á að
semja sin á milli um, hvaöa til-
boði skyldi tekið. Þar sem slikt
samkomulag náðist ekki, var
þeim aðilanum, sem útboðið
gerði á verkinu, það er Alþjóða-
skáksambandinu, samkvæmt
lögum heimilt að ákveða, hver
verktakinn skyldi verða. Dr.
Euwe úrskurðaði, að fram-
kvæmdinni skyldi skipt milli
Belgrad og Reykjavikur.
Alþjóðaskáksambandið, FIDE,
er aðalábyrgðaraöilinn, en aðrir
aðilar, sem undirrituðu endan-
legan samning um framkvæmd
verksins i Amsterdam, eru
ábyrgir fyrir sinn hluta samn-
ingsins. Undirbúningur fram-
kvæmda er hafinn. Eins og væri
um byggingu raforkuvers að
ræða, ber sá, sem útboðið gerir,
ábyrgö á Iramkvæmd. Skák-
samböndin eiga þvi vafalaust i
fyrstu lotu skaðabótakröfur á
hendur FIDE, en siðan mundi
F’IDE eiga rétt til að krefja
þann aðilann, sem hefði rofið
samninginn, það er Bobby
Fischer, Um fullar bætur fyrir
samningsbrotið.
Bobby Fischer, sem hugsar
um peningalega hliö’ejnvigisins,
mun þvi hugsá sig um tvisvar,
áður en hann brýtur þennart
samning. Ekkertbendir til þess,
að hann geti á lögmætan hátt
komið ábyrgðinni yfir á Ed-
mondson, sem hafði fullt umboð
Fischers.
Fischer reynir aö knýja
islendinga til uppgjafar.
Hvað er Fischer að fara?
Ætlar hann að missa af þvi fé,
sem mun fá samkvæmt samn-
ingum fyrir að tefla einvigið?
Meiri fjárgreiðslur hafa ekki
þekkzt fyrr á skákkeppni.
Skipti peningarnir hann öllu,
ætti hann að gæta þess að lenda
ekki i skaðabótamáli, sem gæti
kostað hann milljónir króna.
Yfirleitt er taliö, að Fischer sé
að reyna að stilla Islendingum
upp að vegg og fá þá til að gefast
upp við allt saman, til dæmis
með þvi að þeir leyfðu, að Júgó-
slavarnir eða aðrir héldu
keppnina, gegn bótum til
Islendinga.. En þá yrði Fischer
að fá betri kjör á nýjum stað, ef
hann ætti að græða. Þetta gæti
einnig verið leikur til að lá
stuðning einhverra aðila i
Bandarikjunum. Þar i landi hef-
ur áhugi verið mikill á mögu-
leikanum á að ná ’ heims-
meistaratign úr höndum Rússa.
Nú gæti einhver auðmaðurinn
eða auðfélagið, jafnvel opinber-
ir aöilar, hlaupið til og gefið
P’ischer meiri greiöslur, kann-
ski ,,á bak við”. t bridge er
algengt, að auðmenn styrki
sveitir, svo sem er um Dallas-
liðið, margfalda heimsmeist-
ara, sem auðmaður heldur uppi
og fær ágóða af. Fischer mundi
fagna þvi að fá slikan bakhjarl.