Vísir - 12.04.1972, Blaðsíða 20
Miövikudagur 12. april 1972.
Landhelgisbœkling-
ur dreginn til baka
A siöustu fundum hafréttarráð-
stefnunnar var lagöur fram kynn-
ingarbæklingur, sem utanrikis-
ráöuneytiö haföi samiö um land-
helgismáliö. tslenzka nefndin á
kvaö hins vegar aö leggja ekki
fram bækling, sem liannes Jóns-
son blaðafulltrúi rikisstjórnar-
innar haföi tekiö saman.
Nefndin taldi, aö þessi bækl-
ingur væri ekki til gagns fyrir
máliö á þessu stigi.
ísland aftarlega í
niðursuðu fisks
llla hcfur tekizt aö byggja upp
niöursuöuiönaö á islandi, eins og
sést af þvi, aö aöeins 1,6 prósent
af iillu vcrömæti útfluttra sjávar-
afuröa hafa veriö af niöursoönum
og niöurlögöum fiskafuröum.
1 heiminum öllum er þetta hlut-
fall miklu hærra. Samkvæmt
skýrslum Sameinuðu þjóðanna
fóru árin 1967-69 um 9 prósent af
afla heimsins í niöursuðu og
niðurlagningu, en hér á landi að-
eins (),:!-(),4 prósent.
Þessar upplýsingar komu fram
i erindi Fáls Péturssonar niður-
suðufræðings á matvælaráð-
stefnu verkfræðingafélagsins.
—HH.
Dreifibréfsmálið:
EKKI
SAKAMÁL
Embætti saksóknara hefur tilk.
bæjarfógetanum i Keflavik að
það sjái ekki ástæðu til að höfða
opinbert mál vegna dreifibréfsins
i Keflavik. Telur embættið þetta
ekki heyra undir sakamál og þarf
þvi að höföa meiðyrðamál ef
halda á málinu áfram. Það gæti
orðiö lalsvert umfangsmikið þar
sem dreifibréfinu er ekki aðeins
beint gegn Jóni Jóhannssyni
lækni heldur einnig ýmsum
öðrum borgurum sem þekktir
eru.
Bæjarfógetinn i Keflavik fékk
úrskurð saksóknara i morgun og
hafði þá ekkert frekar gerzt i
málinu.
—SG.
FRAKTFLUG KOMIÐ
HEIM Á NÝ
— Viö erum aflur fluttir til
landsius, en nóg er aö gera i
hrstaflutningunum, sagöi Hall-
grimur Jóusson flugstjóri hjá
Kraglflugi i viötali viö Visi. Viö
liöfum þegar fariö þrjár feröir á
þessu ári meö 125 hesta og tölu-
vert liggur fyrir af flutningum.
Fragtflug flýgur nú á tiu staði i
Evrópu. Þrátt fyrir hestaflutn-
ingana er ekki nóg nýting hjá
Fragtflugi og ráðgerir það að
fljúga eitthvað erlendis eins og
gert var s.l. sumar. Vélin, sem
Fragtflug hefur á leigu verður
staðsett hér á landi milli ferða.
Nú hefur Fragtflug fengið
keppinaut þar sem Cargolux er.
Hallgrimur segir. — Ef yfirvöld
leyfa erlendum félögum að koma
hingað og flytja hesta þá tökum
við þátt i þeirri samkeppni
og reynum að spjara okkur.
Viö höfum farið 30 ferðir á
ári og höfum lent á tveim til þrem
stöðum i ferð til að losa farminn.
íslandsflutningarnir á siðasta
ári sýndu mjög lélega útkomu, og
félagið var ákveðið i að hætta
flutningum. Þá ákvað rikisstjórn-
in að veita útflutningsbætur fyrir
hesta, sem verða fluttir i vor og i
sumar, meðan við erum að koma
okkur betur fyrir og byggja upp
vöruflutningana til tslands frá
Evrópu. Eftir það gerum við ráð
fyrir, að félagið beri sig sjálft.
— SB —
Hestamenn lens í Engey
— kveiktu ból og lögreglan kom þeim til hjálpar - einn fluttur á slysavarðstofu
Nokkrir hestamenn uröu lens
I Engey I gærkvöldi. er þeir
voru aö sækja hross.
Óskar Einarsson í Sindra var
einn mannanna, og sagöi hann
Vfsi í morgun, að þeir hefðu
farið út á pramma tii að sækja
nokkur hross.
„Við vorum búnir að sækja
hesta i Viðey, en svo fórum við
fyrir hann Þorgeir i Gufunesi I
Engey eftir hrossum.
En þaö er ekkert á þessar
vélar að treysta, og þegar við
vorum komnir í eyna, bilaði
vélin, blotnaði, og við komum
henni ekki í gang. Við kveiktum
þá bál og biðum eftir hjálpir.ni.
Viö biðum I um klukkutima, og
þá hefur einhver séö bálið. Þeir
komu á lóðsbátnum. Það væsti
svo sem ekkert um okkur. Ég
var reyndar að gösla i eöa við
sjóinn og var rennvotur, en
klæddur i föðurland og þá
verður manni aldrei kalt. Einn
mannanna, sem með okkur var,
var hins vegar óvanur svona
volki, og lika illa klæddur. Hann
varð gegnkaldur”.
„Það var kona sem býr við
Laugarnesveginn, sem sagði
okkur frá báli i Engey”, sagði
lögreglan, „það hefurveriðum
miðnættið, sem hún sá bálið. Við
báðum lóðsana að fara eftir
mönnunum, og þeir fóru út á
Jötni. Við fórum með og höfðum
gúmbát lögreglunnar með-
ferðis.
Þeir voru hressir mennirnir,
nema einn, sem við fluttum á
slysadeildina, honum var svo
kalt. Annars hefur hann jafnað
sig fljótlega”.
Óskar Einarsson sagði, aö
hestarnir hefðust vel við i
eyjunum, og væru um 40 hross i
Viðey, um 10 i Engey, auk um
60 kinda.
„Það er gott gras þarna, og
festir varla snjó á. Hrossin eru
feit og þeim liður mjög vel
þarna”. Sagði Óskar að þvi færi
fjarri að eyjarnar væru
fullnýttar, og væru uppi
hugmyndir um að nýta beitina
þarna betur, til dæmis með þvi
aö hafa þar holdanaut. —GG.
Búlgarskt
„heilsuskyr"
á markaðinn
— Ctlenda nafninu er haldiö
vegna þess, aö rétturinn er alls-
staöar framleiddur undir upp-
runalega nafninu, segir Oddur
lielgason sölustjóri hjá Mjólkur-
samsölunni um yoghurt, sem
Mjólkursamsalan er aö setja á
markaöinn.
— Þetta er upprunalega búl-
garskur mjólkurréttur, sem er
orðinn heimsfrægur og hefur
breiðzt út um allan heim vegna
hollustu. Jú, við notum sömu upp-
skrift og Búlgarirnir.
Þessi réttur er i likingu við skyr
og súrmjólk — efnisþéttleiki
liggur þar á milli — eggjahvitu-
auðugur og ekki fitandi. Við
höfum bætt við hann söxuðum
jarðarberjum og seinna yrði
væntanlega bætt við fleiri ávaxta-
tegundum.
Yoghurt er selt i 180 gr. boxum,
sem á að vera hæfilegur skammt-
ur fyrir eina manneskju og kostar
skammturinn 14 krónur. —SB —
Reykjavíkurœvintýri norðlenzks hrafns:
NOTAÐI FRELSIÐ TIL AÐ FLJÚGA
TIL HÖFUÐBORGARINNARÁ NÝ
Alþingi fram í júní?
AUt útlit er fyrir aö alþlngi
ijúki ekki störfum f bráð.
Nokkuð hefur veriö rætt um að
reyna aö ljúka þingstörfum
fyrir hvitasunnu sem er 21. mai.
Hafa þingmenn stjórnarand-
stööu látið i Ijós aö þeir myndu
ekki sctja sig upp á móti þvi.
Ilins vegar viröast stjórnar-
sinnar frekar á þeirri skoöun aö
þaö sé allt i lagi þótt þing standi
yfir fram i júni.
t gær höfðu verið lögö fram
242 mál á alþingi og er þá allt
meðtalið. frumvörp, þings-
ályktaunartillögur og fyrir-
spurnir. Ekki hefur verið hægt
að afgreiða nema litinn hluta
þessara mála og enn eiga ýmis
mál eftir að koma fram. Þar á
meðal eitthvað af stjórnarfrum-
vörpum sem mun eiga að
afgreiða á þessu þingi. Fjöldi
máli er óafgreiddur frá nefnd
um og bendir allt til að þingi
verði framhaldið eftir hvita
sunnu. Eysteinn Jónsson forseti
sameinaðs þings sagðist ekki
geta sagt neitt um hvenær þingi
lyki, er Visir hafði samband við
hann. — SG.
Krummi einn lenti i Reykjavikur-
ævintýri — og i morgun átti þvi að
Ijúka upp hjá Korpúlfsstöðum.
Finnur Guömundsson sleppti þar
hrafni, sem sendur var til Reyk-
javikur með Norðurleiðarútu, —
og táknrænt var þaö fyrir flóttann
á Reykjavikursvæðið að hrafninn
tók flugiö beinustu leið til höfuö-
horgarsvæöisins á ný i staö þess
að fljúga sem leið liggur noröur.
Fuglinn hafði orðíð innlyksa
ásamt öðrum hrafni i súrheys-
gryfju á Sturluhóli i Húnavatns
sýslu, en tókst ekki að hefja sig til
flugs, enda þröng um þá. Oðrum
tókst þó að flögra upp hinum ekki.
Var þetta fullvaxinn hrafn að
sögn Finns Guðmundssonar, en
sumir héldu hér um fyrirmáls-
unga óvenju snemmborinn að
ræða.
Liklega veldur þetta ævintýri
krumma þáttaskilum i lifi hans,
— a.m.k. ekki ótrúlegt að hann
hafi skipt um landsfjórðung, en
væntanlega kemst hann i góðan
félagsskap. — JBP —
Þingmenn áhugalitlir
um bjórinn í bili
— Pétur frestar bjórfrumvarpinu
„Ætli ég veröi ekki aö fresta
bjórfrumvarpi til haustsins. Maö-
ur hefur ekki haft tima tii þess að
vinna að máiinu og auk þess virö-
ist ekki vera mikill áhugi á þvi
‘meöal þingmanna” sagöi Pétur
Sigurösson alþingismaöur f sam-
tali viö Visi. Hann sagöist hafa
kannaö undirtektir þingmanna og
hefðu þær verið heldur daufar.
Þar aö auki væru lítil sem engin
likindi til að máliö fengist afgreitt
á þvi þingi sem nú situr, þar sem
mjög væri liöið á þingtimann og
mörg mál óafgreidd.
Það verður þvi vart á þessu ári
greitt um þaö atkvæöi á alþingi
hvort leyfa skuli sölu á sterku öli
hérlendis.
— SG
Handsterkir á Nesinu
Snjórinn i gær kom mörgum á
óvart. Sumum þægilega á óvart.
Til dæmis gripu ærsl um sig i
friminútum i Mýrarhúsaskóla á
Seltjarnarnesi.
Þusti þar fjöidi unglinga úr
gagnfræðadeild út á götu, og tók
að hnoða snjókúlur og kasta
þeim i bíla sem framhjá fóru.
Var snjórinn blautur, og urðu
kúlurnar svo harðar, að þegar
einhverjir úr hópnum köstuöu
snjókúlum i rúður á strætis-
vagni, sem þarna fór hjá,
brotnaði rúðan.
„Ég er svo aldeilis hissa á þvi,
að veluppaldir unglingar, börn
fólks, sem ekki má vamm sitt
vita, skuli gera svonalagað”,
sagði Lárus Sálómonsson,
lögregluþjónn Seltjarnarnes-
hrepps, „þetta hlýtur að hafa
verið einhver allsherjar sefjun,
sem gripið hefur um sig.”
—GG