Vísir


Vísir - 20.06.1972, Qupperneq 1

Vísir - 20.06.1972, Qupperneq 1
62. árg. Þriðjudagur 20. júni 1972 — 126 tbl. Hvað er hœgt að gera? „Hvernig vilja menn haga hátiðarhöldunum 17. júni?” — Mönnnm liefur þótt sem timi væri kominn tii þess að hafa þau með einhverju öðru sniði en gert hefur verið á umliðnum árum. — En hvernig? Þegar við spurðum nokkra Revkvikinga þeirrar spurn- ingar i gær, kom i ljós ákveðnar hugmyndir, sem menn hafa gert sér um tilhögun hátiðar- haldanna. ..Dreifum hátiðarhöldunum út i hverfin,” — er róttækasta tillagan. „Vandaðra dag- skrárefni útvarps og sjónvarps að kvöldi þjóðhátiðardagsins.” — er önnur. Nógu lengi hafa menn vitað, að form 17. júni hér i Reykjavik hefur ekki verið nógu gott, þótt nú hafi fyrst keyrt algjörlega um þverbak. En það er ekki nóg að bölsótast. Það verður að finna nýjar leiðir. í dag er talað við marga aðila, sein er málið skylt. I leiðaranum er fjallað um 17. júni kvöldið og i lesendabréfi kemur fram viðhorf eins les- andans til málsins. Sjá bls 2, 3, 6, og baksiðu wmmmmmmmmmammmmm * mmmmmmmmmi^^^mm Ævisögufalsar- inn í steininn Clifford Irving, rithöfund- ur, og kona hans, Edith, l'engu bæði fangelsisdóm fyr- ir helgina — og Edith var færð i fangelsið i gær, mánu- dag. Sjá bls. 6 Sprengja Frakkar? Frakkar ætla sér að prófa kjarnorkusprengju á sunnanverðu Kyrrahafi. Þeir ætluðu upphaflega að láta eins og eina myndarlega fjúka i nótt er leið, en harð- orð mótmæli þjóða, sem lönd eiga að Kyrrahafinu þar syðra, hafa stöðvað franska herinn I bili...þó hefur ekki veriö gefið i skyn að hætt verði við. Sjá bls. 5 Hýddir fyrir ófengisneyzlu Áfengisneyzlan er talin vandamál viðar en hérlendis á 17. júni. 1 Pakistan hafa þeir tekið upp aðferð til að venja menn af drykkjuskap. Þessi aðferð er nokkuð gamaldags — en gæti hugsanlega komið að notum bér. — Þeir hýða menn fyrir áfengisneyzlu. Sjá bls. 4 Sjónvarps- # / / • / ■/ fri i juli Sjónvarpið fer I sumarfri 1. júli n.k. eins og undan- gengið ár, og stendur leyfið til 31. júli. „Við ætlum að gera sem minnst i júlimánuði — stefn- um aö þvi að sem flestir starfsmanna geti lokið leyf- um sinum í júli”, sagði Pétur Guðfinnsson, framkvæmda- stjóri Sjónvarpsins, er Visir ræddi við hann i morgun. Pétur sagði að i ár myndu sjónvarpsmenn ekki vera mikiö á ferðinni um landið i júli, eins og stundum hefur veriö gert — þeir myndu l'rekar hugsa sér eitthvað til hreyfings i ágúst. Og ef menn eru „sjón- varpssjúklingar”, þá er ekki seinna vænna en að gera ráð- stafanir til að komast i fri um leið og „imbakassinn” lokar — og safnar þreki til næstu vertiðar. — GG I/ ' LII rVeit ekki hverjir þrýsta ó Sjó frétt um EBE- viðrœður ó baksiðu. íslandsmet í fœðingarþyngd VOG NÆR 27 MERKUR 44 ára húsmóðir í Bárðardal fœddi þyngsta barn á íslandi Landhelgisviðrœðunum lýkur í dag Sir Alec og Einar rœddu málin yfir hádegisverði í dag. Utanrikisráðherrarnir Einar Ágústsson og Sir Alec Douglas-- Home snæddu saman hádegis- verð i dag og ræddu landhelgis- málið yfir borðum. Landhelgis- viðræðunum i London likur i dag, en þær hófust i gærmorgun. Fljótt eftir að hádegisveröinum lauk var aftur sezt að samninga- borðinu og ef timi vinnst til mun Islenzka sendinefndin efna til hlaöamannafundar seint i dag. Litlar fréttir hcfur verið hægt að fá af gangi viðræðnanna, en þó virðast frckar hafa aukizt vonir um að takast megi að ná sam- komulagi um takmörkuð réttindi brezkra togara til að veiða innan 50 milna landhelginnar eftir 1. septembcr. — SG Fjörutiu og fjögurra ára gömul húsmóðir i Bárðardalnum eignaðist fyrir nokkru stærsta barn, sem fæðst hefur á íslandi, svo vitað sé. Vóg barnið (»,590 gr. eða um helmingi meira en eölilegt er talið, og var (»5 cin að lengd. Var þetta sjöunda barn hennar og gekk fæðingin mjög vel. Maria Helgadóttir heitir móðirin, en hún á fyrir þrjá drenei oe briár stúlkur. sem öll hafa verið 18—21 mörk að þyngd, og þykir það töluvert mikið, en þetta barn sem er drengur, vóg 26 merkur og 90 grömm. Við höfðum samband við Mariu i morgun að heimili hennar og manns hennar, Halls Jósepssonar að Arndisar- stöðum i Bárðardal. „Þetta gekk ljómandi vel. Ég átti barnið á Fjórðungssjúkra- húsinu á Húsavik og sagði læknirinn mér að ekkert benti til þess aö ég hefði gengið með barnið lengur en eðlilegt er. Fæðingin gekk i alla staði vel og ég fór heim með hann á eðlilegum tima. Honum heilsast ágætlega og núna er hann orðinn 5 vikna og vegur 29 merkur,” sagði Maria. Við höfðum einnig samband við yfirlækni sjúkrahússins, Arna Arsælsson og sagðist hann telja fullvist að þetta væri langstærsta barn sem fæðst hefði hér á landi. Sagði hann að barnið hefði verið ágætiega hraust, enginn sjáan- legur bjúgur eða einkenni, sem bentu til þess að þyngdin væri af óeðlilegum orsökum. Sagði hann ennfremur að svo virtist sem barniðhefði fæðst alveg á réttum tima. Þess má geta að þyngsta barn i Danmörku undanfarna tvo áratugi var 6.100 gr. en árið 1952 fæddist þar barn sem vóg 6,250 gr. og er það Danmerkurmet. Drengurinn i Bárðardalnum á þvi meira en tslandsmet, þvi hann er 340 gr. þyngri en þyngsta barn Danmerkur. þs Haustlegt í dag og fer kólnandi Ætla niætti að nú væri haust en ekki miður júnimánuður, og mjög haustlegt er uin að lila i borginni i dag. Sjálfsagt vonast allir eftir sama bliðviðri og rikti i gær- dag hér i Reykjavik og víðar, en sú ósk mun þó ekki rætast, að þvi sein þeir segja okkur hjá veðurstofunni. Hér er nú austlæg átt og hiti hér syðra ekki nema 6—7 stig i morgun klukkan sex, en búizt er við að það fari kólnandi með deginum, alla vega batn- ar veðrið ekki. Hvergi er eins mikill vindur á landinu og hér og það má jafnvel búast við örlitilli úr- komu er liður á dag, en þó styttir upp með kvöldinu. Þess má svo geta að lokum, að norðan til á landinu er nú úrkomulaust, kyrrt veður en ekki nema 4 stiga hiti. — EA

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.