Vísir - 20.06.1972, Síða 2

Vísir - 20.06.1972, Síða 2
VÍSIR. Þriðjudagur 20. júni 1972, VÍSIBSPR: Hvernig finnst yður, að ætti að fyrirbyggja að skrils- lætin á 17. júni endurtaki sig? Hinrik Konráftsson, verkamaður, Ólafsvik: Ja, það er ekki gott fyrir mig sem utanbæjarmann að segja um þetta. t>ó finnst mér eiginlega mest aðkallandi að auka löggæzluna. t>etta er mikill afturkippur siðan maður var ungur, tiðarandinn hefur breytzt mikið. Annars held ég að veðrið hafi lika haft sin áhrif a unglingana og gert þá órólegri. Ilelgi llelgason, verzlunarm.: fcg held að við þurlum einfaldlega að breyta uppeldi barnanna. Sökin liggur hjá loreldrunum. beir segja kannski á 17. júni: Jæja krakkar minir, lariði nú oni bæ og fáið ykkur kók og pylsur ” og svo ekki meir. Börnunum hefur ekkert verið kennt að skemmta sér. A x (* I l'i i ii a r s s o ii skrifstoíumaður: Ætii þaðséekki bez.t að láta börnin taka við sér sjálf, og royna að skipla sér sem minnst af þeim. I>ó r h a 11 u r S i g u r j ó n s s o n , heildsali: Mér finnst bara sjálf- sagt að hætta þessum dans- leikjum niðri i bæ á 17. júni. Það helur sýnt- sig undanfarin ár, að það er algjörlega vonlaust. Annars var ég ekki i Miðbænum um kvöldið og veit þess vegna ekki hvað þetta var slæmt núna. Páll Hermannsson, sjómaður: Það er ekki gott að segja. Ég held að það yrði engin lausn t.d að hætta við dansleikina i Miðbænum. Fylleriið mundi bara flytjast til á annan stað. Og af þvi að allir eru að tala um að Mið- bærinn sé að hverfa, þá held ég að hann hverfi alveg ef það verður ekki dansað á 17. júni niðri i bæ. Svo er heldur ekki nauðsynlegt að þá sé bara dansað, fólk vill lika gera eitthvað annað. Starfsvöll- urínn við Meistarav að opna Starfsvöllurinn við Meistaravelli verður nú opnaður þriðja sumarið i röð á morgun. Völlurinn er opinn 8, 9 og 10 ára börnum, en þar er enginn gæzla, heldur geta börnin gengið þar Þcssi systkiu voru iia’stuni búin með sitl liús. það átti bara rétt eflir að sotja hurðiiia á. dytta að vmsti og svo að mála. inn og út eins og þeim hentar. Þó verða starfandi á vellinum fjórir nokkurs konar gæzlumenn, en þeir verða þó börnunum aðallega til leið- beiningar i föndri og öðru. Gjald fyrir börnin er ekki neitt, og er þeim útvegað á vellinum allt það efni sem þau þurfa til vinnu sinnar og föndurs. Mjög mikill áhugi rikir hjá börnunum fyrir þvi starfi, sem þarna fer fram, og stöðugt er þar feykilegur straumur barna og alveg nóg að gera. 1 sumar er jafnvelt haft i hyggju aö koma upp útileiksviði fyrir börnin, og verða þar leikin leikrit og þau látin hjálpa við undirbúning.Einnig vill starfsfólk vallarins reyna að koma inn hjá börnunum áhuga og virðingu fyrir blómarækt og verða þvi jafnvel sett upp blómabeð. Á svæðinu sjálfu er nú stórt og mikið þorp i uppsiglingu sem börnin hafa smiðað sjálf, og þar gefur meðal annars að lita hálf- smiðaðar kirkju, og þarna er unnið af hinum mesta fögnuði. Börnin fara svo i skoðunarferðir um fjörurnar og Öskjuhlið og ýmislegt annað. Týna þar skeljar Ohhhúpppppp... Það þarf að draga nagla úr spýtum þegar verið er að hcfja byggingar. Alltaf eru veggir hússins að hækka, þaðrétt grillir oröið i kollinn. og annað,en siðan eru gerð lista- verk og skúlptúr. Völlurinn er opinn daglega frá 9 til 6. -EA LESENDUR i^HAFA /Xm ORÐIÐ Auglýsingar í Strœtó Stra’tisvagnafarþegi skrifar: ..F’yrir skömmu voru settar upp auglýsingar i öllum strætisvögn- unum og eru þær frá Volvo. Hljóða þær uppá þaö að Volvo sé öryggi. Ég hélt fyrst i fávizku minni að þetta væri gert til þess að farþegar fyndu ekki tl hræðslu þótt Volvovögnunum væri ekið nokkuð hratt á stundum. Þá litu þeir á þetta spjald og gleymdu allri hræöslu. F'annst mér mikið til um þessa hugulsemi forstjóra SVR. En svo i gær fór ég upp i vagn af Benztegund og það fyrsta sem ég sé er ekki Benz er öryggi-heldur er þarna lika tekið fram að ör- yggið sé Volvo. Þá rann upp fyrir mér ljós. Hér var um auglýsingu frá Volvoumboðinu að ræða. Nú langar mig til að spyrjast fyrir um hvort næst komi auglýsingar frá öðrum bilaumboðum i strætó. Eða er það bara Volvo sem fær að auglýsa? Spyr sá. sem ekki veit." Engin öskur — bara köll Uréf frá þeirri sem fékk slæma afgreiðslu i Tryggingunum á dög- uniini og sendi okkur þá linu: , ,Ég kom i Tryggingarnar fyrsta daginn sem órorkubótun- um var úthlutað. Ég verð að segja það.að nú er ég glöð og á- nægð með afgreiðsluna. þó bæt- urnar sem ég fæ hrökkvi skammt vegna óðaverðbólgu nýju stjórn- arinnar isem ég þó kaus ekki). Nu var allt með öðrum brag innan veggja Trygginganna á Lauga- veg. Engin öskur, bara köll. og allt gekk mjög vel. Ég sá þarna bregöa fyrir forráðamönnum stofnunarinnar. Þeir voru auðsjá- anlega að huga að þvi, að allt færi vel fram. og meira að segja fór Kjartan sjálfur i afgreiðsluna og hafi þeir þökk fyrir að bregðast svo vel við." Leggðu þig bara góði ,,Ég get ekki orða bundizt yfir fáheyrðri ósvifni sem ég varð fyr- ir hjá simastúlku sem svarar i neyðarsima lækna. Sl. þriðjudagskvöld fékk ég snert af kransæðakasti og hringi þá i þennan neyðarsima til að fá aðstoö. En stúlkan sem svaraði i simann gerði sér litið fyrir og sagði að ég skuli bara fara og leggja mig. Mér þótti þetta væg- ast sagt furðuleg viðbrögð og spurði hana hvort, hún hefði tæki til að sjá i gegn um simann eða hvort hún sé lærður læknir. Þá var simanum skellt á. Svo vel vildi til að i þessu kom til min maður sem gengur með þennan sama sjúkdóm og átti hann við- eigandi töflur. Ég ætia ekki að hafa mörg orð um þetta atvik en læt lesendur um aö dæma Iramkomu þessarar stúlku og hvort hún sé hæf til að gegna sinu starfi". Bjartmar Magnússon. Setið gegn „glottandi Eiði" Emil hringdi: ,,Ég var að horfa á þátt i sjón- varpinu i gærkvöldi, ,,setið fyrir svörum", kalla þeir hann. Miklu nær finnst mér að kalla þennan þátt, ,,setið andspænis glotti Eiðs Guðnasonar". Sannarlega var ömurlegt að horfa upp á þessa tvo mennta- menn. Björn Teitsson og Einar Braga. þurfa að sitja og jafnvel svara glósum og bjálfa hártogun- um þessa, að þvi er virðist, óupp- lýsta kratadrengs. Og úr þvi eg er byrjaður: Væri ekki ráð að fara að skipta svolitið um andlit á skerminum? Þessi sem blasað hafa við manni frá upphafi Sjón- varps hér á landi, eru óneitanlega orðin næsta leiðigjörn. Og mér sýnist að þeir hafi margir fengið leið á sjálfum sér lika. Þetta sið- asta á þó ekki við um Eið Guðna- son". Hver borgar brúsann? í sjónvarpsþættinum um her- stöðvarmálið s.l. þriðjudag, vaknaði sú spurning: hver borgar brúsann? 1 þættinum sagði félagi Einar Bragi, að samtökin hefðu enga félagaskrá, en hvernig er þá fé aflað til auglýsingastarfsemi og rutukostnað við fólksflutninga. Þeir auglýsa t.d. að áætlunarbif- reiðir myndu flytja það fólk til Hafnarfjarðar, sem ætlaði að taka þétt i svokallaðri hernáms- andstæðingagöngu. Er það kannski sovézka sendiráðiö sem borgar brúsann, eða eru það pen- ignamenn Alþýðubandiagsins! Einhver borgar brúsann. Þá vildi ég og minnast á orð hins kommúnistans i sjónvarpsþættin- um. Hans orð voru: ,,Fyrst fer herinn, siðan göngum við úr At lantshafsbandalaginu". En af hverju botnaði hann ekki setning- una? Það hefur eflaust stafað af þvi að endirinn hefur eflaust ekki fallið öllum i geð. Hann er nefni- lega: ,,Siðan taka kommúnistar völdin án vilja meirihluta þjóðar- innar." Að lokum við ég benda á, að orð félaga Einars Braga i garð for- seta íslands og mótframbjóðenda hans i siðustu forsetakosningum voru ruddalegigarð beggja, báðir áttu fylgi manna úr ýmsum stétt- um þjóðfélagsins. E.M.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.