Vísir - 28.06.1972, Blaðsíða 3
VÍSIR Miðvikudagur 28. júni 1972
3
Langt komnir að reisa gamla
bœinn og velja unga fólkið
— Þjóðverjar koma ó mánudaginn til að hefja kvikmyndun
Brekkukotsannáls
óðfluga liður að því, að
Brekkukotsanná II verði
festurá filmu. Nær þriggja
ára undirbúningsvinnu er
að Ijúka og næstkomandi
mánudag koma þýzku
kvikmyndagerðarmenn-
irnirtil landsins, en þeir eru
einir 15 til 20 talsins.
Myndataka hefst þó ekki
að ráði fyrr en síðari hluta
næsta mánaðar, því margs
ber að gæta áður en fyrstu
lengdarmetrar filmunnar
fara að renna i gegnum
vélarnar.
„Það er stórkostleg samvinna,
sem tekizt hefur á milli Nordvis-
ion og Þjóðverja um gerð þessar-
ar kvikmyndar, og þykir mér
ómetanlegt að hafa getað átt þátt
i henni,” sagði Jón Laxdal leikari
i viðtali við Visi i morgun. Jón er
sá, sem hagrætt hefur Brekku-
kotsannáli og þýtt texta hans fyr-
ir kvikmyndavélarnar, en jafn-
framt mun hann fara með eitt
hlutverka myndarinnar.
Baldvin Halldórsson hefur bor-
ið hita og þunga þess erfiðis, að
leita uppi réttu leikarana i hlut-
verk myndarinnar. Átti hann i
sérstökum erfiðleikum með að
velja i hlutverk barnanna og unga
fólksins. „Hann átti þar ekki eins
hægt um vik og þeir sem gegna
sama hlutverki hjá kvikmynda-
fyrirtækjum erlendis,” sagði Jón
Laxdal i viðtalinu. „Erlendis er
hægt að ganga einfaldlega inn, i
leiklistarskólana og prófa þá
hæfileikamestu i hlutverkin. Hér
er aftur á móti enginn leiklistar-
skóli starfandi, hvað þá heldur
rikisleiklistarskóli, svo að Bald-
vin varð að leita inn i skólana og
áhugahópana, og það eru geysi-
lega margir, sem hann þurfti aö
prófa áður en hann fann þá
réttu.”
Allt hefur þetta fólk verið
prufukvikmyndað, og Þjóðverj-
um siðan verið sendar upptökurn-
ar til umsagnar. Hafa allir aðilar
loks komizt að samkomulagi um
skipan leikara i hlutverkin.
Fyrstu atriði Brekkukotsannáls
verða að likindum tekin á Eyra-
bakka, þar sem langt er komið að
reisa leiktjöld og annað sem til
þarf til að fá þar fram sögusvið
gamla bæjarins.
Áætlanir miðast að þvi, að töku
kvikmyndarinnar verði lokið i
kringum 20. september.
—ÞJM
Hér má líta Brekkukot eins og það er risið i Garðinum. Þarna verða fyrstu atriði myndarinnar gerö.
(Ljósm. EMM).
DUTTU I LUKKUPOTTINN OG
FLUGU TIL LEGOLANDS
Tryggvi og Stefania við hafnarhverfið i Lego-Iandi.
„Það var rétt eins og þau kæmu
af fjöilum, þegar þau komu heim
aftur, svo gaman hafði verið,”
var lýsing foreldra þeirra barna,
sem að þessu sinni duttu i lukku-
pottinn og urðu hlutskörpust i
þcirri verölaunagetraun sem
barnablaðið Æskan og Flugfélag
islands gangast fyrir.
Þessar verðlaunagetraunir
hafa birzt i Æskunni á hverjum
vetri i 13 ár, en i þessari getraun
tóku einnig þátt Reykjalundur
og Lego fyrirtækið i Danmörku.
Þau sem hlutu vinninginn voru
Stefania H. Stefánsdóttir, frá
Ytri-Neslöndum i Mývatnssveit
11 ára og Tryggvi Guðmundsson
frá Tryggvastöðum á Seltjarnar-
nesi, 12 ára.
Vérðlaunin voru fimm daga
ferð til Danmerkur með Flug-
félagi tsland og þaðan til Billund
höfuðstaðar Lego fyrirtækisins og
dvöl þar.
Aldrei hefur þátttaka i verð-
launagetraununum verið jafn
mikil og i þetta sinnið, og bárust á
sjöunda þúsund réttar lausnir. En
þó að ekki hlytu allir ferðina
sjálfa, voru mörg aukaverðlaun
— Lego kubbakassar frá Reykja-
lundi.
Ferðin sjálf var farin um
miöjan júnimánuð og þeir sem
með börnunum fóru voru Sveinn
Sæmundsson Grimur Engilberts
og Árni Einarsson. -EA.
74 ára aldursforseti Bláskógahlaupsins:
Hleyp á hverjum
einasta degi
##
„Á hverjum einasta degi kl. 7
um morguninn fer ég út að Vals-
húsinu og hleyp svo'eftir hita-
veitustokknunum upp á öskju-
hlið, þar sem ég hleyp i klukku-
tima. Þetta geriég alltaf nema að
veður sé þeim mun verra. Og ég
finn aldrei fyrir þvi, sama hve
langt ég hleyp. Enda er ég alveg
magalaus maður og ætti þvi að
geta trimmað.”
Svo segir aldursforseti Blá-
skólahlaupsins svokallaða, Páll
Hallbjörnsson, sem ætlar sér að
hlaupa ásamt fjölda annarra i
þessu hlaupi núna 2. júli. Páll er
74 ára að aldri, en næst honum i
keppninni er 64ára gömul kona.
„Jú, ég stundaði mikið iþróttir i
gamla daga, og var meðal annars
formaður iþróttafélagsins
Stefnis. Ég fór ekki að hlaupa
neitt að ráði fyrr en 1959, og það
var vegna þess að ég var hjart-
veikur. t fyrstu hljóp ég 3-5 metra
og gekk þess á milli, en við hlaup-
in batnaði mér alveg i hjartanu,
og hef ekki fundið verk siðan. En
meö þvi að taka þátt i keppninni
núna vil ég i fyrsta lagi vita hvað
ég þoli að hlaupa mikið og i öðru
lagi sýna fólki hve gott það er að
hlaupa eða trimma og skilja öðru
hvoru við bilinn.”
„Hvað um sigur?” Ég ætla
engu að lofa um að verða fyrstur i
mark það getur svo sem vel verið
að ég verði allra seinastur, en ég
er ekki hræddur. Annars hleyp ég
þetta ekki i einum spretti, ég
skokka frekar. Annars verður
þetta svo fint, á götunum
verða bilar og tjöld með
veitingar.alltnema brennivin!Og
ég hætti ekki við þetta nema ég
verði þá bara dauður áður.”
200 manns hafa nú látið skrá sig
að þvi er Brynleifur Steingrims-
son, héraðslæknir á Selfossi,tjáði
okkur, en enn er timi til skrá-
setningar, eða þar til seinni part-
inn i dag.
Fólk er á öllum aldri, allt frá 11
ára upp i 74 ára, en algengast er
þó miðaldra fólkið. Þó eru þeir
þrir ellefu ára, og einn af þeim frá
Keflavik, vel þjálfaður og hefur
hlaupið 5000 metra. Og einnig
koma heilu fjölskyldurnar til þess
að taka þátt i hlaupinu.
„Við viljum þó ekki kalla þetta
keppni hjá þeim börnum sem eru
yngri en 14 ára”, sagöi
Brynleifur. „Þau fá að taka þátt i
keppninni algjörlega á ábyrgð
foreldranna, en leiðin er nokkuð
löng.”
En aliir fá þó viðurkenningar-
skjal Bláskógahlaupsins, hvort
sem þeir eru 11 ára eða 74 ára.
Fyrstu verðlaun fyrir bezta af-
rekið er stór og mikill bikar, en
þar sem keppninni er skipt i
flokka eru veitt 1. 2. og 3. verð-
laun i hverjum flokki.
Fólk er þegar farið að æfa sig af
fullum krafti og konurnar á Sel-
fossi eru farnar að trimma niður
á Eyrarbakka. Og það eru lika
góðir hlauparar þátttakendur i
hlaupinu, jafnvel beztu lang-
hlauparar tslands.
Keppnin hefst rétt ofan við Gjá-
bakkabæ kl. 2, en þátttakendur
verða að mæta þar kl. 1. Þar fer
fram skrásetning, en siðan verð-
ur lagt i hann og hlaupið, gengið
eða brokkað til Laugarvatns sem
eru 16 km og allir verða að vera
komnir fyrir kl. 5 e.h.
Tekinn verður timi hjá öllum
þátttakendum, og hann skrifaður
á heiðurskjalið ásamt nafni aðil-
ans, og þá geta þeir borið sig
saman ár hvert og. séð hvort
þróttur eykst eða minnkar.
Og fyrir þá sem ætla
Bláskógahlaupið birtum við ráð-
leggingar, og sem gefur að skilja
er sú fyrsta að hlaupa nógu hægt i
byrjun, byrja sem léttast svo fólk
ofreyni sig ekki. Nauðsynlegt er
að stunda æfingar af kappi i
nokkra mánuði, enda hafa sjálf-
sagt flestir gert það, þvi ef að fólk
kastar sér allt i einu út i slika of-
reynslu, getur það haft skaðleg
áhrif á alla vööva, sinar og liða-
mót. En við nógu mikla æfingu
stækkar hjartað og verður sterk-
ara, sömuleiðis vöðvar, sinar og
liðir.
Þegar byrjað er að hlaupa, slær
hjartað hraðar og púlsinn einnig.
Við æfingar borgar sig að stöðva
öðru hvoru og athuga slátt púlsins,
en á einni minútu má sláttur púls-
ins ekki fara upp yfir 160 slög hjá
20-30 ára gömlum, 140 slög hjá 40-
50áraog 120 hjá 60-80ára. En bezt
er að fara að öllu með gát, og ekki
er talið ráðlegt að taka þátt i
hlaupi ef fólk hefur fengið hita
tveimur eða þremur dögum fyrir
sjálft hlaupið. Einnig er nauðsyn-
legtað hafa hlaupið vegalengdina
sem hlaupið krefst i einni lotu
áður en keppt er. Og auðvitað eru
nógu miklar og góðar æfingar
númer eitt, þvi annars gæti farið
illa. — EA
Aldursforseti Bláskógahlaupsins
74 ára. „Illaup á hverjum einasta
degi.”
Eldri borgarar félagslyndir
Félagsstarf eldri borgara i
Reykjavik hefur nú verið starf-
rækt i 3 ár, og fer aðsókn að starf-
seminni mjög vaxandi. t júif og
ágúst leggst starfsemin f Tónabæ
niður og eru þá skipulagðar ýms-
ar ferðir um borgina og út fyrir
bæinn.
Helena Halldórsdóttir, sem hef-
ur farið sem fararstjóri i flestar
þessar ferðir sagði blaðinu, að
upphaflega hefðu verið send
kynningarrit til allra borgarbúa
eldri en 70 ára, og sfðan hefði
starfsemin verið auglýst I blöð-
um. Yfirleitt fara um 100 manns í
hverja ferð og hefur m.a. verið
farið á sófn, i leikhús, kirkjur og
svo farnar ferðir út úr bænum.
Sagði Helena að aðsóknin ykist
stöðugt, og hefði aldrei verið eins
mikil og i sumar. þs