Vísir - 28.06.1972, Síða 8
8
VÍSIR Miftvikudagur 28. júni 1972
VÍSIR Miövikudagur 28. júni 1972
9
Umsjón Hallur Símonarson
Spánn sigraði en Val-
björn og Stefán góðir
- Náðu 3. og 4. sœti í landskeppninni og skozka metið var jafnað
Islenzku keppendurnir í
tugþrautarkeppninni Val-
björn Þorláksson og Stefán
Hallgrimsson stóöu sig
mjög vel i gær i loka-
greinunum og urðu i þriðja
og fjórða sæti samanlagí.
Stefán bætti mjög árangur
sinn í tugþraut. En það
kom þó ekki i veg fyrir að
Spánverjar ynnu lands-
keppnina með 13920 stigum
og Bretland næði öðru sæti
með 13859 stigunri/en island
hlaut 13588 stig. Spán-
verjanum Rafael Cano
tókst að tryggja sér sigur í
keppninni i siðustu grein,
1500 m, en Bretinn Kidner,
sem hafði verið fyrstur frá
fjórðu grein, var þar
*Ҥ*$& ' .c . '
David Kiduer — bætti árangur
sinn uin tæp 100 stig.
slakur, en hann jafnaði
skozka metið — hlaut 7113
stig. Cano hlaut 7237 stig.
Tugþrautarkeppnin var hörku-
skemmtileg og gekk vel — stóð
yfir i sex klukkustundir og þar af
fór helmingur timans i stangar-
stökkið. Spenningurinn var á há-
marki i lokin og margar
spurningar fyrir siðustu greinina
1500 m hlaupið. Tekst Valbirni aö
halda 3ja sæti fyrir Clark? Sigrar
Cano Bretann'.’ Setur Kidner
skozkt met? Og hvað gerir
Stefán?
()g spurningum var fljótt
svarað. Það sýndi sig að Kidner
átti i hinum mestu erfiöleikum að
hlaupa 1500 m en Cano „flaug”
áfram — Valbjörn lét Clark ekki
fara of langt framúr og Stefán
kom algjörleg á óvart. Hann
hljóp með miklum glæsibrag —
sigraði örugglega i hlaupinu og
skauzl úr sjötta sæti upp i fjórða.
Varð aðeins 54 stigum á eftir Val-
birni. Valbjörn fékk 6821 stig i
keppninni, en Stefán 6767 stig og
bætti árangurinn sinn um 250 stig.
Úrslit i keppninni urðu þessi:
1. Cano Spánn 7237
2. Kidner Bretland, 7113
3. Valbjörn, Island, 6821
4. Slefán, tsland, 6767
5. Clark, Bretland, 6746
6. Ruiz, Spánn, 6683
7. Fernandez, Spánn 6674
8. l’hipps Bretland 6843'
Kidner var óheppinn að bæta
ekki skozka metið stórlega. Hann
lekk ógill kast i spjótkastinu 56 til
57 m, þar sem spjótið kom flatt
niður og merkti ekki völlinn, en
bezta gilda kastið hjá honum i
keppninni var 51,10 m.
Landskeppnin hófst kl. 5.30 með
110 m grindahlaupi, og þar var
tvisyn keppni i fyrsta riðli milli
Cano, Didner og Valbjörns, Spán-
verjinn var harðastur i lokin —
hljóp á 15,3 sek. Valbjörn varð
annar á 15,4 sek og Kidner þriðji á
15.5 sek. og reyndust þetta þrir
beztu timarnir i greininni. Stefán
sigraði örugglega i öðrum riðli á
15.6 sek. — fjórði samanlagt.
Kftir þessa grein var Kidner með
4601 stig, Cano 4521 stig og
Fernades þriðji með 4401 stig.
Stefán var fjórði með 4283 stig,
greininni. I þessari grein var
Kidner mjög óheppinn en hélt enn
forustu góðri — 6776 stig gegn 6650
stigum Cano. Valbjörn stóð sig
vel, þrátt fyir meiðsli i öxl,
kastaði hann 55.08 m og var með
6471 stig. Stefán var enn sjötti
með 6166 stig, en lokagreinin var
mjög góð hjá honum eins og áður
var sagt frá. Clark var ekki eins
harður i 1500 m og reiknað hafði
verið með — varð fjórði — og
Kidner reyndi svo mjög við
skozka metið að hann kom algjör-
lega útkeyrður i mark og var
lengi að jafna sig á eftir.
Rafaei Cano — sigurvegarinn i
þraulinni.
Valbjörn fimmti með4252sti_g, en
Clark var enn r.eóstur með 4018
stig.
I kringlukastinu reyndist Clark
beztur, kastaði lengst 43,30 m. og
hækkaði um eitt sæti.Kidner jók
forskot sitt á Cano — 5321 stig
gegn 5103 — Valbjörn komst i
fjórða sæti, með 4913 stig, en
Stefán fell niður i sjötta sæti, enda
lakastur keppenda i kringlunni.
t stangarstökkinu var Valbjörn
hinn öruggi sigurvegari og kom...
við að stökkva 4.20 m upp i 3ja
sæti, sem hann hélt siðan. Þeir
Cano (410) og Kidner (400) voru
einnig góðir og innbyrðiskeppni
þeirra stóð nú. Kidner 6128 stig en
Cano 5935 stig. Stefán var enn i
sjötta sæti með 5506 stig, en Clark
neðstur með 5439 stig.
1 niundu greininni tók Clark
heldur betur við ser — kastaði
langlengst 62,14 m og skautzt við
það upp i f jorða sæti og ógnaði nú
Valbirni, þar sem Clark var
talinn sigurstranglegur i siðustu
Clay sigraði
Jerry Quarry
Cassius Clay lék Jerry
Quarry — bezta hvita
hnefaleikarann í þungavigt
— heldur grátt, þegar þeir
mættust í hringnum í Las
Vegas i nótt. Leikurinn var
stöðvaöur í 9. lotu.
Clayhafði þá látiö höggin dynja
á mótherja sinum, sem kom litl-
um vörnum við. Sama hafði einn-
ig átt sér stað i 6. lotu og munaði
þá litlu að dómarinn stöðvaði þá
leikinn, en eftir 3ju lotu var
greinilegt að hverju stefndi.
Þessir kappar mættust fyrir
tveimur árum og sigraði Clay þá i
3ju lotu.
7500 áhorfendur sáu leikinn og
borguðu i inngang 350 þúsund
dollara. Eftir leikinn hrópaði
Clay til þeirra,— „Komið með
Frazier. Nú er ég tilbúinn að
ganga frá honum. Frazier fær
ekki að halda titlinum lengur.”
Þarna i La.s Vegas i nótt var
einnig keppt um heimsmeistara-
titilinn i léttþungavigt og þar
mætti Mike Quarry, yngri bróðir
Jerry, heimsmeistaranum Bob
Foster, sem þarna varði titil sinn
i tiunda sinn. Og hinn ungi Mike
hafði litið að segja i meistarann —
hann var rotaður i fjóröu lotu af
Foster, sem er 12 sm. hætti en
Mike.
Bréf til íþróttasíðunnar:
Hvað líður undirbúningi
Bandaríkjaferðarinnar?
Nú nálgast sú ferð óðum,
sem körfuknattleikslands-
liöi okkar er ætlað að fara
til U.S.A. en sú ferð verður
farin i haust.
Það er því eðlilegt að
körfuknattleiksáhugamenn
vænti nokkurra tíðinda af
undirbúningi liðsins.
Meðal annars: Hvaða maður
hefur tekið að sér þjálfun liðsins?
Hvaða menn hafa verið valdir til
æfinga? Hvernig æfingum hefur
verið háttað og hvernig þeim
muni vera háttað?
Um annað atriðið er það að
segja að tæplega getur lands-
liðsnefnd gengið fram hjá Antoni
Bjarnasyni, Einari Sigfússyni, og
Guttormi Ólafssyni hverjir svo
sem verða að vikja.
Þessir menn eru nú allir staddir
á Reykjavikursvæðinu og þvi til-
tækir.
Ekki er enn þá vitað hvaða
þjálfari hefur haft umsjón með
liðinu i sumar, né hver sér um
framhaldið að ferðinni.
Glefsur úr fréttapistlum þeirra
iþróttafréttaritara, sem fóru með
landsliðinu til Sviþjóðar á
Norðurlandamótið gætu þó visaö
veginn.
T.d- var skrifað eftir fyrsta
leikinn: Við Noreg, neðsta liðið:
Leikurinn var erfiður landsliðinu
og svo áfram, þegar leið á
keppnina: Leikmenn á tréfótum,
islenzka landsliðið með langlé-
legasta úthaldið i keppninni o.s.
frv.
Að öllum likindum kæmi sér
bezt að þrekþjálfari tæki liðið að
sér einhvern tima og auðvitað
hefur stjórn K.K.l. tekið þetta
fyrir og gert sér grein fyrir þessu
höfuðvandamáli.
Aðeins væri gaman að vita
hvaða þrekþjálfari hefur verið
ráðinn.
Að lokum þetta, það er að öllum
likindum ósanngirni að krefjast
þess, að landsliðsmenn mæti á
æfingar frekar en fyrri daginn,
fyrr en rétt siðasta hálfa
mánuðinn fyrir ferð, en þá er
einnig hæpið hvað þreklitlir
tindátar á tréfótum hafa leyfi til
að nefna sig. „ , .
Reykjavik 27. jum.
Eirikur Björgvinsson.
Keppnin i fyrsta riðli 110 m grindahlaupsins var hörkuskemmtileg. Cano, lengst til vinstri, sigraði rétt á undan Val-
birni, en á miðri myndinni er Kidner, sem jafnaði skozka metið I tugþrautinni. Ljósmyndir BB.
Sigruðu í tveimur
greinum af fímm!
- Úrslit í öllum greinum tugþrautarinnar í gœrkvöldi
islenzku keppendurnir í tug-
þrautinni sigruðu í tveimur
greinum i gær — Valbjörn i
stangarstökki og Stefán í 1500
m hlaupi — en Spánverjinn
Cano var langsamlega jafnast-
ur keppenda og sigraði því
samanlagt. úrslit i þrautinni
urðu þessi:
110 m grindahlaup: sek. stig
Cano.Spánn 15,3 817
Valbjörn, tsland 15,4 807
Kidner, Bretland 15,5 797
Stefán, ísland 15,6 787
Clark, Bretland 15,8 767
Fernandez, Spánn 16,6 694
Phipps, Bretland 17,0 660
Ruiz, Spánn 17,3 337
Kringlukast: m stig
Clark, Bretland 43,30 749
Kidner, Bretland 41,77 720
Fernandez, Spánn 39,71 680
Ruiz, Spánn 38,00 646
Valbjörn, tsland 38,78 661
Phipps, Bretland 36,81 621
Cano,Spánn 34,92 582
Stefán, ísland 32,20 523
Stangarstökk: m stig
Valbjörn, Island 4,20 859
Cano.Spánn 4,10 832
Kidner, Bretland 4,00 807
Phipps, Bretland 3,90 780
Ruiz, Spánn 3,60 700
Stefán, tsland 3,60 700
Clark, Bretland 3,50 672
Fenandez, Spánn 3,20 587
Spjótkast: m stig
Clark, Bretland 62,14 787
Cano,Spánn 56,30 715
Valbjörn, tsland 55,08 699
Stefán, lsland 52,08 660
Kidner, Bretland
Ruiz, Spánn
Phipps, Bretland
Fernandez, Spánn
1500 m hlaup:
Stefán, Island
51,10 648 Cano,Spánn
47.22 595 Fernandez, Spánn
43.22 538 Clark, Bretlandi
37,74 456 Ruiz.Spánn
Valbjörn, Island
min. stig Phipps, Bretland
4:28,3 601 Kidner, Bretland
4:30,3 587
4:35,9 550
4:40,8 520
4:42,0 512
5:11,0 350
5:12,9 341
5:13 6. 337
Nó komu Haukar á
óvart með tapleik
- en Fram
Enn komu hafnfirzku
Haukarnir á óvart á Is-
landsmótinu i Hafnarfirði
— en nú með þvi að tapa
leik sinum gegn ÍR i gær-
kvöldi og þar með fengu
iR-ingarsinn fyrsta sigur á
mótinu. Þeir sigruðu með
15-13, en þessi úrslit þýða,
að FH þarf aðeins að ná
einu stigi gegn ÍR i kvöld til
þess að komast i úrslit. FH
hefur fimm stig i A-riðlin-
um— Fram einnig.en hefur
lokið leikjum sínum, Hauk-
ar fjögurog ÍR og Ármann
tvö stig hvort félag.
sigraði Ármann nokkuð örugglega
BGÐIÐ TIL
MADRID!
Eftir landskeppnina I gær-
kvöldi bauð FRÍ keppcndum
og fararstjórum i mat og þar
buðu Spánverjar til lands-
kcppni i tugþraut næsta
sumar i Madrid. Þeir voru
yfir sig hrifnir af keppninni
hér. Einnig kom óformlegt
boð frá Bretum um keppni
1974. Gjafir voru gefnar á
báða bóga og fararstjóri
Breta, McNab, hældi mjög
allri framkvæmd keppninn-
ar — liann sagðist ekki hafa
komizt i kynni við betur
stjórnaðri tugþrautarkeppni.
Þá fór hann einnig miklum
viðurkcnningarorðum og
þátt Valbjörns i keppninni,
sem sýndi, að þó menn væru
orðnir 38 ára, gætu þeir enn
verið i fremstu röð.
knöttinn fimm sinnum i mark
Fram. Lokatölur i leiknum urðu
þvi 21-13 Fram i hag.
Siðustu leikirnir i riðlunum
verða háðir i kvöld. Fyrri leikur-
inn, sem hefst kl. átta við Lækjar-
skólann verður hreinn úrslitaleik-
ur milli Vals og Vikings i B-riðli,
en bæði liðin unnu önnur lið i þeim
riðli. Valsmenn eru sigurstrang-
legri, en vikingar gætu komið á
óvart ef þeir ná saman sinum
Fyrri hálfleikurinn i gærkvöldi
var jafn og þokkalega leikinn og
höfðu lR-ingar eitt mark yfir i
leikhiéi, 10-9. 1 siðari hálfleiknum
hljóp hins vegar allt i baklás hjá
báðum liðum — þau skoruðu
sárafá mörk i lélegum leik og
baráttuvilji sást varla hjá Hauk-
um. Það var undarlegt þvi með
sigri hélt liðiö en i vonina i úr-
. slitasæti.
1 siðari hálfleiknum skoraði IR
fimm mörk og liðiö var aöeins
skárra en Haukar, sem fjórum
sinnum tókst að skora.
I siðari leiknum i gærkvöldi
léku Fram og Armann og átti
Fram i miklum brösum meö Ar-
menninga i fyrri hálfleiknum.
Staðan i leikhléi var 9-8, en i sið-
ari hálfleiknum tóku Framarar
sig heldur betur til i andlitinu og
knötturinn hafnaði jafnt og þétt i
marki Ármanns. ^Fram hafði
mikla yfirburði i halfleiknum og
skoraði þá tólf mörk, en Armenn-
ingum tókst aðeins að senda
beztu mönnum. Klukkan 9.15
mætast svo FH og 1R i siöasta
leiknum i A-riðli og þarf FH þar
að ná stigi til að komast i úrslit.
úrslitaleikurinn i Islandsmót-
inu verður á fimmtudagskvöld á
sama stað og hefst kl. 8.30.
Þrír reknir
af leikvelli
I.eikur Arinanns og Selfoss á
Selfossi i gærkvöldi I 2. deildinni i
knattspyrnu varð hinn söguleg-
asti, — tveiin Armenningum var
visað af leikvelli eg einum Sel-
fyssingi. Cm annað var ekki að
ræða fyrir dómarann. Jóhann
Gunnlaugsson, enda voru menn
farnir að slasast vegna hörkulegs
leiks, og einn Armenninga mun
hafa viðbeinsbrotnað.
Undir lokin voru Armenningar
aðeins 8 á leikvellinum, og Sel-
fyssingar áttu auövelt meö að
vinna stórt, 5:0 var lokatalan, en I
hálfleik var staðan 1:0.
Armenningar voru aöallcga
óánægðir með dómana og linu-
vörzluna, töldu 2 markanna
a.m.k. vcra rangstöðumörk, cn
að auki hefði boitinn i eitt skipti
farið i járnslá og út á völlinn og úr
þvi skorað mark. -JBP-
Danskt met
í 1500 m.!
Gerd Larsen setti nýtt danskt
met i 1500 m hlaupi i móti i
Arósum i gærkvöldi — náði hinum
ágæta tima 3:39.4 min og sigraði i
hlaupinu. Annar varð Hegvan
Mignon frá Belgiu á 3:39.7 min og
sama tima fékk Gunnar Ekman,
Sviþjóð. Haico Scharn frá
Hollandi varð fjórði á 3:40.0 min
og Spánverjinn Burgosi fimmti á
3:40.4 min.
Norska knatt-
spyrnan
Ellefu uinferóum er nú lokið i I.
dcildinni norsku og Stafangurs-
Vikingarnir hafa enn aukið for-
skot sitt. úrslit i leikjum á mánu-
dag urðu þcssi:
Brann-IIamarkam. 1-0
Lyn-F’rcdrikstad 0-0
Rosenborg-Mjöndalen 3-0
Sarpsborg-Skeid 3-0
Staðan er nú þannig:
Viking 11 9 0 2 25-9 18
Strömsgodset 11 5 4 2 23-16 14
Fredrikstad II 6 2 3 12-14 14
Rooenbíadbl 11 4 4 3 11- 7 12
Sarpsborg II 5 2 4 16-15 12
Lyn 11 3 5 3 17-11 11
Hamarkam. 11 4 2 5 7- 9 10
Skcid 114 16 15-15 9
Brann 11 3 3 5 7- 9 9
Mjöndalen 114 1 6 14-20 9
Hödd 11 2 4 5 8-18 8
Mjölner 11 1 4 6 5-17 6
Skokkarar
Frjálsíþróttadeild Armanns
býður öllum þeim sem áhuga
hafa á að skokka að koma á svæöi
félagsins mánudaga, miöviku-
daga og föstudaga milli kl. 7 og 9
e.h.
Reynt verður að leiðbeina
mönnum á fyrirgreindum timum.
Eldri félagar Armanns eru
hvattir til að nota sér þetta tæki-
færi.
Landskeppni Svía og Norðmanna:
Norskt met í þrístökki og
Norðurkmdamet í hindrun!
Anægðir, islenzkir keppendur eftir landskeppnina, Stefán,til vinstri, og Val-
björn.
Svíinn Gaerderud setti
nýtt Noröurlanda met í 3000
m hindrunarhlaupi í lands-
keppni Svia og Norðmanna
í gærkvöldi. Hann hljóp
vegalengdina á 8:23.6 min„
en eldra Norðurlandametið
átti Finninn Jouko Kuha og
var það 8:24.2 mín. Heims-
met Kerry O'Brien, Ástra-
liu, er 8:22.0 .min. og talið
lakasta heimsmetið í
frjálsum íþróttum.
Sviar sigruðu nokkuð örugglega
i landskeppninni, hlutu 117 stig
gegn 95 stigum Norömanna, en
reiknað hafði þó verið meö upp-
haflega að munurinn yrði meiri
en 22 stig.
Kristen Flögstad tókst nú að
bæta norska metið i þristökki,
þegar hann i annarri tilraun stökk
16.39 metra og bætti hann met
Martin Jensen um 12 sentimetra.
Enn á hann þó talsvert langt i að
ná árangri Vilhjálms Einarsson-
ar i greininni, 16.70 metrum. Ár-
angur annarra keppenda i þri-
stökkinu var ekki góður. Sigurd
Langeland, Noregi, stökk 15.79 m
og Kune Wiborg, einnig, Noregi
15.61, svo Norðmenn áttu þrjá
fyrstu menn i greininni, en árang-
ur tveggja fyrstu taldi i keppn-
inni, en sex keppendur voru i
hverri grein.
Hans Lagerquist tókst aö sigra
Kjell Isaksson i stangarstökkinu
— en árangur var ekki neitt sér-
stakur. Hans stökk 5.30 metra, en
Kjell „aðeins” 5.20 m og voru
þessir tveir miklu fremri öðrum i
stangarstökkinu. Norðmaðurinn
Grimes sigraði i spjótkasti með
79.32 metrum, en fréttaskeyti
NTB um keppnina er illlæsilegt,
og þvi ekki hægt að skýra nánar
frá úrslitum, en það sem hér á
undan er sagt frá voru aðalpunkt-
ar keppninnar og þvi endurteknir
i skeytunum.