Vísir - 08.07.1972, Blaðsíða 3
Vísir. Laugardagur. 8. júli 1972
3
í deiglunni
„Undirbúningur að endurnýj-
un aðalvatnsæðarinnar er kom-
inn vel á veg. Það verður um 4,5
km löng ieiðsla, einn metri i
þvermál, og hún á að mæta
vextibyggðarinnar á næsta ára-
tug eða áratugum,” sagði Pétur
Stefánsson, einn verkfræðinga
Almennu verkfræðistofunnar,
sem unnið hefur að rannsóknum
á Heiðmerkursvæðinu.
Meðal annars sem undirbún-
ingsathuganir verkfræðinganna
hafa beinzt að, eru hugmyndir
um, hversu hátt skuli seilast eft-
ir þvi, hvar vatnið verður tekið
með tilliti til þess að fá sem
mest sjálfrennsli á vatnið. Bæði
er það til þess að spara orku,
sem annars þyrfti til þess að
dæla vatninu til einstakra
hverfa, og svo einnig i öryggis-
skyni.
„Þótt vatn yrði tekið i fram-
tiðinni mun hærra i hrauninu
heldur en Gvendarbrunnar
liggja, þá verður samt að gera
ráð fyrir dælustöð til þess að
dæla vatni upp i Breiðholt og
Árbæ. Hún mun risa i hvammn-
um hjá Skyggni.
Menn verða nefnilega að hafa
i huga að það munar á flutnings-
getu æðarinnar tugum litra á
sekúndu við hvern metra sem
vatnið er tekið hærra.
Rannsóknirnar á grunnvatn-
inu undir hrauninu hafa þegar
leitt i ljós, að það munar 33
metrum, hvað vatnið er hærra
efst upp i Heiðmörk, heldur en
þar sem það er tekið núna úr
Gvendarbrunnum. Þeir eru i 79
metra hæð yfir sjó, en efst i
Heiðmörk hefur verið borað nið-
ur i vatn, sem i 112 m hæð yfir
sjó.” sagði Pétur.
Þessar rannsóknir sem Pétur
verkfræðingur minntist á, eru
margþættar. Landfræðilega,
jarðfræðilegar og vatnafræði-
legar. Til könnunar bara á
rennsli vatnsins er búið á 5 fer-
km svæði að bora i gegnum árin
38 borholur. En Vatnsveita
Reykjavikur hefur um árabil
varið nokkru fé til borana og
rannsókna á svæðinu.
„Annars er þetta svæði svo
þrælslega flókið til rannsókna,
að maður getur varla hugsað
sér það öllu erfiðara. Það er
ekki nóg með að jarðlagið undir
Heiðmörkinni sé samansett af 5
hraunlögn, sem öll hafa runn
ið hvert ofan á annað — og i
gegnum það allt saman rennur
vatniö. Það liggja lika djúpar
sprungur inn á svæðið, sprung-
ur, sem liggja alla leið frá
Langjökli. Og út af svæðinu til
suðurs liggja svo enn aðrar
sprungur.
Það væri að æra óstöðugan að
imynda sér afleiðingarnar af
þvi,ef einhver sprungan svelgdi
i sig allt vatnið og beindi þvi
burt af svæðinu, eftir að búið
væri að vinna hér 200 milljón
króna verk til þess að tryggja
Reykvikingum ómengað
neyzluvatn i framtiðinni.
Enda hafa erlendir verk-
fræðingar sem hafa heimsótt
okkur og fengið að kynnast við-
fangsefninu, fórnað höndum og
hrist höfuðið! — En svona er
þetta land okkar, og það væri
engin furða þótt islenzka verk-
fræðinga hefðu einhvern tima
hent mistök!” sagði Pétur og
glotti.
Þótt flókið sé úrlausnar, er þó
gert ráð fyrir að þessum rann-
sóknum ljúki haustið '73. — Gert
er nefnilega ráð fyrir að byrjað
verði næsta sumar á fram-
kvæmdum við lagningu aðal-
æðarinnar nýju.
Sumarið '74 er' gert ráð
fyrir að byrja á fyrri hluta
endurvirkjunar vatnsbólanna,
þar sem ráðgert er að aflétta
mengunarhættu þeirra. Sumar-
ið ’75 á að hefja seinni hluta
þeirra, sem tryggir nægilegt
vatnsmagn fyrir vöxt Reykja-
vikur. — Um þessar mundir er
verið að bjóða út pipurnar fyrir
aðalæðina. Kostnaðurinn á
hvern kilómetra hennar verður
ekki ósennilega á milli 15 og 20
milljónir króna.
Það er ekkert smáræði, sem
haft er fyrir þvi, að Reykviking-
ar láti renna úr eldhúskranan-
um i vatnsglas til að svala
þorsta sinum i framtiðinni
öruggir um heilnæmi sins
Gvendarbrunnavatns.
GP
Pétur Stefánsson, verkfræðing-
ur sýnir blm. Visis niður i eina
sprunguna, sem gerir vatna-
svæðið þarna enn flóknara til-
rannsóknar. — Sumar sprung-
urnar þarna á svæðinu kváðu ná
alla leið til Langjökuls, og aðrar
teygja sig tii suðurs. — Neðst i
gignum sést glitta i grunnvatn-
ið.
iikUWU
HRAÐSKÁK
Hraðskákmót Sovétrikjanna
var haldið i mai s.I. og var heldur
betur iif i tuskunum. Flestir beztu
hraðskákmenn Sovétrikjanna
voru mættir tii leiks og tók
keppnin tvo daga. Hraðskákir eru
fyrst og fremst eftirlæti ungra
manna og það kom þvi ekki á
óvart þegar tveir slikir skipuðu
efstu sætin i mótslok. Karpov og
Tukmakov höfðu mikla yfirburði
og hiutu 24 vinninga af 32 mögu-
legum. i 3 — 4. sæti urðu Kortsnoj
og Kholmov með 20 1/2 v. 5.
VVasjukov 19 1/2 v. (i Gufeld 18v.
7. Tal 17 1/2 v. 8 Stein 17 v.
Bronstein 16 v. 10-11. Taimanov
og Polugaevsky 14 v.
Ahorfendur gátu fylgst með
helstu viðburðum á sérstökum
sýningarborðum og hér sjáum við
sigurvegarana að verki.
Hvitt: Tukmakov
Svart: Karpov
Spánski leikurinn
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7
6. Hel B5
7. Bb3 d6
8. c3 0-0
9. h3 Ra5
10. Bc2 c5
11. d4 Dc7
12. Rbd2 Rc6
13. Rfl cxd
14. cxd exd
15. Bg5 He8
16. Hcl Db6
17. Rg3 h6
18. Bf4 Be6
19. Bbl Hac8
20. Dd2 Bf8
21. Hcdl g5
22. Bxg hxB
23. Dxg+ Bg7
24. e5 dxe
25. Rh4 Re7
26. Hxe Hed8
27. Bd3 Hd5
28. HxH RfxH
29. Rh5 Rg6
30. RxR fxR
31. Dxg Hc7
32. Hel He7
33. RxB HxR
34. De8 mát.
Hvitt: Karpov
Svart: Waganjan
Frönsk vörn
1. e4 e6
2. d4 d5
3. Rc3 Bb4
4. e5 Re7
5. Rf3 c5
6. a3 BxR +
7. bxB Rbc6
8. Be2 Da5
9. 0-0 Dxc
10. Bd2 Db2
11. Hbl Dxa
12. Hb3 Da2
13. Dcl Rf5
14. Ha3 Rfxd
15. Bd3 RxR +
16. gxR DxH
17. DxD 0-0 og svartur gafst upp.
Aðalfundur
TAFL OG BRIDGEKLÚBBS
Reyk javíkur verður haldinn miðvikud. 12.
7. kl. 8.30 i Domus Medica.
Dagskrá: stjórnarkjör, verðlaunaafhend-
ing, önnur mál.
Stjórnin.
Tveir borgarfulltrúar Framsóknar, þeir Kristján Benediktsson og AI-
freð Þorsteinsson á tali við Pétur rakara Guðjónsson, i „reisugillinu”.
„KAFFIÐ" HEFUR
SKIPT UM SVIP
Sá landsfrægi skemmtistaður
og gott betur, Þórscafé hefur nú
tekið mikium stakkaskiptum.
Veitingasalir hafa verið málaðir
mynd- og Ijósaskreyttir og gólf i
forstofu og veitingasal lagt sjálf-
lýsandi góifteppi.
Þá hafa stólar og borð verið
endurnýjuð og fatageymsla
endurbætt. Áklæði á stólum og
skilrúmum er að mestu í rauðum
litum, en salurinn er mjög lit-
skrúðugur i heild. Þórscafé hefur
verið fjölsóttur skemmtistaður i
áratugi og hafa hátt á aðra mill-
jón gesta sótt hann heim frá
stofnun. Fjögur kvöld i viku eru
dansleikir ætlaðir yngri kynslóð-
inni en tvö kvöld eru það gömlu
dansarnir sem eru alls ráðandi.
Ragnar Jónsson veitingamaður
er stofnandi Þórscafé og rak hann
allt þar til að siðasta ári að þeir
Björgvin Árnason og Jón
Ragnarsson gerðust eigendur.
Rögnvaldur Johnsen arkitekt
hefur annast yfirumsjón með
þeim breytingum sem gerðar
voru á „Kaffinu.” -SG
•vnm.v.ivmm
SONY- i
jndraheimur; f
i jöma og töna
jpGudjónsson hf.
Shúlagötu 26