Vísir - 08.07.1972, Side 6

Vísir - 08.07.1972, Side 6
6 Visir. Laugardagur. 8. júli 1972 VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjpri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611 (5 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaðaprent hf. „Stjómlaust rekald" Þegar núverandi rikisstjórn settist að völdum tóku hún og málgögn hennar strax að kveina yfir þvi, hve erfitt væri að taka við af þeirri, sem frá fór. Þennan varnagla þótti rétt að slá, enda þótt hann ætti að hafa verið haldlitill. En á þessu hefur verið klifað si og æ siðan i blöðum rikisstjórnarinnar, þegar þau eru að reyna að verja ráðleysi hennar og afglöp. Engin rikisstjóm á tslandi hefur tekið við eins blómlegu þjóðarbúi og þessi. En engri stjórn hefur tekizt að leiða þjóðina út i svo, efnahagslegar ó- göngur og henni á jafn skömmum tima. Þar hefur hún farið svo langt fram úr vinstri stjórninni fyrri, að um engan samjöfnuð er að ræða. Sú eldri þurfti tvö og hálft ár til þess að koma þjóðinni fram á „hengiflugið”, en þessari virðist ætla að takast það á æði skemmri tima. Ekki getur stjórnin kennt þvi um, að illa hafi árað. Hið mesta góðæri hefur rikt til lands og sjávar. Verð útflutningsafurða hefur aldrei verið hærra, svo að segja má að i þvi tilliti hafi lánið leikið við rikisstjórnina. Hún getur þvi engu um kennt nema eigin ráðleysi og alrangri stefnu, sem éins og vænta mátti hlaut að leiða til ófarnaðar, þar sem hún er mótuð af kommúnistum að mestu leyti. Ekki hefur rikisstjórnin reynst farsæl i samskipt- um sinum við launastéttirnar. Vinnudeilur hafa orðið fleiri og tiðari siðan hún kom til valda en nokkru sinni áður, og sumar þeirra má rekja beint til mistaka hennar sjálfrar. Ekki bendir þetta til þess að almenningur sé eins ánægður með hlut sinn og hann ætti að vera, ef fullyrðingar stjórnarblað- anna um aukningu kaupmáttarins væru réttar. Það er heldur ekki á fólki yfirleitt að heyra, að það verði þessarar kaupmáttaraukningar vart, þótt það fái nú eitthvað fleiri krónur i launaumslaginu sinu en áður. Viðkvæðið hjá flestum er það sama, þ.e. að þetta sé tekið af þeim aftur og vel það i hækkuðu verðlagi og hvers konar gjöldum. Timinn hefur haldið þvi fram, að kaupmáttur timakaups verkafólks hafi aukizt um meira en 20% i valdatið núverandi stjórnar. Þar með segir blaðið að stjórnin hafi þegar á fyrsta ári efnt loforðið i stjórnarsáttmálanum um þessa aukningu kaup- máttarins, sem þar var gert ráð fyrir að tvö ár þyrfti til að uppfylla. Og það skortir ekkert á tölur og útreikninga til þess að sanna þetta, og forseti Al- þýðusambandsins var meira að segja fenginn til að fara i sjónvarpið til að flytja landslýðnum þessi fagnaðarriku tiðindi, en gallinn er aðeins á, að eng- inn maður virðist trúa þessum útreikningum. Fólk trúir buddunni sinni betur. Timinn sagði s.l. sunnudag, að Sjálfstæðisflokk- urinn væri „stjórnlaust rekald” og það væri mikið alvörumál fyrir þjóðina, einkum vegna þess, að flokkurinn veiti rikisstjórninni af þeim sökum „miklu minna og ófullkomnara aðhald en ella”. Hingað til hefur mönnum virzt þessi rikisstjórn væri ekki upp á neitt „aðhald” komin. En það væri ekki nema eftir öðru, að hún færi nú að nota það sem afsökun, fyrir þvi að hún er sjálf „stjórnlaust rek- ald”, að stjórnarandstaðan veiti henni ekki nægi- legt aðhald. Brezka stjórnin leyndi fjöldamorðum Sovétmanna Ný-birtar leyndarskýrslur varpa Ijósi á slótrun tíu þúsund pólskra liðsforingja Brezk stjórnvöld vissu, aö Rússar höfðu drepið pólsku liðsforingjana i Katynskóg- um, en þögðu. Það er fyrst nú, fyrir nokkrum dögum, að skjöl um málið eru birt í Bretlandi, eftir að liðin eru þau um það bil 30 ár, sem skjöl af þessu tagi skulu vera leynileg. Tiu þúsund pólskir liðsforingjar voru drepnir i þessum fjölda- morðum. Meðal ný-birtra skjala er trúnaðarskýrsla frá brezka am- bassadornum, sem fjallaði um málefni Póllands. Skýrslan var send þáverandi utanrikisráð- herra, Anthony Eden, i mai 1943. Owen O’Malley ambassador segist senda skýrslu þessa með tregðu, vitandi að hún kynni að reka fleyg milli bandamanna i striðinu við nasismann. Þýzkir nasistar höfðu haldið þvi fram i útvarpi 12. april 1943 að Rússar hefðu myrt fjölda liðsfor- ingja i pólska hernum. Menn tóku þetta litt trúanlegt og töldu vera venjulegan áróður Þjóðverja. Siðan hefur sá kvittur þó verið viö lýði og hlotið staðfestingu úr ýmsum áttum, að samkvæmt fyr- irmælum Stalins hafi þessi „kjarni” pólska hersins verið eyddur, til þess að hann þvældist ekki fyrir siðar meir, þegar Pól- land yrði gjört „alþýðulýðveldi” Risarnir moluðu Pólverja úr vestri og austri Til munu þeir, sem ekki þekkja upphaf annarrar heimsstyrjald- ar, þótt flestir munu vita, að Þjóöverjar og Rússar skiptu Pól- landi á milli sin i það skiptið eftir samninga Molotovs og Ribben- tropfs, sem alræmdir eru. Stalin vildi forðast átök við Hitler- Þýzkaland, og Hitler var ekki ákafur að sinni að hefja strið við Sovétrikin. Hitler hafði um skeið með kænsku sölsað undir sig landssvæði, Rinarlönd, Austur- riki, Súdetahéruð Tékkóslóvakiu. Hann sendi lið sitt gegn Póllandi i opna skjöldu Pólverja, en við það hófst heimsstyrjöld vegna loforða Breta um stuðning við Pólverja, enda þótt Bretar væru hernaðar- lega á vonarvöl i upphafi. Og i september 1939 réðist Rauði herinn inn i Pólland úr austri. Þeir risar moluðu Pól- verja úr vestri og austri. Landinu var skipt. Friður rikti milli Þjóð- verja og Rússa og einhugur um þessar aðgerðir. Pólverjar, sem i fávisi væntu þess, að Rauði her- inn héldi áfram vestur og tækist á við Þjóðverja, bjargaði Varsjá, slikir menn urðu fákænsku sinni að bráð. Skyldi flytja i „betri" fangabúöir. O’Malley segir i skýrslu sinni, að pólskir striðsfangar, sem Rússar hefðu tekið, hefðu verið 180 þúsund eftir hernám Rússa á austurhluta Póllands. 1 ársbyrjun 1940 hefðu um 10 þúsund yfirmenn i pólska hernum og 6000 lögreglu- Stalfn dreymdi um, að kjarni Pólverja þvældist fyrir stofnun alþýðu- lýðveldis. menn, embættismenn og aðrir, verið i þremur striðsfangabúðum Sovétmanna, Kozielsk, Starobel- isk og Ostashkov. Sá orðrómur barst út i marz 1940, að samkvæmt dagskipun frá Moskvu skyldi flytja fangana i aðrar „og betri” fangabúðir. Flytja skyldi tiu þúsund liðs foringjana með lest, og stóð flutningurinn allan aprilmánuð og hálfan maimánuð. Ekið var með mennina á vöru- bifreiðum til járnbrautarstöðvar, svo var sagt. Hvað varð um þá? Grafirnar finnast. O’Malley leggur i skýrslu sinni frá mai 1943 fram eftirfarandi gögn, sem hann telur, þvi miður, að gefi til kynna að Rússar hafi myrt liðsforingjana. Arið 1941 hófst strið Þjóðverja og Sovétmanna. Framsókn þýzkra herja hafði illa stöðvazt i vestri. Hitler mistókst að hnekkja Bretum. Lið hans hafði að visu völd á meginlandi Evrópu frá Ermasundi til Póllands, Sval- llllllllllll Umsjón: Houkur Helgason barða til Eyjahafs, með leppum sinum i Italiu, Ungverjalandi og viðar. En hvorki þoldi staða Hitl- ers né skaplyndi hans, að kyrr- staða yrði á landvinningum. Hitl- er rauf þvi bandalagið við Stalin, og þýzkir herir sóttu austur Pól- land. Þýzki herinn tók Smolensk i Póllandi i júli 1941. Ekkert fréttist frá Pólverjunum tiu þúsund. Pólski herforinginn Sikorski og aðrir af pólskum leiðtogum skrif- uðu margsinnis til stjórnvalda i Moskvu og spurðust fyrir um ör- Bandalag Hitlers við Sovétmenn brast, þegar Hitler þoldi ekki kyrr- istöðu i landvinningum i vestri. lög fanganna en spurningum þeirra var annað hvort ekki svar- að eða svörin voru ósamkvæm og óskýr. Grafir liðsforingjanna fundust árið 1943, og sögðu Þjóðverjar eftir þrem rannsóknarnefndum, að likin bentu til þess, að þau hefðu legið i jörðu i meira en þrjú ár. O’Malley ambassador sagði i skýrslu sinni til Edens, að „hann teldi ástæðu til að trúa frásögn Þjóðverja”. /, Eins og sardínur i dós" Ambassadorinn reynir að lýsa atvikum, eins og honum virðist, að þau hafi gerzt. Hann telur, að fangarnir hafi verið reknir út úr vörubifreiðunum og hendur þeirra bundnar fyrir aftan bak. Farið hafi verið með fanga til vegar i Katynskógum. Þeir, sem veittu mótspyrnu, voru skotnir i höfuðið með frakkann dreginn upp fyrir höfuð. Þeir, sem gengu án mótspyrnu til dauða sins, hljóta að hafa séð hroðalega sjón, segir O’Malley, er þeir komu að gröfinni, þar sem lik félaga þeirra lágu samanþjöppuð eins og sardinur i dós. Að aftökum lokn- um gróðursettu aftökusveitirnar tré á þessum stað til að fela þessa stóru fjöidagröf. Gróöursetning trjáa bendir á Stalín. O’Malley segir, að það hefði ekki verið likt Þjóðverjum á þeim tima að hafa fyrir þvi að gróður- setja slik tré. Þjóðverjar tóku af lifi urmul fólks hvarvetna á hernumdu svæðunum, án þess að eyða tima i slikt. Hins vegar hafi það verið hagsmunir Stalins að fela gröfina, svo að liðs- foringjarnir „týndust”, örlög þeirra gleymdust i ringulreið striðsins. Það tókst þó ekki. O’Malley lýsir þvi, hvers vegna Bretar þögðu með Stalin. „,/Notum heiður Englands til að hylja fjöldamoröin". „Við verðum að hafa hemil á okkur vegna mikilvægrar nauð- synjar á innilegum samskiptum við Sovétrikin. Viö höfum verið skuldbundnir til að hindra Pól- verja i að leggja málið fyrir al- menningssjónir og i reynd neydd- ir til að nota heiður Englands til að hylja þessi fjöldamorð....” Skýringin á morðunum hefur verið talin sú, að Stalin var mað- ur forsjáll og ekki þrúgaður af samvizku að ráði. Sá draumur hans rættist og i striðslok, að Pól- land varð hernumið af Rauða hernum, alþýðulýðveldi stofnað og einræði Moskvuvina eftir kné- setningu lýðræðisflokkanna. Tiu þúsund manna blómi Póllands hefði ekki hindrað þessa þróun, en kannski þvælzt eitthvað fyrir henni, eða svo dreymdi Stalin árið 1940.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.