Vísir - 08.07.1972, Síða 16

Vísir - 08.07.1972, Síða 16
vísm Laugardagur. 8. júli 1972 ÍNN LEIÍAÐ - dönsku vélarinnar ðeitað nú á landi — leit hœtt yfir hafi Leit mun nú að mestu hætt aö dönsku Piper Apache flugvélinni, sem týndist fimmtudaginn 29. júni s.l. á leiðinni frá Færeyjum til Islands. Raunar verður leitað eitthvað inn yfir fsland, þar sem ekki hefur enn verið hægt að leita vel sökum slæmra veöurskilyrða, en leit yfir hafi er nú hætt. Flugvélin týndist fyrrihluta fimmtudags, þá heyrðist siðast i flugmanninum, er hann var um 100 milur út af Færeyjum. Þegar hann kom ekki á tilsettum tima til Reykjavikur, sem var um klukk- an 14, var leit hafin, leitað mikið i lofti og á sjó fram yfir siðustu helgi, en þá fór að draga úr krafti leitarinnar, enda voru veðurskil- yrði sérlega slæm — og hafa raunar verið fram til þessa, lág- skýjað og suddi oft. Með Piper Apache-vélinni var fjögurra manna fjölskylda úr Danmörku, tannlæknir ættaður úr Færeyjum, Sveinn Paturson en hann var einnig af Isl. ættum, eins og áður hefur komið fram, kona hans og tvö börn. -GG Algjörlega óviðunandi óstand Bernhöftstorfunnar — segir bygginganefnd og óskar úrbóta ,,Okkur þótti rétt að ýta undir það að einhver endanlega ákvörðun yrði tekin um hvað gert verður við þessi hús. Auk þess er mikil eldhætta af slæm- um frágangi húsanna" sagði Páll Líndal borgar- lögmaður í samtali við Vísi i gær. Bygginganefnd Reykjavikur hefur samþykkt að beina þeirri eindregnu ósk til fjármálaráðu- neytisins vegna rikissjóðs, að bætt verði nú þegar ,,úr þvi óviðunandi ástandi” sem er á húsunum Bankastræti 2 og Amt- mannstig 1 ásamt bakhúsum. Bendir nefndin á að stórfelld brunahætta getur stafað af slæmum frágangi og einnig er bent á að það sé algerlega óviö- unandi að þessi hús skuli látin viðhaldslaus árum saman eins og veriö hefur. ,,Það sér hver maður að eitt- hvað verður að gera til að lag- færa útlit húsanna ef þau eiga að standa. Og þótt neglt hafi verið fyrir dyr og glugga er auð- velt að kveikja i húsunum þvi enginn býr i þeim” sagði Páll Lindal. Hann benti á að ef eldur kæmi upp væri t.d. Mennta skólinn i stórhættu ef dálitill vindur væri að norðan. Ekki; hefði ákvörðun verið tekin um Sfðan þessi mynd var tekin er búiö aö negla fjalir fyrir giugga og huröff húsanna. Hefur þaö ekki oröiö til aö bæta útlitiö. hvað gert yrði við Bernhöfts- torfuna, en þetta gæti ekki gengið svona endalaust. Annað hvort að hressa uppá útlitið eða fara burt með húsin. Bygginga- nefndin hefur rétt til að láta gera endurbætur á óhrjálegum húsum á kostnað eigenda eða láta fjarlægja ef þau eru mjög hrörleg orðin. Borgarstjórn samþykkti þessa bókun bygginganefndar á fundi sinum i fyrradag. -SG HVER HLÝTUR SILFURLAMPANN? — fleiri en leikarar koma til greina 306 ó atvinnuleysisskróm: Menn fora ekki longor leiðir til otvinnu Mikill spcnningur cr nú rikj- andi um liver fær silfurlampann i ár, cn honum vcrður úthlu.tað á morgun. Aldrei hafa jafnmargir koiniö til grcina, þvi nú eru það ckki lcikarar einir sem geta fcng- ið lampann, hcldur cinnig lista- mcnn i öðrum listgrcinum innan lcikhúsanna. Þessi breyting á reglugerö um úthlutun lampans var samþykkt á nýafstöðnum fundi F.t.L. 1 hvert skipti sem úthlutun fer fram skal ákveða hvort einungis leikarar koma til greina eða hvort einnig ætti aö greiða atkvæði um t.d. leikstjóra eða leikritahöfunda. Var samþykkt að i þetta skipti skyldi sá háttur vera hafður á. Það verður kl. 17 á morgun sem úrslit verða kunngjörð á Mimis- bar Hótel Sögu, og verður þar ef- laust margt um manninn. Vmsar getgátur eru uppi um þá sem lik- legastir eru til að hljóta hnossið. —SG „SIGLUM NÚ Á FULLU" — segir Freysteinn Jóhannsson blaðaf ulltrúi Skóksambandsins ..Forráðamönnum Skáksam- bandsins cr það öllum mikiil létt- ir, að hafanú loksins eitthvaöfast undir fótum cftir að einvigið hef- ur svifið i lausu lofti”, sagði Freysteinn Jóhannsson, blaða- fulltrúi Skáksambandsins i morg- un. Varðandi þau vandamál sem upp myndu koma ef einvigið stangaöist á við Olympiuskák- mótið i Júgóslaviu. sagði Frey- stcinn: ,,Það hefur aldrei af hálfu FIDE verið minnzt á neina skipt- ingu á einviginu við Skáksam- bandið. þannig að við siglum nú bara á fullu, þvi það er algjörlega mál FIDE hvernig það ráðstafar Olympiuskákmótinu”. Olympiu- skákmótið hefst i Júgóslaviu 17. sept, og ráðgcrt er að einviginu ljúki nú um mánaðamót ág. — sept., og ef keppendur notfæra sér það, að fresta skákum sinum þri- vegis, þá fer svo að einviginu lýk- ur ekki fyrr en rétt um það leyti sem Oly mpiumótið byrjar. En við þurfum sem sagt ekki að hafa á- hyggjur af þvi, það er höfuðverk- ur FIDE. GF :»)(> manns eru á atvinnuleysis- skrám á landinu öllu, sem auðvit- að þýðir ekki, að „atvinnuleysi” sé, heldur þvert á móti. Þó eru fá- einir staðir landsins enn i vanda. Ólafsfjörður á til dæmis „metið” í þeim efnum með 68 á atvinnuleysisskrá, sem er aðeins fækkun um þrjá i mánuðinum. Meðal smærri kauptúna er einnig iskyggilega há tala á Hofsósi (36) og Skagaströnd (25). Hólmavik hefur 17 og Hrisey 11. Þarna hefur litið miðað um langan aldur. Siglufjörður stendur nú orðið miklu betur en lengst af var. Þar Nýtt flugfélag var nýlega stofn- að á Hornafirði, „við fengum okk- ur Cessnu 180 — eins hreyfils vél, sem Austurflug á Egilsstöðum átti. Við ætlum að stunda héðan leiguflug — kannski skreppa i ferðir hér i kring með feröafólk. Ferðamannastraumurinn hefur aukizt gifurlega hingaö til Hafn- ar”, sagði Arnar Bjarnason, vél- stjóri. Höfn i Hornafirði. sem er einn af eigendum Flugfélags Hornafjarðar h.f. „Það hefur nú verið rysjótt tið hér”, sagði Arnar, „og af þeim sökum ekki verið sérlega mikið að gera i ferðamannaflugi — en þó reytingur. Þetta er raunar meira til gamans gert”. Þeir Hornfirðingar hafa lika svo mikla skemmtun af flug- Það varð ckkert af þvi aö Ro- bert Fischer byggi undir sama þaki og kinversku sendifulltrú- arnir. Þeir hafa flutt sig frá Loft- leiðahótelinu og dvelja nú i ibúð að Fellsmúla 20, þar sem þeir hafa opnað skrifstofu. er 51 þó enn á skránni. 40 eru á Sauðárkróki, og 25 í Reykjavik, þar af 18 skólastúlkur. Allar fréttir gefa til kynna, að viðast hvar skorti vinnuafl i at- vinnuvegina. Atvinnuleysi það, sem tala má um á stöðum eins og Hofsósi og Skagaströnd, hlýtur að eiga rætur að rekja til þess, að fólk vill ekki fara til annarra staða til vinnu. A sama tima i fyrra voru heldur fleiri á atvinnuleysisskrám á landinu. Þá voru þeir 354 standi sinu, að þeir hafa lagt i talsverðan kostnað við að búa að vélinni. Reistu sér flugskýli á flugvellinum og hafa sérstakan flugmann — sá er raunar einn eigenda F.H. Páll Kristjánsson að nafni. — Þið ætlið kannski út i áætlun- arflug eða vöruflutninga, áður en langt um liður? „Nei það held ég ekki — þetta er nánast tómstundagaman hjá okkur”, sagði Arnar Bjarnason. En kannski F.í. og Loftleiðir verði i framtiðinni að gæta sin á F.H. Til Hornafjarðar er skemmst að fljúga frá megin- landinu og kannski þeir Hornfirð- ingar eigi eftir að krækja sér i stóran bita af túristakökunni þess vegna. —GG. Kinverjarnir gera sér far um áð vera ekki mikið i sviðsljósinu, en oft má sjá þá akandi um i Volks- wagen-rúgbrauði brosandi út að eyrum og virðast þeir una sér vel. —SG ★1 DAIIXa NEWS fl5* ^ NEW YORK'S PICTURE NEW5PAPIR & NVw V<» :. \ ' . 1» :i; J..U- í, ia72« Chess Furor: HE WALKS OUT Knlahf ErfflllP tu>áhr «»>.«• i<mrr* m U ft*yfc)*»<k> Í.Tuití, M * MIU • ,i;v.>rtyWfmv U *d «•» nwrt lUwú * Jlwi* .'HMúlcr. Þuhfajr (>í« M'b -\ *K L:Kíiifiimti srfcrM-aírititíf urfM.Uur**»»«•«p!») wxy Tb«*d<»> ;.. »a pajot it nkin í heimsblöðunum Þaö er eflaust að bera í bakkafullann lækinn að ræöa mikiö um einvígi aldarinnar í dag. En viö gátum ekki stillt okkur um aö sýna lesendum VIsis svart á hvitu hvaöa athygli máliö hefur vakiö erlendis. Lang stærsta dagblaö I Bandarikjunum, Daily News skýrði þannig frá gangi mála á forsiöu sl. miðvikudag. Blaöiö er prcntaö I hátt á þriöju milljón eintaka daglega. —HH. HORNFIRÐINGAR í TÚRISTAFLUG — og stofna nýtt flugfélag KÍNVERJAR í FELLSMÚLA

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.