Vísir - 12.07.1972, Síða 8
Visir. Miövikudagur 12. júli 1972
Visir. Miövikudaf
júli 1972
EG SET HEIMSMET HER
— sagði Ricky Bruck eftir að hann kastaði 66.80 m 6 Laugardalsvelii í gœrkvöldi og tvö köst hótt í sjötíu metra ógild
Allt annað gleymdist
þegar Ricky Bruch,
sænski heimsmethafinn í
kringlukasti, birtist á
Laugardalsvellinum í gær-
kvöldi og fór að mýkja isg
upp fyrir keppnina við
kringlukastshringinn.
Kringlan flaug yfir 60
metra frá honum án at-
rennu — hvílíkur ógnar-
kraftur getur komizt fyrir í
einum mannslíkama!
Síðan reyndi hann * at-
rennuna og kringlan, sem
var eins og litill diskur í
höndum jötunsins, kom
niður við 70 metra markið.
Og áhorfendur spurðu
hvernannan. Skyldi honum
takast eins vel upp i sjálfri
keppninni?
Kringlukastskeppnin hófst og
flagg fyrir sænska metið og
heimsmetið var 68,40 metra frá
kasthringnum. Bruch var þriðji i
kaströðinni — en æ, hann náði
kringlunni ekki upp i fyrstu til-
raun 61,68 m., sem þó reyndist
miklu lengra en aðrir keppendur
náðu i keppninni, og það sumir
frægir mjög, — þeir reyndust eins
og statistar i samanburði við hinn
risavaxna Svia, sem er um tveir
metrar á hæð og vegur 130 kiló, en
er þó eins og ballettmær i kast-
hringnum.
Londsleikur-
inn í kvöld
Einn nýliði verður i is-
lenzka landsliöinu, sem
leikur gegn Færeyjum á
I.augardalsvelli i kvöld —
Astráður Gunnarsson,
Keflavik — og þetta verður
fyrsti A-landsleikurinn milli
þjóðanna. Aður hefur island
verið með B-landslið gegn
Færeyjum, en sjálfsagt að
breyta til og telja þetta full-
gilda landsleiki.
I.eikurinn liefst kl. átta, og
islenzka liðið vcrður þannig
skipað. Sigurður Dagsson,
Val, Astráður Gunnarsson
IHK, Ólafur Sigurvinsson
IBV, Einar Gunnarsson IBK,
Guðni Kjartansson IBK,
Marteinn Geirsson Fram,
Eyleifur Ilafsteinsson ÍA,
Guðgeir Leifsson Viking,
Teitur Póröarson ÍA Tómas
Pátsson iBV, og Asgeir
Sigurvinsson, ÍBV.
Tveir þeirra sem valdir
voru i 17 manna hópinn
boðuðu forföll, Gisli
Torfason, ÍBK og Þorbergur
Atlason, Fram. Þá er Asgeir
Eliasson, Fram og vafa-
samur vegna meiðsla, sem
hann hlaut á dögunum.
Færeyingar hafa islenzkan
la ndsliðsþjálfara , Sölva
óskarsson.og eru ekki alltof
bjartsýnir á úrslit i kvöld.
Ricky Bruch nýbúinn
sleppa kringlunni i
siöustu tilraun sinni i
gærkvöldi — 64,92 metra
flaug kringlan.
Ljósmynd Bjarnleifur.
Siðan kom önnur tilraun og að-
stæður voru hreint fullkomnar
fyrir kringlukast — suð-austan
gola. Rikki kastaði og kringlan
flaug hátt og langt, en risinn
hrissti aðeins höfuðið, þegar hún
kom niður — 64,80.
Þá þirðja tilraun og nú lagði
kappinn sig fram — kringlan
beinlinis geystist langt út á
völlinn og yfir hann þveran, en
kappinn hafði lagt aðeins of mikið
i atrennuna — hann steig milli-
metra upp á brún kastshringsins.
Vonbrigði þegar Marteinn
dómari veifaði rauðu flaggi. —
ógilt — en við mælingu eftir
keppnina reyndist kastið 68,86 m
— 46 sm lengra en heimsmetið.
Hvilikur kraftur og snerpa.
Fjo’rða tilraun Rikka — lélegt
kast, sem hann gerði ógilt, þá
fimmta tilraun, guiífaíleg og
kringlan flaug 66,80 metra, bezta
kast hans i keppninni. Annar bezti
árangur hans i sumar — og annar
bezti árangur i heiminum i ár!!
Siðasta kastið mældist 64,92
metrar.
— Ég bæti heimsmetið á mótinu á
fimmtudaginn, sagði Rikki,
þégar við náðum tali af honum
eftir keppnina. Það er gott að
kasta hér á Laugardalsvellinum
,,det bláser fint” — en var þó full-
kalt.
Ég er mjög ánægður með
þennan árangur núna, þvi við
erum búin að'vera á ferðalagi i
allan dag. Fórum eldsnemma i
morgun frá Sviþjóð og komum
ekki til Islands fyrr en á fimmta
timanum-og auk þess var ég að
keppa heima i gærkvöldi, náði þá
um 66 metrum og fór ekki að sofa
fyrr en kl. fjögur i nótt.
Já, ég get verið ánægður með
þetta. Að korrra-svona næstum
beint úr flugvélinni og ná þessum
árangri núna er ágætt. Ég lofa
ykkur heimsmeti á fimmtudags-
mótinu — þá er maður búinnn að
hvila sig vei og kynnast hér öllum
aðstæðum betur, og það var
greinilegt, að hinn risavaxni Svii
Erlendu keppendurnir ræöa um kringlukastið eftir keppnina — Ricky Bruch er lengst til vinstri, þá
Vestur-Þjóðverjinn Karl Heinz Steinniztz, sem varð annar og bætti árangur sinn um 1.17 metra, kúlu-
varparinn 19 ára Hans Dieter Möser frá Vestur-Þýzkalandi, sem er mun hærri en Rikki, og Finninn
Risto Myyra, sem var langt frá sinum bezta árangri. Ljósmynd BB
meinti það, sem hann sagði.
Og ,það var eitt, sem svolitið
felldi þetta, bætti Ricky Bruch við
— það voru of margir keppendur
og ójafnir i keppninni, allt of langt
á milli kasta Ég vona aö þeir
verði ekki eins margir á fimmtu-
dag.
Við hliðina á Bruch var unnusta
hans — litil og nett og falleg ■
eins og litið barn við barm
jötunsins. Við spurðum hana
hvort hún færi oft i keppnisferða-
lög með Rikka.
— Já, það kemur fyrir, en þó ekki
alltaf, og það var gaman að fá
þetta tækifæri til að koma til Is-
lands, segir hún og brosir sinu
fegursta.
En það er synd að vera að tefja
þau lengur. Þau eru ferðalúin og
flýta sér niður á Hótel Esju til að
vera smástund saman áður en
að matarveizlu Frjáls-
irþróttasambandsins kemur.
Það voru miklir kappar þarna i
kringlukastinu — menn, sem hafa
kastað yfir 60 metra, en þeir voru
eins og litla, faliega stúlkan hans
Rikka — smábörn við hliðina á
honum hvað árangur snerti, þó
vöxturinn væri sá sami.
Eitt skyggði á. Erlendur Valdi-
marsson sást hvergi — maðurinn
sem þessir frægu kringlukastarar
voru fengnir hingað til að keppa
við.
Keppt var i nokkrum auka-
greinum i gærkvöldi, en þær féllu
alveg i skugga kringlukastsins
enda mjög erfitt að hlaupa hring-
hlaup. Meðal keppenda i 400 m
hlaupinu voru Bjarni Stefánsson,
sem náði þriöja sæti á eftir Svia
og Norðmanni, en talsvert kom á
óvart, hvað Bjarni vann Þorstein
Þorsteinsson örugglega i
keppninni.
1500 m hlaup:
Arne Nordvi Noregi 4:06,8
Gunnar Hundhammer
Noregi 4:07,3
PerBakke 4:09Í6
Steinþór Jóhanness. UMSK 4:35,6
400 m hlaup:
Kent öhman Sviþjóð 48,5
PerRomNoregi 48,8
Bjarni Stefánss. KR 49,2
Þorsteinn Þorsteinss. KR 50,3
Martin Strand Noregi 52,1
Kringlukast:
Ricky Bruch Sviþjóð 66,80
Karl Heinz Steinnitz V-Þ. 59,79
Tormód Lislerud, Noregi 58,56
Risto Myyra Finnlandi 58,08
Bo Grahn Finnlandi 53,30
Rolf Oidvin Noregi 52,78
Iver Holé Noregi 51,37
hsim.
Guðrún Ingólfsdóttir — nýtt lslandsmet.
Ljósmynd BB.
Systurnar náðu
einu siarunum!
Lára og Sigrún Sveins-
dætur voru hinar einu, sem
hlutu sigur gegn dönsku
stúlkunum i landskeppn-
inni i gær — Lára sigraði
örugglega í hástökki og hin
15 ára Sigrún varð fyrst í
100 m. hlaupinu. Þá setti
hin 14 ára Guðrún Ingólfs-
dóttir frá Hornafirði Is-
landsmet í kúluvarpi eins
og við spáðum hér nýlega
og varð í öðru sæti.
Að öðru leyti höfðu dönsku
stúlkurnar yfirburði i lands-
keppninni og sigruðu með mikl-
um mun, 87 stigum gegn 48, og
sigruðu i 11 greinum af 13. Yfir-
Þrír sigrar — en dönsku pilt-
arnir höfðu mikla yfirburði
Þeir voru góðir og jafnir,
dönsku strákarnir í lands-
keppninni i gærkvöldi, og
sigruðu með nokkrum yfir-
buröum eða 120 stigum
gegn 81. Islenzka liðið var
of ójafnt til að geta veitt
harðari keppni — og einsog
fyrri daginn voru það örfáir
einstaklingar i liðinu, sem
skáru sig úr, en þeir voru
lika mun betri en hinir
dönsku keppinautar þeirra.
Borgþór Magnússon sigraði
örugglega i 400 m. hrindahlaup-
inu og varð tvöfaldur sigurvegari
i keppninni, og sama er að segja
um Friðrik Þór Óskarsson, sem
hafði mikla yfirburði i þristökk-
inu, og hann vann einnig tvo sigra
i landskeppninni.
Og þristökkið
var „islenzk” grein — eini tvö-
faldi sigurinn vannst þar. Þá
sigraði islenzka sveitin i 4x400 m.
boðhlaupinu eftir stórskemmti-
lega keppni, og þurfti til þess að
setja nýtt unglingamet. Agúst Ás-
geirsson náði sinum bezta tima i
1500 m. hlaupi, en það nægði ekki
nema i annað sætið. Úrslit i
keppninni i gær urðu þessi:
400 m grindahlaup: 200 m hlaup: Þristökk:
Borgþór Magnúss. I 55,7 Axel Mathiesen D 22,7 Friðrik Þór Óskarss. 1 14,62
Lars Ingemann D 56,1 Bjarne Lundgaard D 22,9 Helgi Hauksson t 13,95
Vilmundur Vilhjálmss. t 57,2 Vilmundur Vilhjálmss. t 23,0 Bo Jörgensen D 13,69
Finn Visnek D 58,5 Hannes Reynisson t 23,9 * Lars Abo D 13,26
4x400 m boöhlaup:
Sleggjukast: Stangarstökk: tsland 3:28,3
Torben Larsen D 42,50 Peter Johansen D 4,05 (Vilmundur, Borgþór, Agúst,
Paul Steffensen D 38,60 Erling Hansen D 3,80 Böðvar)
Óskar Jakobsson 1 34,12 Karl W. Fredriksen I 3,00 Danmörk 3:28,5
Elias Sveinsson 1 32,30 Friðrik Þór Óskarss. t 3,00 (Bo Westergaard, Ole Lusholdt,
Finn Jensen, Finn Visnek)
1500 m hlaup: 2000 m hindrunarhlaup: Spjótkast:
Niels Nygaard D 4:01,6 Björne Petersen D 5:53,0 Karsten Hessild D 63,32
Ágúst Ásgeirsson 1 4:02,3 Brunó Christjansen D 6:20,4 Hans P. Petersen D 60,80
Svend Malchau D 4:02,9 Ragnar Sigurjóns. t 6:34,8 Óskar Jakobsson t 60,63
Einar Óskarsson 1 4:17,7 Gunnar Ó. Gunnarss. 1 6:35,2 Elias Sveinsson t 58,78
burðir Láru i hástökkinu komu
talsvert á óvart, þvi þær dönsku
höfðu stokkið mun hærra áður.
Lára reyndi við Olympiulág-
markið og var nærri að ná þvi
þarna i kuldanum.
Guðrún Ingólfsdóttir er geysi-
legt efni og stórbætti hið eliefu
ára met Oddrúnar Guðmunds-
dóttur. Annars urðu úrslit þessi:
Kúluvarp:
AaseJensenD 11,56
Guðrún Ingólfsd. I 11,48
JytteLauridsen D 11,39
Gunnþórunn Geirsd. I 10,54
Hástökk:
LáraSveinsd. I 1,63 m
Lisbeth Aasted D 1,60 m
Karen L. Petersen D 1,55 m
Kristin Björnsd. I 1,50 m
1500 m hlaup:
Lóa Ólafsson D 4:44,0
Britta Kálund D 4:50,9
Ragnhildur Pálsd. I 5:10,9
Anna Haraldsd. 1 5:37,5
100 m hlaup:
Sigrún Sveinsd. t 13>0
Lisbeth Nielsen D 13,0
Lára Sveinsdóttir I 13,2
AnniMöllerD 13,3
4x400 m boöhlaup:
Danmörk 3:59,6
tsland 4:19,5
Nú þegar að Norræna sundkeppn-
in hefur staöið i þrjá mánuöi hafa
tæplega 43.000 landsmenn synt
200 metrana 516.153 sinnum. 1969
syntu 44.478 200 metrana hér á
landi.
í keppni Akureyrar, Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar er staöan þann-
ig, að Akureyringar leiöa meö
4,83 sund á íbúa, Reykjavík I ööru
sæti meö 3,14 sund á ibúa og
Hafnfirðingar i þriðja sæti meö
2,20 sund á Ibúa.