Vísir - 12.07.1972, Blaðsíða 13

Vísir - 12.07.1972, Blaðsíða 13
Visir. Miðvikudagur 12. júli 1972 13 | í DAG | í KVÖLP | í DAG | í KVÖLD | í DAB Útvarp kl. 15,15: íslenzk tónlist: „Alþýðuvísur um ástina" eftir Gunnar Reyni Sveinsson - Ijóðin eftir Birgi Sigurðsson Gunnar Reynir Sveinsson tón- skáld er á ferðinni i útvarpinu i dag kl. 15.15 með nýlegt tónverk, sem hann kallar „Alþýðuvisur um ástina”. „Þetta eru ljóð eftir Birgi Sigurðsson þennan sem samdi textann við Jazzkantötuna mina, sem átti að flytja á listahá- tiðinni, en varð nú aldrei úr. Það er 15 manna söngflokkur úr Pólýfónfórnum, sem syngur visurnar. Þetta eru skal ég segja þér 8 lög og allt visur, sem ekki eru bundnar við neinn ákveðinn tima og sjálfur reyni ég að skrifa mina tónlist við þær þannig, að ekki sé hægt að sjá hvort hún er samin 1971 eða 1671. Það má segja að þetta sé svona barok - kennd músikk.” Þessi átta ljóð Birgis eru: 1. Syng mér ljóð' 2. Hægan lið þú mitt lif. 3. Þó að leiðinn læðist inn. 4. Nú gengið er min gleði. 5. Koss- ar. 6. Kom þú. 7. Fljúg þú fugl og loks 8. Á sæinn bræður sigldu tveir. „Alþýðuvisur um ástina” er eins og nafnið bendir til kveð- skapur um ástina og lifið gædd al- þýðulegum og viðfeldnum blæ saknaðar og trega. Við birtum hér sýnishorn af visum Birgis og tökum 3. flokkinn „Þó að leiðinn læðist inn.” Þó að leiðinn læðist inn og læsi minu hjarta, það syrtir aldrei i augum þér: þar á ég gleði bjarta. Þó að feigðin falli að og fúni minar rætur þá ljóma hljóðlát þin hreinu orð i hug mér langar nætur. Þó að Iiði ár og ár og eyðist fljótt hver saga, þú ert mér undur hvert andartak og ylur minna daga. Og svo við vikjum nánar að Gunnari Reyni þá má drepa á það hér, að nú er verið að syngja tón- list hans úti i Túnis. Það er öldu- túnsskólinn i Hafnarfirði, sem þar er staddur á vegum Unesco á einhvers konar barnaskólamóti og syngur lög eftir Gunnar Reyni §íini86611 Gunnar Reynir Sveinsson. og Þorkel Sigurbjörnsson. Varð- andi Jazzkantötuna sem Gunnar ætlaði að flytja ásamt félögum sinum á listahátið i vor, þá hefur hann framlengt henni fram til hausts og ætlar að fara með hana upp i Landakotskirkju „Það er éinmitt gott að svinga fyrir neðan krossinn eins og Gunnar segir sjálfur, maður hefur enga aðra skreytingu en Mariu og barnið” GF Salur óskast 160 fm húsnæði óskast til leigu, má vera i Kópavogi. Uppl. Í sima 41989. ÚTVARP • MIÐVIKUDAGUR 12. júli 14.30 Siðdegissagan: „Eyrar- vatns-Anna” eftir Sigurð Helgason Ingólfur Kristjánsson les (14). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 íslenzk tónlist: a. „SögU- ljóð” eftir Arna Björnsson. Sin- fóniuhljómsveit íslands leikur: Páll P. Pálsson stj. b. Fimm sönglög eftir Pál tsólfsson. Guðmundur Guðjónsson syng- ur með Sinfóniuhljómsveit Is- lands. c. „Rórill”, kvartett fyr- ir blásturshljóðfæri eftir Jón Nordal. Jón H. Sigurbjörnsson, Kristján Þ. Stephensen, Gunn- ar Egilson og Vilhjálmur Guð- jónsson leika. d. „Alþýðuvisur um ástina” eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Söngflokkur flytur undir stjórn höfundar. e. „Punktar”, verk fyrir hljóm- sveit og segulband eftir Magnús Bl. Jóhannsson. Sinfóniuhljómsveit Islands leikur: Páll P. Pálsson stjórn- ar. 16.15 Veðurfregnir. Starfsemi Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins Har- aldur Jóhannsson hagfræðing- ur flytur erindi. 16.45 Lög leikin á sembal. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17.30 „Konan frá Vinarborg” Dr. Maria Bayer-Juttner tónlistar- kennari rekur æviminningar sinar. Erlingur Daviðsson rit- stjóri færði i letur. Björg Árna- dóttir les (13). 18.00 Kréttir á ensku 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfr.. Dagskrá kvölds- ins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Daglegt málPáll Bjarnason menntaskolakennari flytur þáttinn. 19.35 Álitamái Stefán Jónsson stjórnar umræðuþætti. 20.00 „Saga úr skerjagarðinum”, Sinfóniskt ljóð op. 20 eftir Hugo Alfvén Sinfóniuhljómsv. sænska útvarpsins leikur: Stig Westerberg stj. 20.20 Sumarvaka a. Sigurður Breiðfjörð á Snæfellsnesi Frá- söguþáttur eftir Helgu Hall- dórsdóttur frá Dagverðará. Oddfriður Sæmundsdóttir les. b. Biðilsbréf Sveinbjörn Bein- teinsson kveður ljóðabréf Sig- urðar Breiðfjörð til Kristinar Illugadóttur. c. „Sæl væri ég, ef sjá mætti’Séra Agúst Sigurðs- son flytur annan frásöguþátt sinn undan Jökli. d. Einsöngur Sigurður Skagfield syngur lög eftir Siguringa E. Hjörleifsson: dr. Victor Urbancic leikur á pianó. » 21.30 Útvarpssagan: „Hamingju- dagar” eftir Björn J. Blöndal Höfundur les (8). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Framhalds- leikritið: „Nóttin langa” eftir Alistair McLean Endurflutn- ingur fyrsta þáttar. Leikstjóri: Jónas Jónasson. 23.00 Létt músik á siðkvöldi Boston Pops hljómsveitin leik- ur undir stjórn Arthurs Fiedlers. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Dag- skrárlok. «í m HL - -n n Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 13. júii. Hrúturinn, 21. marz—20. apríl. Það bendir allt ótvirætt til þess að dagurinm verði notadrjúgur, og að þér veitist auðvelt að koma fyrirætlunum þinum að a.m.k. nokkuð áleiðis. Nautið,2l. april—21. maf. Það bendir allt til að þú eigin annrikisdag fyrir höndum. Ef til vill vegna óvæntra, en fremur jákvæðra atburða sem snerta atvinnu þina. Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Það litur út fyrir að þér berist bréf með einhverjum uppörvandi fréttum, eða þú fáir tilboð, sem veitir þér óvænt tækifæri á næstunni. Krabbinn,22. júni—23. júli. Það litur út fyrir að þetta verði þér mjög ánægjulegur dagur og nota- drjúgur. Ættirðu að taka hann senmma og not- færa þér hann sem bezt. Ljónið,24. júli—23. ágúst. Það er ekki óliklegt að þér bjóðist gott, og sennilega óvænt tækifæri, sem mikilvægt er fyrir þig að þú látir ekki framhjá þér fara. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Notadrjúgur dagur að þvi er séð verður. Ef til vill verður óvæntur hraði á hlutunum, svo vissara verður fyrir þig að flana ekki að neinu. Vogin,24. sept.—23. okt. Góður dagur, en vertu við þvi búinn að breyta áætlunum þinum með skömmum fyrirvara. Að minnsta kosti skaltu ekki gera neinar fastar áætlanir. Drekinn, 24. okt,—22. nóv. Það litur út fyrir að þetta verði notadrjúgur dagur, en ef til vill verð- ur freistandi fyrir þig að tefla djarfar en hyggi- legt kann að reynast. Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des. Notadrjúgur dagur, en nokkuð erfitt annriki á köflum, vegna þess að margt kallar að i einu, svo þér getur veizt torvelt að einbeita þér. Steingeitin, 22. des.—20. jan. Athafnadagur, en vissara aðfaragætilega ogláta ekki eftirrekstur nein áhrif á sig hafa. Halda sinu striki,rólega og með festu. Vatnsberinn, 21. jan.—19. febr. Þú getur komið ýmsu á góðan rekspöl I dag, sem gengið hefur erfiðlega að undanförnu. Notaðu tækifærin og taktu daginn snemma. Fiskarnir, 20. febr.—20.marz. Það er ekki ólik legt að þú lendir i einhverjum átökum i dag, en getir hrósað sigri. Að minnsta kosti að svo miklu leyti, að það ráði úrslitu Takið eftir Þeir sem ekki tóku eftir auglýsingunni i gær,lesi hana núna. Það var Epiphone bassagítar,ofsa sound bassi. Vel með farinn. Aðeins kr. 15-20- 25.000.- Greiðist i heild, einstakt tækifæri. Gripið tækifærið meðan það gefst. Hver verður fyrstur, fyrsta tilboði tekið að Grettisgötu 72. KSL LANDSLEIKURENN ÍS-Í- ÍSLAND - FÆREYJAR fer fram í kvöld, miðvikudaginn 12. júlí á Laugardalsvellinum og hefst kl. 20,—. Dómari: Magnús Pétursson. Verð aðgöngumiða: Sœti kr. 200.-. Stæði kr. 125.-. Barnamiðar kr. 75.-. Sala aðgöngumiða er við Útvegsbankann frá kl. 10 f.h. til kl. 18.- e.h. — Komið og sjáið spennandi keppni. KNATTSPYRNUSAMBAND ÍSLANDS.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.