Vísir - 05.08.1972, Síða 12
Visir Laugardagur 5. ágúst 1972
12 r
íslenzkur hestur er ungri dauð-
vona stúlku í Danmörku allt
Á búgarði á Norður--
S.jálandi, sem heitir
Myrehulm, búa hjónin
Mogens Petersen, og
kona hans Ebba, ásamt
börnum sinum tveimur,
Joan, 17 ára og Bjerre,
18 ára. Búgarður þessi
er afskekktur, og fjöl-
skyldan hefur fá dýr að
undanskildum hestum.
llestarnir eru það sem
börnin lifa fyrir, sér-
staklega Joan, og uppá-
haldshestur hennar
heitir Hrafn, sem er
islenzkur hestur frá
Mosfellssveit.
Joan hafði áöur átt hest, sem
hét Lykke, en þegar sá hestur
veiktist og séð varö að hann kæmi
ekki til með að verða til mikilla
nota framar, tók Joan sig til og
safnaöi fyrir öðrum.
1 Hilleröd i Danmörku hitti hún
fyrir Fritz Haug, sem hefur flutt
islenzka hesta inn til Danmerkur.
Hrafn var ekki hlýðinn hestur, og
erfitt að eiga við hann, að
minnsta kosti var það ekki á
hvers manns færi að reyna að
tjónka við hann. En Fritz Haug
fullyrti að Joan og Hrafn ættu
eftir að koma til með að verða
góðir vinir, og hún fékk að fara
með hann heim til reynslu. Og
Fritz Haug hafði reynzt sannspár,
þeim kom alveg ágætlega saman,
hestinum og hinni 17 ára gömlu
stúlku.
Og nú er svo komið að enginn
fær að fara á bak honum nema
Joan. Það getur meira aö segja
verið hættulegt fyrir aðra að
koma nálægt honum, en við Joan
er hann eins og lamb. Hann fylgir
henni hvert sem hún fer, tryggur
og þolinmóður, næstum eins og
hundur sem fylgir manni.
Þegar Joan á siðasta ári vann
tvö verðlaun á dansk-islenzku
hestamóti, þurfti hún þó að hafa
sig alla við að gæta hestsins, þvi
aö svo villtur virðist hann i raun
og veru.
Fjölskyldan flutti i upphafi á
bæinn Myreholm, til þess að geta
verið i friði með hestana sfna.
Þau hafa nú búið þar i 10 ár, og
komið sér upp góðu hesthúsi.
Fyrir sjö árum töldu læknar Joan
dauövona. Hún er með hættu-
legan sjúkdóm,útgangur kirtla og
svitaholur stiflast, vegna þess að
vökvinn er of þykkur. Þetta or-
sakar ýmsa aukakvilla og hún
verður fyrir bragöiö móttækilegri
fyrir sjúkdómum. Joan hafði áöur
verið mikið fyrir hesta, og þegar
faðir hennar og móðir héldu að
hún ætti skammt eftir ólifaö,
glöddu þau hana með þvi að gefa
henni hestinn Lykke, sem áður er
getið.
Og það furðulega gerðist, það
var sem hesturinn veitti henni
nýjan þrótt, og Joan virtist
hressast að mun. Stuttu seinna
var Joan gefinn annar hestur,
sem heitir Tommi, en hann er
gamall sirkushestur, sem ekki
var lengur talinn fær um að gera
listir i sirkusnum. Og svo stuttu
siðar bættist svo Hrafn, uppá-
haldshesturinn hennar i hópinn.
Og þrátt fyrir það að enn er
ekki vitað hve Joan getur lifað
ler.gi vegna sjúkdómsins, hafa
hestarnir þrir veitt henni allt það
bezta sem henni fannst hún geta
fengið.
"*
Tommy er orðinn 28 ára gamall,
en hann hefur ekki gleymt öllum
sirkuskúnstunum.
Joan er sú eina sem fær að fara á
bak Hrafni. öðrum getur hann
reynst hættulegur.
Plastikaðgerðir ó 5-10 mínútum
Að fara i svokallaða plastað-
gerð á andliti, eða likama tekur
orðið styttri tima fyrir kvenfólk
heldur en að fara á snyrtistofu
og láta taka andlitið i gegn. Svo
segirDr. Robert Alan Franklyn,
einn af fremstu sérfræðingum i
þvi fagi i Hollywood.
Aöur fyrr gat það tekið upp
undir tvær vikur að gera aðgerð
á andliti eða á likama, en nú
kemur fólk i matarhléinu sinu.
Andlitslyfting svokölluð, tók til
dæmis áður fyrr 20-30 minutur,
og siðan þurfti að liggja á
sjúkrahúsi i tvær vikur. Nú hef-
ur timinn stytzt svo, að stúlka
getur látiö gera aðgerð á brjóst-
um sinum. og látið lyfta þeim á
5-10 minðtum, siðan getur hún
sprangað um á ströndinni eða á
strætunum sama daginn, með
annan likama.
Fólk notar sér matarhléin frá
vinnunni, kemur inn á sjúkra-
húsið, og lætur laga vangalla
sina á mjög stuttum tima. Til
dæmis er hægt að losna við
hrukkur á skemmri tima heldur
en tekur að fara á snyrtistofu.
Meiri háttar aðgerð tekur þó
aðeins lengri tima. Kona getur
komið á sjúkrahúsið á föstu-
degi, og látið laga nef sitt svo að
það gjörbreytist, látið laga eyru
sin og fjarlæga hrukkurnar og
svo getur hún fengið brjóstað-
gerð, allt saman á tveim dög-
um. Hún er tilbúin til þess að
fara heim áður en helgin er á
enda.
Dr. Franklyn hefur gert slikar
aðgerðir á mörgum mjög þekkt-
um persónum, en hann vill þó
ekki gefa nöfnin upp.
Slikar aðgerðir kosta offjár,
en Dr. Franklyn segist þó geta
gert slikar aögerðir fyrir lægra
verð.