Vísir - 08.08.1972, Side 2
2
Visir Þriðjudagurinn 8. ágúst 1972
Ferðafólk bjargaði
kindum úr svelti
nisiRsra:
Eruð þér i sértrúar-
flokki?
Guðmundur K. óskarsson.endur-
skoðandi: Já eiginlega má segja
þaö, ég er i KR!
licnóný liencdiktsson, verka-
maður: Þetta er svo léleg
spurning.svo helviti léleg, ég veit
ekki hvernig ég á að svara svona.
Nei, þaðá nú að heita svo að ég sé
ennþá i þjóðkirkjunni og verði
það áfram.
G u ð in u n (I u r Kjarlansson,
endurskoðunarnem i: Nei..Ég
telst vist vera i þjóðkirkjunni,
skirður og fermdur og allt svo-
leiðis.
Asgerður Guðjónsdóttir,
húsmóðir: Nei. Ég held ég fari
ekki að breyta um trú úr þessu.
Verð bara áfram i þjóðkirkjunni.
Benedikt Torfason, hljómlistar-
maður: Nei,ég er ekki i neinum
sértrúarsöfnuði. Ég held ég hafi
ekki áhuga á þvi.nema kannski
helzt aö gerast ásatrúarmaður.
Gunnar Arnkelsson, háskóla-
stúdent: Nei. Ég er nú ógurlega
laus við trú almennt. Ætli ég sé
ekki bara guðleysingi. Það stóð
tii einu sinni að ég segði mig úr
þjóðkirkjunni en varð ekki af þvi
svo maöur er vist ennþá i henni.
— Gamiir smaiar geta aldrei
vitað af kindum i sjálfheldu, segir
llelgi Hálmarsson, sem var einn
fjögurra manna, sem björguðu
þrem kindum úr svelti i Tinda-
fjallagili á sunnudag. Einn
þeirra, Guðmundur Magnússon
teiknikennari, seig i vaði 20 metra
i þverhniptu bjargi niður á syllu
Barn íæddist i lögreglubil á
leiöinni austan úr Grimsnesi og til
Keykjavikur á sunnudaginn var.
Það var uin miðjan dag og kona
sem stödd varaustur i Grimsnesi
tók léttasótt. Var það allnokkru
fyrir timann , að þvi er Sclfoss-
lögreglan tjáði Visi og þvi var
cnginn viðbúinn slikum ósköpum.
Selloss lörgeglan brá við hart og
náði i konuna ,,við fengum til
,,Að áliti lögreglumanna, sem
höfðu eftirlit með umferðinni á
þjóðvegunum, hafa svona 90%
ökumanna notað öryggisbeltin i
umferðinni um helgina,” sagði
Pétur Sveinbjarnarson ,
framkv.stjóri Umferðarráös,
sem um helgina var i stöðugu tal-
sambandi við löggæzluna viðs-
vegar um land.
öryggisbeltin komu sér lika vel
i óhappi, sem varð i gær á hæð
skammt frá Skorrastöðum, þar
sem tveir bilar rákust á, þegar
þeir mættust á Norðfjaröarvegi.
Beltunum var þakkað það, að
fólkið i bilunum slapp við alvar-
leg meiðsli, þótt áreksturinn væri
svo harður, að báðir bilarnir voru
óökufaTÍr eftir hann.
Hinsvegar voru ekki notuð
öryggisbelti i bifreið, sem ekið
Réðu ekki
við hraðan
undir lokin
— í skók Friðriks
og Larsen
Þaö skemmtiatriði sem
mesta athygli vakti á
Laugarvatni var litandi
skák milli Friðriks og
Larsen. Hún stóð yfir í
hálfa aðra klukkustund og
fylgdist mannfjöldinn
með af miklum
spenningi. Var sigri Frið-
riks tekið með fögnuði.
Guðmundur Arnlaugs-
son var dómari og lýsti
leikjunum í hátalara.
Sjálfir sátu skák-
mennirnir við litið tafl-
borð uppi á palli en fyrir
neðan var hinum lifandi
skákmönnum raðað og
voru þeir í viðeigandi
búningum. Vel gekk þeim
að færa sig til á rétta reiti
þar til í lokin. Þa var
hraðinn orðinn svo mikill í
leiknum að ekki var hægt
að láta hina lifandi tafl-
menn dansa slíkan
steppdans.
-SG.
þar sem kindurnar höfðust við.
Helgi sagði, að á sunnudag
heföi verið komið til ferðafólks-
ins, sem dvaldist í Skagfjörðs-
skála í Þórsmörk og sagt frá
kindunum, sem voru i sjálfheldu.
Það var Einar Halldórsson lög-
regluþjónn, sem hafði komiö
auga á þær, þar sem þær voru i
móts við okkur ljósmóður frá Sel-
fossi og ákváðum að halda beint
til Reykjavikur, þar eð þetta var
fyrirtimafæðing og ekki aðstaða
til að taka á móti barninu á Sei-
fossi. Þar var lika mikið að gera.
Barnið fæddist svo þegar við
vorum á móts við Lækjarbotna og
ég held að það hafi allt gengið vel.
Þaö eru góð tæki i flestum
lögreglubilum, sem nota á i svona
var út af veginum á Mosfellsheiði
um hádegi á sunnudag. t bilnum
voru maður og kona, og fékk
hann höfuðáverka og heilahrist-
ing, en hún skaddaðist á hryggj-
ar- og hálsliðum. Bæði voru lögð
inn á Borgarsjúkrahúsið.
Tvö önnur óhöpp urðu i umferð-
inni á þjóðvegunum um helgina.
Annað á Egilsstöðum, þar sem
tveir bilar lentu i árekstri, en
fólkið slapp með litil meiðsli. Hitt
við Svinavatn i Húnavatnssýslu,
þar sem ungur piltur ók bil sinum
út af og meiddist, svo að leggja
varð hann inn á sjúkrahúsið á
Blönduósi.
Mun minni umferð var norðan-
lands um þessa verzlunarmanna-
helgi en undanfarin ár, en á
hinn bóginn var mikil umferð
austur i sýslum.
Tindfjallagili rétt austan viö
Tröllakirkju.
— Við hóuðum saman 20-30
manns og fórum á staðinn og eftir
dágóða stund tókst okkur að
handsama kindurnar, sem voru
dregnar upp á lausum kaðli.
Þetta voru tvær fullorðnar ær og
eitt lamb og mjög mjóslegnar
tilvikum. Súrefnistæki og annað
slikt.”
Sagði lögreglan að suðurum-
ferðin hefði sótzt vel „það var svo
mikil umferð austur, en fritt leiði
á móti umferðinni — verst að
komast áfram á Grimsnesinu þvi
þar var mikil umferð ivoðalegt
ryk og sást litt til ferða okkar
þrátt fyrir blikkandi rauð ljos.”
F'ólk sem leið átti um Hellis-
heiði og Svinahraun um það leyti,
sem lögreglubifreiðin frá Selfossi
kom með konuna, veitti eftirtekt
Hvergi erlendis hafa menn
heyrt dæmi þess, að öryggisbelti
væru svo almennt notuð sem
menn urðu varir við um þessa
helgi hér á þjóðvegunum. En þar
sem umferðaryfirvöld hafa lagt
svo mikið kapp á það að hvetja
menn til að nota þessi þarfaþing,
hefur það vakið furðu vegfar-
enda, að lögreglumenn og sjúkra-
flutningsmenn skuli ekki nota þau
lika við störf sin á vegunum. Eftir
þvi þykjast menn nefnilega hafa
tekið, að það heyri til algerra
undantekninga — aö minnsta
kosti hér innanbæjar i Reykjavik
— að þessir aðilar sjáist nota
öryggisbelti við akstur sinna bif-
reiða. Og enginn hefur séð leigu-
bilstjóra, eða strætisvagnstjóra
nota öryggisbelti.
-qp
orðnar og mátti heita að mætti
telja i þeim hvert rifbein. Sýnilegt
var, að lambið hafði fengið að
sjúga báðar ærnar en þröngt var
orðið um kostinn, kindurnar
byrjaðar að borða mold. Annað
lamb var alltaf á sveimi i hliðun-
um hjá og var það undan annarri
kindinni.
Syllan, sem þær stóðu á, hefur
verið um hálft annað fet. Þangað
seig Guömundur og var hann
fljótur að koma kindunum upp
enda er hann snöggur i hreyfing-
um.
Kindurnar voru orðnar mjög
máttfarnar en það . fyrsta,
sem viö gerðum eftir að þær voru
komnar upp var að gefa þeim aö
drekka.
—SB—
nýlegum blágrænum Volvo-bil,
sem fylgdi lögreglubilnum fast
eftir. Heldu sumir að þar væri á
ferð einhver aðstandandi t.d.
verðandi barnsfaðir, en svo var
vist ekki, „Þetta var bara einhver
að skemmta sér”, sagði lögregl-
an, „hann var með læti f fylgdi
okkur fast eftir hluta af leiðinni.
Hefur haft eitthvað gaman af
þessu.
Er þetta i annað skipti á viku-
tima að Selfosslegreglan lendir i
fæðingarhjálp i bilum sinum. GG.
Einn missti fingur,
annar fótbrotnaði
og sá þriðji....
Á meðan verzlunarfólk naut
helgarfrisins hófu aðrar stéttir
vinnu i gærmorgun að liðinni
venjulegri helgi hjá þeim. En
vinnan gekk ekki slysalaust fyrir
sig. Maður einn sem var að vinna
i gær við grjótmulningsvél
Björgunar h.f. i Vatnagörðum,
varð fyrir þvi óhappi að festa
handlegginn i færbandi sem flutti
grjót, að mulningsvélinni. .Hann
hlaut stórt sár á upphandlegg.
Annar maður, sem var að dytta
að húsi sinu við Nesveg, féll úr
stiga og fótbrotnaði. Hann var að
laga glugga á annarri hæð, þegar
stiginn rann til undan honum.
Þriðja vinnuslysið varð eld-
snemma á laugardagsmorgun,
þegar einn starfsmanna Kassa-
gerðarinnar, sem vann þar við
svonefnda bylgjuvél, lenti með
aðra hendina i vélinni og tók litla
fingurinn af. -GP.
BARN FÆDDIST í LÖGREGLUBÍL
— rétt einu sinni hjó þeim ó Selfossi
90% notuðu ðryggisbellín
sem komu sér vel í þeim fóu óhöppum,sem urðuþessa mestu umferðarhelgi