Vísir - 08.08.1972, Blaðsíða 13
Loeknar
lömunarveiki,
migreni,
sykursýki
og gigt
með nól
1 ' .
• ;■•••• :.2S
rjoei Westergaard er f*dd i Kina og var þvi ekki smeyk v»6 «0 íát& frMda sbw, Lee Kim Bee, gera á s<r
nálastungu akgerðina.
Þannig er hálsbólga
læknuð eftir kinverskum
aðferðum eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd.
Tjoei Westergaard,
verzlunarkona i Kaup-
mannahöfn varð alveg
frisk eftir að hafa látið
frænda sinn, Lee Kim
Bee, stinga tvisvar
sinnum langri silfurnál
inn á háls sér. Lee Kim
Bee er frá Djakarta i
Indonesiu, og hann er
sérfræðingur i þessari
4000 ára gömlu list
Kinverja. Eins og er,er
hann staddur i Evrópu
til þess að kenna áhuga-
mönnum þessa sér-
kennilegu læknisfræði.
Enginn sársauki
Með hjálp nála sinna, sem eru
sumar hverjar 14 cm langar,
getur hann meðal annars læknað
alvarlegri sjúkdðma, svo sem
lömunarveiki, migreni, gigt,
flogaveiki, sykursýkiog kyndeyfð
Nálinni er komið fyrir milii
tauganna og vöðvanna, en mjög
þétt viö taugarnar Sjúklingurinn
finnur ekkert, en fær þö snöggan
sjálftakipp um likamann, sem
veldur ekki sársauka. En það
þarf lika mikla þjálfun og athygli
til þess að koma nálinni á réttan
stað.
t Kina eru nálarnar einnig
notaöar viðuppskurði. Með þvi að
koma nálum fyrir i taugum, er
hægt aðgera hluta af likamanum
algjöriega tilfinningalausa, og
sjúklingar eru með fullri með-
vitund meðan aðgeröin fer fram,
án þess að finna nokkurn
sársauka.
l^æknaði sjúkling, sem
læfcnar gátu ekkert gert
lyrir.
Lee Kim Bee segist ekki skilja i
þvi hvers vegna þessi nálar-
stunguaðferð er ekki notuð i
Vesturiöndum. 1 Hamborg, þar
sem hann kynnti þýzkum læknum
þessa aöferð, fékk hann i hendur
þýzka konu, sem þjáðist stöðugt
af miklum höfuðverkjum, eftir aö
hafa lent i slysi fyrir nokkrum
árum. Læknar höfðu ekkert getaö
fyrir hana gert, og aðeins sagt
henni að hún yrði að venja sig við
sársaukann. Með nálarstunguað-
ferðinni gat Lee Kim Bee gert
hana heilbrigða.
í Bandarikjunum hefur vaknað
áhugi fyrir þessari læknisaðferð
og sömuleiðis i Danmörku. Um
þessarmundir erdanskur læknir
i Kina að kynna sér slikar
lækningar.
Umsjón:
Eddo
Andrésdóttir
ROMAN POLANSKI:
„Hef meiri rétt til þess að
fromleiðo hryllingskvikmyndir
en nokkur
Kvikmyndafram-
leiðandinn Roman
Folanski, eiginmaður
Sharon Tate, sem
myrt var á óhugnan-
legan hátt eins og
ftestir muna, heldur
enn áfram að fram-
leiða ofsafullar hryll-
ingsmyndir, þrátt fyr-
ir þann hrylling sem
hann sjálfur hefur
orðið að ganga i gegn-
um i lifinu.
Nýjasta kvikmynd hans er:
Macbeth og er eins og þær
fyrri þrungin spennu. „Mér
finnst ég háfa meírí réft en
nokkur annar kvikmynda-
framleiðandi i dag, til þess aö
annor"
framleiða svona kvikmyndir,
og ég held ég hafi meiri
þekkingu á þvi sem ég er að
gera en nokkur annar”, segir
Roman Polanski.
„Ég hef lifað óhugnanlegra
lifi en flestir aðrir”, heldur
hann áfram. „Og ég meina
ekki aðeins morðiö á Sharon
og hinum sem myrtir voru þá,
heldur er ég lika að tala um
bernsku mína. Ég eyddi henni
i fátækrahverfi i Póllandi, og
þaö var sannur óhugnanleiki.
Ekki eins og þessi i kvik-
myndunum!!
„Þegar Nasistarnir voru i
Póllandi komu nokkrir þeirra
að húsi okkar i Póllandi, þar
sem margar fjölskyldur
bjuggu. Ég horfði á þá draga
konu á hárinu niður stiga.
Stuttu siöar var móðir min
myrt af þeim, og ég veit
hvernig sú tilfinning er að sjá
heila fjölskyldu hreint og beint
þurrkaða út”.
Polanski segist halda að
áhorfendur vilji helzt fá
hryllingskvikmyndir eða
aörar þær sem hafa mjög
sterk og mikil áhrif, sársauki,
ást eða annað. „Fólk hefur
sagt mér, að þær senur minar
sem eru gæddar spennu, séu
stórkostlegar, og ég trúi þvi”.
Polanski segir ennfremur að
bezta leiðin til þess að ná sem
mestri spennu og óhugnan-
leika fram i kvikmyndum sé
að reyna eftir megni að lifa
sig inn i það sem hann er að
gera.
„Ég imynda mér að það
sem er að gerast við upptöku
sé að gerast i rauninni, og það
endar með þvi að mér finnst
þetta ekki lengur leikur. Ég
hugsa um sjálfan mig sem
barn, og ég hugsa um hvernig
Sharon hefur liðið þegar hún
var myrt. Ef ég get fengið mig
til þess að hugsa um það, veit
ég að áhorfendum mun falla
atriðið vel”.
0 Fóðurkvörn, sem malar svart gull
Þessi Fróðakvörn malar gull,
svart gull úr Norðursjónum, þar
sem þeir hafa veriðaðfinna oliu á
undanförnum árum. Nokkrir slfk-
ir borturnar hafa risið þar upp úr
hafflelinum til þess að bora eftir
oliunni.
Síðasti fundurinn var á svo-'
nefndum Dorehull, sem liggur i
um það bil 300 km fjarlægð suð-
austur af Stavanger. Or tveim
borholum, sem gerðar hafa verið
þarna i Dorehull, hafa fengist til
þessa 4300 tunnur af oliu og rúm-
ar 4,2 mitljónir kúbikfeta af gasi.
Þetta ku vera góð olia, brenni-
steinsfrí, og 0,83-084 að eðlis-
þyngd.
„Zapata Explorer” heitir bor-
turninn, sem þessar myndir eru
teknar af — önnur úr lofti og hin
af sjó. Þessi mannvirki eru,
eins og myndirnar bera með sér,
samsett af mikilli tækni,og eru i
sjálfu sér dæmi um snilld manns-
ins, þegar hann leggur sig fram i
giimunni við náttúröflin.