Vísir - 10.08.1972, Page 1
62. árg. — Fimmtudagur 10. ágúst—179 tbl.
SIGRUM VIÐ
INFLÚENSUNA?
Tekst okkur að ráða við
bansetta flensuna að lokum?
Bandarisk stjórnvöld til-
kynna, að nýtt bóluefni hafi
verið gert sem þau teiji að
muni valda byitingu 1 barátt-
unni við veikina. Hún eigi
ekki lengur að verða sá
skelfir heimsbyggðarinnar,
sem hún hefur verið, þegar
efnið verður leyft almennt.
SJÁ BLS5
Eftir margra vikna rólegheit ó slökkvivakt:
Slökkvibílar á þönum um
alla borgina í gœrkvöldi
Hinn gleymdi
hluti hússins
Eitt er það „herbergi” i
ibúðum hér á iandi, sem
oftast verður út undan, —
það eru svalirnar. Mögu-
leikarnir á að gera svalirnar
virkilega skemmtilegar og
aðlaðandi eru margir. Við
ræddum við Jón H. Björns-
son skrúðgarðaarkitekt um
ýmislegt viðvikjandi þessum
gleymda hluta hússins.
SJA INN-SIÐU A BLS 7
Hún lœrir múl
Konsómanna
Hún Hulda Björg, fimm ára
gömul Reykjavikurtelpa,
verður senn farin að reyna
við nýtt tungumál, mál
Konsómanna i Afriku, en
þangað eru foreldrar hennar
að flytja og munu starfa þar
að kristniboði. Við ræddum
við foreldra hennar i gær.
SJA BLS2
Rússarnir og
hestaheilsa
i Sovét hafa menn náð hvað
hæstum aldri að þvi talið er,
og vitað er um menn sem
náð hafa meira en 150 ára
aldri. Það er þvi ekki úr vegi
aö kynna sér hvað prófessor i
Moskvu ráðleggur mönnum
sem vilja njóta langra lif-
daga — án þess að vera
stöðugt i heimsókn hjá
læknum.
SJA NU-siðuna A BLS 4
Hvaða tökum ú að
taka „riddara"
þjóðveganna?
Það hefur vakiö athygli
hversu föstum tökuin lög-
reglan tók nokkra „riddara
þjóðveganna”, sem geistust
frain úr allri umferð um síð-
ustu helgi á ofsahraða. Við
spurðum nokkra veg-
farendur hvort þeim þætti
lögreglan taka of harkalega
á þessum kappaksturs -
„hetjum” þröngu þjóðveg-
anna okkar.
SJA BLS2
Faðmlög
í geimnum
Merkileg tiðindi i kalda
striðinu. Stórveldin ætla að
„faömast” úti i geimnum.
Bandarikjamenn og Rússar
undirbúa geimferð i sam-
vinnu, meöal annars til þess,
að hver geti bjargað öðrum,
ef geimför lenda i háska
siðar meir.
SJA BLS 6.
Það var eins og allt
ætlaði um koll að keyra
á skiptiborðinu hjá
slökkviliðinu i gær-
kvöldi. Á stuttum tima
ringdi inn tilkynningum
um eldsvoða hér og hvar
i bænum.
Mestur stuggur stóð mönnum
af eldi, sem kviknað hafði við
sorpeyðingarstöðina i gærkvöldi
um kl. 21. Mikinn reyk lagði það-
an, og hefði mátt halda að um
stórbruna væri að ræða, ef
slökkviliðsmenn væru ekki orðnir
vanir þvi, að kviknaði i ruslinu
þarna uppi á Ártúnshöfðanum.
Þrir slökkvibilar voru sendir með
miklu irafári á staðinn, en þá kom
i ljós, eins og við mátti búast, að
kviknað hafði i rusli, og var það
fljótlega slökkt.
Skömmu áður hafði slökkviliðið
verið kvatt að ibúðarhúsi i
Drápuhlið, en þar reyndist eldur-
inn vera i tveim rúmdýnum, sem
kviknað hafði i. Reyk lagðf þar út
úr ibúðinni nægilega mikinn til
þess að skjóta mönnum skelk i
bringu.
Siðar um kvöldið var slökkvi-
liðið kvatt að sumarbústað við
Rauðavatn, sem talinn var
standa i ljósum logum, en reynd-
ist svo aðeins vera rusl að brenna.
Og i sömu andránni, sem liðið var
kallað út i sumarbústaðinn, kvað
við annað útkall að barnaleik-
vellinum i Kópavogi, sem sömu-
leiðis reyndist ekki stórkostlegra
en hitt.
„Þaðer sjaldan ein báran stök,
þá loks eitthvað skeöur,” varð
einum brunavarðanna að orði,
sem gengið hefur brunavaktir
undanfarnar vikur, án þess að eitt
einasta brunaútkall kæmi, fyrr en
nú. —GP
— „litla borgin"
barnanna fékk
heimsókn slökkviliðsins
- sjó baksíðu
Dauða-
stríð
Hamra-
ness
í Stern
SOS, við eruin að sökkva,
er fyrirsögn i þýzka timarit-
inu Stcrn frá þvi 20. júli sl.
Þar eru birtar myndir frá
dauðastriöi togarans
Hamraness, sem sökk i djúp-
ið þann 18. júni siðastliðinn.
Stern birtir nokkrar myndir
úr myndaseriu þcirri sem
birtist i Visi daginn eftir að
togarinn sökk. Myndirnar og
litil grein þekja heila opnu i
Stcrn.
Ljósmyndirnar tók 22 ára
gainall liáseti á Hamranesi,
Fritz Glahn frá Köln og
scndi hann þær til Stern.
i litilli grein sem fylgir
myndunum segir mcðal ann-
ars, að ósköp hversdagslega
og rólega liafi Hamranesið
sleppt netum sinum i Norö-
ur-Atlantshafið, en þá hafi
„Kapteinn” Guðmundsson
allt i einu fundið snöggan
kipp, titringur hafi farið um
skipiö, og sjórinnn tekið að
renna inn.
Skipverjar bafi þá sent út
neyðarkali, og Narfi bjargað
þcim um borð. Siðast i grein-
inni segir að orsök þcssa sé
tundurfufl frá þvi i seinni
heimstyrjöldinni. —EA
Þeir eru aö mála dómkirkjuna þessa dagana, „og ég veit ekki annað en hún
verði höfð í sama lit eða svipuðum og áður," sagði kirkjuvörðurinn, Jóhannes
Bjarni Magnússon.
Dómkirkjan í Reykjavík er orðin 175ára gömul, ,,og þarf furðulitið viðhald",
sagði Jóhannes Bjarni, ,,við hreinsuðum hana nú að innan, og þyrfti raunar að
mála hana innanverða líka, en það verður látið bíða um sinn — hreingerningin
gerði henni gott, hún er orðin bjartari."
Sagði Jóhannesað ein sjö ár myndu nú liðin, frá því kirkjan var síðast máluð
að utanverðu — ,,og núna vinna líka við hana múrarar, sem slétta veggina —
vinna hana nokkuð undir málninguna. Málararnir eru núna búnir að sand-
blás.a kirkjuna og hreinsa hana upp, þannig að bráðlega fer hún aftur að setja
upp gamalkunnan svip." -GG.