Vísir - 10.08.1972, Síða 3

Vísir - 10.08.1972, Síða 3
Visir Fimmtudagur 10. ágúst 1972 3 ,Víða tekjuvonir Skáksambandinu hjá — segir Guðjón Stefánsson Krakkar komnir í berjamó — en ber varla full- þroskuð ennþá Nýi peningurinn vekur athygli „Við vorum mjög ánægðir með aðsóknina i gær, sem var um 1500 manns.” sagöi Guöjón Stefáns- son, framkvæmdastjóri Skák- sambandsins, i stuttu viðtali við Visi i morgun. „Upphaflega höfð- um viöreiknaðmeð að þyrftilOOO manns inn á hverja skák en nú hefur sú tala hækkað upp i 1500. Það stafar auðvitað af þvi að engar kvikmyndatökur hafa átt sér stað nema i tveim skákum. Ég get ekki séð að ne'in breyting verði á afstöðu Fischers til þeirra mála þannig að ég reikna með þvi að við getum ekki gert okkur miklar gróðavonir i sambandi við kvikmyndir. - Það er auðvitað slæmt að hafa ekki atburðinn á filmu en það má vel vera að eitthvað megi hafa út úr þessum litlu kvikmyndatök- um. Varðandi samninginn við Fox þá eigum við að fá 50% af söl- unni og hann 50%. Keppendur fá svo 60% af okkar hlut þ.e. 30% hvor af nettó ágóðanum. Nú, við höfum reyndar margar tekjuvonir fyrir utan kvik- myndirnar. Skákpeningurinn og tekjur af væntanlegri útgáfu starfsemi er þar auðvitað þyngst á metunum. 1 gær höfðum við nýja peninginn til sýnis og feng- um margar pantanir og almennt virtist fólk mjög ánægt með pen- inginn. Ég get nú ekkert gefið upp að svo stöddu um hve upplagið verð- ur mikið, en það kemur i ljós ein- hvern næstu daga. Við búumst við þvi að þessi útgáfa á nýja pen- ingnum gefi mikið af sér i aðra hönd og ég held að við megum vera nokkuð bjartsýnir hjá Skák- sambandinu svona almennt með þróun einvigismála,” sagði Guð- jón að lokum. GF NYJAR ISLENZKAR EFTIR HELGI Bændur i Þykkvabænum munu byrja að taka upp kartöflur eftir fjóra til fimm daga. Um eða eftir helgina má þvi búast við nýjum islenzkum kartöflum á markað- inn. Kartöflusprettan litur mjög sæmilega út, að sögn Magnúsar Sigurlássonar framkvæmda- stjóra i Þykkvabæ. — Hún er heldur seinna á ferð- inni en i fyrra, um það bil 10—14 dögum seinna, en þá voru kartöfl- ur frekar fljótsprottnar. Nú var rakt og kalt i júli og taföi það heldur fyrir. — Hefur gætt næturfrosta hjá ykkur? — Nei, það hefur verið kalt á nóttunni en alltaf andvari og þá er ekki hætta á næturfrosti. — Svo viö megum búast við is- lenzkum kartöflum bráðlega? — Já, ætli maður reyni ekki að hlifa ykkur við að borða þennan óþverra, sem nú fæst. Alltaf er þetta islenzka bezt, ef það er á annað borði í lagi. —SB— Kaffiterían opnuð um nœtur fyrir Fischer Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að hýsa fræga menn sem auk þess snúa sólárhringnum við. Það hefur starfsfólk Loftleiða- hótelsins fengið að reyna siðan Robert Fischer tók sér þar aðset- ur. Hann vakir fram eftir allri nóttu sem kunnugt er og spilar þá oft keiluspil súður á Keflavikur- flugvelli. Þegar hann kemur sið- an heim siðla nætur finnur hann oft til svengdar og fer þá fram á að fá ýmsa rétti. Matsveinar hótelsins vinna ekki yfir nóttina fremur en á öðrum hótelum bæj- arins, en oftast er reynt að verða við óskum skákmeistarans. Það starfsfólk sem er á vakt yfir nótt- ina setur sig þá i kokkastellingar og útbýr eftir beztu getu þá rétti sem Fischer fer fram á. Oft hefur orðið að opna kaffi- teriuna um miðjar nætur til að hann geti nærzt þar og er reynt að uppfylla óskir hans i hvitvetna. —SG Spaskí sneri taflinu við... Hafði í hótunum undir lokin Þegar biðskák 12. skákar hófst i gær kom i Ijós að Spasski lumaði á ýmsu sem virtist koma Fischer á óvart. Geller & Co. höfðu unnið sina heimavinnu vel af hendi og fundið nákvæmlega rétta áætlun fyrir Spasski. 1 biðleiknum lék Fischer eins og við mátti búast Dc6. Spasski haföi svar á reiðum höndum (Dc2) og kom brátt hrók sin- um á 2. linu hvits. Skyndilega hafði hann náð örlitlu frumkvæði og neyddi Fischer til þess að rjúfa biskupaparið meö þvi að skipta upp á riddaranum á f6. En Fischer tefldi vörnina vel og Spasski varð ekkert ágengt i vinningstilraunum sinum. Að lokum fór svo að mikil uppskipti áttu sér stað og út úr þeim hildarleik slapp Spasski með peð yfir. En staðan var fræðilegt jafn- tefli. Hvor um sig hafði biskup og Fischer þrjú peð en Spasski fjög- ur. Biskuparnir voru mislitir og þvi ógjörningur fyrir Spasski að tefla til sigurs. Keppendur sömdu því jafntefli eftir 54 leikja bar- áttu. Staðan i einviginu er þvi sú eftirl2iskákir aö Fischer hefur 7 vinninga en Spasski 5. 13. skákin verður tefld í dag kl. 5 og hefur Spasski hvitt. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. Spasski 1101/20 0 1/2 0 1/2 0 1 1/2 Fischer 0011/21 1 1/2 1 1/2 1 0 1/2 1. stöðumynd 2. stöðumynd 41. Dc6 Dc2 45. Df3 f5 42. Be5 Hd2 46. g4 De4 43. Da8+ Kh7 47. Kg2 Kg6 44. Bxf6 gxf6 48. Hcl Ba3 Heimsmeistaraeinvigið i skák. 12. skákin. Hvitt: R. Fischer Svart: B. Spasskí 3 stöðumynd 4 stöðumynd 49. Hal 50. Hcl 51. gxf5+ 52. Hel Bb4 53. Kxf2 Be7 54. Ke2 exf5 55. Kxf3 Hxf2+ Samið jafntefli. Bh4+ Dxf3 + Bxel Berjasprettan í ár virðist ætla að verða rétt um meðallag. Visir hefur svolitið reynt að njósna um sprettuna sunnan lands og vestan, og eru menn ekkert afskaplega ánægðir með stærð berjanna. „Ég sé að krakkar eru talsvert farnir að tina þessi ber,” sagði Arni Helgason i Stykkishólmi, ' «en það litla sem ég hef séð, er enn ekki tirr',-'.,i£ft — þetta er venju- lega goft ber jaland hér i kringum Hólminn, en ég hef grun um að ber verði heldur seinna á ferðinni i ár en i meðalári — þið ættuð að reyna að tala við mig eftir svo sem viku. Það er i kringum 20. ágúst sem maður getur átt von á að ber séu orðin velþroskuð.” Og fleiri tóku i sama streng. Maður einn sem nýlega rýndi svolitið niður i krækiberjalyng á Vestfjörðum fullyrti að enginn vanur berjatinslugarpur nennti að leggjast á fjórar fætur til að kroDPa upp þau smágerðu ber sem jiar væru nú — „kannski litur betur út með stærð berjanna eftir viku eða tiu daga, en mér virðist vera talsvert um berin,” sagði maðurinn. Og heimamaður i Mosfells- dalnum sagðist engin ber hafa séð enn, „a.m.k. ekki hér næst hús- um. Það getur vel verið að krökkt sé af berjum uppi á heiði, ég á þó ekki von á að þau þroskist þannig aö þau veröi tinsluhæf fyrr en eft- ir viku i fyrsta lagi. Þótt vorið hafi verið gott, þá var júli kaldur og það hefur sennilega dregiö úr vexti berjanna”. —GG. Hún var ó Laugarvatni Þessi unga og bráðfall- ega stúlka var meðal þeirra þúsunda unglinga sem dvöldust að Laugar- vatni um verzlunar- mannahelgina. Sól skein i heiði og því óþarfi að dúða sig í peysur og sem betur fer hefur sólin haldið áfram að skína síðan þá. Auglýsinga- verð hœkkar Auglýsingaverð Visis hækk- aði um siðustu mánaðamót, — en áskriftarverð og lausa- söluverð blaðsins verður áfram hið sama. Verð aug- lýsinga i blaöinu nú er kr. 180 fyrir hvern dálksentimetra. Umsjón: Gunnar Finnsson Jóhann ÖrnSigurjónsson 5. stöðumynd. Jóhann örn Sigurjónsson. © JSJH 11 11 ±4 1 1 ■ JLA & Irf ± m 11 ■ S@ # 1 ® 11 1 ±r JlA & 1 1 #1 ii jj£9l iiipt 1 11 »1 11 1 & # t Aá i # i ,K 1® 3' : . ■ HH 1 m m #i £nte i A jp i 1 i 1

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.