Vísir - 21.08.1972, Page 3
3
V’isir Mánudagur 21. ágúst 1972
,,Ég ætla aö vera lyf jafræöing-
ur”. Sigrun Hjálmtýrsdóttir i
gervi litlu frken Gúömundsen.
A fyrsta bekknum : Stella, eiginkona Róberts Arnfinnssonar, Auöur og Halldór Laxness og á bak viö þau sjáum viö Kristján Davfösson.
„Hefur einhver séð
' hott?'
- með „loglausu íslenzku heldra
fólki og lœrdómsmönnum"
í Gútemplarahúsinu
„ja, þetta kögur lizt mér ekki nógu vel á” segir Laxnes. Sölvi Kern, Hadrich, fröken Gúömunsen og
Ceirlaug aöstoöarstúlka ræöa viö Laxness um sjaliö hennar litlu fröken Gúömunsen.
,,Hefur einhver séð pípu-
hattinn minn”. Það er
sjálfur biskupinn, sem
spyr, leikinn af Halldóri
Kiljan Laxness. Við erum
stödd í Gútemplarahúsinu í
Reykjavík fyrir allnokkr-
um áratugum og lúðra-
sveitin er búin að „þríspila
Bjarnarborgarmarsinn upp
til agna."
Það er sem sagt veriö aö kvik-
mynda Brekkukotið og Gúttó i
Hafnarfirði er upp á sitt bezta i
tilefni dagsins, skreytt eins og
tiðkaöist á söngskemmtunum eft-
ir aldamótin. Hér á að taka um 10
minútna atriöi þar sem „langa
flónið úr Brekkukoti, hann Alf-
grimur kemur upp á pall sem
staðgengill veraldarsöngvarans
Garðars Hólm.
Þetta er fyrsta hópatriðið sem
tekið er i myndinni og hér eru
mættir ekki færri en 72 leikarar
uppábúnir og finir, enda er þetta
„laglaust islenzkt heldrafólk og
lærdómsmenn”, eins og skáldið
segir.
Og skáldið er enn að leita að
pipuhattinum sinum og við spyrj-
um hann i leiðinni hvernig honum
finnist að leika i kvikmynd.
,,Ha, mér að leika, jú bara
ágætt, ja, svosem eins og hvað
annað sem maður tekur sér fyrir
hendur”. Þarmeð kemur kona
hans, Auður á peysufötum, og
drifur hann með sér á fyrsta
bekkinn, þar sem þau hjón eiga
að sitja.
Nú eru þeir Hadrich leikstjóri
og Sveinn Einarsson hættir að
spila á pianóið uppi á sviöi, en
Hadrich hefur nokkra stund verið
að glima við söngbókina hennar
Hárgreiðslu- og
hárskurðarsýn ing
Madam Strúbenhols og Sveinn fer
að leita að armbandsúrum og
gleraugum á leikurunum. Nei,
enginn reynist hafa gleymt að
tina slikt af sér og nú er allt að
verða tilbúið i fyrstu töku.
Leikurunum er raðað niður á
bekkina, á fyrsta bekk eru ásamt
Laxnes og frú, Róbert Arnfinns-
son og kona hans, Stella, á öðrum
bekk er Kristján Daviösson list-
málari og kona hans, Svanhildur,
Thor Vilhjálmsson er þarna einn-
ig ásamt syni sinum og svo mætti
lengi telja.
Úti i horni stendur hvitklædd
stúlka með mikið ljóst hár og við
tökum hana tali. Jú, þetta er ein-
mitt litla fröken Gúömunsen,
leikin af Sigrúnu Hjálmtýsdóttur.
„Nei, ég býst ekki við að ég fari
að læra leiklist. Ég ætla að verða
lyfjafræðingur. Ég fer i Menntó i
vetur. Annars er þetta anzi gam-
an”.
„Ertu ekkert taugaóstyrk?”
„Nei, nei, það þýðir ekkert, þá
fer allt i skrall.”
Hér er komin aðstoðarstúlka og
litla fröken Gúðmunsen snýr sér
að henni og segir „A ég virkilega
að vera með þessa nábleiku
hanska?” Nú kemur Hádrich á
vettvang og hann segir okkur að
þetta gangi fint, nú eigi að byrja
fyrstu tökuna.
„Þetta er ágætt hús, stórfint, og
þessi bær er einstaklega
skemmtilegur”.
Um leið og við smeygjum okkur
út um dyrnar, kemur saumakona
hlaupandi með stifpressaðar bux-
ur á handleggnum.
„Hérna eru buxurnar á hann
Kristján”. Buxurnar eru hand-
langað til Kristjáns Daviðssonar
og við yfirgefum húsið meðan
Kristján vindur sér i buxurnar.
_T' ÞS
—O/
Sveinn tekur lagiö og Hadrich leikur undir upp úr söngbók madam
Strúbenhols.
Forsala aðgpngumiða á sýninguna
Hárgreiöslustofan Venus, Hallveigarstöðum
Hárgreiðsiustofan Krista, Grundarstíg 2
Hárgreiðslustofan Tinna, Grensásvegi 50
Rakarastofan Klapparstig, Laugavegi 20B
Rakarastofan Eimskipafélagshúsinu, Pósthússtræti
Leo Fassage
þriðjudaginn 22. ágúst
Hinn heimsfrægi hárgreiöslumeist-
ari LEO PASSAGE sýnir ásamt
DIETMAR PLAINER Austurrlkis-
manni sem hefur haldiö námskeiö og
sýnt i 74 löndum.
Auk þess koma fram sænski
meistarinn EWERT PREUTZ og
danski meistarinn POUL E.
JENSEN
Tækifæri til að sjá sýningu
sem þessa, gefst ekki á
næstu árum.
Aögöngumiöar seldir viö innganginn
verö kr. 500,00 Húsiö opnaö kl. 7.
Matur seldur frá sama tima
Dietmar Plainer
að Hótel Sögu