Vísir - 21.08.1972, Blaðsíða 10

Vísir - 21.08.1972, Blaðsíða 10
10 Visir Mánudagur 21. ágúst 1972 *««»* mK,.., ■ ■ > . Gamlir Iteykvikingar velta vöngum yfir þvi hvar þeir fái munntóhak eftir aö Söluturninn hefur iokiö sinni 65 ára þjónustu viö Arnarhól. Söluturninn við Arnorhól fluttur um mánaðamótin „Hvar fáum við þá munntóbak?" spyrja gamlir Reykvíkingar Söluturninn við Arnar- hól verður fluttur upp í Arbæ um næstu món- aðarmót. Þessi flutn- ingur er gerður vegna stækkunar Lækjar- götunnar en þar sem söluturninn er núna verður gengið fró gang- stéttum og snyrttil með- fram Arnarhóli Sölutuminn ó sér aII- langa sögu. íslenskur vesturfari kom þessum fyrsta söluturni upp órið 1913 eða 1914 ó Lækjar- torgi eftir að hann kom heim. Seinni eigendur voru Sveinn á Mælifellsó og síðan ólafur Sveinsson fró Mælifellsó. Turninn hefur veriö leigður út undanfarið. Visir talaði við Þórönnu Þórarinsdóttur konu Kristjáns Guðbjartssonar, sem hefur rekið turninn að undanförnu. — Hverjir hafa aðallega skipt við turninn? — Kannski aðallega leigu- bilstjórarnir við hliðina, sem hafa enga aðstöðu nema staurinn með simanum. Svo skiptir við okkur fólk úr næstu húsum eins og stjórnarráðs- húsinu og húsinu hér fyrir of- an hjá Garðari Gislasyni og fleiri húsum. En viðskiptin hafa annars verið ósköp litil eftir að götunni var breytt. Það er miklu erfiðara að kom- ast yfir og skil ég varla i, að fólk leggi það almennt á sig, fari þá heldur eitthvað annað. — Hafa þeir i stjórnaraáð- inu látiö það hafa áhrif á sig? — Ja, ég hef a.m.k fengið ráðherra i heimsókn hvort sem þeir hafa nú lagt yfir göt- un eða komið við i leiöinni, þegar þeir hafa verið á leið- inni niður eftir. Þess skal getið, að söluturn- inn hefur verið nægtarbrunnur gamalla Reykvikinga, sem hafa komið þangað til að kaupa sér munntóbakið sitt. Nú velta þeir vöngum yfir þvi hvert þeir eiga að leita næst, eftir að söluturninn hef- ur verið lagður niður. Einnig er þeim eftirsjá i turninum sjálfum, þvi ekki mun um annan söluturn að ræða með þessu skemmtilega og for- kostulega útliti, sem glatt hef- ur margan Reykvikinginn um áratuga skeið. En það yröi svo sannarlega slæmt ef þeir gömlu Reykvik- ingar sem neytt haf munn- tóbaksins svo lengi þyrftu að segja skilið við það. vegna þess að turninn mun nú færð- ur. Við höfðum samband við Afengis- og tóbaksverzlun rikisins vegna þt^sa og einnig tóbaksverzlanir borgarinnar. Að undanskildum Söluturn- inum við Arnarhól, selja þrjár tóbaksverzlanir i bænum munntóbak, það eru verzlan- irnar Bristol, London og Tóbakssalan. En salan er mjög litil, þó alltaf jöfn og stöðug, minnkar hvorki né eykst. Verzlanirnar þurfa sjaldan að panta tóbakið, og það eru sömu kúnnanrir sem koma aftur og aftur. En þó verður þetta tóbak að vera nýtt, þvi það geymist ekki lengi. 1 Afengis- og tóbaksverzlun rikisins fengum við þær upp- lýsingar að i júnilok á þessu ári, hafi verið búið að selja 99 kg af munntóbaki, en á sama tima i fyrra 110 kg. Heildar- magn fyrir það ár voru 212 kg. 1 þeim tóbaksverzlunum sem ekki selja tóbak þessara gömlu Reykvikinga, var okk- ur tjáð, að það væri ekki einu sinni spurt um það. Flestar hafa þær selt það einhvern tima, en gefist upp sökum þess hve litið seldist. — EA/SB Lausar stöður Tvær lektorsstöður i læknadeild Háskóla íslands, önnur i liffærafræði, en hin i vefjafræði, eru lausar til umsóknar. Laun samkvæmt 25. launaflokki í launa- kerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og fyrri störf skuiu hafa borizt menntamálaráðuneytinu fyrir 20. september n.k. Menntamálaráðuneytið, 18. ágúst 1972.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.